Nýja dagblaðið - 23.10.1934, Blaðsíða 2
a
N Ý J A
DAGBLABIÐ
heldur almennan félagsfund þriðjudaginn 23. október
þ. á. kl. 19 í Varðarhúsinu.
S t j ó r n i n.
Liftryggid ydur hjá
S V E A
Þegar þér hafið gert það, verðið þér ánægður með
sjálfan yður og aðra. — Aðalumboð fyrir Island.
C. A. BBOBERCr
0
Lækjartorgi 1,
Sími: 3 12 3.
HUSQVARNA
SAUMAVÉLAR
eru smíðaðar úr vönduðu
sænsku stáli. - Engar sauma-
vélar eru þeim fremri
að gæðum og endíngu
Samband ísl. samvinnufálaga.
RETEIÐ
J. aEUNO’S
ágæta hollenzka reyktóbak
VERÐ:
AROMATISCHER SHAG kostar kr. 0,90 1/20 kg.
FEINRIECHENDER SIIAG — — 0,95-
íæst í öllum verzlunum
i i 1
G.S. ALDEN
fer héðan til Breiðafjarðar í
stað E.s. Suðurland fimmtu-
daginn25. þ. m. kl. 10 síðdegis.
Tekið verður á móti vörum á
morgun.
65 aura
kosta ágætar rafmagnsperur
hjá okkur, 15—25—40—60
watta. Kaffistell, ekta postulín,
6 manna, 3 teg.,
aðeins kr. 10.00
Vekjaraklukkur, ágætar 5.75
Tannburstar í hulstri 0.50
Ilakvélar á 1.00
Sjálfblekungar og skrúf.
blýantar, settið 1.50
Vasaljós með battaríi 1.00
Battarí, sérstök 0.35
Vasaljósaperur 0.15
og margt fleira ódýrt hjá
K. EINARSS. & BJÖRNSSON
Bankastræti 11.
JSrð til sfilu.
Jörðin Eystri-Geldingalækur
í Rangárvallahreppi er til sölu
og ábúðár í næstu fardögum.
Jörðin gefur af sér 300 hesta
af töðu og 400 hesta af útheyi.
Góð beit. Ágætt íbúðarhús.
Vatnsleiðsla. öll útihús undir
þakjárni vel uppbyggð. Sími
rétt hjá. Bílfært heim. Menn
snúi sér til eiganda jarðarinn-
ar Jóns Einarssonar, Geldinga-
ingalæk, eða Böðvars Tómas-
sonar, Stokkseyri.
Verzlið viö þá
að öðru jöfnu, sem auglýsa
í Nýja dagblaöinu
August Liebmaun
Jónina Thorarensen
frá Kirkjubæ
siötuour
Fyrir fáum dögum andaðist
hér í Reykjavík frú Jónína
Thorarensen frá Kirkjubæ á
Rangárvöllum. Hún var þá hátt
á sjötugsaldri. Heimili hennar
var um langt skeið eitt hið
stærsta og þekktasta hér á
landi, húsbóndinn rausnarmað-
ur í fornum stíl, bömin mörg
og mannvænleg, fjöldi hjúa, og
gestkomur í mesta lagi. Á
þessu stóra heimili var hús-
móðirin það afl, sem samein-
aði alla heimilismenn og gesti,
er að garði bar.
Þegar aldur færðist yfir þau
hjón Grím Thorarensen og
Jónínu Egilsdóttur, brugðu þau
búi og fluttu að Selfossi til
sonai’ þeirra, Egils kaupfélags-
stjóra.
Mér er fyrir minni eitt
kvöld fyrir ári síðan, er ég kom
sem gestur á heimili frú Jón-
ínu, og sá hana í fyrsta sinn.
Mér fannst ég sjá í þessari ald-
urhnignu konu alla þá eigin-
leika, sem gera þær konur vold-
ugai- og aðdáanlegar, sem hafa
fengið tækifæri að eiga böm og
bamabörn, fóma sér fyrir þau,
gleyma sjálfum sér og sínum
þörfum, en muna alltaf og
undir öllum kringumstæðum
eftir því sem þarf að gera fyrir
aðra, þá sem em veikir og van-
máttugir. Matthías Jochums.
son hefir betur en nokkurt ann_
að íslenzkt skáld skilið þetta og
skýrt í lofsöng sínum um kon-
una.
Það er enn, og með töluverð-
um rétti deilt um það, hvort
það sé mikill fagnaðarauki fyr-
ir konur að taka þátt í at-
vinnubaráttunni utan heimils.
En um hitt verður ekki deilt,
að sú lífsbraut, sem frú Jónína
Thorarensen hafði að baki,
gerir flestar konur að hetjum,
ef til vill þeim mestu, sem sag-
an segir frá. Slíkar konur
göfgast með hverju ári, sem
þær lifa. Hver ný fórn, hvert
nýtt drengskaparbragð, er nýr
sigur, sem eykur gildi og and-
lega auðlegð þess, sem færir
slíkar fórnir til að gera betra
að lifa í heiminum fyrir aðra.
Ég sá þessa konu aðeins einu
sinni og stutta stund. Þau litlu
kynni eru mér ógleymanleg.
Þessvegna skil ég vel, að við
fráfall hennar hafa þeir misst
mikið, sem lengst og mest
kynni höfðu af henni haft.
**
Frá Alþingi
Helztu mál, sem tekin voru
fyrir í efri deild sl. laugardag
voru:
Breyting á tollalögum(hækk-
un tóbakstollsins) afgreitt frá
deildinni án breytinga.
Frv. um varðskip landsins
og skipverja á þeim, vísað til
2. umr.
Bæjarstjórnar^
kosning
Frv. Finns Jónssonar um
þetta efni, sem áður hefir ver-
ið sagt frá í blaðinu, var í
neðri ódeild sl. laugardag vísað
til 3. umr. óbreyttu. — íhald-
ið þæfði enn sem fyr um mál-
ið. Ekkert nýtt kom fram við
umræðuna.
1 gær stóðu yfir fundir í báð-
um deildum frá kl. 1 til 4 í efri
deild, en til kl. 4,20 í neðri
deild.
Vígt á síld
Danski leikarinn August Lieb.
mann, átti fyrir skemmstu sjö-
tugsafmæli.
Hann byrjaði leikstarfsemi
sína við Kgl. leikhúsið í Kaup-
mannahöfn 5. frb. 1890 og hef-
ir starfað við það að heita má
óslitið síðan.
Þetta frv., sem getið er um
á öðrum stað hér í blaðinu og
er gamalkunnugt frá fyrri
þingum, mætir enn sem fyr
mótstöðu hjá íhaldinu, þó hún
sé allmjög farin að linast. Frv.
var í efri deild vísað til 3.
umr. og greiddu ekki nema 3
íhaldsmenn (J. A. J., Pétur M.
og Magnús Jónsson) atkvæði á
móti því. Allar hinar stærri
síldarverksmiðjur hafa nú tek-
ið upp þá sjálfsögðu aðferð að
kaupa síld eftir vigt, en ekki
eftir máli. Enda er það bæði
nákvæmari og réttlátari aðferð,
og sú aðferð, 'sem allir síldav-
framleiðendur vilja héldur.
Mótstaða íhaldsins gegn vigt-
uninni er vegna síldarverk-
smiðju Kveldúlfs á Hesteyfi,
sem ennþá þráast við, með því
að nota hina úreltu mælingar-
aðferð, sem eitt sinn a. m. k.
gaf verksmiðjunni óleyfilegan
gróða.
Einkasala
á bifreiðum
Mest af fundartíma efri
deildar fór í framhald umr. um
bifreiðafrumvarpið, sem áður
hefir verið getið hér í blaðinu.
Jón Baldvinsson talaði fyrir
i málinu af hálfu meirihluta
I fjárhagsnefndar, en Magnús
Jónsson og fleiri flokksmenn
hans á móti. Flutti Magnús sirm
j gamla einokunai-pistil, sem all-
I ur þingheimur er nu búinn að
læra utanað. Ríkisverzlun nú á
tímum líkir hann við einokun-
arverzlunina gömlu! Sumir
hafa haidið að Magnús notaði
þá samlíkingu til að slá um sig
með í ræðustólnum, en ’pað er
ekki rétt, heldur er maðurinn
svona óralangt aftur í fortíð-
inni. Hefir hann því að vissu
leyti nokkra afsökun fyrir sín-
um furðulegu kenningum, og
einnig því, að hann nú gerist
verkfæri í höndum þeirra
manna, sem undanfarið hafa
skattlagt þjóðina með óhæfi-
Framh. á 4. ilðu