Nýja dagblaðið - 15.01.1935, Blaðsíða 1
3. ár
Reykjavík, þriðjudaginn 15. janúar 1934.
11. blað
Ný reglugerð
sölu mjóltur
um meðferð og
gefin út í dag
Nazistar hafa fengið meirihluta atkv,
Með veglugerðirmi ev neyiend*
um veiít miklu meiri ivygging
fyviv hollustu og gæðum mjólk*
uvinnav en þekksi hefiv áðuv
Stórkostlegt
mannvirki
London kL 17 14./1. PÚ.
Þeir telja sér sjálfir 80°/a atkvæðanna
en aðrir telja að þeir hafí ekkí yíir 60°/0
í Saar bíða andsíæðingar Nazisfa úrslifanna með
miklum kviða. Margir hafa i undirbúningi að flýja
land. í gaer urðu alvarlegar óeirðir milli þeirra og
nazísfa í Saarbrúcken
1 dág kemur út bráðabirgða-
reglugerð um framleiðslu, með-
ferð og sölu mjólkur sam-
kvæmt lögum nr. 1 frá 7. jan.
1935.
Reglugerðin verður alls í
átta köflum, en að þessu sinni
koma aðeins fjórir kaflar, en
hinna er von næstu daga.
Reglugerð þessari er fyrst og
fremst ætlað að miða tii þess
að tryggja neytendum ómeng-
aða og hreina mjólk og gerir
því miklu strangari kröfur um
meðferð mjólkurinnar en al-
mennt hefir verið gert til
þessa. Þannig eru gerðar kröf-
ur til þess að fjósin séu loft-
góð og björt og hreinsuð það
oft, að mygla, skúm eða annar .
óþrifnaður safnist ekki fyrir, ••
kýmar séu burstaðar daglega,
mjaltafólldð sé þrifalega klætt
og hreint um hendur, júgur
kúnna séu hreinsuð áður en
ihjöltun fer fram og bannað að
mjólka í zinkvarin eða ryðguð
ílát. Á heimilum, sem fram-
leiða sölumjólk, skal árlega
fára fram dýralækniseftirlit
með nautgripum, heilbrigði
þeirra, hirðingu, umgengni í
fjósi og öðru því, sem að mjólk-
urframleiðslunni lítur. Berkla-
veiku fólki eða öðru, sem hald-
ið er næmum sjúkdómum er
bannað að starfa að fjósaverk-
um.
Reglugerðin gerir margar
aðrar kröfur til meðferðar
mjólkurinnar, sem hér yrði of
langt upp að telja.
Einn kafli reglugerðarinnar
hljóðar um sölu á ógeril-
sneyddri mjólk. Um meðferð
þeirrar mjólkur eru gerðar
fyrst og fremst þær kröfur,
sem' greindar eiu hér að fram-
an, og jafnframt ýmsar fleiri.
Þannig er tekið fram, að allir
nautgripir á búinu skuli hafa
staðizt berldarannsókn og slík
rannsókn skuli fara fram eins
oft og héraðslæknir eða við-
komandi dýralæknir telur nauð-
synlegt. Kýr með legbólgu eða
útferð úr leggöngum mega ekki
vera í fjósinu.
Fjós og gripir skuh vera
undir eftirliti ákveðins dýra-
læknis. Eftirlit hans nær til
allrar umgengni, fóðrunar
gripa og allrar meðferðar
mjólkur. Skal hann framkvæma
slíka skoðun eigi sjaldnar en
einu sinni í mánuði.
Enginn má vinna í fjósinu,
nema hann hafi vottorð frá
viðkomandi héraðslækni, uni að
hann sé ekki haldinn neinum
smitandi sjúkdómi (berklaveiki
o. fl.). Skulu slík vottorð ekki
endurnýjast sjaldnar en á lA
árs fresti.
Mjólk, sem seld er ógeril-
sneydd, skal eigi vera með ;
minna fitumagn en 3,5%. j
Leyfilegt er þó að fitumagnið
lækki ofan í 3,15% frá 15. nóv.
til 15. marz, því þá er erfiðast
að framleiða feita mjólk.
Þeir, sem óska eftir að fá
reglugerðina og kynnast ákvæð-
um hennar, geta fengið hana á
skrifstofu mjólkursamsölunnar
í Fiskifélagshúsinu eftir hádegi
í dag.
Mjólkursamsalan hefur starf-
semi sína í dag. .
Hér í blaðinu hefir áður ver-
ið skýrt frá helztu atriðum
hins nýja skipulags mjólkur-
sölunnar og er því óþarft að
gera það aftur hér.
Það er kunnara en frá þurfi
að segja, að fram til þessa
tíma, hefir mjólkursölunni ver-
ið mjög óhagkvæmlega fyrir
komið og gildir það jafnt fyrir
alla aðilja, framleiðendur, neyt-
endur og starfsmenn við mjólk-
ursöluna.
Or þeim miklu annmörkum
er mjólkursamsölunni ætlað að
bæta.
Hið nýja skipulag hefir þeg-
ar orðið neytendum til nokkurs •
1 dag opnaði konungurinn í
Irak olíuleiðslu þá, sem nú er I
lokið við að leggja frá Kirkur
í Irak til strandar í Hafia.
Leiðsla þessi er 1000 enskar
mílur á lengd, en þar sem hún
er tvöföld fyrstu 150 mílurnar,
eru pípumar alls 1150 mílur á
lengd.
Þetta einstaka mannvirki
hefir kostað 10 milj. sterl.pd,
og hefir vinnan tekið 20 mán-
uði. 400 handverksmenn, æfðir
verkamenn, hafa unnið að
þessu allan tímann, auk 900—
1300 aðstoðarmanna og óæfðra
mann, sem unnið hafa óbeint
að því að greiða fyrir verkinu.
T. d. var það nauðsynlegt að
koma upp fullkomnu loftskeyta
sambandi á þessari leið, byggja
fjölda húsa, sjá fyrir vatns-
leiðslum og samgöngum, því .
mikill hluti leiðslunnar liggur j
um óbyggðir.
Starfsmenn Brezka félagsins,
sem annaðist smíði þessarar
leiðslu, voru viðstaddir, er hún
var opnuð; höfðu þeir flogið
frá Londo,n til þess að taka
þátt í þessari athöfn.
heldur lækkað og fyrir atbeina
þess hefir tekizt að knýja fram
almenna lækkun á brauðverð-
inu. Síðast en ekki sízt má geta
þeirrar tryggingar, sem neyt-
endum er veitt, fyrir því að
fá holla og góða mjólk.
Fyrir þá, sem starfa að
mjólkursölunni, hefir hið nýja
skipulag líka . orðið til bóta.
Flest af þessu fólki hafði áður
mjög lág laun. Kaup og kjör
stúlknanna og sendlanna, sem
vinna við mjólkurbúðimar er
nú miðað við það að vera við-
unandi.
Þriðji aðilinn, sem á að hagn-
ast á hinu nýja skipulagi, era
svo vitanlega bændumir. Allir,
sem líta með saimgimi og
Framh. á 4. síðu.
Spár, sem ekki rættust.
Á laugardaginn var atkvæða-
greiðslan, sem átti að fara
fram í Saar daginn eftir, aðal-
umræðuefni heimsblaðanna. Var j
almennt búizt við miklum æs- j
ingum, jafnvel uppþoti og al-
þjóðalögreglan, sem telur að-
eins 3500 manns, mundi ekki fá
rönd við reist. Blöðin spáðu
óskemmtilegum og jafnvel
skelfilegum fréttum frá Saar á
suhnudaginn.
En þær spár rættust ekki.
Samkvæmt fréttum frá erlend-
um útvarpsstöðumí hefir ríkt
við atkvæðagreiðsluna miklu
meiri ró og stilling, en atburð-
ir seinustu daga bentu til.
Alþjóðalögreglan lét sem
rr.innst á sér bera, enda kom
lítið til hennar kasta. Hafði
hún líka fyrirskipun um það,
að draga sig í hlé sem unnt
væri, en vera þó jafnan við-
búin.
Aðsóknin. Langflestir
kjósendanna höfðu kosið
fyrir hádegi.
Veðrið var heldur leiðinlegt í
Saar á kjördaginn. Loftið var
drungalegt, götur og vegir fullir
af krapa, bifreiðamar usluðu 1
gegnum bleytuna og slettu
henni til beggja handa. Menn
létu þó veðráttuna ekki hafa
nein áhrif á kjörsóknina. Strax,
þegar kjörstaðimir voru opn-
aðir um morguninn, hafði fjöldi
fólks safnast úti fyrir. Lang-
flestir höfðu kosið fyrir há-
degi. Atkvæðagreiðslunni var
lokið kl. 8 um kvöldið.
Samkvæmt bráðabirgðaskýrsl-
um er áætlað að kosningaþátt-
takan hafi orðið nál. 99%.
Kosningaróður nazist-
anna.
Frá beggja hálfu, bæði naz-
istanna og andstæðinga þeirra,
var ekkert látið ógert til að
örfa kjörsóknina. Þó bar miklu
meira á nazistum. Sjónarvottur
segir svo frá:
„Rifreiðar þýzku samfylking-
arinnar voru alstaðar. Starf-
semi þeirra bar það með sér,
að hún hefir verið vel skipu-
lögð og ekki hefir skort fé“.
Til þess að sýna að fylgi
þeirra væri að aukast, létu þeir
berast út fréttir um það, að á
kjördaginn hefði 5000 kommún-
istar snúizt til fylgis við þýzku
samfylkinguna.
Jafnhliða voru látin berast
svo þúsundum skipti, heimboð
frá fjölskyldumi í Þýzkalandi til
Saarlendinga um að dvelja sem
gestir þeirra um lengri tíma,
T. d. bauð jarðeigandi einn 100
námumönnum frá Saar að
dvelja á óðali sínú í hálfan
mánuð og skyldi hann borga
ferðakostnað.
Talning fór fram í gær,
en úrslitin verða birt í
dag.
Strax á sunnudagskvöld var
byrjað að flytja atkvæðakass-
ana til Saarbriicken, þar sem
talning atkvæðanna fór fram í
gær, en úrslitin átti ekki að
birta fyr en kl. 8 f. hád. í dag.
Formlega verða úrslitin ekki
birt Þjóðabandalagsráðinu fyr
en á morgun, og mun það taka
ákvörðun sína um framtíð
Saar næstu daga.
Andstæðingar nazista
óttast úrslitin.
Það er talið víst að nazistar
hafi fengið mikinn meirahluta
atkvæðanna.
Hefir borizt sú frétt frá
Saarbriicken, að andstæðingar
þeirra svo þúsundum skipti séu
að undirbúa flótta sinn úr
Saar, áður en nazistar taka
völd.
Frá Ziirich í Sviss kemur sú
fregn, að Frakkar ætli þegar
að setja mjög strangan vörð
við Saarlandamærin, til þess
að hindra, að flóttamenn
streymi til Frakklands. (Skv.
útvarpsskeytum).
Framh. á 4. síðu.
hagnaðar. Mjólkurverðið hefir
Mjólkuvsamsalan
iekuv iil siavfa í dag
Neyiendur hafa árásir Morgunbl- og Vísis að engu