Nýja dagblaðið - 27.02.1935, Page 2

Nýja dagblaðið - 27.02.1935, Page 2
8 W f 3 Jl ÐlOBLAB IÐ Happdrættí Háskóla Islands Þeir, sem hlutu vinning í 10. flokki og fengu á skrif- stofu happdrættisins ávísanir á miða i 1. flokki, eru beðnir að athuga: að Jávísanir þessar gilda ekki sem happdrættismiðar, heldur verður að framvísa þeim hjá umboðsmönnum og fá happdrættismiða í skiftum fyrir þær. Fjárlag’arædaii 1935 Framh. af 1. síðu. ráðherra, Þorsteinn Briem, hef- ir hvað eftir annað talað um það opinberlega, að fyrv. stj. myndi hafa greitt sumar þeirra upphæða, sem ég taldi áðan að r.úverandi stj. og þingmeirihl. hefði tekið ákvarðanir um og bæri ábyrgð á, og hefir hann þá átt við 2. og 5. greiðsluna, sem. ég nefndi. Ber þetta því að sama brunni. Núverandi ríkisstjóm og þingmeirihl. bera ábyrgð á rúml. 260 þús. kr. af greiðslu- halla ársins 1934. Ennfremur mun það láta nærri, að af þeim 5,4 milj., sem greiddar hafa verið á árinu 1934 umfram fjárlög, hafi núverandi ríkis- stjóm og þingmeirihluti ákveð- ið greiðslu á rúml. 800 þús. kr., sem ætla má að ekki hefðui verið greiddar ef fyrv. stjóm hefði starfað áfram. Nema þær því nærri eins hárri upphæð og 40% skattauk. inn, sem núverandi stjóm beitti sér fyrir, að samþykktur yrði, og fyrverandi stjóm myndi sennilega einnig hafa fengið samþykktan. Það kann að vera að mér hafi láðst að geta um nokkrar smáupphæðir, sem núverandi stjóm ihefir tekið ákvarðanir um utan fjárlaga, en ekki munu þær svo margar né stór- vægilegar, að nokkru muni er heitið geti í þessu sambandi. Þá vil ég geta þess, að ég hefi ekki í yfirlitinu reiknað með þeim spamaði, sem ríkis- stjómin hefir viðkomið, moð því að leggja niður varalög- regluna, er hún tók við völdum. Tekjur umtram áæ lun tjárlag'a Mun ég þá gera grein fyrir þeim mismun, sem fram kom í reikningsyfirlitinu á áætluð- um' tekjum og gjöldum og tekj- um og gjöldum eins og þau hafa reynst. Mun ég fyrst minnast á nokkra þá tekjuliði, er mest hafa farið fram úr á- ætlun. Tekjuskattur hefir farið fram úr áætlun um 497 þús. kr. A3- allega er þetta vegna þess, að í fjárlögum 1934 var ekki reiknað með 40% skattaukan- um, sem samþykktur var á síðasta þingi, og hefir valdið töluverðri hækkun á skattinum eins og áður hefir verið drepið á. Kaffi. og sykurtollur hefir farið fram úr áætlun um 323 þús. kr., aðallega vegna þess, að í . fjárögum 1934 er ekki reiknað með 25% gengisvið- auka á þessum tolli sem þó var samþykktur á vetrarþinginu 1933. Vörutollur hefir farið fram úr áætlun um 500 þús. kr., og verðtollur um 686 þús. kr. Veldur hér langsamlega mestu um, að vöruinnflutningur 1934 varð meiri en menn gátu búist við, eins og ég mun koma að síðar. Þá veldur hér einnig nokkru um hækkun verðtollsins, að á vetrarþinginu 1933 var verðtollur af ýmsum vörum töluvert hækkaður, en ekki reiknað með þeirri hækkun við áætlun tollsins. Gjald af innlendum tollvöru- tegundum hefir farið 152 þús. kr. fram úr áætlun, og reynst tvöfalt á við það, sem gert var ráð fyrir. Veldur því bæði hækkun á sumum af þeim toll- um, er falla undir þennan lið, samkv. ákvörðun vetrarþings- ins 1933, og þó vafalaust eins miklu aukning sú, sem orðið hefir á innlendum iðnaði síðan fjárlög fyrir árið 1934 voru samin. Veitingaskattur hefir reynst 100 þús. kr., en hann var ekki áætlaður í fjárlögum fyrir 1934. Ágóði Viðtækjaverzlunaiinn- ar, að frádregnum rekstrarhalla Útvarpsins, nam um 117 þús. en í fjárlögum var gert ráð fyrir 11 þús. króna rekstrar- halla hjá þessum stofnunum1 báðum saman. Ágóði Landssímans hefir orð- ið um 175 þús. krónum hærri en gert var ráð fyrir og Tó- bakseinkasölunnar 273 þús. kr. hæm. Hinsvegar hefir ágóði Áfengisverzlunarinnar orðið 105 þús. kr. lægri en gert var ráð fyrir. Gjöld umiram áætlun ijárlaga Þá mun ég víkja að þeim gjaldliðum, sem mest hafa far- ið fram úr áætlun, og ennfrem- ur helztu greiðslum samkv. sérstökum lögum. Útgjöldin samkv. 11. gr. (dómgæzla og lögreglustjórn) hafa farið um 555 þús. kr. fram úr áætlun. Þar af er um- framgreiðsla til landhelgis- gæzlunnai’ 210 þús. kr., til toll- og löggæzlu um 70 þús. kr. og sakamálakostnaður 70 þús. kr. Þar í eru eftirstöðvar af kostn- aði við varalögreglu og kostn- aður við löggæzlu á Siglufirði, 21 þús. kr., en sú lögregla var lögð niður þegar núverandi stjórn tók við völdum. Á 12. gr. (heilbrigðismál) eru umframgreiðslur 158 þús. kr., sem stafar af því, að rekst- urskostnaður allra spítalanna hefir farið fram úr áætlun. Mest á Nýja Kleppi, 50 þús. kr., og þar næst á Landspít- alanum, 40 þús. kr. Á 18. gr. A .(vegamál) hafa umframgreiðslur orðið 687 þús. kr. og eru þar með taldar flestar þær vega- og brúar- gerðir, sem unnar hafa verið fyrir lánsfé. Stærstu umfram- greiðslumar til vega- og brúar- mála eru þessar (þá eru tekn- ar með upphæðir greiddar af lánsfé, sem ekki eru færðar á 13. gr. A. í yfirlitinu) : Til nýrra vega 332 þús. kr., þar af 251 þús. kr. af lánsfé. Til viðhalds og umbóta á þjóð- vegum 298 þús. kr., enda var sá liður ekki áætlaður í fjár- lögum nema 400 þús. kr., en hefir reynst 698 þús. kr. Til brúargerða hafa umfram- greiðslur orðið 277 þús. kr., þar af 245 þús. kr. af lánsfé. — Mér þykir hlýða að taka það fram í þessu sambandi, að sú stefna, að taka lán til vega- og brúargerða, hefir haft það í för með sér, að í fjárlagafrv. fyrir árið 1936, sem nú er lagt fyrir, eru vextir og afborganir af þessumi lánum orðnar 142 þús. kr., og nema fast að helm- ingi þeirrar upphæðar, sem á fjárlögum er ætlað til vega- og brúargerða. Á 13. gr. B (samgöngur á sjó) hafa umframgreiðslur orð- ið 242 þús. kr., og er hér ein- ungis um að ræða umfram- greiðslur vegna strandferða- kostnaðar ríkissjóðs. Mun láta nærri, að um 150 þús. kr. af þeirri upphæð eigi rót sína að rekja til þeirrar ketilbilun- ar, sem varð á „Esju“ sítf- astliðið ár. Eru þá bæði reiknuð bein útgjöld vegna tjónsins og aukinn halli á rekstri skipsins vegna stöðvun- Nvtt! Víkings-ávaxtasykur er afbragðsgóður í sætsúpur. Notaður í stað- inn fyrir saft, sykur, sítrónur og allt annað krydd Fæst í öllum verzlunum og kostar 50 aura platan Reynið og dæmíð! Nýtt! Nýtt? LlFTR YGGING ARDElLD SJÖVATRYGGINGARFÉLflGS ÍSLANDS H.F. EIM5KIP II. HæÐ, HERBERGI NR 21. SÍM11700 arinnar, sem bilunin orsakaði. Á 14. gr. B (kennslumál) nema umframgreiðslur um 206 þús. kr. Laun barnakennara hafa farið 56 þús. kr. fram úr áætlun, og til barnaskólabygg- inga hefir verið veittur 50 þús. kr. meiri styrkur en fjárlög gerðu ráð fyrir. Þá hefir rekstrarstyrkur til héraðsskóla reynst of lágt áætlaður um 20 þús. kr. Aðrir liðir, sem fram úr áætlun hafa farið á þessari grein, eru svo lágir, að ég hirði ekki að nefna þá hér. Á 16. gr. (til verklegra fyr- irtækja) hafa gjöldin farið 321 þús. kr: fram úr áætlun. Eru þessar greiðslur helztar: Jarðræktarstyrkurinn hefir farið 160 þús. kr. fram úr á- ætlun, og tillag til byggingar- sjóða verkamanna samkv. lög- um, hefir reynst um 50 þús. kr. of lágt áætlað. — Atvinnu- bætur hafa farið 33 þús. kr. fram úr áætlun. Veldur því sérstakt tillag til atvinnubóta í Reykjavíkurbæ, sem ríkis- stjórnin veitti í haust eftir ein- dregnum tilmælum bæjar- stjórnar Reykjavíkur. Umframgreiðslur á 17. gr. (styrktarstarfsemi) hafa núm- ið 410 þús. kr. Hefir berkla- vamakostnaður farið 282 þús. kr. fram úr áætlun, enda ekki áætlaður nema 700 þús. kr. — Framlög til þeirra hreppa, er hafa fátækraframfæri fram yfir meðallag, hafa farið 85 þús. kr. fram úr áætlun, og til- lag til ellistyrktarsjóða kr. 35 þús. fram úr áætlun, sem staf- ar af lagabreytingu frá árinu 1933, sem ekki hefir verið reiknað með í fjárlögum. SúkkuíaÖt vaxandi sala sannar gæðin. Útgjöldin á 19. gr. (óviss út- gjöld) hafa reynst 349 þús. kr. hærri en gert var ráð fyr- ir. Veldur hér mjög miklu kostnaður við breytingu enska lánsins frá 1921, sem fram fór á árinu, og nam 243 þús. kr. Þessi kostnaður er áskilin 3% aukagreiðsla til allra skuldabréfaeigenda um leið og bréfin voru greidd, og umboðs- laun til þess firma, sem sá um breytingu lánsins. — Þá er ennfremur færður á þessa gr. ferðakostnaður sendiherrans í Kaupmannahöfn við samninga- umleitanir, 22 þús. kr., kostn- aður við Spánarsamningana, 18 þús. kr., og kostnaður við Þýzkalandssamninginn, 14 þús. kr. Ennfremur kostnaður við Skipulagsnefnd atvinnumála, 10 þús. kr. Greiðslur samkvæmt heimildum i ij&rlög- um og- þingsálykt- unum Greiðslur samkvæmt sérstök- um heimildum í fjárlögum nema 131 þús. kr. Er það upp- bót á útflutt saltkjöt af fram- leiðslu ársins 1933, er nemur 88 þús. kr. og styrkur til mjólkurbúa, sem nemur 43 þús. kr. Greiðslur samkvæmt þings-

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.