Nýja dagblaðið - 18.12.1934, Blaðsíða 2

Nýja dagblaðið - 18.12.1934, Blaðsíða 2
I K f i A DAOBIiABIB ENGIN JÓLAGTÖF er kærkomnari en gott viðtæki og ekkert heimili má fara á mis við þá margvíslegu ánægju og fróðleik, sem það veitir. HIÐ LÁGrA verð OG HINIR HaGKVÆMU greiðslu- SKILMÁLAR GERA NÚ ÖLLUM KLEIFT AÐ EIGNAST VIÐTÆKI Leitið applýsinga í útsölum vorum: VIÐTÆKiTAIJTSÖLUííNI, Tryggvagötu 28, Sími 4510 og VERZL. FALKANUM, Laugaveg 24, Sími 3G70 Viðtæki inm áhvertheimili TiðtíBkjaveizlun ríkisins Sími 3823 — Lækjargötu 10 B. Bakarar I og þeir aðrir, setu vildu tryggja sór R j ó m a I hjá okkur til hátíðanna, geri svo vel H að senda pantanir sínar sem fyrst. — Mjólkurbú Flöamanna 1 Tjarnargötu 10 — Sími 4287. H Gefið jólagjafir sem veita yl og gieði í öllum skilníngi Prjónastofan Malin Laugaveg 20, slmi 4690. Gefið yður sjálfum í jólagjöf Salmonsens Leksikon Mjög hagkvæmir greiðsluskilmálar Aðalumboðsmaður Cruðjón Jónsson Vatnsstig 4 — Simi 4285 Gula bandið bezi i jólabakstuvinn Nótnasair ið „SAMHLJOMAR verður kærkomin jólagjöf öllum þeim sem leika á hljóðfæri. Fæst í hljóð- færaverzlunum bæjarins og nokkrum bókabúðum, einnig hjá útgefanda, Kristni Ing- varssyni, Hverfisgötu 16. Annáll Trúlofnn. Ally Jóhannesdóttir Bárugötu 34 og Guðni Jensson loft- skeytamaður. Arsrit Laugaskólans er nýlega komið út, vandað að efni og frá- gangi að venju. Ritstjóri þcss er nú þóroddur Guðmundsson írá Sandi. Nýja stúdentablaSið kemur út í dag. Fjölbreytt efni að vanda. — Söluböm mega koma í liáskólann milli kl. 0 og 10 f. h. Arabiskar nætur: Æfintýri úr þúsund og einni nótt, i þýðingu eftir Tómas Guðmundsson og Pál Skúlason, er nýútkomin bók. Eru þarna ýms frægustu og vinsælustu œfintýri úr þúsund og einni nótt, svo scm: Aladdin, Ferðir Sind- baðs, Sagan af Ali Baba og hin- um fjörutíu ræningjum o. fl. — Myndirnar eru eftir Eggcrt Lax- dal og Tryggva Magnússon. Vetrarhjálpinni hafa borizt þess- ar gjafir: Nýr fatnaður og fata- efni allskonar frá verzluninni Geysir fyrir ca. 450 kr., frá verzl- un Ágústu Svendsen fyrir ca. 100 kr., frá G. Bjarnason og Fjeld- stcd fyrir ca. 270 kr., frá verzlun L. H. Muller fyrir ca. 300 kr., frá Verzlunin Björn Kristjánsson fyr- ir ca 230 kr., frá verzlunin Dyngja fyrir ca 150 kr., frá Fatabúðinni fyrir kr. 250.00. Peningar: Frá Vígahrappi kr. 10,00, þorstcini Jó- hannessyni kr. 10,00, Sveinssyni kr. 10,00, Gamla kr. 10,00, Guð- mundi kr. 15,00, K. E. ltr. 10,00, B. G. kr. 10,00, S. þ. kr. 35,00, þ. E. kr. 10,00, I. þ. kr. 10,00, Árna Jó- lmnns. kr. 20,00, Magnúsi Benja- minssyni & Co. kr. 200,00, Ás- mundi Gestssyni 1 skpt. kol. — Matvörur: Frá O. Johnson & Kaaber: 1 pk. hveiti, 2 pokar hveiti (5 pd.) 50 kg. melis, 100 kg. strau- sykur, 10 kg. kaffi, 50 pk. Crisp Com. Guðbrandur Jónsson: f \ Gyðingurinn gangandi og önnur ótvarpserindi Reykjavík 1934. - Bókaverzlun Sigurðar Krist- jánssonar. Bók þessi hefir inni að halda 10 erindi er höf. hefir flutt í útvarpið smám saman und- anfarið og lagað síðan til út- gáfu. Fæst af því, sem flutt er hér í útvarpið, kemur nokkuru sinni á prent, og má það kallast ekki stórmikið tjón. En öðru veifi koma þar erindi, sem vel eru þess verð, að þeim sé fengin betri geymsla en bráðfleygar og hverfular öld- ur loftsins og stundar-athygii hlustandans, sem venst æ meir á að láta það fara út um ann- að eyrað, sem inn kemur um hitt. Ég gæti trúað, að ýmsum, sem hlýtt hafa á þessi erindi, þyki fróðlegt að lesa þau. Það er nú einhvernveginn sitt hvað að hlýða á og lesa. Hið talaða orð getur vakið athyglina, en það er miklu erfiðara að hafa full not af því en hinu ritaða máli. „Bókstafurinn blífur“ segir fomt orðtak. En hið tal- aðá orð skilur oft ekki annað eftir en slitrótta minningu og dvínandi bergmál innan úr hugskotinu, úr því rödd mæl- andans er þögnuð, eða skrúfað er fyrir útvarpið. Guðbrandur Jónsson er lip- ur rithöfundur, snjall orðsins flytjandi og margfróður um fom og ný efni. Mætti vera, að þess kenni á stundum, að hon- um er fulllétt urh mál, eða þá hitt, að hann getur ekki stillt sig um koma að góðri athuga- semd eða snjallri setningu, sniðugri sögu, eða ofurlítiUi gráglettni, 'þótt þetta eigi kann- ske stranglega tekið betur við í einhverju öðru samhengi. En eftir á að hyggja, þeir ströngu menn ættu að íhuga það, að betra er að rekast á snjalla setningu eða sniðuga sögu, þótt í hálfgildings útúrdúr sé, en l'ara slíks á mis ’með öllu, sem oft vill verða. Að efni til em erindin harla sundurleit. Fyrirsagnirnar gefa hugmynd um þetta: Gyðingur- inn gangandi, Appollonia Schwartzkopf, Maria Stuart, íþróttir og met, Jón ÞorláksSOn skáld, Fossinn horfni (Rjukan- fossinn), Don Bosco, Öskudag- ur. Siðaskiptamenn og Jól. Hér er ekki unnt að leggja dóm á erindi þessi. Þau eru skemmtileg aflestrar og ljós hverjum manni. Mér þykir rétt að vekja athygli á þeim. TU þess áð vera ekki allt of sam- kvæmur sjálfum mér ætla ég samt að segja það, að Jón Þor- láksson þykir mér beztur, Siða- skiftamenn íhugunarverðastir og öskudagur fróðlegastur. Err indin um jólin auðvitað tilVal- in lesning handa þeim, sem bókina fá í jólagjöf. Kalli ein- hver þetta dóm læt ég slíkt ekki á sannast. Það er auð- vitað bara sleggjudómur. ÞorkeU Jóhannesson. Síðasti musterisriddarinn Parcival l-ll.ö. Bókaútgáfan „NorðrP' Bók þessi er vandað rit, er skýrir ítarlega og um leið skemmtilega frá síðustu viður- eign krossfaranna og Muham'- eðsmanna í Gyðingalandi, heimför Musterisriddaranna úr landinu helga og heimkomu þeirra til Evrópu, og ofsóknum og eyðingu reglunnar af hendi Filippusar Frakkakonungs hins fríða og Klemensar páfa 5. Inn í hina fjörlegu og glæsi- legu lýsingu af riddaralífi mið- aldanna fléttar höfundurinn nokkuð nákvæmri lýsingu af því hvemig kirkjumálunum var þá stjórnað. Hann sýnir oss hve samvizku- og trúar- snauður þáverandi páfi var í afskiftum sínum við hina glæsilegu riddarareglu, er allt- af var reiðubúin til að lifa og deyja fyrir kirkju sína. Hann sýnir oss gegndaríausa kúgun valdhafann'a og kaldranalega grimmd þeirra, sem ekki skirr- ast við að sýna þóknanlega undirgefni í því að vera vilja- laus verkfæri í höndum þeirra. Hann sýnir oss einnig hvemig sviksemin og ódrengskapurinn mótaði líf sumra, sem skreyttu sig með riddarabúningi og höfðu lofað að lifa fyrir hinar 1933 og ’34. háu hugsjónir reglu sinnar. Og hann gefur oss einnig glögga hugmynd um hreystina, glæsileikann og drengskapinn, sem margur riddari miðald- anna sýndi í öllu lífi sínu og starfi. Og inn í alla frásögu þessa gefur hann hugðnæma lýsingu af ástum þeirra Parci- vals og Ariönu, stjúpdóttur Id- zeddins pasja. Hér er bók er sýnir oss hin- ar æðstu hugsjónir mannlegs lífs, og stendur að því leyti framar ýmsu af nútíðarbók- menntumj vorum, sem' virðast ekki hafa annað markmið en það að benda mönnum ofan í sorann og steypa þá í það form, sem lægstu hvatir þeirra vilja. Af því hlýtur bókin að vera kærkomin öllum þeim, sem unna því sem göfugt er ogvilja hlúa að því. Hún er þroskandi fyrir alla og þá ekki sízt fyrir unglinga, sem jafnan hrífast mest af því, sem fagurt er, göfugt og gott. Um þýðingu og frágang bók- arinnar skal ekki fjölyrt hér, en geta þess, að það er hvoru- tveggja í samræmi við efnið. Framh á 4. slfiu

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.