Nýja dagblaðið - 15.08.1934, Síða 4
N Ý J A
DAOBLASIB
ÍDAG
Sólaruppkoma kl. 4,19.
Sóiarlag kl. 8,45.
Flóð árdegis kl. 8,05.
Flóð síðdegis kl. 8,20.
Ljósatími hjóla og bifreiða kl.
9,25—3,40.
Sfifn, skrifstolur o. fL
Alþýðubókaaafuiö .. 10-12 og 1-10
þjóðskjalasafniö ....... opið 1—4
pjóðminjasafnið ......... opið 1-3
Náttúrugripasafnið ...... opið 2-3
Landsbankinn ................ 10-3
Búnaðarbankinn .... 10-12 og 1-3
Útvegsbankinn ....... 10-12 og 1-4
Útbú Landsb., Klapparst....... 2-7
Fósthúsið: Bréfapóststofan .. 10-6
Bögglapóststofan ........... 10-5
Skrifstofa útvarpsins 10-12 og 1-6
Landssíminn .................. 8-9
Búnaðarfélagið ...... 10-12 og 1-4
Fiskifélagið (Skrifst.t.) 10-12 og 1-5
Samb. isl. samvinnufél. 9-12 og 1-6
Skipaútg. rikisins .... 9-12 og 1-6
Eimskipafélagið .............. 9-6
Stjórnarráðsskrifst. .. 10-12 og 1-4
Sölusamband íslenzkra fisk-
framleiðenda ...... 10-12 og 1-6
Skrifst. bæjarins .... 9-12 og 1-4
Skrifst. lögreglustjóra 10-12 og 1-4
Skrifst. lögmanns .... 10-12 og 1-4
Skrifst tolistjóra .... 10-12 og 1-4
l'ryggingarst. ríkisins 10-12 og 1-5
Hafnarskrifstofan .... 9-12 og 1-6
Skipaskoðunar og skráningarst
ríkisins ............ 10-12 og 1-6
Hslmsóknartimi sjúkrabúsa:
Landakotsspítaiinn ....... kl. 3-5
Laugarnesspítali .... kl kl. 12^-2
Vifilstaðahælið .. 12(4-2 og 3 (4-4(4
Kleppur ................. kl. 1-5
Fæðingarh., Eiríksg. 37 kl. 1-3 og 8-9
Sjúkrahús Hvitabandsins ...... 2-4
Sólheimar .............. opið 3-5
Elliheimilið ................. 1-4
Næturvörður í Reykjavíkurapóteki
og lyfjabúðinni Iðunn.
Næturlæknir: þórður pórðarson,
Eiríksgötu 11. Sími 4655.
Samgtfngur og póstferðir:
Gullfoss frá Kaupmannahöfn.
Goðafoss tíl Akureyrar.
Suðurland til og frá Borgamesi.
Brúarfoss til Leith og K.hafnar.
Dagskrá útvarpsins:
Kl. 10.00 Veðurfregnir. 12.15 Há-
degisútvarp, 15.00 Veðurfregnir
19.10 Veðurfregnir. — Tilkynning-
ar 19.25 Grammófóntónleikar. 19.50
Tónleikar. -— Auglýsingar. 20.00
Klukkusláttur. Tónleikar (Út-
varpstríóið). 20,30 Erindi: Síldveiði
og síldarsala, I (Jón Bergsveins-
son). 21,00 Fréttir. 21,30 Grammó-
fónn: Schumann: Trio í D-moll.
/99
Þar spila ágætir hljóð-
færaleikendur frá Revkja-
vík n. k. 8unnud«ag og á
hverju kvöldi næstu viku.
Allir velkomnir
JLnná.11
■ Skipafréttir. Gullfoss er væntan-
legur til Vestmannaeyja fyrri part-
inn í dag. Goðafoss var í Reykja-
vík i gær. Brúarfoss fór til Leith
og Kaupmannahafnar i gærkvöldi.
Dettifoss frá frá Hull í fyrrakvöld
áleiðis til Hamborgar. Lagarfoss
kom til Leith í fyrradag. Selfoss
var í Kaupmannahöfn í gær.
Farþegar með e.s. Brúarfoss til
Leith og Kaupmannahafnar í gær:
Gunnlaug Briem, Gunnvör Hall-
quist, Eggert Claessen og frú,
Gunnar Benediktsson og frú, Ámi
Helgason, Ása Hansson, Óskar
Bjarnason, Jón Sólmundsson, Ól-
afur Bjömsson, Gunnar Lejström,
Fanney Guðmundsdótir, Eggert
Guðmundson og fjöldi útlendinga.
Fjölgar kvennaembættum. það
hefir þótt í frásögur færandi’ í er-
lendum blöðum, að rétt nýlega
liafi konur verið gerðar að toll-
þjónum í Englandi i fyrsta sinni
í sögunni.
Botnv. Tryggvi gamli fór á ís-
fiskveiðar í fyrrinótt. Botnv. Gull-
foss kom í gærmorgun af veiðum
og fór í gær áleiðis til Englands
með 1000 körfur fiskjar.
Hekla kom frá Spáni seinni
partinn í gær.
Kolumbus var væntanlegur
norðan fyrir land í nótt.
Jónas Sveinsson læknir er kom-
inn heim úr sumarleyfi sínu.
Hjónaefni. Nýlega hafa opinber-
að trúlofun sína ungfrú Inga
Kjartansdóttir og Hávarður Valdi-
marsson.
Trúlofun. Síðastliðinn fimmtu-
dag opinberuðu tmlofun sína ung-
frú Sveinborg Símonardóttir,
Vatnskoti, þingvallasveit, og Stef-
án Skúlason verzlunarmaður, Sel-
húðum í Reykjavík.
Silfurbrúðkaup eiga í dag frú
Kristín Björnsdóttir og Pétur
Benediktsson Hverfisgötu 61.
þórhallur Sigtryggsson kaup-
félagsstjóri á Djúpavogi er stadd-
ur hér í bænum.
Ágúst Jósefsson heilbrigðisfull-
trúi átti sextugsafmæli í gær.
Grierson lagði á stað á sunnu-
dagsmorgun frá Hull, áleiðis til
Islands, með botnvörpungnum
Derwish, sem er eitt af nýjustu
skipum Hull fiskiflotans. Má bú-
ast við honum snemma á morg-
un hingað.
H. G. Wells, enska stórskáldið
og rithöfundurinn hefir verið á
ferð um Rússland undanfarið.
Meðal annars átti hann þriggja
stunda tal við Stalin, og einnig
átti hann tal við Maxim Gorki
og marga aðra af merkustu mönn-
um Rússa. Bíða mörg blöð í Eng-
landi þess með eftirvæntingu að
heyra hvað þessi mikli höfundur
hafi að skýra frá í sambandi við
dvöl sína i Rússlandi.
Misprentast hafði í blaðinu i
gær í frásögninni um bifreiðar-
slysið númer annarar bifreiðar-
innar. Var i blaðinu RE 758, en á
að vera RE 753.
Við Hreðavatn er eins og kunn-
ugt er einhverjir fegurstu og
nrómantískustu“ staðir hér á
landi.
Verzliö við þá
að öðru jöfnu, sem auglýsa
í Nýja d&gblaðínu
j „Suðurlandið" auglýsir ferð til
Borgarness um næstu helgi. Er
þetta næstsíðasta laugardagsferð
þangað í sumar. Sú nýbreytni hef-
ir verið tekin upp öðru hvoru
undanfarið að hafa „músík um
borð“ og gerir það ferðina
skemmtilegri. þó að lítið dansrúm
sé á skipinu er það vel notað,
þegar gott er veður og gefur hug-
mynd um hve ánægjulegt muni
vera í þessum ferðum á rúmgóðu,
skemmtilegu farþegaskipi. Væru
greiðar hílferðir norður í land frá
Borgarnesi og hraðskreitt þægilegt
skip í förum hér á milli er ekki
efi á að fjöldi manna kysi helzt
að fara þessa leið. Og ætti þá með
batnandi vegum norður að verða
vel hægt að fara frá Reykjavík til
Akureyrar á einum degi.
Dánardægur. 19. marz s. 1. lézt
vestanhafs Sigurmundur Sig-
urðsson frá Stóruvatnsleysu á
Vatnsleysuströnd. Var hann fædd-
ur þar 12. sept. 1865, sonur Sig-
urðar Jónssonar útvegsbónda þar,
og Oddnýjar Hannesdóttur frá
Hjalla i Ölfusi, en hún var móð-
ursystir Sig. Júl. Jóhannessonar.
— þá er nýlátin vestra Guðrún
Helgad., 93 ára að aldri, ættuð
úr Mýrarsýslu. ekkja Einars
Kristjánssonar þaðan.
Eimreiðin 2. li. þ. á. er nýkom-
iö út. þetta er efni hennar: Ljóð
eftir Guðmund Kamban, eru það
áður prentuð kvæði eftir hann,
svo sem hið vinsæla kvæði:
Spunakonan o. fl. Við þjóðveg-
inn eftir ritstj., Galdrabrenna
eftir G. Kamban, er það VI. kafl-
inn úr 4. hefti af Skálholt, sem
út kom á dönsku fyrir tveim ár-
um. Á timamótum, eftir Guðm.
Hannesson, Ferð um ísland, (með
15 myndum) eftir Valdemar Er-
lendsson lækni í Friðrikshöfn á
Jótlandi, Maðurinn frá San
Francisco (saga) eftir Ivan Bu-
nin, Skutulveiðin gamla eftir
Björn Guðmundason bónda í
Lóni, Kvæði eftir Ragnar Jóhann-
esson, I hjarta Bretlands eftir
ritstj., Á Dalamýrum (þættir úr
dagbók Bjarna Sveinssonar),
Raddir, Ritstjá o. fl.
Fyrir skömmu síðan voru þau
Jón Eiríksson skipstjóri á Lagar-
fossi og frú Guðbjört Einarsdóttir
kona hans, á skemmtiferð vestur
í Rauðasandshreppi, æskustöðvum
þeirra hjóna. Fóru þau á hestum
með Patreksfirði út í Örlygshöfn.
A leiðinni da1,t hestur sá, er frú
Guðbjört reið, en við það féll hún
ai baki og handleggsbrotnaði.
Hún var þegar flutt á sjúkrahúsið
á Patreksfirði. Er hún nú fyrir
skömmu komin til bæjarins og
líður sæmilega.
í Singapore hefir stórkostlegur
eldsvoði lagt nokkum hluta bæj-
arins í rústir, og eru fleiri þús-
undir manna húsnæðislausar.
Bókabann í pýzkalandi. Nýskeð
var auglýst bann í þýzkalandi á
hinni merku nýútkomnu bók
„Will War Come in Europe",
eftir ameríska íithöf. H. R.
Knickerbocker. Einnig hafa verið
gerðar upptækar allar þýzkar
þýðingar á verkum Uptons Sin-
clair.
þess utan hefir nýskeð verið
sett bann á ýms erlend blöð, s. s.
ensk, ungversk og checkoslovak-
isk blöð.
Fríða Stefánsdóttír úr Ólafsvík
nú sundkennari við gistihúsið á
Laugarvatni synti nýlega yfir
þvert Laugarvatn frá leikfimis-
húsinu og yfir að Útey. það mun
vera rúmir 2 km. — Fríða tók
kennarapróf s. 1. vor í iþrótta-
skóla Björns Jakobssonar á Laug-
arvatni.
Yngsti sonur Alfonso, fyrv.
Spánarkonungs, hefir farizt af
bifreiðarslysi. Stýrði hann bílnum
sjálfur og þykir rannsókn þegar
hafa leitt það í ljós, að engan
annan sé um slys þetta að saka.
Es. Suðurland
fer til Borgarness næstk.
laug'ardag' og til baka á
sunnudagskvöld. Hljémsveit
skemmtir á skipinu, í Borg-
arnesi á laugardag og að
Hreðavatni á sunnudag.
Uppl. um dvalarstaði í
Borgarf. og farseðlar til
helztu staða héraðsins hjá
Ferðaskrifstofu íslands
Ingólfshvoli, sími 2939
Fjárdráttur, nafna-
fölsun og tvíkvæni
Sparisjóðsgjaldkeri einn í
Kaupmannahöfn, Axel Jensen
að nafni, hvarf fyrir skemmstu,
og sýndi það sig þá, að í sjóð
hans vantaði 12 þús. króna.
Hafði hann greitt 6 mánaða
húsaleigu fyrirfram rétt áður
en hann hvarf, enda var hann
kvæntur maður. Hann var bú-
inn að vera gjaldkeri þessa
sparisjóðs árum saman, og
hafði gengið að eiga núverandi
konu sína árið 1926. — Við
rannsókn þessa máls kom það í
Ijós, að gjaldkerinn hafði hlot-
ið stöðu sína undir fölsku
nafni, og gengið undir því
jafnan síðan. Hafði hann
skírnarvottorð og önnur skil-
ríki manns eins, sem einnig
heitir Axel Jensen, og heima á
á Odense á Fjóni.
Lögreglan hóf þegar leit að
Axel Jensen, og gekk lengi svo,
að ekkert vitnaðist um hann.
Loks var hann tekinn fastur í
Árósum, og kom fyrir rétt ný-
lega. Hann játaði þegar á sig
fjárdrátt, nafnstuld og tví-
kvæni; hafði gengið að eiga
fyrri konu sína 1908, en
strauk frá henni 1911 eftir
þriggja ára hjónaband. Þegar
Jensen var tekinn hafði hann
á sér mikið fé, og hafði ekki
eytt nema um 800 kr. af fé
því, er hann hafði á brott með
sér úr sparisjóðnum. (FÚ)
Kappleíkurinn
í gærkveldí
Fram vann V íking
með 8 c 0.
Kappleikurinn byrjaði kl. 8.
í byrjun var allgóður leikur
hjá Víking, en Fram sótti sig
fljótt og bar af hinum eftir
það. í fyrri hálfleik kenndi
Brandur Brynjólfsson, í liði
Víkings, lasleika og gekk úr
leik. Ætti það að vera venja
allra félaga að senda ekki aðra
í kappleik en þá, sem hefðu
læknisvottorð. Varamaður kom
enginn í stað Brands.
I seinni hálfleik féll Gunnar
Hannesson (Víking) á mark-
súlu og meiddist í öxl. Var
hann þegar fluttur í Lands-
spítalann.
Að loknum fyrri hálfleik var
orðið alldimmt, og í leikslok
var svo að segja komið myrk-
ur. Er það vítavert að leikur
byrji svo seint, að keppendur
njóti sín ekki fyrir myrkri, og
að áhorfendur hafi ekki gagn
af kappleiknum.
f Odýrn §
aaglýsingarnar.
Kaup og sala
Lítið hús í eða við miðbæ-
inn óskast til kaups. A. v. á.
Nýtt orgel úr mahogni til
sölu með tækifærisverði. Uppl.
í síma 4423.
Nýtt hvalrengi daglega í
Saltfisksbúðinni. Sími 2098
Saltpétur
til að bera á nýslegin tún,
fæst í Kaupfélagi Reykjavíkur.
Með tækifærisverði seljast
tveir klæðaskápar, tvísettur og
þrísettur, úr birki. Uppl. Mið-
str. 5, niðri, kl. 7—9 síðd.
í nestið: Sælgæti, tóbak, öl,
ávextir, nýjir og niðursoðnir.
Niðursoðið kjöt, fiskur og sar-
dínur. Einnig góður harðfisk-
ur, riklingur o. m. fl.
Kaupfélag Reykjavíkui'
_________________Sími 1245.
4—5 manna tjald, notað,
óskast til kaups nú þegar. A.
v. á.
Gúnimísvampar góðir til að
pvo glugga, glasaþurkur, gólf-
klútar og tausnúrur.
Kaupfélag Reykjavíkur.
Freðfiskur undan Jökli, og
glænýtt ísl. smjör, komið í
verzlun Kristínar J. Hagbarð.
Húsntoði
Tvö herbergi og eldhús ósk-
ast til leigu 1. október eða fyr.
Tilboð merkt „Sjómaður“ send-
ist afgr. Nýja dagblaðsins.
Lítið herbergi í Suðvestur-
bænum óskast 1. okt. A. v. á.
1—2 herbergi og eldhús með
þægindum óskast 1. okt. Uppl.
í sím'a 4259.
Tvö herbergi og eldhús með
öllum þægindum óskast 1. okt.
sem næst miðbænum, handa lít-
illi fjölskyldu. A. v. á.
1 herbergi og eldhús eða með
aðgangi að eldhúsi óskast strax
Uppl. í síma 3328.
II
Tilkynningar
Beztu og ódýrustu skóvið-
gerðir fáið þið á skósmíða-
vinnustofunni Vesturgötu 51
hjá Guðjóni Þórðarsyni.
Til Stykkishólms
hvern mánudag og fimmtu-
dag.
Aðalstöðin. — Sími 1383.
Tilkynning.
Ég hefi ráð á úrvals töðu.
Ef þið kaupið, verð ég feginn.
Hún er iðgræn út úr hlöðu, eins
og þegar hún var slegin.
Jónas Jónsson, Grj ótheimi.
„Amatörar“
Verið vandlátir með vinnu
þá er þér kaupið. — Látið
mig framkalla, kopiera og
stækka myndir yðar og berið
það saman við það, sem þér
áður hafið reynt.
Ljósmyndastofa
SIG. GUÐMNUDSSONAR
I.ækjargötu 2 Simi 1980