Nýja dagblaðið - 23.10.1934, Síða 4

Nýja dagblaðið - 23.10.1934, Síða 4
4 N Ý 3 A DAOBLA0IB IDAG Sólaruppkoma kl. 7,42. Sólarlag kl. 4,40. Flóð. árdegis kl. 5,30. Flóð siðdegis kl. 5,50. Ljóaalimi hjóla og bifreiOa kl. 5,15—7,10. ♦ Veðurspá: Minnkandi norðanátt. Léttskýjað. Sbta, akzUstofoT a fl. Landsbókasafnið ...... 1-7 og 8-10 Alþýðubókasafnið ... 10-12 og 1-10 þjóðskjalasafnið ............. 1-4 þjóðminjasafnið .............. 1-3 Náttúrugripasafnið ........... 2-3 Landsbankinn ................ 10-3 Búnaðarbankinn .... 10-12 og 1-3 Útvegsbankinn ....... 10-12 og 1-4 Útbú Landsb., KlapparsL .... 2-7 Pósthúsið: Bréfapóststofan .. 10-6 Bögglapóststofan .......... 10-5 Skrifstofa útvarpsins 10-12 og 1-6 Landssíminn .................. 8-9 Búnaðarfélagið ...... 10-12 og 1-4 Fiskifélagið (SkrifsLt) 10-12 og 1-5 Skipaútg. rikisins .... 9-12 og 1-6 Eimskip ...................... 9-6 Stjómarráðsskriíst. .. 10-12 og 1-4 Samb. ísl. samv.fél. .. 9-12 og 1-6 Sölus.b. ísl. íiskír.l. .. 10-12 og 1-6 Skrifst. bœjarins .... 9-12 og 1-4 SkriísL lögmanns .... 10-12 og 1-4 Skrifst. tollstjóra .... 10-12 og 1-4 Hafnarskrífstofan .... 9-12 og 1-6 Skipa- og skrén.st. rík. 10-12 og 1-5 Tryggingarst. rikisins 10-12 og 1-5 Skriístoía lögreglustj. 10-12 og 1-4 Lögregluvarðst. opin allan sólarhr. Heimsóknartíml sjúkrahósa: Landspítalinn ................ 3-4 Landakotsspítalinn ........... 3-5 Laugamesspítali ........ 12^2-2 Vífilstaðahœlið .. 12^-2 og 3%-4y2 Kleppur ...................... 1-5 Elliheimilið ................. 1-4 Næturvörður í ReykjavikurapótekJ og lyfjabúðinni Iðunn. Nœturlæknir: Valtýr Albertsson, Túngötu 3, sími 3251. Samgðngur og póstfarSfar: Suðurland til Borgamess. Skemmtanlr og samkomnr: Nýja Bíó: Blessuð fjölskyldan kl. 9. Mélverkasýning Jóhanns Briem í Goodtemplarahúsinu kl. 10—8. Dagskrá útvarpslns: Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,05 þing- íréttir. 12,20 Hádegisútvarp. 15,00 Veðurfregnir. 19,00 Tónleikar. 19,10 Veðurfregnir. 19,25 Grammófónn: Pianósóló. 19,50 Auglýsingar. 20,00 Klukkusláttur Fréttir. 20,30 Er- indi: Heimskautaferðir, I: Tsjelju- skin-leiðangurinn (Jón Eyþórsson). 21,00 Tónleikar: a) Celló-sóló (þór- hallur Ámason); b) Grammófónn: íslenzk lög; c) Danslög. Cppreisnin á Spáni Framh. af 1. síðu. 1 dag vildi til ægilegt slys við þessi störf. Hermannasveit var á leiðinni til Oviedo með vagnhlass af dynamiti. Aílt í einu springur dynamitið og banaði 32 mönnum þegar í stað. Margir særðust stórkost- lega. Enn er ekki upplýst, hvað olli þessari sprengingu, en sumir halda því fram, að or- sökin hafi verið sprengja, sem uppreisnarmenn hafi lagt í veg fyrir hermannaflokkinn. Anmáll Skipafréttir. Gulifoss var á Siglufirði i gær. Goðafoss á leið til Hull frá Vestmajinaeyjuni. Detti- foss kom til Reykjavíkur frá út- löndum kl 1 í gær. Brúarfoss var í London, Lagarfoss i Osló og Sel- foss i Kaupmnanahöín í gær. Farþegar með e.s. Dettifoss frá Hull og I-Iamborg í gær: Jón Bergs- son, Mr. Ch. E. C.ages, frk. Hrefna Berg, frk. Clara. Berg, Stefán þor- varðarson og frú, Frl. Hildegard t'nbehagen. U. M. F. Veivakandi heldur fýrsta fund sinn á þessum vetri í kvöld kl. 9 i Kaupþingsalnum. Innbrot var framið í Lands- smiðjunni í fyrrinótt og stolið 40 kr. í peningum. Hafði skrifborð \ erið brotið upp. þorbergur þórðarson rithöfundur er nýkominn frá Rússlandi. Segir hann frá Rússlandsför sinni í fyrirlestri, sem hann flytur í Iðnó í kvöld kl. 8 Vz. Fyrirlesturinn nefnir hann: Er þetta það, sem koma skal. Hjónanband. Á sunnudaginn voru gefin saman af sr. Eiríki Brynjólfssyni, Útskálum ungfrú Kristín Reykdal og Hans Chris- tiansen verzlunarmaður. Sjúkrasamlag Rvíkur. Skrifstofa í Bergstaðastræti 3. Opin kl. 2—5 (mánud. kl. 2—7^). Skoðunar- læknar: Kristín Ólafsdóttir Lauga- veg 40 kl. 4y2—6 og þriðjud. kl. 8 —8% e. h. og þórður þórðarson Austurstr. 16 kl. 12^—2 og íöstud. kl. 8—8y> e. h. Framsóknarfól. Heykjavikur hélt fjölmennan fund í gærkvöldi. Her- mann Jónsson forsætisráðherra skýrði ítarlega frá kjöt og mjólk- ursölulögunum og Eysteinn Jóns- son fjármálaráðherra frá skattafrv. sem iögð hafa verið fram á Al- þingi. Var gerður ágætur rómur að ræðum þeirra. Nokkrir nýir meðlimir gengu í félagið á fund- inum. Félagið heldur fund mjög bráðlega og segir Jónas Jónsson alþm. þá frá störfum skipulags- nefndar, en tími vanst ekki til að taka það mál til umræðu á þess- um fundi. Hjónaband. Síðastliðinn laugar- dag voru gefin saman i hjónaband af séra Hálfdáni Helgasyni, frá Mosfelli, ungfrú Svanlaug Krist- jánsdóttir Hverfisgötu 101, og Jón þorbjarnarson, Framnesvegi 16. Heimili ungu hjónanna er á Öldu- götu 24. Gestir í bænnm: Vilhjálmur þór kaupfélagsstjóri, Akureyri, Eiríkur þorsteinsson kaupíélagsstjóri á þingeyri, Jósef Jónsson bóndi á Melum, Jón Karlsson læknir í Ár- nesi, Sigmundur Guðmundsson bóndi í Ámesi, Dagur Jónsson bóndi, Melrakkanesi. Meyjaskemman, hin vinsæla óperetta, sem sýnd var hér siðastl. vetur við mikla aðsókn, verður sýnd annað kvöld í Iðnó. Jón Eyþórsson veðurfræðingur byrjar á fyrirlestraflokk í útvarp- inu í kvöld, sem hann nefnir: Heimskautaferðir. f kvöld segir hann frá Tjeljuskinleiðangrinum. Hvöt, blað bindindisfélaganna í skólunum er nýlega komin út. Flytur ýmsar merkilegar greinar um skaðsemi áfengisins og bind- indisstarfsemina. Annar háskólafyrirlesturinn á ensku verður fluttur í kvöld kl. 8. ísfisksalan. í fyrradag seldi Sviði i Hull 1005 vættir fyrir 1000 sterl.pd. Max Pemperton i Grims- by 1042 sterl.pd. Ver i Wesermúnde 83,7 tonn fyrir 15,300 ríkismörk. í gær seldi Otur í Grimsby 816 vætt- ir fyrir 1229 sterl.pd. og Gulltopp- ur í Hull. Er ófrétt um sðlu hans. Er þetta það, sem koma skal? Erindi sem, Þórbergur Þórðarson rithöfundnr flytur um Rússlands-ftír sina í Iðnó þriðjudaginn 23. þ.m. kl. 8,30 siðdegis. Aðgöngumiðar á 1 krónu, seldir i Hljóðfærahúsinu, í bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar og við innganginn. Spaðkiötið er komið Eins og að undanförnu seljum vér valið og metið spað- saltað dilkakjöt úr beztu sauðfjárhóruðum landsins. Kjötið er flutt heim til kaupenda, þeim að kostnaðarlausu Samband ísl. samvinnufélaga Sími 1080. Skólaföt fyrir börnin þurfa að vera hlý, lótt og haldgóð. Slík föt, framleiðir Prjónastofan Malfn, Laogaveg 20, Simi 4690. DlVANAR, DÝNUR og| allskonar stoppuð hús- gögn. — Vandað efni.l Vönduð vinna. Vatnsstíg 8. Húsgagnaverzlun Reykjavjdcur. Verður MacDonald landsstjóri í Canada? Framh. af 1. síöu. við neinn flokk og sá tiltölu- lega fámenni hópur, sem enn fylgir persónu hans, fremur en pólitík, er hvergi þess um- kominn að tryggja honum kosningu. Undanfarið hefir ráðherrann dvalið í Kanada. Það hefir verið látið í veðri vaka, að sú ferð væri gerð til hvíldar og hressingar. En meðal stjórn- málamanna er því fleygt, að tilgangurinn sé allur annar. Þess hefir verið getið til, að Mac Donald ætti að verða vara. konungur í Indlandi, þegar hann léti af stjóm. Hinir eru þó fleiri, sem láta þá skoðun í Ijósi, að innan langs tíma muni stjórnarforinginn flokkslausi verða útnefndur landstjóri í í Kanada. Frá Alþingi Framh. af 1. síðu. legri álagningu á þær vörur, sem um ræðir í þessu frv. Um- ræðu um frv. var enn frestað. Hlutaruppbótin í neðri deild voru rædd nokk- ur mál. Þar á meðal var frv. um hlutaruppbót sjómanna og var því vísað til 8. umr. óbreyttu eftir langt málþóf, sem þeir Garðar og Sig. Krist- j jánsson stóðu aðallega fyrir. • Fá þeir alltaf verstu hlutverk- in í baráttu íhaldsins. Þessu máli vildi íhaldið þó ekki sýna bera andstöðu, en Sigurður var látinn flytja brtt. sem átti að gera frv. að skrípi. Frv. um timgunarvamir og fóstureyðingar var sömuleiðis vísað óbreyttu til 3. umr. Brtt. frá Magnúsi Torfasyni um að fella úr.frv. skyldur lækna til þess að veita konum ókeypis leiðbeiningar í þessum efnum var felld með 10 :20 atkv. Blessuð fjölskyldan Bráðskemmtlieg sænsk talmynd. Aðalhlutverk leika: Tutta Berntzen, Gösta Ekman, Carl Barklind og Thor Moden. § OdLýru § augiýslngarnar. Kanp og sala HILLUPAPPÍR fæst í ______Kaupfélagi Reykjavikur. ' Fallegu lampana og allt til rafmagns, kaupa menn í raf- tækjaverzlun Eiríks Hjartar- sonar, Laugaveg. 20. Sími 4690. Homafjarðarkartöflur ný- komnar. Kaupfélag Reykjavík- ur. , Saltfiskbúðin er vel birg af nýjum fiski. Simi 2098. VÍNBER fást í Kaupfélagi Reykjavíkur. Fasteignastofan Hafnarstí. 15. Annast kaup og sölu fast- eigna í Reykjavík og úti um land. Viðtalstími kl. 11—12 og 5—7 og á öðrum tíma eftir samkomulagi. Sími 3327. Jónas H. Jónsson. Flóra smjörlíkið nýkomið, bragðbetra en nokkru sinni áð- ur, en sama lága verðið @ I, 30 kg. Kaupfélag. Reykjavík- ur. Nýtt hvairengi og hvalkjöt fæst á bak við verzl. Geirs Zoega, rétt hjá Beykisvinnu- stofunni. Hver síðastur að ná sér í hval til vetrarins. Sími 2447. Fasteignasala Helga Sveins- sonar er í Aðalstræti 8. Inng. frá Bröttugötu. Sími 4180. Tilkynningar Úrsmíðavinnustofa mín er á Laufásveg 2. Geri við úr og klukkur. Guðm. V. Kristjáns- son. Skóvinnustofan, Frakkast. 7 selur karlmannssólningu á kr. 6,00, kvensólningu kr. 4,00. — Aðrar viðgerðir í hlutfalli við þetta. Góð vinna. 1. fl. efni. Sími 2974. Hannes Erlingsson, skósmiður. Saumastofan er flutt á Grundarstíg 4. Sníð- u mog mátum kvenfatnað. — Námskeiðið í kjólasaum heldur áfra. Hildur Sivertsen. Kennftla Enskur stúdent getur tekið nemendur í enskutíma. Uppl. í Stúdentagarðinum kl. 3—4. Sími 4789. __________ Orgelkennsla. Kristinn Ing- varsson, Hverfisgata 16.

x

Nýja dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.