Nýja dagblaðið - 01.12.1934, Blaðsíða 1
2. ár.
Reykjavík, laugardaginn 1. desbr. 1934.
285. blað
Ný skipun lögreglumálanna
í undirbúningi
Gamla landssímastöðín verð-
ur gerð að lögreglustöð
Viðtal við Hermann Jónasson
dómsmálaráðherra
Nýja dagblaðinu hafa borizt
fréttir um það, að ríkisstjórnin
hefði í undirbúningi nýja skip-
un á lögreglumálunum og í
sambandi við það, að gera
gömlu landssímastöðina að lög-
reglustöð. 1 tilefni af því
sneri blaðið sér í gær til dóms-
Hermann Jónasson
dómsmálaráChera.
málaráðherrans, Hermanns
Jónassonar, og spurðist fyrir
um, hvað málum þessum liði.
Það er rétt, segir dómsmála-
ráðherra, að ég hefi látið at-
huga, hvort ekki myndi hægt
að gera gömlu landsímastöðina
að lögreglustöð. Það húsrúm,
sem lögreglan hefir nú, er
bæði of lítið ig á ýmsan hátt
óhentugt. Samrýmist líka iila
að hafa lögreglustöðina í sama
húsi og margar aðrar skrif-
stofur. En fyrirkomulagi gömiu
landsímastöðvarinnar er þann-
ig háttað, að gera verður á
henni nokkrar breytingar, áður
en hægt er að gera hana að
lögreglustöð. Ég hefi því falið
húsameistara að gera tillögur
um þær breytingar á henni,
sem gerðu hana héntuga til
þessara afnota. Hefi ég nýlega
fengið uppdrátt og tillögur
húsameistara og hefi ég í
huga að komá þeim; í fram-
kvæmd fljótlega.
Breyfíngap á lögreglumál-
unum óumflýjanlegap
Hefir stjórnin í hyggju að
koma nýju skipulagi á lögreglu. :
málin?
Um þessi mál eins og mörg
fleiri, svarar dómsmálaráð-
herra, verðum við að styðjast
við erlenda reynslu. í Noregi
og Danmörku er nú unnið að
því, að koma nýju og endur-
bættu skipulagi á þessi mál,
sem á margan hátt ætti að geta
orðið okkur til fyrirmyndar.
Erlend reynsla sýnir, að skip-
un þessara mála hér á landi er
orðin að mörgu leyti úrelt.
Ýmsar breytingar og sumar
allstórvægilegar eru óumflýjan-
legar. Ég hefi því í undirbún-
ingi að koma nýju skipulagi á
þessi mál, þar sem farið verð-
ur eftir fenginni erlendri
reynslu að svo miklu leyti sem
okkar kringumstæður leyfa.
En þar sem enn er ekki full-
komlega ákveðið, hvernig frá
þessu verður gengið, vil ég
ekki ræða hin einstöku atriði, j
að svo stöddu. Þó skal ég geta j
þess, að komið verður á miklu
nánara samstarfi milli lögregl-
unnar og tollgæzlunnar annars-
vegar og lögreglunnar og rík-
isvaidsins hinsvegar.
Bæjarsfjópn hcfíp ekki
áfrýjað lögregluþjóna-
málinu
Við athugun, sem ég hefi
gert á fyrirkomulagi tollgæzl-
unnar úti á landi, er ljóst, að
þar skortir mikið á góða yfir-
stjórn og eftirlit og verður
fcætt úr því mjög fljótlega.
Hvað líður lögregluþjónamál-
inu frá síðastl. vetri?
Eins og kunnugt er féll und-
irréttardómur í málinu í ágúst-
mánuði síðastl. Dómurinn var
á þá leið, að bæjarstjórn væri
óheimilt að setja aðra menn í
lögregluþjónsstöður en þá, sem
lögreglustjórinn hefði mælt
með, „og er setning bæjar-
stjómar á fundi 28. okt. 1933
á þeim 7 mönnum, sem gagn-
stefnandi, sem lögreglustjóri,
ekki hafði bent á í lögreglu-
þjónsstöður, ógild“, segir í
dómnum.
Máli þessu hefir ekki verið
áfrýjað af borgarstjóra eða
bæjarstjórninni og verður því
að líta svo á, að þeir aðilar
hafi sætt sig við þessi mála-
lok.
Sveinn Björnsson
sendihcrra.
Hann er nýkominn til lands-
ins frá Kaupmannahöfn.
Hann hefir verið sendiherra
íslands í röskan hálfan annan
áratug og aflað sér mikils
trausts og mikilla vinsælda í
því ábyrgðarfulla starfi, bæði
hér heima og í Danmörku.
Sveinn Björnsson hefir tekið
m. a. þátt í mörgum mikils-
verðustu samningagerðum ís-
lenzka ríkisins við aðrar þjóð-
ir, bæði á sviði beinna fjár-
mála og verzlunarviðskipta.
En auk embættisstarfa sinna
hefir hann flutt fjölda fræð-
andi erinda um ísland í Dan-
mörku og víðar á Norðurlönd-
um.
Tveir drengir
brenna til bana
London kl. 17, 30/11. FÚ.
Tveir 14 ára drengir brunnu
til bana í dag í norður Lond-
on. Drengirnir höfðu nýlega
lokið skólagöngu sinni og voru
farnir að vinna fyrir sér í
verksmiðju. Þeir höfðu verið
sendir út í geymslu, til þess að
sækja cellaloid og veit enginn
hvernig það atvikaðist, að eld-
ur kom upp í geymslunni. En
hann magnaðist svo mikið og
ótt, að ógerningur var að
bjarga dreugjunum Ufaudi
Mesta mannvirki
á Norðurlöndum
Kalnndborg kl. 17, 30/11. FÚ.
í dag komst í fyrsta skifti á
brúarsamband milli Fjóns og
Jótlands. Litlabeltisbrúnni er
að vísu ekki lokið, því að ennþá
vantar nokkra metra á það, að
brúarsporðurinn sé kominn á
fast land á Fjóni. En bráða-l
birgðabrú úr timbri hefir ver-
ið lögð yfir bilið, sem eftir er,!
og gekk aðalverkfræðingur
brúarsmíðinnar í dag fyrstur
manna yfir brúna. Margir
komu í dag til þess að skoða
brúna, einkum margir Þjóð-
verjar. Verkinu miðar ágætlega
áfram, og búist við því, að
brúin verði fullgerð á tilsettum
tíma, 15. maí, og verður hún
eitt mesta mannvirki á Norð-
urlöndum.
sá
Anker Engelund
prófessor
er hefir yfirumsjón með smið
Litlabeltis-brúarinnar.
Fifldjarfur ræningi
stelur gimsteinum
London kL 17, 30/11. FÚ.
Tvö fífldirfskuleg rán voru
framin um hábjartan daginn í
dag í mesta verzlunarhverfi
Lundúnaborgar.
Maður kom inn í gimsteina-
búð í Westend í kvöld og bað
um að sér yrðu sýndir nokk-
urir hringir. Þegar skartgripa-
salinn kom með bakkann með
hringjunum, þreif maðurinn
hann og rauk út í bíl, sem
beið á götunni fyrir utan og
þaut af stað. Á fyrstu gatna-
mótum rakst hann þó á flutn-
ingavagn og laskaðist bíllinn,
en þjófurinn var sloppinn þeg-
ar skartgripasalinn og aðstoð-
armaður hans komu á staðinn,
en þeir höfðu elt bófann unz
hann hvarf inn í mannþröng-
ina.
Snemma í morgun var fram-
ið rán á póstafgreiðslu í sama
borgarhluta, meðan póstaf-
greiðslan var lokuð í örfáar
mínútur. Þjófarnir komust
hindrunarlítið inn og óku burt
með peningaskáp, sem 1 var
mikið af frímerkjum og dálítið
af lausafé.
Saarmálið ræt!
í Genf
Bcrlln kL 8, 30/11. FÚ.
I gærkvöldi var tilkynnt í
Genf, að Þjóðabandalagsráðið
mundi aftur koma saman næst-
komandi miðvikudag, 5. des.
Mun þá verða rætt um Saar-
málið og kæru Jugoslava út af
konungsmorðinu.
Hraðlest ekur
á bifreið
80 menn slasasf,
margir láfa lífið
Bcrlln kL 8, 30/11. FÚ.
Alvarlegt járnbrautarslys
varð á járnbrautarstöðinni í
Torino síðdegis í gær. Hrað-
lestin frá Milano til Torino ók
á almenningsbifreið er gekk á
teinum, og mölbraut hana. En
um leið sprakk benzíngeymir
bifreiðarinnar og stóð hún
samstundis í björtu báli. Far-
þegamir urðu að skríða út um
glugga bifreiðarinnar, og slös-
uðust þeir nær því allir eitt-
hvað, og flestir alvarlega. Alls
voru það um 80 manns, seth
meiddust, og eru sumir þegar
látnir, en vonlaust talið um líf
allmargra.
Evangeline Booth
tekur við embætti
London kL 17, 30/11. FÚ.
Evangeline Bóoth, yfirforingi
Hjálpræðishersins, kom til
Englands í dag, til þess að
taka TÍð störfum gínum.