Nýja dagblaðið - 09.05.1935, Síða 2

Nýja dagblaðið - 09.05.1935, Síða 2
2 1» Ý J A DAGBLABIÐ Síðasti sðiudagur fyrir 3. flokk í dag Æilið þér að gleyma að endurnýja? Happdrættiö Norður á Holtavðrðuheiði verða ferðir frá Bifreiðastöð íslands laugardaginn 11. og þriðjudaginn 14. maí. Sömu daga kemur bifreið frá Blönduósi á móti suð- ur á Holtavörðuheiði. / Afgr. í Reykjavík á Bifreiðastöð Islands, sími 1540. Bifreiðastöð Akureyrar Eaupum flöskur til föstudagskvölds, en þó aðeins Portvín, Sherry og Akvavit-flöskur. Afengisverzlun ríkísins Nýborg Dýraverndunartélag Islands Aðalfundur / Dýraverndunarfélags Islands verður haldinn í Oddfó- lagahúsinu næstkomandi föstudagskvöld kl. 81/*. Dagskrá samkvæmt félagslögunum. STJÓRNIN Ný rakarastofa Á morgun (föstudag) opna óg undirritaður rakara- stofu á Laugaveg 33. Viröingarfyllst Haraldur Atnundínusson (áður hjá Valdimar Loftssyni) Notið daginn vel! En það gerið þið með því að líftryggja yður hjá . Hvergi hagkvæmari kjör. — Aðalumboð fyrir Island. C. A. Broberg Lækjartorgi 1 Simi 3123. Ódýr svið íshúsið Herðubreið Simi 2678 Leiklistarfregnir frá Noregi og Danmörku FRÁ FRÉTTARITARA NÝJA DAGBLAÐSINS. Kaupm.höfn í apríl. Leikritið, sem útgerðar- mennimir bönnuðu og vakig hefir fádæma um- tal áður en það hefir verið leikið. Á alþingishátíðinni á Þing- völlum 1930 kynntist ég norska skáldinu Nordalil Grieg. Hann skarar fram! úr öðrum yngri Ijóðskáldum Norðmanna og er auk þess á- gætt leikritaskáld. Nordahl Grieg, sem var fréttaritari fyrir „Tidens Tegn“ á alþing- ishátíðinni, lét óspart í ljÓ3 aðdáun sína á Islandi. Hann sagði við mig, að ísland hefði haft svo mikil áhrif á sig, að hann mundi áreiðanlega ein- hvemtíma skrifa bók um það. Hann hefir samt sem áður ekki enn komið þessari fyrir- ætlun sinni í framkvæmd, en í þess stað skrifað mörg leikrit á síðustu árum. Leikhúsin hafa nýverið fengið í hendur seinasta leikrit hans. Hefir það hlotið þau dæmalausu ör- lög, að valda stjómlausum á- greiningi og umtali áður en það hefir nokkursstaðar verið sýnt á leiksviði. Nordahl Grieg er frá Berg- en. Hann sendi leikhúsinu í Bergen (Den Nationale Scene) leikritið, en meiri hluti leik- hússtjórnarinnar eru skipaút- gerðarmenn. Leikhússtjórinn viðurkenndi leikritið tafar- laust, en meiri hluti leikhús- stjómarinnar — útgerðar- mennirair — lögðu blátt bann við því, að það yrði leikið. Ekki getur hjá því farið, að menn spyrji undrandi hvers vegna einmitt skipaútgerðar- mennimir skyldu beita sér gegn leikriti Nordahls Griegs. Til þess að geta gert sér þetta ljóst, er óhjákvæmilegt að kynna sér innihald leikritsins. Leikritið heitir „Vor ære og vor makt“ og er titillinn tekinn úr sjómannasöng eftir Bjöm- stjeme Björnson; „Vor ære og vor magt har hvite seil os bragt“. Það fjallar um sjó- menn og útgerðarmenn skipa. Fyrsti þáttur þess er látinn gerast á stríðsárunum. Skipa- eigendur eru á fundi. Flutn- ingagjöldin eru hæst á Norð- ursjónum. Þess vegna er au'ð- vitað sjálfsagt að þeirra skip sigli þar. Það skiptir þá svo ógn litlu máli, þótt einmitt þar sé mest hættan sökum 1 unaurduflanna. Leiksviðinu er breytt. Skip, sem orðið hefir fyrir tundurdufli, sézt sökkva í sjóinn og sjómennimir drukkna. Enn er skipt um leiksvið. Útgerðarmenn em í veizlu, stórkostlegu drykkju- gildi á sömu stundu og sjó- mennimir hafa farizt. Síðasti þáttur gerist á yfirstandandi tímum. Skipaútgerðamrenn eru aftur á fundi. Þeir neita að halda skipunum úti, því flutn- ingagjöldin séu svo lág, að þeir geti ekki búizt við nein- um ágóða. Sjómennimir ganga atvinnulausir. Þeir og þeirra fjölskyldur líða skort, en þegar þeir minna skipaútgerð- aimennina á þeirra gullnu lof- orð á stríðsárunum, er þein kastað út. Þetta er í fáum dráttum höfuðinntakið í leikritinu, sem leikhússtjómin í Bergen hafn- aði. M. a. fann hún það því til foráttu, að í því gætti um of róttækrar stefnu og eins hitt, að það kæmi of greinilega í ljós, að höfundur- inn hugsaði sér að leikritið gerðist í Bergen. Sem sagt, leikritið hefir komið af stað óhemju umtali og ágreiningi, en nú hefir verið ákveðið að það verði sýnt bæði á þjóð- leikhúsinu í Oslo og Drama- tiska leikhúsinu í Stokkhólmi. Stjómendur þessara tveggja leikhúsa halda því fram, að það hljóti að vera leyfilegt að sýna leikrit án tillits til þess, hvaða stefnu það túlki, ef í því eru fólgin listræn verðmæti. Og þeir álíta að „Vor ære og vor makt“ sé snjallt, listrænt verk. Útileikhús verður nú byggt í Danmörku hjá þeim stað, sem sagnir herma, að Hamlet sé grafinn. 1 Danmörku á að byggja útileikhús, sem rúmar 10,000 áhorfendur. Leikhúsið verður byggt hjá hallargarðinum á Kronborg á Helsingör. Er ætlunin að þar verði sýndar sögulegar leiksýningar, óperur og leikdansar. Þessi staður er líka fomsögulegur nokkuð, ef trúa skal fomum sögnum, sem herma að gröf Hamlets sé hjá Kronborg-ihöllinni. En hvort sem þetta er rétt eða ekki, er þess vænzt, að stóra útileikhúsið á Helsingör verði eftirsótt af erlendum ferða- mönnum. Þess vegna hefir sveitarstjómin á Helsingör Frá deginum 1 dag verdur Horpusláttur med eftirmiðdags- hijómleikunum A hörpuna leikur Miss E. Perress lonz lll Pöntunum ekki veitt móttaka, en aðgöngu- miðar fást i Hljóö- færahúsinu Sími 3656 lagt fram álitlega fjárhæð til byggingar leikhússins, sem væntanlega getur tekið til starfa í sumar. Hætta Anna og Poul Reumert störfum við Dagmar-leikhúsið? — Viðtal við Poul Reu- mert. Dönsk blöð segja frá því, að Anna og Poul Reumert muni bætta störfum við Dagmar- leikhúsið í lok þessa leiktíma- bils á næsta hausti. Eftir þeim fregnum, sem fréttarit- ari Nýja dagblaðsins hefir fengið, í samtali við Poul Reu- mert, hefir samt sem áður engin endanleg ákvörðun verið um þetta tekin enn. — Það eina, sem nú þegar liefir verið fastákveðið, segir Poul Reumert, er það, að ég leiki sem! aðkomuleikari í Stokkhólmi og Gautaborg nokkum tíma næsta leiktíma- bils. Um annað hefir enn ekki verið tekin nein fullnaðará- kvörðun, hvorki hvað snertir konu mína né mig. B. \

x

Nýja dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.