Nýja dagblaðið - 13.10.1934, Blaðsíða 1
Mk DAGBIAÐIÐ
2. ár.
Reykjavík, laugardaginn 13. október 1934.
243. blað
Einn áS þeim mönnum sem seldi Lárusi Jóhannessyni
kröfu á Afengisverzlun ríkisíns var Rosenberg hóteleigandi
Rosenberg haíði samið um að takast
á hendur vínsölu fyrir 10°|0 í stað 33*18 °lo
sem goldið hafði verið áður, en hótel-
verð vínanna stóð í stað. - Undirréttur
hefir dæmt Lárusi mismuninn og álagn-
ingu umfram 75°|0 eða samt. kr. 62,190,50
í fyrradag féll dómur í und-
irrétti í máli, sem Lárus Jó-
hannesson höfðaði skömmu
eftir síðustu áramót gegn Guð-
brandi Magnússyni f. h. Áfeng.
isverzlunarinnar og fjármála-
ráðherra f. h. ríkissjóðs.
Hafði Lárus fengið urnboð
hjá Alfred Rosenberg, eiganda
Hótel ísland til að höfða málið
og eru málavextirnir í stuttu
niáli þessir:
Rosenberg keypti Hótel Is-
land vorið 1928. Fyrverandi
eigandi hótelsins, Jensen-Bjerg,
hafði fengið munnlegt leyfi
ríkisstjómarinnar til vinveit-
inga, þegar Spánarundanþágan
gekk í gildi og rekið þær síð-
an. Öll vínin voru keypt hjá
Áfengisverzluninni. Áfengis-
verzlunin réði einnig útsölu-
verði vínanna og voru þau seld
25% hærra verði en á venju-
legum útsölustöðum', svo sem
tíðkast á hótelum erlendis. Frá
þessu útsöluverði fékk Jensen-
Bjerg 331/3% í sölulaun.
Þegar eigendaskipti urðu,
leitaði hinn nýi eigandi, Rosen-
berg, leyfis ríkisstjórnarinnar
til þess að mega halda vínsöl-
unni áfram. Leyfið fékkst með
því skilyrði, að sölulaunin yrðu
aðeins 10% og leyfið væri upp-
segjanlegt, hvenær sem væri.
Heldur stefnandi því fram,
að þegar þannig var komið,
hafi Áfengisverzlunin selt
Rosenberg vínin of háu verði,
því telja verði þetta heildsölu-
viðskipti, en lög heimili mest
75% álagningu. Heldur stefn-
andi því ennfremur fram, að
umframálagningin hafi numið
alls kr. 79.756,23, reiknað til 1.
febr. 1930, en þá var hótelið
svift vínveitingaleyfi. Krefst
Lárus að þessi fjárhæð verði
endurgreidd að viðbættum' vöxt.
um. Síðar hefir hann þó lækk-
að kröfuna niður í kr. 62.190,50.
Áfengisverzlunin byggir
sýknukröfu sína á því, að hér
sé um samning að ræða, sem
veitingamaðurinn hafi gert af
frjálsum vilja qg sótzt eftir og
væri því samningurinn full-
bindandi fyrir hann, hvort
heldur hann hefði leitt til hagn-
aðar eða taps.
í forsendum dómsins segir:
„í máli þessu er enginn
ágreiningur um það, að smá-
söluverð vínanna (hótelverðið)
hafi verið sett með löglegum
hætti. * En rétturinn lítur svo
á, þar sem hér var um heild-
söluviðskipti að ræða milli
Áfengisverzlunar ríkisins, sem
heildsala annarsvegar og veit-
ingamannsins sem1 smásala
hinsvegar, að þá hafi veitinga-
maðurinn einn átt rétt til mis-
munarins milli löglegs heild-
söluverðs og löglegs smásölu-
verðs, nema einhver atvik liggi
til er sýni það, að hann hafi
afsalað sér eða fyrirgert rétti
sínum“.
Á þessum forsendum byggir
undirréttur síðan svohljóðandi
dóm!:
Því dæmist rétt að vera:
Stefndir, Guðbrandur Magn-
ússon f. h. Áfengisverzlunar
ríkisins og fjármálaráðherra
fyrir hönd ríkissjóðs, greiði
stefnandanum Lárusi Jóhannes.
syni hrm. kr. 62.190,50 með
5% ársvöxtum frá 29. des.
1933 til greiðsludags innan
fimmtán daga frá lögbirtingu
dóms þessa að viðlagðri aðför
að lögum. Málskostnaður fellur
niður.
Vidtal vid forstjóra
Afeugisverzlanarínnar.
Nýja dagblaðið hitti Guð-
brand Magnússon forstjóra
Áfengisverzlunarinnar að máli.
Kvað hann undirréttardóm-
inum verða áfrýjað.
Þá skýrði hann frá því, að
fjárhæð sú, sem undirréttur
tildæmdi Lárusi Jóhannessyni,
væri byggð á meðalálagningu
Áfengisverzlunarinnar á því
Framh; á 4. gíðu
Elsti aaðkýfingar
heimsins liggar fyrir
daaðanum.
Kirkjustríðið í Þýzkalandi
Bisknpinn i Bayern rektnn úr embœtti.
Brottreksturinn vekur miklar easingar
gegn nazistastjórninni.
London kl. 17, 12./10. FÓ.
Miiller, ríkisbiskup Þýzka-
lands, hefir svift Meiser, bisk-
up yfir Bayem, embætti sínu,
og leyst upp ríkiskii’kjuna í
Bayern, og skipað svo fyrir, að
Bayern skúli hér eftir verða
skipt í 2 biskupsdæmi, og skuli
ríkisbiskupinn sjálfur skipa
biskupa, til þess að gegna
þeim embættum. Meiser hefir
1 verið sviftur embætti sínu,
! vegna þess, að hann neitaði að
framfylgja lögum stjórnarinn-
i ar um þýzka allsherjarkirkju.
Óhemju æsingar urðu í Bay-
ern, þegar þessi tíðindi frétt-i
ust, mest kvað að þeim í Mún-
chen, þar sem fólk streymdi
saman og fyllti kirkjur mót-
mælenda, og einkum St. Matt-!
híasarkirkjuna, þar sem Mei-1
ser biskup flutti afar harðorða
ræðu, þar sem hann komst svo
að orði, að kirkjan og Guðs-
kristni hefði verið saurguð með
þessum aðgerðum.
Annar klerkur fiutti ræðu yf.
ir múg þeim, er safnast hafði
saman úti fyrir kirkjunni, þar
sem1 Dr. Meiser talaði. Komst
hann svo að orði: „Ef að vér
verðurn allir trúir biskupi vor-
um, þá mun enginn prestur í
Miiller biskup.
Bayern missa embætti sitt“.
Þegar að Meiser biskup ók frá
kirkju sinni, í bifreið, fylgdi
múgur manna á eftir bifreið-
inni og hrópaði látlaust: „Yér
krefjumst þess að fá að hafa
biskup vom!“
Það mun ekki fjarri sanni
að kalla hinn mikla auðkóng
Bandaríkjanna, Rockefeller,
elzta auðkýfing heimsins.
Nýlega átti hann 95 ára af-
mæli. Það tilefni gaf auðvitað
næga ástæðu til þess, að ame-
rísku blöðin fluttu margar
myndir af gamla maninum og
langar greinar um æfiferil
hans.
En sjálfur mun hann ekki
hafa vitað mikið um það, sem
fram fór. Hann hefir undanfar-
ið legið mjög þungt vhaldinn
og er búizt við dauða hans á
hverri stundu.
Frá Alþmgi
Frá neðri deild í gær:
Gunnar Thoroddsen flytur í
neðri deild frv. um opinberan
ákæranda. Konungur skal eftir
tillögum hæstaréttar skipa op-
inberan ákæranda. Skal ákæru-
valdið tekið af dómsmálaráð-
herra og lagt í hendur hans.
Sömuleiðis valdið til fullnaðar-
ákvörðunar um rannsókn, máls-
höfðun og áfrýjun opinberra
mála. . Ákærandinn sæki fyrir
hæstarétti þau opinber mál, sem
þangað verður skotið. Laun
hans (hæstaréttardómaralaun)
og skrifstofukostnaður greiðist
Framh. á 2. síðu.
Uppreísnin heldur áfram á Spáni.
100 uppreisnarmenn grafnir lifandi.
London kL 16, 12./10. FÚ.
Frá Spáni er það helzt talið
til tíðinda í dag, að augljóst
þykir, að uppreisnin í Asturiu
er ekki enn fullkomlega brotin
á bak aftur, en jafnframt virð-
ist það augljóst, að ekki geti
liðið nema fáir dagar, þangað
til svo verður.
LRP. 12./10. FÚ.
Fregn kemur um það, að 100
uppreisnarmenn í Asturiu hafi
verið grafnir lifandi með þeim
hætti, að sprengikúla, sem skofc
ið var af stórskotaliði stjóm-
arinnar, hafi gersamlega lokað
námugöngum, þar sem upp-
reisnarmenn höfðu leitað hæl-
is.
Ennfremur er skýrt frá því,
að 150 uppreisnarmenn hafi
fundizt dauðir í þorpinu Cam-
pomanes, þar sem flugvélar
stjómarinnar höfðu látið rigna
sprengikúlum. Fjöldi manna er
sagt, að einnig hafi beðið bana
í dag, vegna sprengikúlnaskota.
Tvær flugvélar stjómarinnar,
sem þátt töku í þessum árás-
um, urðu fyrir slysum. Hrap-
aði önnur þeirra, og særðust
báðir þeir, sem í henni voru.
KONUNGSMORÐIÐ
Italír sýna .Jugo-Slöfum vináttumerki
Allt með kyrrum kjörum í Jugo-Slavíu
London kl. 17, 12./10. FÚ.
Dubrovnik, herskipið, sem
flutti lík Alexanders konungs'
til Júgóslavíu, kom til Messina-
sunds snemma í morgun.
Itölsk herskip komu þar á móti
því, og skutu 21 skoti og fylgdu
því síðan út fyrir landhelgi
Italíu.
Þessi kurteisi hefir dregið
til muna úr andúðinni gegn
Italiu í Júgóslavíu, sem farið
hefir vaxandi síðustu dagana.
Minniháttar óeirðir hafa átt
sér stað á einstaka stað í Júgó-
slavíu, en lögreglunni hefir al-
staðar tekizt að bæla þær nið-
ur, og er allt með kyrrum kjör-
um í landinu.
María drottning og Pétur
konungur eru nú á leiðinni
heim. Síðdegis í dag fóm þau
í gegn um Austurríki.
Framh. á 4. gíðu.