Nýja dagblaðið - 16.11.1934, Blaðsíða 3

Nýja dagblaðið - 16.11.1934, Blaðsíða 3
M t J A DAIILAIII 9 NÝJA DAGBLAÐIB Útgefandi: „BlaðaútfAían h.f." Ritstjórar: Gísli Guðmundfaon, llallgrímur JónaasML R i tst j ómartkrifatof urnar Liiugav. 10 Simar A373 og S3M Afgr. og auglýsingaskrífatofa: Aústurstrati 12. Simi 2323. Áskriftargjald kr. 2,00 á mán. í lausasðlu 10 aura amt. Prentamiðjan Acta. fijðf sem gleymdist að afhenda Þingmenn í Landbúnaðar- nefnd n. d. Alþingis hafa gert m. a. tillögur um það, að gerð- ar séu nýjar ákvarðanir um launágreiðslur fyrir stjórn Kreppulánasjóðs. Miða þær í þá átt, að minnka laun þeirra manna, sem kosnir voru til þess að annast stjóm hans og með- ferð. Þessi stjórnarstörf eru ekki áberandi mikil. Samt hefir hver hinna þriggja forstöðu- manna 7200 kr. árslaun fyrir umsvifin. Tveir þeirra kúsu sig sjálfir í embættin, en hinn þriðji, hr. Tryggvi Þórhallsson, er — sem aðalbankastjóri Búnaðarbank- ans — sjálfkjörinn í stjóm sjóðsins. Á kosningafundum s. 1. vor í því kjördæmi, er Þorst. Briem var frambjóðandi fyrir „bænda flokkinn“ var nokkuð á þessi mál drepið m. a. En Þ. B. hafði sem ráðherra ákveðið stjórnendum Kreppu- lánasjóðs laun — 600 kr. á m'ánUði. Á þessum fundum var að því vikið, bæði af mér og öðr- uni að lánskjör þau, sem bænd- ur ættu kost á að sæta úr fyr- nefndum sjóði og greipum forstjóranna, væru ekki bein- línis hagkvæm, og að svo liti út sem dálítið hefði meir verið borinn fyrir brjósti fjárhags- legur velfamaður stjómar- mannanna en bændanna nauð- stöddu, sem þangað máttu leita, ekki sérlegra hagstæðra lánakjara. Og það var deilt á þann flokk og þann ráðherra, sem greiddi aðalbankastjóra Búnað- arbankans 7200 kr. fyrir vinnu við kreppulánin ofan á rösk 19.000 kr. laun fyrir banka- starfiö. Bændunum og þeim öðrum, er á umræðumar hlustuðu, þótti þessar tölur ekki með öllu ómerkilegar. En Þorst. Briem leitaðist við að bera ásakanimar af sér 'og flokksbróður sínum, Tr. Þ. Hann sagði, að aðalbanka- stjórinn þægi ekki þessi laun öll, ekki þessa 7200 kr. óveru, heldúr gæfi hann þau inn í Búnaðarbankann. Þetta kærleiksverk var hvorki sannað né afsannað þá. En ýmsir tóku því með svolítilli tortryggni, þar á méðal ég. En í þessu atriði — mér liggur við að segja þessu eina atriði — haggaði Þ. B. ekki í Finnlandi eru töluð tvö mál og eru bæði viðurkennd af mál eru bæði viðurkennd af löggj öfinni. Finnskumælendúr eru þó miklu fleiri og á síðustu árum hefir risið upp sterk hreyfing í landinu, að hafa eitt ríkismál, finnskuna, og skerða þau réttindi, sem sænskan hef- ir hingað til haft af löggjafar- innar hálfu, t. d. í skólum. Frumvarp, sem undanfaríð hefir legið fyrir þinginu, um breytingu á háskólanum í Helsingfors, hefir sérstaklega orðið til þess að skerpa þessa deilu. Frumvarpið er lagt fram af kennslumálaráðherranum finnska, Mantere. Eins og sakir standa nú eru bæði mál- in jafn rétthá við háskólann. Samkvæmt frumvarpinu verð- ur finnskan aðalmálið og þó kennsla á sænsku sé ekki bein- línis bönnuð, yrði það óhjá- kvæmileg afleiðing að hún myndi leggjast niður við skól- ann á tiltölulega skömmum tímá. Það gefur að skilja, að þetta frumvarp hefir vakið öflug mótmæli sænskumælandi manna í landinu. T. d. hafa ríkisstjórninni nýlega borizt inótmæli, undirrituð 154 þús. nöfnum. Af hálfu finnskumælanda hefir baráttan verið hert að sama skapi. Þeir segja, að sænska séu leifar frá því tíma- bili, þegar Finnar voru undir- okuð þjóð. Sjálfstæð þjóð eigi að tala sitt eigið mál. 1 bar- áttu sinni leggja þeir höfuð- áherzlima á það, að slá á strengi hinna þjóðlegu tilfinn- inga. Sænskumælendumir halda því aftur á móti fram, að þjóðernislega séð hafi sænsk- framburði sínum á fundunun.. Og svo allt í einu og mörg- um mánuðum seinna, kemur þetta furðulega fyrir, að þing- menn úr landbúnaðamefnd flytja frumvarp, þar sem m. a. er lagt til, að framvegis skuli aðalbankastjóri Búnaðarbank- ans vinna störf sín í þágu kreppumálanna kauplaust, þ. e. hann skuli láta sér nægja með þessar 19200 kr. fyrir banka. stjómina. Það lítur út fyrir, að þing- mönnunum, sem lögðu þetta til, og deildinni, sem fól land- búnaðarráðh. að annast fram kvæmd tillögunnar, hafi verið alls ókunnugt um „gjöfina" til lánsstofmmar bændanna. Þorst. Briem virðist hafa gleymt að skýra þingheimi frá því, hve þessu fé væri göfug- mannlega varið. Veit landbúnaðarnefnd ekk- ert um það? Eða þræddi Þ. Briem örlítið á snið við sannleikann á fund- unum í vor — líka í þessu at- I riði? Eða hefir einungis gleymzt að afhenda gjöfina í þarfir ís- lenzkra bænda? H, J. an fullan rétt á sér. Svíar og afkomendur þeirra hafi átt engu óverulegri þátt í sjálf- stæðisbaráttu og viðreisn þjóð- arinnar en Finnar sjálfir. — Sænskan séu hin einu sterku tengsli, sem bindi Finnland við Norðurlönd. Það sé Finnlandi hinn mesti sómi og margvís- legui' styrkur, að vera í tölu Norðurlanda. Á Norðurlöndum hefir mála- deilunni í Finnlandi verið fylgt með mikilli athygli. Hafn finnsku stjórninni og þinginu borizt í síðastl. mánuði mót- mæli gegn hinni fyrirhuguðu breytingu á háskólanum frá 800 málsmetandi mönnum í Noregi, Sviþjóð, Danmörku og; íslandi. í ýmsum stórblöðurn Norðurlanda hafa birzt um þetta langar greinar og er þar hiklaust sagt, að samvinnu Finna við hin Norðurlöndin sé slitið, ef þeir gangi á rétt sænskunnar í landinu. VandlSBtarar O* bersyndugir Eitt dagblaðið hér í bænum hefir urn nokkurt undanfarið skeið haldið uppi dálítið ein- kennilegum fréttaflutningi. Prentað hefir verið langt mál með rosafegum fyrirsögn- um um ýms málefni og menn, en svo ýkt og aflagað, að orðið hefir að taka það aftur næsta dag, sem birt var degi fyrir. Sama blað birtir fyrir ör- fáum dögum m. a. grein með geysi gleiðletraðri fyrirsögn um fjáróreiðu og sjóðþurð á- kveðins embættismanns ríkis- ins. Það er fleytifullt af vand- lætingu og hryllingi yfir spill- ingunni og bendir hlutaðeig- endum á hegningarlögin. En á nákvæmlega sama tíma og þetta blað eys úr skálum reiði sinnar yfir þann seka, ganga ýmsir helztu stuðn- ingsmenn þess um að safna fé saman til þess að „dekka“ hina miklu skuld og óreiðu þessa sama embættismanns. Virðist vera hér á ferðinni sá „hórkonu“-háttur í pólitík og blaðamennsku, sem er að „gera sig til“ framan í svindl- ara og sakleysingja til skiptis, og sem Vilmundi Jónssyni gengur svo mjög til hjarta. Má segja, að vandlæting hans komi heldur en ekki niður á bersyndugum, og það nokkru nær en ætlað var. Mega flokksmenn hans kveða um hann líkt og gert var um kempuna í Númarímum: „Ekki sér hann sína menn, svo hann ber þá líka“. V«rzlið við þá að öðru jöfnu, sem auglýsa i Nýja dagblaðinn Starfstnlknafélagið ,Sókn, Skemmtun í Iðnó í kvöld kl. 9. Til skemmtunar: 1. Skemmtunin sett — formaður félagsins. 2. Kafli úr ferðasög-u — Þórbergur Þórðarson. 3. Fjölbreyttir listdanzar, Carioca, Helene Jónsson og Eg- ild Carlsen. 4. Leikhópur — börn. 5. Danz — hljómsveit Aaage Lorange. — Ljósbreytingar. Aðgöngumiðar seldir í Iðnó í dag frá kl. 4. SKEMMTINEFNDIN. , Fósturevðinga ‘ - málið í efri deíld í gær Úr ræðum Guðrúnar Lárusdóttur og Haralds Guðmundssonar. Leiðbeiningar og varnir. Frv. um varnir fyrir konur gegn því að verða bamshaf- andi og um fóstureyðingar, var til 2. umr. í Ed. í gær og lágu fyrir brtt. Guðrúnar Lár- usdóttur, er frá hefir verið skýrt í blaðinu. Hóf frúin um- ræðuna og talaði fyrir brtt. sínum og um málið sjálft. Hún deildi allhart á stjómina fyr- ir að bera fram svo ægilegt mál sem þetta, án þess að spyrja þjóðina ráða og taldi að frv. óbreytt mundi sem lög auka það „fargan" serri hér væri á komið í siðferðismálum og stafa mundi mikið af því svívirðingarlesmáli, sem yfir þjóðina hefði verið látið dynja nú í seinni tíð. Jafnréttið. Þá vék frúin að þeim brtt. sínum, sem fjalla um „aðgerð- ir“ á karlmönnum. Sagði hún að annar aðili þessa máls, mennirnir, mundu rumskast og jafnvel vakna við þær till. „Við konur á jafnréttisöldinni get- um ekki þolað annað en jafn- rétti í þessum efnum“, sagði frúin. Leiðbeiningar og varnir á lækni ekki að vera skylt, heldur heimilt að veita konum og það aðeins í sjúkdómstil- fellum, áleit hún ennfremur, en karlmenn eiga heldur ekki að vera undanskildir í þeim til- fellum. Að lokum sagðist hún þó ætla til samkomulags, af því sumum þm. mundi þykja till. sínar nokkuð frekar, að taka út úr þeim fyrirmælin um „aðgerðir" á karlmönnum og mundu þær þá frekar ná fram að ganga. Fóstureyðingar. Frúin fór afarhörðum orðum um fóstureyðingar yfirleitt og taldi það sérstaklega óþolandi, að með lögum yrðu heimilaðar fóstureyðingar í nokkru tilfelli, því með þeim væri fram- in voðaleg verk, það væri ver- ið að lífláta ófædd börn. Nú liti út fyrir, að það ætti bráð- lega að veita vínflóði yfir land- ið, en kunnugt væri, að undir áhrifum víns væri siðferðið veikara en annars og mundu lög um möguleika fyrir fósí- ureyðingum ekki bæta ástand- ið. Misskilningur. Atv.m.ráðh. Haraldur Guð- mundsson svaraði frúnni nokkrum orðum. Sagði hann sig furðaði á þeim mikla mis- skilningi sem frúin virtist vera haldin af í þessu efni. Allt frv. miðaði að því, að bæta það ástand, sem hér ríkti í þessum málum, sem væri langt frá eins gótt og æskilegt væri. Hann sagði, að núgild- andi lög bönnuðu fóstureyðing- ar í hvaða tilfelli sem væri og legðu við 8 ára fangelsi. Hins- vegar væri nú allmikið orðið um fóstureyðingar hér á landi eins og annarsstaðar, og gæti vel verið, að sumar þeirra væru grunsamlegar, enda mundu vissir læknar hafa þær fyrir atvinnu. Lögregluvaldið og dómsvaldið gæti ekkert hreyft við þessum málum, því engum dytti í hug að dæma eftir hinum ströngu lögum, þar sem alviðurkennt væri, að fóstureyðingar væru í mörgum tilfellum sjálfsagðar og lífs- nauðsynlegar. Umr. um frv. verður fram- haldið á morgun. Aðeins þad bezta er nó|Q | ott þegar heilbrigði yðar á i hlut Epoka-dðmubindi Epoka-belti Það langbezta en þó ekki dyrast. Fæ»t í Ingóltsapoteki eg Reykjevikarepoteki

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.