Nýja dagblaðið - 25.09.1934, Page 2
1
N Ý J A
DAOBLAÐIS
Nýtt dilkakjöt
úr Dalasýslu seljum við 1 heilum skrokkum
oæstu daga.
Kfötverzl. Heröutoreid
Dansskóli
r
Asu Hanson
byrjar fyrst í október.
Sjáið auglýsinguna
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og nluttekn-
ingu við fráfall og jarðarför móður okkar og tengdamóður,
Hólmfríðar Pálsdóttur.
Guðlaug Hjörleifsdóttir. Sigurður Kristinsson.
Helga Jónsdóttir. Jakob Kristinsson. Lára Pálmadóttir.
Aðalsteinn Kristinsson. María Jónsdóttir.
Fríkirkjuveg 7
Sími 4565
í glugga hjá Eymundsen.
TWO NEW ENGLISH BOOKS
ENGKLISH FOR ICELAND, Containing Rules for Pron-
unciation, Help in using the
Dictionary and only those
parts of Grammar which
differ from the Icelandic,
with Explanations of com-
mon Idioms and some Read-
ing Exercises with Remarks
FORTY STORIES, From short and easy to longer and
more difficult. Bav
Howard Little
Útvarpstæki
uýjar gerðir komuar
r- á markaðinn. Yerðið
töluvert lækkað.
é
Tækin fást með hag-
stæðum greiðsluskil- —=
málum í ■ '■■■-=
Viðtækjaútsöluuni
Tryggvagötu 28
BEZTU CIGARETTURNAR í 20 stk.
PÖKKUM, SEM KOSTA
kr. 1.20
— ERU
COMMINDfR
WESTMINSTER.
VIRGINIA.
OIGARETTUR
Þessi ágæta cigarettutegund fæst ávalt
í heildsölu hjá
TÖBAKSEINKASÖLU RÍKISINS
Búnar til af
Westminster Tobacco Company Ltd.
LONDON.
Veggfódur
Mjög fjölbreytt úrval var að koma.
Nýjasta tízka.
Uálning & Jarnvörur
Sími 2876 Laugaveg 25 Sími 2866
Allar upplýsing- A i h A
ar í síma \J/[ pv IS
Tjarnargötu 16, g| 1 | i gf
eftir kl. 20>/2. V/ IV/ V
Uppboð.
Við opinbert uppboð, er
fram fer við Flugskálaveg í
Vatnagörðum, miðvikudaginn
26. þ. m., kl. 3V-> síðd., verður
celt til burtflutnings, flug-
mannahúsið.
Greiðsla fari fram við ham-
arshögg.
LÖGMAÐURINN
1 REYKJAVÍK.
Nýkoxnið
mikið urval
af allskonar vörum
til tækitserÍBgjafa
Haraldur Hagan
Sími 3890. Austurstr. 3.
DÍVANAR, DÝNUR og
alls konar stoppuð hús-
gögn. — Vandað efni.
Vönduð vinna.
Vatnsstíg 3.
Húsgagnaverzlun
Reykjavíkm-.
Fyrirspurn
til stjórnar I. S. I.
í dönskum blöðum! hafa kom-
ið fram! margar rangar frá-
sagnir um íslenzka íþrótta-
menn og íþróttavöllinn hér, út
af komu H. I. K. hingað í sum-
ar.
Hefir stjóm íþróttasam-
bands íslands gert nokkuð til
að leiðrétta þessar röngu frá-
sagnir? Eða ætlar hún að gera
það, og þá hvenær? Eða finnst
henni ekki ástæða til að leið-
rétta slíkar frásagnir sem
þessar t. d.:
að yfirborð íþróttavallarins
sé storkin hraunleðja,
að það sé ekki í fyrsta sinn
sem K. R. gengur út af leik-
velli í kappleik,
að íslenzkir knattspyrnu-
menn leiki með vetlinga á
höndum,
að við séum ekki í F. I. F. A.
o. s. frv. Þetta eru aðeins fá
dæmi gripin af handahófi.
Ef til vill er stjórn í. S. í.
búin að leiðrétta þessar röngu
frásagnir danskra blaða þó ég
hafi ekki orðið þess var. En
ef svo er, vill þá ekki stjórnin
segja til þess í hvaða blaði eða
blöðum hún hefir gert það og
hvenær? N.
Málalok
Út af grein frú Aðalbjargar
Sigurðardóttur, „Hvert er deilu_
efnið?“ í Nýja dagblaðinu 20.
og 21. þ. m. vil ég taka þetta
fram:
1. Frúin talar um „laga-
ákvæðin um sérgreinamar“
sem ekki hefðu mátt ganga í
gildi fyr en kennaraskólinn
hefði fengið framhaldsdeildir.
Ég þekki ekki þessi laga-
ákvæði, hygg að þau séu ekki
til, og skil því ekki hvað frúin
á við.
2. Þeirri ásökun frúarinn-
ar, að ég vilji flæma fólk frá
barnaskólum landsins, er þar
hefir starfað við góðan orðstír
svo árum skiptir, hirði ég ekki
um1 að svara. Ég vænti að þeir,
er lesið hafa greinar mínar,
finni lítið tilefni til slíkra um-
mæla.
3. Frúin segir, að ekki hefði
söngkennari verið ráðinn nú að
skólunum, ef ekki hefði átt að
tryggja sér starfskrafta þess
manns, er skólanefndin mælti
með, og eigi hann að hafa um
hálfan kennslustundafjölda
móts við aðra kennara.
Það hefir þá verið rétt
hermt, að engan söngkennara
vantaði til skólanna. En þarna
er þá búið til starf handa
ákveðnum manni, vegna hæfi-
leika hans. Það er vel, þegar
ríki og bær hafa ráð á að sýna
góðum starfsmönnum slíkan
sóma.
4. Frúin segir: „Því miður
hefir Sigurvin lagabókstafinn
með sér“. Þar með hefir hún
þá játað, að gerðir skólanefnd-
ar í þessum efnum væru á
móti lögum. Þessi játning er
sönnun þess, að ég fór með
rétt mál, skólanefndin með
rangt, þar sem ég vítti það að
hún mælti með réttindalausum
umsækjendum í kennarastöður.
Um þettá hefir deilan staðið,
og eru því allar mótbárur frú-
arinnar þýðingarlausar. I sam-
ræmi við þenna málstað minn
hefir fræðslumálastjóri og
kennslumálaráðherra afgreitt
málið, með því að taka ekki til
greina meðmæli skólanefndar
með þeim kennurum.
Ég læt hér með lokið skrif-
u m mínum um málið nema
að eitthvert nýtt tilefni gefist.
Umrætt deilumál er afgreitt.
Kennarastéttin hefir haldið
hlut sínum. En hún má vera á
verði framvegis, eigi réttur
hennar ekki að verða minnkað-
ur.
Sigurvin Einaisson.
Allt með islenskum skipum! •§*
Margt er Ifkt
með skyldum
Ætla þeir Valtýr og Jón
Kjartansson að hætta
að éta kjöt og fara að
lifa á „skepnufóðri“
eins og Sigurjón á Ála-
fossi?
Þeir Morgunblaðsmenn hafa
birt mynd af Sigurjóni á Álar
fossi, sennilega til að sýna
það, að hann sé enn lifandi og
í sæmilegum holdum, þó hann
hafi lifað mestmegnis á
„skepnufóðri“ undanfarin 16
ár.
Grein þessi er einn liður í
baráttu þeirra Jóns Kjartans-
sonar og Valtýs til að æsa
bæjarbúa gegn því að kaupa
kjöt. Þeir þora ekki að ganga
hreint til verks, heldur halda
þeir sýningu á Sigurjóni og
eftir honum eiga svo sanntrú-
aðir að breyta.
Það getur svo sem1 vel verið
að þeir þrífist vel á „skepnu-
fóðrinu“ Jón og Valtýr, svona
hvað holdafar snertir, en ef þvl
skyldi „slá inn“ gæti verið
hætta á ferðum, því „Moð-
hausinn“ og „Fjólupabbinn“
méga ekki mikið missa. —
Meðal annara orða Sigurjón
sæll. Hvað mundir þú segja við
því, ef sveitabændur neituðu
sér um að kaupa dúkana þína
eins og þú neitar þér um' kjöt-
kaupin ? Þeim hefir sem sé
ekki ennþá tekizt að framleiða
einungis ull á sauðfénu. Það
fylgir alltaf dálítið af kjöti
méð. XX.
Gullfoss
fer í kvöld um Vestmannaeyj -
ar og Austfirði (Eskifjörð,
Norðfjörð og Seyðisfjörð).
Þaðan til Osló og Kaupmanna-
hafnar.
Farseðlar óskast sóttir fyrir
hádegi í dag.