Nýja dagblaðið - 11.05.1935, Page 1
r
Karlakór Reykjavíkur
Mikíl aðsókn og ágætir blaðadómar í Noregi
Islendingar í Danmörku
Viðtal við Martin Bartels, formann íslendinga-
félagsins í Kanpmannahöfn
Kórinn syngur í Gautaborg íkvöldogíStokkhólmiámorgun
Þær fregnir, sem borizt hafa
af söngför Karlakórs Reykja-
víkur, eru á þá leíð, að hverj-
um góðum Islendingi mega þær
vera fagnaðarefni.
Á útleið sinni söng kórinn í
Færeyjum við ágæta aðsókn og
undirtektir.
1 Björgvin hélt hann fyrstu
söngskemmtun sína á mánu-
dagskvöld. Aðsöknin var góð
og fögnuður áheyrenda mjög
roikill. Bárust kórnum og söng-
stjóra hans margir blómvendir
og lárviðarkrans. Blaðaummæli
um; söng kórsins eru m. a. á
þá leið, að íslendingamir hafi
„lagt borgina undir sig í einni
svipan“ og kórinn mundi sóma
sér vel, hvar í heimi sem væri.
Kórinn söng aftur í Björgvin
á miðvikudagskvöld.
Meðan kórinn dvaldi í Björg-
vin, var hann boðinn í bílferð
um nágrenni borgarinnar og
síðan haldin veizla á Flöjen.
Á fimmtudagskvöld söng
kórinn í Oslo við mikla aðsókn
og ágætar viðtökur. Rigndi
blómum yfir söngstjórann, Sig-
urð þórðarson, og í blaðadóm-
um segir, að hann sé „list-
fengur stjórnari og kórinn svo
fágaður, ag leitun sé á öðru
Sigurður Þórðarson, söngstjóri
eins“. Stefán Guðmundsson fær
einnig lofsamlega blaðadóma
og segir eitt blaðið, að hann sé
, ,guðinnblásinn söngsnillingur“.
I dag syngur kórinn í Gauta-
borg og á morgun syngur hann
fyrir Ingrid prinsessu, í höil
hennar í Stokkhólmi.
(Að nokkru eftir útvarpina).
110 þús. Þjóðverja
hata flúid land, segir
blaö Hitlers
r
I fangabúðunum eru „nám
skeið i samiögun við hið nýja
Þýzkalandu
London kL 16, 10/5. FÚ
Fyrstu opinberu tölurnar,
sem þýzk stjórnarvöld hafa lát-
ið uppi um fjölda þeirra manna,
sem flúið hafa frá Þýzkalandi
síðan nazistar tóku við völdum,
voru birtar í Berlín í dag. —
Skýrslan er byggð á upplýsing-
um frá leynilögreglunni þýzku.
í skýrslunni segir að 90.000
gyðingar hafi flúið land og um
20.000 annara þýzkra manna.
Af þessum 110.000 er talið að
10.000 hafi aftur horfið til
Þýzkalands.
Völkischer Beobachter, blað
Hitlers, segir í grein um þessa
sltýrslu, að við flótta þessara
manna hafi Þýzkaland misst 80
miljónir sterlingspunda í reiðu
fé, eða jafngildi þess. Fjár-
Framh. á i. síðu.
Ríkid keypti í gær
síldarverksmiðiuna á Baniarhöfn
Frumvarp til laga nm heímild til verksmidjukaupanna var flu' t á sldasta
þingi at Gísla Guðmundssyni þingmanni Norður- Þingeyinga.
Síðdegis í gær var undirrit-
aður á Siglufirði samningur
milli ríkisstjórnarinnar og
norska firmans Gundersen í
Björgvin, um að ríkið kaupi
síldarverksmiðjuna á Raufar-
höfn. Þormóður Eyjólfsson for-
maður síldarverksmiðjustjórn-
ar ríkisins hefir aðallega ann-
ast samningumleitanir af hálfu
ríkisins og undrritaði hann, á-
samt einum meðstjórnanda, Jóni
Þórðarsyni, samninginn fyrir
hönd ríkisstjómarinnar. En
Böðvar Bjarkan málafl.maður á
Akureyri var umboðsmaður
norska firmans og undirritaði
samninginn fyrir þess hönd.
Samkv. samningnum kaup
ir ríkið verksmiðjuna með hús-
um, vélum, áhöldum, bryggjum'
og öðrum mannvirkjum fyrir
60 þús. norskar krónur. Helm-
ingurinn af verðinu, kr. 30 þúa.,
á að greiðast 1. okt. n. k. Eft-
irstöðvarnar greiðast með jöfn
um afborgunum og 5% vöxt-
um á næstu fimm árum.
Verksmiðjan bræðir um 800
mál á sólarhring. Raufarhöfn
liggur mjög vel við síldarmið-
um, því að oft er aðal síldar-
gangan fyrir norðan austur á
Axarfirði og þistilfirði. Sérsták
lega er það mikilsvert fyrir
smærri skip, að geta losað sig
við síld, sem þar veiðist, til
bræðslu á Raufarhöfn, í stað
þess að þurfa að fara með hana
alla leið vestur á Eyjafjörð eða
Siglufjörð.
Undanfarin ár hefir stundum
legið við borð, að verksmiðju-
reksturinn á Raufarhöfn legð-
ist alveg niður. En það myndi
hafa þýtt mjög alvarlegt at-
vinnutjón fyrir þorpsbúa á
Raufarhöfn og fjárhagserfið-
leika fyrir viðkomandi hrepp.
Sl. haust fluttu eigendurmr
mikig af útbúnaði verksmiðj-
unnar burt og munu hafa verið
staðráðnir í því að reka hana
ekki framvegis.
Gísli Guðu undsson, þingmað
ur N.-Þingeyinga, flutti því
á síðasta þingi frv. um að veita
ríkisstjórninni heimild til að
kaupa og starfrækja verksmiðj
una. Varð frv. að lögum á þing-
inu.
Fyrir nokkrum dógum skýrði
einn af meðlimum' í stjórn
síldarverksmiðja ríkisins frá
því í Vísi og Mbl., að búið væri
að semja um kaup á verksmiðj-
unni. En eins og sjá má hér að
framan var sú frásögn röng,
því að samningurinn var ekki
undirritaður fyr en í gær. Er
það undarleg lausmælgi af
manni í opinberri þjónustu að
hlaupa í blöð með samninga,
sem ekki er búið að ganga frá,
enda mun það ekki hafa verið
gert með leyfi þeirra, sem önn-
uðust samningana.
FRÁ FRÉTTARITARA
NÝJA DAGBLAÐSINS.
Kaupm.höfn í apríl.
Er ekki erfitt fyrir íslend-
inga að una sér í Danmörku,
sökum þess hve náttúra lands-
ins er gagnólík því sem þeir
eiga að venjast? Er ekki örð-
ugt fyrir ísíendinga að fá at-
vinnu í Danmörku? — Það
hlýtur að vera áhugaefni fyrir
marga Islendinga, sem hafa í
byggju, að heimsækja landið
ftalir ákæra
Þjöðverja
fyrir að flytja vopn til Abyssiniu
London kl. 16, 10/5. FÚ
í grein, sem út kom í Joum-
ai de Italia í morgun, er Þýzka
land sakað um það, að hafa
Keisarinn í Abyssiniu.
sent til Abyssiniu miklar birgð
ir af rifflum, vélbyssum, skot-
færum, brynvögnum, junkers-
flugvélum og efnavörum, sem
livort heldur sem er megi nota
til eiturgasframleiðslu eða til
sprengjugerðar. Frá því í jan-
úar og þangað tl um miðjan
apríl, segir í þessari grein,
voru flutt inn frá Þýzkalandi
til Abyssiniu 10.000 rifflar, 2
miljónir skothylkja og allmikið
af vélbyssum. Ennfremur er frá
því skýrt, að vörur þessar skuli
greiðast á 9 árum með útflutn-
ingsvörum frá Abyssiniu til
Þýzkalands. í greininni segir
ennfremur, að almennt sé svo
álitið að vissir bankar í Evrópu
hafi veitt Abyssiniukeisara lán
til að standa straum af þessura
vígbúnaði. Ástandið er afar
hættulegt, segir að lokum í
greininni, og Italía verður að
taka upp hinar ströngustu var-
úðarráðstafanir. Blaðið fullyrð-
ir, að Abyssiniukeisari láti nú
þjóðina hervæðast á tveimur
Framh. á 4. síðu.
rnilli Skagerak og Kattegat, að
fá svör við þessum og öðrum
slíkum spurningum, sem máli
skipta. Einn þeirra manna,
seni hefir bezta þekkingu á
þessum málefnum, er Martin
Bartels bankafulltrúi. Hann
hefir verið formaður fyrir Is-
lendingafélaginu í Kaupmanna-
höfn síðan 1926 og nýtur mik-
illa vinsælda í því starfi. Enn-
fremur er hann í stjórn Dansk-
íslenzka félagsins og auk þess
vel kunnugur dönsku athafna-
lífi. Sökum þessarar aðstöðu
sinnar hefir hann náin kynni
bæði af íslendingum og Dön-
um. Þess vegna hefi ég beðið
hann að svara fyiTgreindum
spurningum, og farast honum
svo orð:
— Staðhættir hér eru auð-
vitað á margan hátt mjög ó-
líkir íslenzkum staðháttum og
hver og einn verður að sætta
sig við það. En samt sem óður
gengur Islendingum það yfir-
leitt vel. Þess vegna hefir mér
virzt, að flestir I slendingar
kunni vel við sig hér í Dan-
mörku.
Sökum atvinnuleysisins og
samtaka stéttafélaganna, er
það ríkjandi skoðun að nú sé
örðugt fyrir Islendinga að fá
atvinnu í Danmörku. Samt
sem áður eru Danir yfirleitt
mjög ánægðir með vinnubrögð
íslendinga. Því til sönnunar
nægir að benda á það, að inn-
an ýmsra starfsgreina hafa ts-
lendingar áunnið sér vinsældir.
Ilér starfa m. a. íslenzkir
verzlunarmenn, læknar, hand-
verksmenn, hjúkrunarkonur og
saumakonur, við góðan orðstír.
Launakjör eru yfirleitt góð. I
Frainh. á 2. síðu.
Forstjóraskipti
í Samsölunni
Arnþór Þorsteinsson, fram-
kvæmdarstjóri Mjólkursamsöl-
unnar hefir í gær ritað Mjólk-
ursölunefnd og óskað eftir að
fá lausn frá starfi sínu við
Samsöluna, þar sem honum
standi til boða annað starf, er
honum leiki fremur hugur á.
Ósltaði hann eftir að geta skipt
úm' starf nú þegar.
Mjólkursölunefndin hefir fall
izt á að verða við ósk hans.
Ennþá er ekki ráðið um, hver
taki að sér starfið, en það mun
verða gert mjög fljótlega.