Nýja dagblaðið - 18.08.1934, Page 3

Nýja dagblaðið - 18.08.1934, Page 3
M Ý J A DAOBLA9IB S Lögreglumálin fyr og nú Um nokkra undanfarna daga hefir Jón Kjartansson *ritstjóri Mbl. ráðist á Hermann Jónas- son dómsmálaráðherra fyrir framkvæmd hans á lögreglu- málum Reykjavíkur og lands- ins alls. Sjaldan hafa meiri undur gerst en þetta. Jón Kjartans- son ræðst á Hermann Jónas- son út af framkvæmd lög- reglumála. Ég álít að úr því Mbl. óskar eftir samanburði á þessum tveim yfirmönnum lögreglunn- ar og starfsháttum þeirra, þá sé rét t að gera það. Og sá samanburður er meira en mannjöfnuður. Hann er um leið samanburður á tveim lífs- stefnum og tveim flokkum, Framsóknarflokknum og í- haldsflokknum. Jón Kjartansson var um stund nokkurskonar lögreglu- stjóri í Reykjavík undir vernd- arvæng íhaldsins. Aldrei hefir þekkst aumari lögreglustjóri en þá var. Jón Kjartansson naut lítils álits persónulega. Hann var vitanlega lítið gef- inn. Hann hafði jafnan tekið léleg próf. Hann hafði engu framhaldsnámi sinnt. Þegar háskólinn lét Jón eins og aðra nemendur fá utanferðarstyrk, þá vanrækti hann að nota styrkinn sér til menningar, en notaði dvalartímann til að komast inn á danska kaup- menn, sem áttu Mbl. og ger- ast vikapiltur þeirra og verj- andi að hagsmunamálum þeirra. Þannig endaði Jón Kjartansson starf sitt við lög- reglumál á íslandi. En meðan Jón var að nafni til yfirmaður 1 ögreglunnar, voru öll þau mál í hinu mesta öngþveiti. Lögreglan var fá- rhenn, illa búin að klæðum og tækjum, lítils megnandi til allra átaka og í fullkominni fyrirlitningu í bænum. Aldrei heyrðist frá Jóni Kjartans- syni eitt orð um endurbætur á kjörum lögreglunnar, eða ósk um að auka virðing hennar og vald. Þetta var skiljanlegt. Jón skorti algerlega menningu til að sinna þvílíkum málum. Hann var algerlega fákunnandi um allt sem laut að slíkum málum. Hann var auk þess eins og íhaldsmenn yfirleitt, gersamlega áhugalaus um allar umbætur á löggæzlu og rétt- arfarsmálum. Fyrirlitningin á Jóni og starfi hans var svo rótgróin, að íhaldsmeirihlutinn í bæjarstjóm Reykjavíkur vildi alls ekkert gera fyrir lögregluna, meðan yfirstjórn hennar væri svo frámunalega eymdarleg. Ofan á allt annað vantaði Jón Kjartansson per- sónulegt hugrekki. Allir vissu að svo var, eftir að Jón hafði lagt á flótta yfir skurði og gaddavírsgirðingar í hinu svo- nefnda „drengsmáli“, við það að einn af borgururri bæjarins potaði með kollóttu priki út I milli stafs og hurðar á húsi | sínu. Afleiðingin af bleyðiskap Jóns varð sú, að bærinn var settur í umsátursástand, út af máli sem var algerlega rangt í sjálfu sér*), landinu bakað stórkostlegt peninga- og álits- tjón. Ef Jón Kjartansson hefði haft þrek eða menningu á við meðal lögregluþjón eins og þeir eru nú, þá myndi ekkert hafa orðið úr því uppþoti. Þegar Jón Kjartansson skyldi við lögreglumalin í Rvík voru þau öll einkskonar stækkuð mynd af honum. Þar réði andlegur vanmáttur, menningarleysi og kjarkleysi. Jón Kjartansson var skilget- inn sonur síns flokks og sinn- ar stefnu. Hann hafði samein- aða alla eiginleika íhaldsins. Að því leyti var þessi maður eiginlega einkar vel fallinn til að vera höfuðmálpípa síns flokks, og það hefir hann orð- ið. Lögreglumál Rvíkur voru í jiessu öngþveiti þar til Her- mann Jónasson tók við for- stöðu þeirra mála. Undir hans stjórn og fyrir hans forgöngu hefir lögreglan í Rvík um- myndast og endurfæðst, ef tala mætti á máli Guðrúnar Lárusdóttur. Skulu nú þau at- riði rædd í fáum dráttum. Framsóknarmenn og Al- þýðuflokkurinn komu fram á Alþingi 1928 skiftingu á starfi lögreglustjóra, þannig, að toll- málin voru aðgreind. Hermann Jónasson hafði þá um nokkur ár verið fulltrúi hjá bæjarfó- geta í Reykjavík. Ég fór þess á leit við hann, að hann tæki að sér forustu lögreglunnar í Rvík og freistaði að koma henni í nútímahorf. Hermann tók þetta að sér og hann framkvæmdi það á þann hátt, að jafnvel svæsnustu andstæð- ingar hans hafa orðið að við- urkenna yfirburði hans og framkvæmd í þessu efni. Ihaldsmenn höfðu eins og rétt var, mikið álit á H. J. þegar á unga aldri. Þeir buðu honum inn í flokk sinn, og vildu gera hann að bæjarfull- trúa sínum og forgöngumánni. Hermann neitaði þeirri ósk, og gaf sig ekki við stjórnmálum fyr en kynni hans af vanda- málum þjóðfélagsins sönnuðu honum að dugandi maður gæti aldrei unnið með íhaldinu. En íhaldið hafði samt séð rétt í þetta sinn. Það vissi að H. J. hafði unnið fyrir sér með miklum dugnaði gegnum menntaskóla og háskólanám, að honum hafði gengið námíð vel, að hann hafði tekið há próf í skóla, að hann var manna reglusamastur, vilja- sterkur og ákveðinn, að hann *) Fyrir nokkrum árum kom „drengurinn" aftur til landsins með vottorð frá einum frægasta spítala í Danmörku um að hon- um hafði fullbatnað augnsýkin á nokkrum vikum. Sást þar vesöld Guðm. Hannessonar. J. J. Itafði auk þess staðið í allra fremstu röð íþróttamanna í landinu, þegar hann var á þeim aldri, sem menn vinna sigra í kappleikjum. Jafnskjótt og Hermann Jón- asson tók við yfirstjóm lög- reglumálanna breyttist lög- reglan og allt viðhorf borgar- anna til löggæzlumálanna. — Bæjarstjórn gekk inn á að fjölga lögreglunni og bæta kjör hennar. H. J. valdi í lögregl- una hina vöskustu menn og glæsilegustu. Ilann kenndi lög- reglunni og stýrði henni. Hann gaf lögreglunni trú á gildi starfsins og virðuleik þess. í stað þess að Jón Kjartansson hafði skilið við lögregluna, sem niðurbrotinn, fyrirlitinn og útskúfaðan mannhóp, skildi H. J. við lögregluna í Rvík þannig, að hún er valinn og vel menntur hópur, sambæri- leg við jafnstóran flokk lög- reglumanna í hvaða landi sem er. Aðrir kaupstaðir fundu, að nú var eitthvað til Reykjavík- ur að sækja í lögreglumálum og hafa á síðustu árum reynt að koma sama sniði á lög- gæzlumenn annara kaupstaða. Hermann Jónasson hefir skapað og mótað lögregluna í Rvík. Hann hefir hafið ís- lenzka lögreglu úr eymd og niðurlægingu þeirri, sem hún var áður í. Hann hefir gert lögregluna í Rvík að einum af þeim þáttum menningarlífs Is- lendinga, sem þjóðin er stolt af að vita að hún á í fórum sín- um. En H. J. hefir gert fleira fyrir ísl. lögreglumál. Ihaldið vildi koma upp her til að berja á verkamönnum og sjó- mönnum. Ólafur Thors vildi vopná í þessu skyni 600 menn haustið 1932 og láta þá hafa sundhöllina að bækistöð. Her- mann Jónasson var þessu al- gerlega mótfallinn. Hann hafði kynnt sér skipulag lögreglu- mála í öðrum' löndum! betur en nokkur annar Islendingur. Hann var aðalmaður í nefnd þeirri, semi undirbjó lögin um löggæzlumenn á flokksþingi Framsóknarmanna 1933. All- ur Framsóknarfl. bæði á flokksþingi og á Alþingi 1933 sameinaðist um kjarnann í tillögum Hermanns Jónasson- ar, þ. e., að hver kaupstaður hefði 2 lögreglumenn á hverja 1000 íbúa, eins og í öðrum Norðurlandabæjum, og að ríkið veitti lítinn, skilorðsbundinn styrk til þessarar lögreglu, þeg- ar hún væri svo vel úr garði gerð. Alþingi 1933 gekk í að- alatriðinu inn á grundvöll H. J., en íhaldinu tókst þó að koma að nokkrum skemmdum á skipulaginu, sem væntanlega verða afmáðar á þingi nú í vetur. íhaldið ætlaði að koma upp ríkisher, sem lægi méð ó- hemjuþunga á almennum gjaldendum, en sem væri í raun og veru beint á móti vinnandi stéttum landsins, bændum og verkamönnum. Þessi liðssamdráttur á kostn- að alþjóðar var birtur í þeirri áætlun íhaldsins, að afnema frelsi og lýðræði á íslandi. Hermanni Jónassyni tókst meðan hann var utanþings- maður, að hafa aðalforustu í þessu máli. Honum mun vænt- anlega verða enn meira á- .gengt þegar hann eí bæði þingmaður og formaður í stjórn landsins, og hefir í sinni stjórnardeild einmitt þau mál, sem hann hefir unn- ið að með svo mikilli giftu og manndómi. Ef kommúnistar eða naz- istar hyggja á óeirðir, þá mun hvorugur flokkurinn þurfa að búast við samskonar viðhorfi hjá dómsmálastj órn landsins eins og þegar Jón rit- stjóri Mbl. flúði undan kollótta prikinu, sem stungið var milli stafs og hurðar. Núverandi lögi-egla í Rvík er sterk og vel æfð. Stjórnarskráin gefur hverri stjórn heimild til að draga lið saman og verja ör- yggi borgaranna. Lögreglan í Rvík verður liðsforingjar í þeirri sveit. Ef íhaldið espar upp óþjóðalýð til að gera á- rásir á þjóðskipulagið, þá er nú sterk aðstaða til að halda uppi friði í landinu. Að baki núverandi stjórnar standa lýð- ræðisflokkar landsins. Þar er nægilegt mannval til að styðja hina ágætu föstu lögreglu sem til ér í Rvík, ef kom- múnistar eða nazistar vilja hefja uppreist móti lögum og rétti í landinu. líg vona að Jón Kjartansson sjái, af þessu stutta yfirliti, að honum er til lítils að þreyta mannjöfnuð við Hermann Jónasson um löggæzlumál eða önnur efni. Munurinn er þar eins og þegar Bjöm stóð að baki Kára. Mbl. og íhaldinu yfirleitt ætti að vera ljóst, að þögnin hæfir bezt frámkomu þess í lögreglumálum, og ekk- ert er hættulegra flokknum en að haga svo leiknum, að kastljósið falli á þessa tvo menn saman, sem fulltrúa Framsóknar og íhalds í lög- gæzlumálunum. Því meir sem vegin eru og métin verk Her- manns Jónassonar og Jóns Kjartanssonar, sem yfirmánna lögreglunnar í Rvík, því gleggri verður munurinn um mannaval, stefnumun og vinnubrögð þeirra flokka, sem hafa þessa tvo menn fyrir oddvita í þjóðmálastarfinu. J. J. Verzlið að öðru jöinu viö þá sem auglýsa í iNýJa dagblaðinu INÝJA DAGBLAÐIÐ Utgefandi: „Blaðaútgáfan h.f." | Ritstjóri: Gísli Guðmundsson, Tjarnargötu 39. Sími 4E45. Ri tstj órnarskrifstofumar Laugav. 10. Símar 4373 og 2353. Afgr. og aúglýsingaskrifstofa: | Austurstræti 12. Sími 2323. | Áskriítargj. kr. 1,50-á mánuði. | í lausasölu 10 aura eint. l’rontsmiðjan Acta. wmtsattfe^x<i»iaengwiipm3a»^3^'?iaMBEMaM KnattspyrnadéHur L. S. i Morgunbiaöinu Ég er hræddur um að leik- dómari Morgunblaðsins, hr. Lárus Sigurbjörnsson hafi farið félaga vilt þegar hann ritar um fyrsta kappleik Reykjavíkurkeppninnar, er var háður milli Fram og Víkings. Ég býst við að hann hafi ætl- að að skamma sitt eigið félag, Víking, en ekki Fram, því í því hefði eitthvert vit verið, en að fara að skamma Fram fyrir ,brutalan“ leik nær ekki nokkurri átt, og þvílíkri heimsku eða hlutdrægni, hvort sem það nú er, má ekki vera ómótmælt. Ég get fallist á það að leikurinn var ekki skemmti- legur, til þess var hann allt of ójafn. Framararnir höfðu svo mikla yfirburði yfir Vík- ingana, að leikur milli þessara félaga gat ekki orðið skemmti- legur, en það að Framararnir hafi leikið ódrengilega eru al- ger ósannindi. Þeir léku bæði drengilega og vel, því þó það óhapp vildi til að tveir menn meiddust í leiknum, þá finnst mér það mjög ódrengilegt hjá L. S. að reyna að koma inn hjá almenningi að það hafi verið af völdum Fram-manna. Það t. d. að annar pilturinn fær blóðuppgang, getur ekki ■ undir nokkrum kringumstæð- um verið þeim að kenna. Ef L. S. vill einhverjum um kenna, þá ætti hann fyrst og fremst að ásaka sitt eigið fé- lag fyrir að láta mann leika í knattspymukappleik, ef hann er ekki hraustur fyrir brjósti, og meira að segja að senda eftir manninum alla leið til Stykkishólms, til þess að láta hann keppa í erfiðum knatt- spyrnukappleik. Um hinn manninn er það, að segja, að hann keniur á kasti og ætlar sér að henda sér á Frammann (Friðþj. Thorsteinsson) en Frammaðurinn er það snar, að hann getur vikið sér undan og í staðinn fyrir að lenda alveg beint á hann kemur Víking- urinn skáhalt við öxlina á honum, en þá er krafturinu svo mikill á Víkingnum, að hann lendir á annari mark- stönginni og hún var náttúr- lega harðari viðkomu heldur en Frammaðurinn, en því var- aði Víkingurinn sig ekki á og því fór sem fór. En út yfir tekur þó þegar þessi leikdóm- ari Morgunblaðsins vill lcoma því inn hjá almenningi, að sökin hafi verið hjá Fram- mönnum, þar kemur svo mik- Framh. á 4. síðu

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.