Nýja dagblaðið - 18.08.1934, Blaðsíða 1

Nýja dagblaðið - 18.08.1934, Blaðsíða 1
NYJA DAGBIAÐIÐ 2. ár. Reykjavík, laugardaginn 18. ágúst 1934 194. blað Nokkur dæmi um oyðslu í ónýtar götur Það hefir verið bent allræki- lega á það hér í blaðinu, hversu háttað er stjórn íhalds- ins á gatnagerð bæjarins. I malbikaðar götur er notað grágrýti, í stað blágrýtis, oft léleg tjara, og framkvæmd verksins að öðru leyti ábóta- vant. Þessvegna verður að rífa þær upp ár eftir ár til viðgerð- ar. Götur eru „púkkaðar“ fyrir stórfé, án þess þó að ending þeirra aukist að neinu veru- legu leyti, en viðhaldið gert með því mun dýrara. Ekkert er hirt um að halda malbomu götunum' ryklausum með vegolíu, né leggja með þeim gangstéttir, sem myndi þó bæta þær stórlega, einkum fyrir umferð gangandi fólks. 1 þessum efnum er þó ekki sízt áberandi ráðsmennskan með „púkkuðu“ götumar. Aukakostnaðurinn, sem af „púkkuninni" leiðir, er gífur- legur, borið saman við það gagn, er hann gerir. Hér skulu nefndar nokkrar götur, sem þannig hafa verið gerðar, og sá aukakostnaður, sem „púkkunin" hefir valdið á' hverri þeirra fyrir sig, eftir þeim upplýsingum, er blaðið hefir getað fengið. Njálsgata vestan Frakkastígs......... Bergþórugata vestan Barónsstígs . . . Grettisgata vestan Frakkastígs....... Frakkastígur milli Laugav. og Njálsg. Freyjugata austan Njarðarg........... Garðastræti milli Túng. og Bárug. . . Ránargata austan Stýrimaxmastígs .. Bárugata ............................ Ægisgata milli Vesturg. og öldug. . . Öldugata............................. Smáragata............................ Skúlagata frá Barónsst. að Sláturf. . . Seljavegur........................... Fjólugata............................ Tryggvagata (vestast)................ Þessar 15 götur og götuhlut- ar hafa þá kostað bæjarsjóð yfir 130 þús. kr., en margar fleiri götur mætti nefna, sem eins eru gerðar, og er því eyðslan í „púkkaðar“ götur miklu meiri en þetta. Væri hér um varanlega gerð gatna að ræð, væri ekkert við þessu að segja. En til þess bæjarbúar geti gert sér nokkra hugmynd er varið, er rétt að þeir beri varið, er rétt að þeir beri saman útlit á nokkurra ára „púkkuðum“ götum og mal- boraum götum. Munu þeir þá komast að raun um, að mun- uro kr. 8400 12600 6000 4700 10500 4600 8700 12600 5400 21000 5000 15000 6700 8000 6000 urinn liggur einkum í því, að gangstéttir vantar með mal- bornu götunum, en þær eru heldur ekki reiknaðar með í verði „púkkuðu" gatnanna hér að framán. Má benda á Tryggvagötu fyrir neðan vél- smiðjuna „Hamar“ sem dæmi um endingu þessara gatna. Þegar svo „púkkið“ fer að brotna upp eins og þar er, er venjulega borinn „salli“ yfir, og allt jarðað! Er þá komið í sama farið og áður en gatan var „púkkuð“, því „púkkun- ina“ er ekki hægt að nota sem undirlag undir malbikun. Olía búin til úr saltvatni Lóndon, 17./8. FÚ. Franskur vísindamaður í Rouen hefir skýrt frá því, að sér hafi tekizt að framleiða olíu eða benzínlíki úr saltvatni, og hefir boðið uppgötvun sína til sölu. Le Matin segir, að franski hermálaráðherrann, flugmála- ráðherrann og aðrir leiðtogar hafi skoðað verkstæði vísinda- manns þessa í Rouen og reynt vökvann. í blaðaviðtali segir vísindamaðurixm, að sér hafi upphaflega dottið í hug þessi framleiðslumöguleiki út frá einfaldri athugun á litlu litlu náttúrufyrirbrigði, s. s. því, að umhverfis alla steina eða kletta, sem olía er í, megi finna saltvatnslög. Hann reyndi að endurtaka í rannsöknarstofu sinni það sama, sem gerðist úti í náttúrunni, og það varð til þess, að hann fann mjög einfalda aðferð til þess að framleiða bensínlíkið. Hítler hleypir út úr fangabúðuin London, 17./8. FÚ. Vegna náðunar þeirrar á pólitískum föngum, sem Hitler hefir boðað, var þúsundum af föngum sleppt í Berlín einni í dag. Berlín, 17./8. FÚ. Útbreiðslumáláráðuneytið þýzka mælir svo fyrir, að flaggað skuli á öllum opinber- um byggingum frá deginum í dag til sunnudagskvölds, vegna þjóðaratkvæðisins, og er skor- að á alla borgara ríkisins að gera slíkt hið sama. London, 17./8. FÚ. Þýzka stjórnin hefir sent stj órnarnefnaum í Saar kvört- un um það, að sum blöð í Saar hafi notað andlát Hindenburgs til þess að óvirða Þjóðverja og leiðtoga þeirra. Þýzka stjóm- in lætur í ljósi undrun sína yfir því, að Saai-nefndin skuli ekki hafa vítt slíkt framferði. Ofriðarhættan í Asíu London, 17./8. FÚ. Stjórnin í Manchukuo hefir sent Sovét-stjóminni kvörtun um það, að Manchukuoborgur- um hafi verið rænt, að Sovét- flugvélar hafi flogið yfir lönd Manchukuo og að Sovétvarð- menn hafi skotið á Manchukuo skip á Amur-ánni. Talsmaður utanríkismála- ráðuneytisins í Tokio hefir sagt, að Japanar telji nóg að senda Rússum aðvaranir vegna þessara atburða. Hann segist ennfremur fullyrða það, að Japanar hafi á engan hátt í hyggju að taka austur-kín- versku jámbrautina. Kjðtverð hækkar á heifflsmarkaðinum London, 17./8. FÚ. Landbúnaðarráðuneyti Banda- ríkjanna hefir birt skýrslu um tjón það, sem hlotist hefir af þurkunum og hitunum þar í sumar, og er það talið méira en nokkru sinni áður hefir orð- ið þar í landi af völdum þurka. Kjöt- og nautgripabirgðir eru sagðar hafa rýrnað mjög, og er því haldið fram, að kjötverð hljóti að haldast mjög hátt fyrst um sinn, og að minnsta kosti fram eftir næsta ári, og ennfremur að verð á komi muni haldast mjög hátt, fi-airi á næsta vor. 99 Páfi“ Búddahtrnarnianna talar 1 útvarp Chicago full af herliði Vinnadeilur og verkföll magnast viðsvegar um Bandarikin. London, 17./8. FÚ. í Bandaríkjunum gengur sí- felt á verkföllum og verkfalls- hótunum. Mest hætta stafar nú sem stendur af verkfalls- hótun sambands verkamanna x klæðaverksmiðjum. Verkfallið á að hefjast 1. sept., ef ekki hefir náðst samkomulag fyrir þann tíma og mun ná til hálfr- ar miljónar verkamanna. Þeir krefjast hækkaðs kaups og styttri vinnutíma, en samband- ið krefst þess einnig, að mega skipa fulltrúa í i-áð það, sem hefir yfirumsjón með þessari iðngrein í NRA kerfinu. Meginástæða verkfallanna í Bandaríkjunum eru deilur um viðurkenningu á rétti verka- mannafélaganna. Vinnuveitend- urnir vilja verksmiðjufélög, en 1 leiðtogar verkamanna vilja verklýðsfélög. NRA hefir í heild sinni hallast að verk- smið j uf élögunum. Ameríska verkamannasam- bandið hefir lýst því yfir, að það styðji klæðaverksmiðju- menn í kröfum þeirra. Forseti sambandsins hefir sagt, að hægt mundi hafa verið að kornast hjá mörgum deilum og árekstrum um þessi mál upp á síðkastið, ef vinnuveitendur hefðu viljað faílast á það skipulag að veita verkamönn- unum ágóðahlut. Verkfall flutningaverkamanna í Minneapolis heldur áfram. Verkamálaráðuneytið hefir vex-ið beðið þess, að láta flutn- ingamennina sjálfa skera úr því með atkvæðagreiðslu, hvort þeitr vilji heldur vera í verk- smiðjuíélagi eða verklýðsfélagi. öflugur lögreglu- og her- vörður er nú hafður um alla Chicagoborg til öryggis, og til þess að verjast því, að trufl- anir verði af verkfalli bíl- stjói-a, sem stendur yfir í borginni. I Philadelphiu hafa verka- menn hjá stóru olíufélagi sent áskorun til verkamálaráðuneyt- isins, um viðurkenningu á verklýðsfélagaréttinum, og í York í Pennsylvaniu hafa verkamenn í stórri vélsmiðju boðað verkfall. Á vesturströnd- inni hafa verkamenn í fisk- og niðui-suðuverksmiðjuxri í Ore- gon kx-afizt kauphækkunar.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.