Nýja dagblaðið - 27.02.1935, Blaðsíða 2
8
W f 3 Jl
ÐlOBLAB IÐ
Happdrættí
Háskóla Islands
Þeir, sem hlutu vinning í 10. flokki og fengu á skrif-
stofu happdrættisins ávísanir á miða i 1. flokki,
eru beðnir að athuga:
að Jávísanir þessar gilda ekki sem happdrættismiðar,
heldur verður að framvísa þeim hjá umboðsmönnum
og fá happdrættismiða í skiftum fyrir þær.
Fjárlag’arædaii 1935
Framh. af 1. síðu.
ráðherra, Þorsteinn Briem, hef-
ir hvað eftir annað talað um
það opinberlega, að fyrv. stj.
myndi hafa greitt sumar þeirra
upphæða, sem ég taldi áðan að
r.úverandi stj. og þingmeirihl.
hefði tekið ákvarðanir um og
bæri ábyrgð á, og hefir hann þá
átt við 2. og 5. greiðsluna, sem.
ég nefndi. Ber þetta því að sama
brunni. Núverandi ríkisstjóm
og þingmeirihl. bera ábyrgð á
rúml. 260 þús. kr. af greiðslu-
halla ársins 1934. Ennfremur
mun það láta nærri, að af þeim
5,4 milj., sem greiddar hafa
verið á árinu 1934 umfram
fjárlög, hafi núverandi ríkis-
stjóm og þingmeirihluti ákveð-
ið greiðslu á rúml. 800 þús.
kr., sem ætla má að ekki hefðui
verið greiddar ef fyrv. stjóm
hefði starfað áfram.
Nema þær því nærri eins
hárri upphæð og 40% skattauk.
inn, sem núverandi stjóm
beitti sér fyrir, að samþykktur
yrði, og fyrverandi stjóm
myndi sennilega einnig hafa
fengið samþykktan.
Það kann að vera að mér
hafi láðst að geta um nokkrar
smáupphæðir, sem núverandi
stjóm ihefir tekið ákvarðanir
um utan fjárlaga, en ekki
munu þær svo margar né stór-
vægilegar, að nokkru muni er
heitið geti í þessu sambandi.
Þá vil ég geta þess, að ég
hefi ekki í yfirlitinu reiknað
með þeim spamaði, sem ríkis-
stjómin hefir viðkomið, moð
því að leggja niður varalög-
regluna, er hún tók við völdum.
Tekjur umtram
áæ lun tjárlag'a
Mun ég þá gera grein fyrir
þeim mismun, sem fram kom
í reikningsyfirlitinu á áætluð-
um' tekjum og gjöldum og tekj-
um og gjöldum eins og þau
hafa reynst. Mun ég fyrst
minnast á nokkra þá tekjuliði,
er mest hafa farið fram úr á-
ætlun.
Tekjuskattur hefir farið fram
úr áætlun um 497 þús. kr. A3-
allega er þetta vegna þess, að
í fjárlögum 1934 var ekki
reiknað með 40% skattaukan-
um, sem samþykktur var á
síðasta þingi, og hefir valdið
töluverðri hækkun á skattinum
eins og áður hefir verið drepið
á.
Kaffi. og sykurtollur hefir
farið fram úr áætlun um 323
þús. kr., aðallega vegna þess,
að í . fjárögum 1934 er ekki
reiknað með 25% gengisvið-
auka á þessum tolli sem þó var
samþykktur á vetrarþinginu
1933.
Vörutollur hefir farið fram
úr áætlun um 500 þús. kr., og
verðtollur um 686 þús. kr.
Veldur hér langsamlega mestu
um, að vöruinnflutningur 1934
varð meiri en menn gátu búist
við, eins og ég mun koma að
síðar. Þá veldur hér einnig
nokkru um hækkun verðtollsins,
að á vetrarþinginu 1933 var
verðtollur af ýmsum vörum
töluvert hækkaður, en ekki
reiknað með þeirri hækkun við
áætlun tollsins.
Gjald af innlendum tollvöru-
tegundum hefir farið 152 þús.
kr. fram úr áætlun, og reynst
tvöfalt á við það, sem gert var
ráð fyrir. Veldur því bæði
hækkun á sumum af þeim toll-
um, er falla undir þennan lið,
samkv. ákvörðun vetrarþings-
ins 1933, og þó vafalaust eins
miklu aukning sú, sem orðið
hefir á innlendum iðnaði síðan
fjárlög fyrir árið 1934 voru
samin.
Veitingaskattur hefir reynst
100 þús. kr., en hann var ekki
áætlaður í fjárlögum fyrir
1934.
Ágóði Viðtækjaverzlunaiinn-
ar, að frádregnum rekstrarhalla
Útvarpsins, nam um 117 þús.
en í fjárlögum var gert ráð
fyrir 11 þús. króna rekstrar-
halla hjá þessum stofnunum1
báðum saman.
Ágóði Landssímans hefir orð-
ið um 175 þús. krónum hærri
en gert var ráð fyrir og Tó-
bakseinkasölunnar 273 þús. kr.
hæm. Hinsvegar hefir ágóði
Áfengisverzlunarinnar orðið
105 þús. kr. lægri en gert var
ráð fyrir.
Gjöld umiram
áætlun ijárlaga
Þá mun ég víkja að þeim
gjaldliðum, sem mest hafa far-
ið fram úr áætlun, og ennfrem-
ur helztu greiðslum samkv.
sérstökum lögum.
Útgjöldin samkv. 11. gr.
(dómgæzla og lögreglustjórn)
hafa farið um 555 þús. kr.
fram úr áætlun. Þar af er um-
framgreiðsla til landhelgis-
gæzlunnai’ 210 þús. kr., til toll-
og löggæzlu um 70 þús. kr. og
sakamálakostnaður 70 þús. kr.
Þar í eru eftirstöðvar af kostn-
aði við varalögreglu og kostn-
aður við löggæzlu á Siglufirði,
21 þús. kr., en sú lögregla var
lögð niður þegar núverandi
stjórn tók við völdum.
Á 12. gr. (heilbrigðismál)
eru umframgreiðslur 158 þús.
kr., sem stafar af því, að rekst-
urskostnaður allra spítalanna
hefir farið fram úr áætlun.
Mest á Nýja Kleppi, 50 þús.
kr., og þar næst á Landspít-
alanum, 40 þús. kr.
Á 18. gr. A .(vegamál) hafa
umframgreiðslur orðið 687 þús.
kr. og eru þar með taldar
flestar þær vega- og brúar-
gerðir, sem unnar hafa verið
fyrir lánsfé. Stærstu umfram-
greiðslumar til vega- og brúar-
mála eru þessar (þá eru tekn-
ar með upphæðir greiddar af
lánsfé, sem ekki eru færðar á
13. gr. A. í yfirlitinu) :
Til nýrra vega 332 þús. kr.,
þar af 251 þús. kr. af lánsfé.
Til viðhalds og umbóta á þjóð-
vegum 298 þús. kr., enda var
sá liður ekki áætlaður í fjár-
lögum nema 400 þús. kr., en
hefir reynst 698 þús. kr.
Til brúargerða hafa umfram-
greiðslur orðið 277 þús. kr.,
þar af 245 þús. kr. af lánsfé.
— Mér þykir hlýða að taka
það fram í þessu sambandi, að
sú stefna, að taka lán til vega-
og brúargerða, hefir haft það
í för með sér, að í fjárlagafrv.
fyrir árið 1936, sem nú er lagt
fyrir, eru vextir og afborganir
af þessumi lánum orðnar 142
þús. kr., og nema fast að helm-
ingi þeirrar upphæðar, sem á
fjárlögum er ætlað til vega- og
brúargerða.
Á 13. gr. B (samgöngur á
sjó) hafa umframgreiðslur orð-
ið 242 þús. kr., og er hér ein-
ungis um að ræða umfram-
greiðslur vegna strandferða-
kostnaðar ríkissjóðs. Mun láta
nærri, að um 150 þús. kr. af
þeirri upphæð eigi rót sína að
rekja til þeirrar ketilbilun-
ar, sem varð á „Esju“ sítf-
astliðið ár. Eru þá bæði
reiknuð bein útgjöld vegna
tjónsins og aukinn halli á
rekstri skipsins vegna stöðvun-
Nvtt!
Víkings-ávaxtasykur
er afbragðsgóður í sætsúpur. Notaður í stað-
inn fyrir saft, sykur, sítrónur og allt annað
krydd
Fæst í öllum verzlunum
og kostar 50 aura platan
Reynið og dæmíð!
Nýtt!
Nýtt?
LlFTR YGGING ARDElLD
SJÖVATRYGGINGARFÉLflGS ÍSLANDS H.F.
EIM5KIP II. HæÐ, HERBERGI NR 21. SÍM11700
arinnar, sem bilunin orsakaði.
Á 14. gr. B (kennslumál)
nema umframgreiðslur um 206
þús. kr. Laun barnakennara
hafa farið 56 þús. kr. fram úr
áætlun, og til barnaskólabygg-
inga hefir verið veittur 50 þús.
kr. meiri styrkur en fjárlög
gerðu ráð fyrir. Þá hefir
rekstrarstyrkur til héraðsskóla
reynst of lágt áætlaður um 20
þús. kr. Aðrir liðir, sem fram
úr áætlun hafa farið á þessari
grein, eru svo lágir, að ég hirði
ekki að nefna þá hér.
Á 16. gr. (til verklegra fyr-
irtækja) hafa gjöldin farið 321
þús. kr: fram úr áætlun. Eru
þessar greiðslur helztar:
Jarðræktarstyrkurinn hefir
farið 160 þús. kr. fram úr á-
ætlun, og tillag til byggingar-
sjóða verkamanna samkv. lög-
um, hefir reynst um 50 þús.
kr. of lágt áætlað. — Atvinnu-
bætur hafa farið 33 þús. kr.
fram úr áætlun. Veldur því
sérstakt tillag til atvinnubóta í
Reykjavíkurbæ, sem ríkis-
stjórnin veitti í haust eftir ein-
dregnum tilmælum bæjar-
stjórnar Reykjavíkur.
Umframgreiðslur á 17. gr.
(styrktarstarfsemi) hafa núm-
ið 410 þús. kr. Hefir berkla-
vamakostnaður farið 282 þús.
kr. fram úr áætlun, enda ekki
áætlaður nema 700 þús. kr. —
Framlög til þeirra hreppa, er
hafa fátækraframfæri fram
yfir meðallag, hafa farið 85
þús. kr. fram úr áætlun, og til-
lag til ellistyrktarsjóða kr. 35
þús. fram úr áætlun, sem staf-
ar af lagabreytingu frá árinu
1933, sem ekki hefir verið
reiknað með í fjárlögum.
SúkkuíaÖt
vaxandi sala sannar gæðin.
Útgjöldin á 19. gr. (óviss út-
gjöld) hafa reynst 349 þús.
kr. hærri en gert var ráð fyr-
ir. Veldur hér mjög miklu
kostnaður við breytingu enska
lánsins frá 1921, sem fram fór
á árinu, og nam 243 þús. kr.
Þessi kostnaður er áskilin
3% aukagreiðsla til allra
skuldabréfaeigenda um leið og
bréfin voru greidd, og umboðs-
laun til þess firma, sem sá um
breytingu lánsins. — Þá er
ennfremur færður á þessa gr.
ferðakostnaður sendiherrans í
Kaupmannahöfn við samninga-
umleitanir, 22 þús. kr., kostn-
aður við Spánarsamningana, 18
þús. kr., og kostnaður við
Þýzkalandssamninginn, 14 þús.
kr. Ennfremur kostnaður við
Skipulagsnefnd atvinnumála,
10 þús. kr.
Greiðslur samkvæmt
heimildum i ij&rlög-
um og- þingsálykt-
unum
Greiðslur samkvæmt sérstök-
um heimildum í fjárlögum
nema 131 þús. kr. Er það upp-
bót á útflutt saltkjöt af fram-
leiðslu ársins 1933, er nemur
88 þús. kr. og styrkur til
mjólkurbúa, sem nemur 43 þús.
kr.
Greiðslur samkvæmt þings-