Nýja dagblaðið - 23.03.1935, Blaðsíða 1
Vélþurkun á heyl og verkun á heymjðli
Vidtal viö Pétur Einarsson búfrœðíng trá Asi
Friðsiit yfirvofandi
Orðtendiug Itala fær daufar undirtekt-
ir i Berlin. - Von Neurath bregður
Bandamðnnum um brot á Versalasamn-
Ingnum og hafi þeir orðið fyrri að
bragði en ÞJóðverJar
Pétur Einarsson frá Ási
kom frá útlöndum með Gull-
fossi í g-ær. En hann fór utan
í desembermánuði síðastliðnum
til að kynna sér tilraunir með
heyþurkunarvélar, nýbýlamál
o. fl. Hafði hann nokkurn styrk
frá ríkinu til ferðarinnar.
Pétur dvaldi lengst í Dan-
mörku og var þar á véla-
námskeiði, sem haldið var fyr-
ir bændur við Teknologisk
ínstitut í Kaupmannahöfn. —
Þykja námskeið þessi mjög
merkileg og hefir ríkisstjórn-
inni hér tvisvar verið boðið að
senda mann á þau, en af því
hefir þó ekki orðið. Þetta nám-
skeið sóttu um 120 bændur.
Frá Kaupmannahöfn fór Pét-
ur til Svíþjóðar, Þýzkalands og
Englands og kynnti sér þessi
nlál eftir föngum. Kynntist
hann mörgumi mönnum, sem
við þessi máí fást og mun hafa
samband við þá framvegis.
Nýja dagblaðið hitti Pétur
að máli í gær og spurði hann
um ýmislegt úr ferðalaginu.
Fer hér á eftir nokkuð af frá-
sögn Péturs:
í Danmörku eru nú reyndar
tvær heyþurkunaraðferðir, önn-
ur þýzk og hin sænsk. Er hvor
um sig reynd á tveim stöðum.
Þýzka heyþurkunaraðferðin,
Rema Rossin, er þannig.að hey-
inu er blásið gegnumi afarmik-
inn hita, minnst 800 hitastig,
og þurkast það á skeminri
tíma en einni mínútu. Er það
kælt á eftir. Þessi þurkunarað-
ferð er dýrust í stofnkostnaði.
Sænska aðferðin, Hessiccator,
er nokkru ódýrari. Heyið er
þurkað í heitu lofti inni í sí-
valningi og er hitinn í fyrstui
150 hitastig, en er síðan lát-
inn fara minnkandi. Þessi að-
ferð tekur til muna lengri
tíma.
Þessar heyþurkunaraðferðir
hafa báðar þótt of dýrar í Sví-
þjóð. Hefir sænskur maður,
Edholm forstjóri, nýlega fund-
ið upp nýja aðferð, sem er
miklu ódýrari en þessar. Hún
er þannig, að heyið er þurkað
í gi'ind innanhúss við mismun-
andi hita, eftir því hve það er
blautt. Líkar þessi aðferð yf-
irleitt vel og hefir náð tölu-
verðri útbreiðslu. Liggja t. d.
nú fyrir pantanir víða frá í
Svíþjóð, að koma þessum tækj-
um upp.
Þýzkalandi og Englandi er
notuð fjórða aðferðin og er hún
lang útbreiddust þar. Það er
hin svonefnda bandþurkun.
Heyið er þurkað innanþúss og
látið vera á breiðu bandi, og er
blásið gegnumi það heitu lofti.
I Jena í Þýzkalandi er til'
rannsóknarstofa, sem eingöngu '
fæst við heyþurkunartilraumr.
Kom ég þangað og er auðsýni-
legt, að Þjóðverjar vilja leggja
mikið í sölurnar, til þess að
tilraunir þessar beri árangur.
Eru' þeir líka t. d. farnir að
rækta maís, sem eingöngu
byggist á hraðþurkun, því hann
þroskast svo seint. Sama má
segja um hveitiræktina norðar-
lega í Svíþjóð.
I þessu sambandi mætti ef til
vill geta þess, að Danir eru nú
farnir að auka grasræktina
með tilliti til þess að geta
íramleitt heymjöl. Gera þeir
það til að spara kaup á kraft-
fóðri handa svínum og hænsn-
um. Sama er einnig gert í.
Svíþjóð og Þýzkalandi.
Ég gerði mér, sagði Pétur,
eftir því sem tími leyfði, far
um að kynnast framkvæmdum
og löggjöf þessara þjóða í ný-
býlamálunum og getum við án
efa lært mikið af Svíum og
Dönum í þeim efnum. Fram-
kvæmdir Þjóðverja á því sviði,
eru líka mjög myndarlegar, en
ýms skilyrði verða nýbýlingar
þar að uppfylla, sem ekki
mundi þurfa hér. T. d. verða
þeir að geta sýnt það, ef þeir
vilja verða opinbers styrks að-
njótandi, að þeir séu hreinir
Ariar og eigi helzt vissan
fjölda barna.
Enn lesum við æfintýrin. Þar
sem hið æstasta hugarflug
var að verki, skapandi furðu-
legar sagnir um fjarstæða at-
burði, sem ótrúlegastir hafa
þótt.
Við höfum lesið þessi æfin-
týr okkur til gamans og fylgt '
hinu frjósama hugarflugi út
yfir takmörk veruleikans, en
gætum þess ekki að hin stór-
kostlega tækni okkar tíma, er
jafnvel fui'ðulegri en hinar
gömlu sagnir.
Nú fórum við í einum áfanga
milli fjarlægra landa að dæmi
HæstaréttarlOgin
atgreidd trá Nd.
Frv. um breytingu á lögum
um Hæstarétt var til 3. umr. í
neðri deild í gær. Lágu fyrir
margar breytingatillögur.
Samþykkt var breytingatil-
laga frá Magnúsi Torfasyni
þess efnis, að dómarar í
Hæstarétti skuli vera fimm. Þó
skal ekki fjölgað dómendum í
réttinum fyr en fé er veitt til
þess á fjárlögum.
Samþykkt var breytingatil-
laga frá Garðari Þorsteinssyni
cg Thor Thors um það, að lög-
. fræðingar, sem fengju II. ein-
kunn við próf megi verða
hæstaréttarmálaflutningsm, ef
lagadeildin mælir með því. Nú
er þetta fastskorðað við I.
eink.
Frumvarpið var samþykkt
svo breytt og afgreitt til efri
deildar. *
Sala matjessíldar
íalin Síldarútvegs-
nefnd
Eins og kunnugt er, ihefir
ekki náðst samkomulag milli
matjessíldarframleiðenda um
stofnun matjessíldarsamlags,
. sem annaðist sölu á útfluttri
matjessíld í sumar.
Atvinnumálaráðherra hefir
því samkvæmt lögum um síld-
arútvegsnefnd o. fl. frá sein-
asta Alþingi, ákveðið að feia
Síldarútvegsnefnd að sjá um
sölu á allri matjessíld í sumar
og öðrum þeim síldartegundum,
sem kynnu að verða sendar á
mat j essíldarmarkað.
Síldarútvegsnefndina skipa
þessir menn þingkosnir: Finn-
ur Jónsson alþm., kosinn af Al-
þýðuflokknum, Jakob Frí-
mannsson bókhaldari á Akur-
eyri, kosinn af Framsóknar-
flokknum, Sigurður Kristjáns-
Framh. á 4. síðu.
Aladíns, mælum við vini um
óravegu, heyrum gras gróa eins
og Njörður og höfum hrað-
fleygari fréttaboða en hrafna
Óðins. Geymum raddir og
myndir dáinna manna, bindum
krafta lagar og lofts til fram-
köllunar orku og efnis, skyggn-
um undirdjúpin og hinn hæsta
tind, sönnum gang himintungla
og sköpun jarðar og bindum
dulræn náttúruöfl frjósömum
veruleika.
Töframaður nútímans er
máttugri galdramönnum sög-
Framh. á 4. síðu.
Berlin kl. 8, 22/3. FÚ.
Orðsending ítala til Þjóð-
verja, sem ítalski sendiherrann
í Berlín fékk dr. Neux-ath í
gær, er samin í talsvert mild-
ari tón, en franska orðsend-
ingin. Þar segir, að ítalir hafi
nú hin síðustu árin gert allt
sem í þeirra valdi stóð, til þess
að fá Versalasamninginn end-
urskoðaðan, og til þess að
komast að nýjum samningi á
grundvelli algjörðs jafnréttis.
Fyrir þessari afstöðu sinni
kveðst ítalska stjórnin hafa
gefið fullgildar sannanir fyr og
síðar. En þó kveðst ítalska
stjórnin ekki geta komizt hjá
að mótmæla því, þegar einn af
samningsaðilum tæki sér það
vald, að virða að vettugi gerða
samninga, þvert ofan í alþjóða-
reglur.
Þessari orðsendingu svaraði
von Neurath um leið og hann
tók við henni á líkan hátt og
hinni frönsku, sem sé, að þýzka
stjórnin gæti ekki tekið mót-
mæli til greina, og það af
þeirri ástæðu, að allar hinar
þjóðirnar hefðu þegar brotið
samninginn.
Bcrlin kl. 8, 22/3. FÚ.
Ensku blöðin í gærkvöldi og
í morgun ræða lítið annað en
orðsendingar Itala og Frakka
og svör van Neuraths. Eru sum
blöðin mjög berorð um þetta
mál, og telja, að Þjóðverjar
lxafi algjörlega vísað óllúm
málaleitunum af hálfu Frakka
og ítala á bug. Blöðin birta yf-
irskriftir eins og „Þjóðverjar
virða Frakkland og Italíu ekki
svars“, „Neurath tekur ekki
mark á orðsendingunum“ o. s.
frv. Blaðið „Evening Standard"
segir meðal annars um þetta
mál, að ræða Flandins í fyrra-
dag hafi enn dregið úr vonun-
um um samkomulag, og að ef
slík orð hefðu fallið á dögum
Clemenceau og Poincarés, þá
hefði það þýtt sama og stríð
— en til allrar hamingju — eða
óhamingju — segir blaðið, er
Flandin enginn jafnoki þeirra.
London 22/3. FÚ.
Roosevelt hefir meðtekið af-
rit af tilkynningu Þjóðverja og
orðsendingu Breta, frá sendi-
herra sínum í London, og hef-
ir forsetinn nú tekið þau plögg
til athugunar.
Kellogg hefir látið svo um-
mælt, að þó Þýzkaland hafi
tvímælalaust rofið Versala-
samninginn, þá sé þó ekki með
öliu tilhæfulaus sú staðhæfing
þýzku stj órnarinnar, að aðrar
þjóðir hafi ekki gætt ákvæða
hans um aívopnun semj bezt.
Hermálaráðh. Frakka sagði 1
gær, að 70% af þýzkum vopna-
smíðaverksmiðjum væru í full-
um gangi, að 18 nýjar flugvél-
ar væru smíðaðar á hverjum
degi og að innan fárra vikna
myndu Þjóðverjar hafa 1500
ílugvélum á að skipa,
Vegna tilkynningar þýzku
stjórnarinnar hefðu Frakkar
aukið herlið sitt á helztu stöðv-
unum við austur-landamæri
Frakklands, sagði hermálaráð-
herrann.
Jafnrétti iyrir Þjóð-
verja? Ját
Hernadartorréttindi
iyrirÞjdðverja? Nei!
London kl. 17, 22/3. FÚ.
Umræður neðri málstofu
enska þingsins í gær, voru at-
hyglisverðar vegna þeirrar ein-
ingar, sem fram kom í ummeel-
um allra ræðumanna, hvaða
flokki sem þeir tilheyrðu.
Mr. Geo Lansbury sagði, að
framkoma Þjóðverja hefði
komið yfir mann eins og þruma
og næstum því valdið örvænt-
ingu. Hann skoraði á Sir John
Simon, að gera þýzku stjórn-
inni það ljóst, að Stóra Bret-
land vildi leita friðarins með
afvopnun, en ekki endurvopn-
un. Og hann bað utanríkisráð-
herrann að segja henni frá því,
að Bretland væri reiðubúið til
þess, að hætta algerlega við
vígbúnað sinn í lofti og að fall-
ast á alþjóðlegt eftirlit með
flugferðum'.
Sir Herbert Samuel talaði
fvrir hönd frjálslyndra stjórn-
arandstæðinga og sagði að Sir
John Simon mætti vera viss
um það, að öll þjóðin stæði á
bak við það. Og öll deildin
laust upp fagnaðarópi, þegar
hann sagði: „Jafnrétti fyrir
Þjóðverja? Já. Hernaðarfor-
véttindi fyrir Þjóðverja? Nei“.
Sir John Simon talaðil af
miklum þunga. Hann sagðist
fara til Berlínar, til þess að
ræða 4 atriði.
öryggi. Vígbúnað. Upptöku
Framh. á 4. síðu.
Sigur vísindanna