Nýja dagblaðið - 28.02.1935, Blaðsíða 4
4
K Ý J A
DAGBLABI0
IDAG
Sólaruppkoma kl. 7,44-.
Sólarlag kl. 5,38.
Flóð árdegis kl. 0,35.
Flóð síðdogis kl. 13,05.
Ljósatími hjóla og bifreiða
6.05—7.15.
kl.
Ný ja Bíól
Kyrlát
ástleitni
(En stille Fltrt).
Bráðskemmtileg sænsk
tal- og söngvamynd.
Kveðjnathöfii
t»að Ulkynnisl vinum oo kunninojum að lik þoirra Jóns
Jónssonar fró Sigurðarstöðum og Helgu Björnsdóttur frá Brún
í Suður-jtingeyjarsýslu verða flult frá Landsspítalanum í dag
kl 41/2 siðdegis niður að skipi (Esju). Stult kveðjuathöfn fer
fram víð Landspitalann.
Aðsfandendur.
Gamla
sýnir ki. 9:
Sadie Mc. Kei
Efnisrík og vel leikin tal-
mynd, leikin ai
Joan Crawford
Veðurspá: Stinningskaldi á aust-
an eða norðaustan. Úrkomulitið.
Mildara.
Söfn, skrifstofur o. fl.
Landsbólcasafnið ..... 1-7 og 8-10
Alþýðubókasafnið ... 10-12 og 1-10
þjóðskjalasafnið ............. 1-4
Náttúrugripasafnið ........... 2-3
þjóðminjasafnið .............. 1-3
Landsbankinn ................ 10-3
Búnaðarbankinn .... 10-12 og 1-3
IJtvegsbankinn ...... 10-12 og 1-4
Útbú Landsb., IClapparst...... 2-7
Pósthúsið: Bréfapóststofan .. Í0-6
Bögglapóststofan ........... 10-5
Slcrifstofa útvarpsins. .10-12 og 1-6
Landssíminn .................. 8-9
Búnaðarfélagið ...... 10-12 og 1-4
'Fiskifélagið (skrifst.t.) 10-12 og 1-5
Skipaútgerð ríkisins .. 9-12 og 1-6
Eimskip ...................... 9-6
Stjómarráðsskrifst. .. 10-12 og 1-4
Samb. ísl. samv.fél. .. 9-12 og 1-6
Sölus.b. ísl. fiskfrl. .. 10-12 og 1-6
Skrifstofur bæjarins .. 9-12 og 1-4
Skrifst. lögmanns .... 10-12 og 1-4
Skrifst. tollstjóra .... 10-12 og 1-4
Hafnarskrifstofan .... 9-12 og 1-6
Skipa- og skrán.st. rík. 10-12 og 1-5
Tryggingarst. rikisins 10-12 og 1-5
Bæjarþing kl. 10.
Heimsóknarfímf sjúkrahnsa:
Landspitalinn ................ 3-4
Landakotsspitalinn ........... 3-5
Vífilstaðahælið . 12y2-iy2 og 3y2-4Y2
Laugamesspítali ......... 12%-2
Kleppur ...................... 1-5
Elliheimilið ................. 1-4
Næturvörður í Reykjavíkurapóteki
og lyfjabúðinni Iðunn.
Næturlæknir: Jón Nikulásson,
Lokastíg 3. Sími 2966.
Samgöngur og póstferSir:
Goðafoss til Akureyrar.
Esja vestur um í hringferð.
Dr. Alexandrine væntanleg frá
Akuryeri.
Skemmtanir og samkomur:
Gamla Bíó: Sadie Mc Kei.
Nýja Bíó: Kyrlát ástleitni.
Dagskrá útvarpslns:
Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,10 Há-
degisútvarp. 12,45 Enskukennsla.
15,00 Veðurfregnir. 18,45 Erindi:
Um fiskverkun, II Sveinn Áma-
son fiskimatsstjóri). 19,10 Veður-
fregnir. 19,20 þingfréttir. 19,50 Aug-
lýsingar. 20,00 Klukkusláttur. Frétt-
ir 20,30 Umræður um kosningu í
útvarpsráð (Fulltrúaefni á kjör-
listum).
í kvöldkl. 8
Piltur og stúlka
Næst siðasta sinn
Lækkað verð
Aögöngumiðar Mldir kl. 4—7 dag-
iai fyrir, og aftir kl. 1 daginn,
mtta leikið er. - Sími 8191.
Ann&U
Leiðréttlng. í greininni Svar íjár-
málaráðherra við dylgjum íhalds-
blaðanna út af lántökunni i Eng-
landi hefir slæðst inn prentvilla í
nokkum hluta af upplagi blaðsíns
I dag, í greinarlokin stendur, í 7.
línu aðg neðan „verzlunarfélags",
á að vera verzlunaraðstöðu.
Skipafréttir. Gullfoss var í gær
i Reykjavík. Goðafoss f.er vestur og
norður í kvöld ki. 10. Brúarfoss
var á Akureyri í gær. Dettifoss
kom til Hamborgar i gærmorgun.
Lagarfoss var í gær á leið til Leith
frá Oslo. Selfoss var í gær á leið
til Antwei’pen frá Aberdeen.
Vísir, oft nefndur ,Rollublaðið‘af
vissum ástæðum (sem réttast væri
úr þessu að fletta ofan af), er nú
í dauðateygjum sínum daglega að
narta í Vigfús Guðmundsson með
upplognum sögum og illkvittnis-
legu orðbragði. í einni greininni
nýlega kallar Rollublaðið V. G.
„vikapilt", „skósvein", „heimsk-
ingja“, ,brjóstumkennaniegan aum-
ingja“, „smalahund", „djúpt sokk-
inn í spillingarfen“, „Jónasarþræl"
o. s. frv. En af því Vísir er svo
djúpt sokkinn í áliti allra sæmi-
legra manna undir pilsfaldi Jakobs
og rollugrímu Páls, þá er hann
kominn á sama bekk og Stormur,
að enginn svarar honum og þegar
hann er að níða sérstaka menn
niður er níð hans tekið sem lof
um viðkomandi mann.
Úr verstöðvanum anstanfjalls.
Síðastliðinn föstudag réru tveir
bátar frá Stokkseyri og voru það
íyrstu róðrarnir - austanfjalls , á
þessari vertíð. Afli var þá lítill,
enda stutt farið. Á laugardaginn
réru þaðan þrír bátar og var afli
um þúsund á skip, mest ýsa.
ísfisksalan. Venus seldi nýlega í
Englandi fyrir 1008 sterlingspund.
Ofrétt um afla. Hafsteinn seldi í
Grímsby í gær 1787 vættir fyrir
637 sterlingspund. Er hann seinasti
togarinn, sem selur á þessari ver-
tíð.
Veðrið í gær. Allhvöss norðan-
eða norðaustanátt um allt land.
Snjókoma í flestum héruðum
landsins, einkum sunnanlands.
Frostlaust var í Vestmannaeyjum,
en annarsstaðar 1—6 stiga frost.
Hæstiréttur. í gær féll dómur í
Hæstarétti í máli, sem hafði verið
höfðað gegn bílstjóra fyrir að aka
bifreið undir áhrifum áfengis.
Hafði hann neytt áfengis um kl.
II kvöld eitt í júnímánuði síðastl.
og tekið við stjórn bifreiðar þrern-
ur klukkustundum síðar. Var
bann dæmdur i 100 kr. sekt í und-
irrétti, en sýknaður i Hæstarétti.
Kemur það orðið nokkuð oft fyrir
að Hæstiréttur fellir vægari dóma
í áfengismálum en aðrir dómend-
ur.
Með Goðafossi síðast komu 2
Dieselvélabílar til Sturlaugs Jóns-
sonar & Co. og eru það fyrstu
Dieselvélabílarnir, sem til landsins
bafa flutzt.
Tilhæíulaus ósannindi eru það
iiiá blaði „einkafyrirtækisins" og
annara ennþá verri sorpblaða (t.
d. Visi) að sendill Nýja dagblaðs-
ms hafi farið með umboð á lands-
fundi bænda.
Rádskonnstarfid @ Odým §
við sjúkrahúsið á Patreksfirði er laust til umsóknar. anglýsingarnar
Umsóknarfrestur til 15. marz n, k. Upplýsingar gefur
Bergur Jónsson alþingismaður, Reykjavík og undir-
ritaður.
Skrifstofu Barðastrandarsýslu, 19. febr. 1935.
Þorst. Sítnonarson
settur
Arshátíð samvinnumanna
verður haldin að Hótel Borg n. k. laugardag og hefst
með sameiginlegu borðhaldi kl. 7 e. h.
Aðgöngumiðar kosta kr. 6,00 fyrir manninn með
mat, en kr. 3,50 án matar.
Aðgöngumiðar seldir í Hljóðfærahúsinu, Hófel Borg,
Kaupfélagi Reykjavíkur og afgreiðslu Nýja dagblaðsins
Samvinnubygglngafálagið Simfnn
heldur aðalfund sinn í kvöld (28. febr.) kl. 21 í fundarher-
bergi F. 1. S. í Landssímastöðinni við Tborvaldsensstræti, 3.
hæð. — Dagskrá samkv. félagslögunum.
STJÓRNIN.
NB. Menn sýni félagsskírteini.
Afgreiðsla blaðsins óskar eftir að
fá 38. tölublað þ. á. (frá 16. þ. m.).
Hvítölssúpu hafa ýmsar íhalds-
írúrnar verið að basla við að búa
til undanfama daga í stað mjólk-
urmats. Einum bóndanum varð að
orði í gær við konu sína, eftir að
vera búinn að fú þennan nýja rétt
á matborð sitt: „Ég held þú ættir
næsta dag að búa til graut úr
laxerolíu og bjóða nokkrum helztu
fiokkssystrum þínum til miðdegis-
verðar".
Undarlegt skipsheiti. Sú saga
gengur um bæinn, að maður, sem
hefir „spekúlerað" mikið í útgerð,
sé í þann veginn að kaupa sér
nýjan togara, sem á að bera nafn-
ið: Whiskyflaskan, sem sór. Mun
ýmsum þykja það einkennilegt
skipsheiti, einkum þeim, sem lítið
þekkja til sögu skipseigandans.
Frá Akranesf. f seinustu viku
fóru flestir bátar þaðan þrjá róðra.
Afli var misjafn, frá 20—100 skip-
pund yfir vikuna.
Kálfar Mbl. og kálfar Thor Jen-
sen. Rit-„kálfunum“ við Mbl. finnst
það meir en lítið hart, að kaup-
endur Korpúlfsstaðamjólkurinnar
skyldu amast við, þótt sálufélög-
um Mbl.-kálfanna, tuddunum í
íjósi Thor Jensen, væri gefin sú
mjólk, er bæjarbúar guldu annars
fyrir fullt verð. Og að segja ósatt
fyrir rétti, eru þeir smámunir, í
þeirra augum, að ekki er umtals-
vért. En kálfarnir við Mbl. hafa
iika fengið sína „injólk" frá stór-
bröskurum íhaldsins. Og það er
eins með hana, að almenningur
liefir verið látinn borga, m. a. í
óhagkvæmum viðskiptum og með
því að borga bankatöp ísl.b. En
það er einróma álit að kálfar Th.
Jensen launi mun betur eldið en
Arsliátíð
%
Framh. af 1. síðu.
velkomnir þangað, hvers flokks
sem þeir kunna að vera í stjóm
málum. Aðgangseyrir er hóf-
legur og vel til alls vandað.
Samvinnumenn! Fjölmennið
á þessa samkomu.
lcálfar ihaldsblaðanna, sem virðist
vanta meðal kálfsvit. það er þó
alltaf frálagið í þeim fyrnefndu.
Kosning í útvarpsráð. Á morgun
hefst hér í bænum kosning af
bálfu útvarpsnotenda í útvarpsráð
samkvæmt því sem áður hefir ver-
ið auglýst. Kjörstofan Lækjartorgi
1 herbergi nr. 10 verður opin kl.
2—4 og 6—8 síðd. alla virka daga.
Sími kjörstofunnar er 1686 og ber
kjósendum að snúa sér til hennar
um allt viðkomandi kosningunni.
ÚJtvarpsnotandi, sem er fjarstadd-
ur heimili sínu eða byggðarlagi,
er samkvæmt 16. gr. reglugerðar-
innar heimilt, með skriflegu, vótt-
föstu umboði eða með staðfestu
simskeyti, að fela nánasta vanda-
manni sínum eða þeim öðrum
heimilismanni, er hann treystir, að
neyta ntkvæðjsréttarins fyrir sína
liönd.
Lá við slysi. í gærmorgun er vél-
báturinn Arsæll frá Njarðvík var
að draga línuna skali A bátinn
stórsjór og tók út allt lauslegt af
þilfari, og f éll útbyrðis Magnús
Guðmundsson Góugötu 2 í Reylcja-
vík, en bjargaðist fyrir snarræði
skipvcrja. Manninum- líðui' vei.
í námunda við strandstað Langa-
ness hafa rekið tvö lík og nokkur
hluti hins þriðja. Öil líkin voru
flutt íil þingeyrai- og jarðsungin.
6 daga útsala
á húsgögnum á Lindargötu 38.
Þar verður allt selt með mikið
niðursettu verði. Til dæmis
smáborð frá kr. 6,50, stofuborð
sem kostuðu áður 35 og 38 kr.
seljast nú á aðeins 25 krónur.
Dívanar frá kær. 15,00 og ótal
margt fleira með 10—20% af-
slætti. — Komið á Lindargötu
38 og gerið góð kaup. Sími
2896.
38. tölublað Nýja dagblaðs-
ins óskast á afgreiðslu blaðsins.
Nýlegur trillubátur til sölu.
Upplýsingar í síma 4538 eftir
kl. 8 á kvöldin.
Gólfmottur, ódýrar, en góð-
ar, fást í Kaupfélagi Reykja-
víkur.
---------------------------!
Hæg jörð við þjóðveg
austanfjalls til sölu. Laxveiði.
Sanngjarnt verð. Semjið við
Jón Ólafsson lögfr. Sími 4250.
Gúmrnísvampar góðir til að
þvo glugga, glasaþurkur, gólf-
klútar og tausnúrur.
Kaupfélag Reykjavíkur.
Frímerkja-album ódýr. Nr.
39. Alheims 19,5X24,5 cm.
2500 merki 2,75 óbundið, 3,25
bundið. Nr. A Alheims 12X13
cm. 32 síður 0,90. Einstiksbæk-
ur: Diana: 10X16 cm1 12
straufur 1,20. Plutu: IOV2XIÓ
cm. 18 straufur 1,60. Prímus:
Límpappír 1000 stykki 0,50.
Sekundir: Límpappír 1000
stykki 0,75. — Sendist í ónot-
uðum frímerkjum. Magnús
Jónsson, Lokastíg 15, Reykja-
vík.
Efni til útrýmingar
„Kakkalökkum“
fæst í Kaupfél. Reykjavikur.
Hinir ágætu sjálfblekungar,
Orthos, fást 1 Kaupfélagi
Reykjavíkur.
Spínatin
hið vitaminauðuga fæst í apó
tekum.
Tilkynningar
1456, 2098, 4402 hafa verið,
eru og verða, beztu fisksímar
bæjarins. Hafliði Baldvinsson.
Kennsla
Kennsla í bókbandi. Get bætt
við nokkrum nemendum. Til
viðtals á vinnustofu minni kl.
1—7. Rósa Þorleifsdóttir, Lækj-
argötu 6 B. (Gengið í gegnum
Gleraugnasöluna).