Nýja dagblaðið - 28.05.1935, Blaðsíða 1

Nýja dagblaðið - 28.05.1935, Blaðsíða 1
Horfnr í Austur-Evrópu | Elzti muður íslauds látinn að Pilsudski latxmm FRÁ FRÉTTARITARA NÝJA DAGBLAÐSINS. Kaupm.höfn í maí. Pilsudski marskálkur, hinn aldraði foringi pólsku þjóðar- innar, andaðist 12. maí. Síð- asta áskorun hans til þjóðar sinnar, var svolátandi: „Látið rússneskan herafla aldrei kom- ast gegnum Pólland!“ Þessi fáorða setning er tal- andi tákn um það viðhorf heimsmálanna, sem myndaðist rétt eftir andlát Pilsudski. Stórveldin hafa slegig hring um Þýzkaland, til að inniloka það og í þenna hring vantar aðeins einn hlekk, Pólland. Eins og kunnugt er, hafa verið gerðar ítrekaðar tilraunir til þess, að vinna Pólland til þátt- töku í þessum samtökum. Ekki alls fyrir lögu fór frönsk sendinefnd til Póllands í þess- um erindagerðum og þessa dagana hefir Laval utanríkis- málaráðherra Frakka, á heim- leið frá Moskva, reynt að hafa áhrif á pólsk stjómarvöld í þessa átt. En allar tilraunir Helgrima af Pilsudski. hafa strandað á stefnufastri ó- vild Pilsudski til Sovét-Rúss- lands. Pilsudski áleit að kom- múnisminn væri hættulegri sjálfstæði Póllands en nokkuð annað. Hélt hann mjög ákveðið við þessa stefnu, bæði meðan Framh. á 2. síðu. hylltur Öldungurinn Kristján Ás- mundsson andaðist að Víði- gerði í Eyjafirði síðastliðinn laugardag, fullra 102ja ára að aldri, — fæddur 7. sept. 1832. Hann hafði verið veikur um þriggja vikna skeið, og ekki haft fótavist síðan hann var tíræður, en hafði minni og hug á því sem gerðist fram til síð- ustu stundar. — FÚ. Guðm. Einarsson fpá Miðdal FRÁ FRÉTTARITARA NÝJA DAGBLAÐSINS. Oslo í maí. íslenzki málarinn, Guðmund- ur Einarsson, hefir nýverið opnað sýningu í Kunstforen- ingen, sem er stærsti listsýn- ingasalur í Oslo. Auk þess, sem Guðmundur Linarsson sýnir þar fjölda landslagsmynda frá Islandi, gefur þar líka að líta leirsmíð- ar ýmsar. Blöðin hafa getið þessarar sýningar og álíta að leirmunir hans séu ekki áberandi lista- verk. Aftur á moti halda þau því fram, að hann sé ágætur málari, sem með frábærum skilningi birti í málverkum sínum sérkennilega fegurð og mikilleik lands síns. Mörg blöð birta myndir af n;álverkum Guðmundar Z. Karlakór Reykjavíkur, er svo ágætan orðstír hefir undanfar- ið unnið sér og þjóð sinni á Norðurlöndum, fylgdi vel á eft- ir sigrinum, með því að syngja fyrir Reykvíkinga daginn eft- ir heimkomuna. Reykvíkingar létu ekki á sér standa, að þakka söngmönnunum unninn orðstír, með því að troðfylla Gamla Bíó, og láta ótvírætt í ljós hrifningu sína yfir afrek- um flokksins, söngstjórans, Stefáns Guðmundssonar og að þessu sinni ungfrú önnu Péturss, er nú var staðgengill hr. Emil Thoroddsen við slag- hörpuna. Fjölda laga varð að endur- taka, og þó færri en áheyrend- ur auðheyrilega vildu. Og er hrifningin var undir það kom- in á hástig, rétt fyrir hvíldar- tímánn, að hálfnaðri söng- skrá, kvaddi Sigurður Skúla- son meistari sér hljóðs frá einni stúkunni og ávarpaði söngstjóra og flokk á þessa leið: Ræða Sigurðar Skúla- sonar. Háttvirti söngstjóri, Sigurð- ur Þórðarson. Virðulegu söngmenn. Við Karlakór Reykjavikur hafa verið tengdar glæsilegar vonir allt frá því, er kórinn var stofnaður. Þessar vonir hafa aldrei brugðizt. Kórinn hefir jafnt og þétt stefnt í átt- ina til fullkomnunar á því sviði, sem honum er markað. Hann hefir jafnan notið mík- illa vinsælda, og yfir söng hans hefir frá byrjun hvílt einhver þokki, sem ekki er auðvelt að gera grein fyrir. Kórinn er fyrir löngu kominn í röð beztu íslenzku karlakóra. En nú fyrst hefir fengizt örugg vissa fyrir því, að hann er einnig fylli- lega hlutgengur meðal beztu Framh. á 4. gíðu. Sjötugur ferjumaður I dag er Ólafur Guðmunds- son sjötugur. Hann var síðasti ferjumaðurinn yfir Þjórsá, þar sem hún var fjölfömust — en það var á Sandhólaferju — áður en brúin kom á ána, árið 1895. Ólafur var uppalinn á Sandhólaferju. Ferjumánns- starfið kom í hlut hans, þegar hann hafði burði til starfans, en hann varð snemma mikill vexti og afrenndur að afli. Er það eftirtektarverð mynd af samgönguerfiðleikum allt fram til síðustu tíma, að það stóðst á endum, að brúin kom á ána og þessi þrekmikli víkingsmað- ur lét af starfi síná farinn að heilsu, eftir vosbúð og harð- rétti ferjumannshlutskiptisins, þrítugur að aldri. En vinnu- degi hans réði að lögum „dag- ur á vetri, en sól á sumri“, en Framh. á 4. síðu. „Vertu með ílialdinu! Vertu með íhaldinu!" er vigorð »bændafiokksins« Frá Ölfusárfundínum á sunnudaginn Magnús Torfason sýslumað- ur boðaði til fundar við ölfus- j árbrú á sunnudaginn. Hófst fundurinn kl. 3 og var þá komið þangað mikið fjölmermi, bæði úr Árnessýslu og héðan úr Reykjavík. Magnús setti fúndinn og kvaðst hafa boðað til hans, til að hrekja ranghermi og ósann- - indi, sem um sig hefðu komið í blaðinu Framsókn. Myndi hann því tala nokkra stund fyrst, en síðan yrði ræðutíma skift milli flokka. Svafari og Heimdelling- um mistekst. Sýslumaður hafði talað skamma stund, þegar sköllótt- ur, sætkenndur strákur fór að grípa fram í mál hans. Var því vel tekið af Svafari Guð- mundssyni, sem óð um gólfið eins og tryltur maður, og naz- ista_ og Heimdallsdrengjum, sem komnir voru úr Reykjavík. Var það auðsýnn tilgangur þessara samherja að hleypa upp fundinum. Sýslumaður bað strákinn að þegja, ellegar yrði hann rekinn út. Stráksi lét sér þó ekki segjast, og gerði sýslumaður sér þá lítið fyrir, fór til hans og lét hann finna að honum' var full alvara. Fór strákur þá undan í flæmingi, en þegar kom í mannþröngina við dyrnar, ætluðu íhaldspiltarnir reykvísku og Jón Ólafsson bankastjóri að veita honum lið. En Ámesingar skárust þá í leikinn og var strákurinn látinn út. Jón gamli reyndi áð- ur að spyrna fæti við sýslu- manni, en reyndist of fótstutt- ur. Hlaut íhaldsþingmaðurinn af þessu framferði fullkomna óvirðingu, enda drógst hann fljótt burtu. Pilturinn, sem stóð fyrir ærslunum, er sonur Þórðar frá Hjalla. Hefir hann starfað mikið í Heimdalli, að sögn ver- ið í stjóm o. s. frv. Hann var samflota Sigurði Kristjáns- syni austur. Seinna á fundin- um kom hann til fundarstjóra og vildi tala í tíma „Bænda- flokksins“. Hefir hann lært af foringjum sínum, að slá hönd- um! á reitur og réttindi „Bændaflokksins“, sem sínar eigin. Fundarmönnum þótti mikið um þessa röggsemi sýslumánns og fékk hann eftir þetta gott hljóð. Fara hér á eftir nokkur atriði úr ræðu sýslumanns, sem stóð í nær tvo tíma. Rekinn úr „Bænda. um“. Eftir framkomu reykvískra Bændaflokksmanna í minn garð á fundinum við Tryggva- skála, skrifaði ég stjóm flokksins og sagði slitið við hana samvinnu, en þar fyrir sagði ég mig ekki úr flokknum, því ég taldi mig ekkert hafa brotið, sem réttlætti þessa að- för. Nokkru síðar fékk ég svar 'frá miðstjóminni, þar sem hún segist hafa móttekið „úrsögn“ Fmroh. á Z aiOu. Vandræðín með eldgosíð fara helzt vaxandi meðal þeirra, er lengst hafa viljað gera sér mat úr hraunleðjunni. Hvernig sem símað er norður, vilja engin merki um eldgos koma í ljós, ekki minnsta glufa einu sinni. Seint í gærdag kom meðal annars þessi fregn frá Skinna- stað: „... Menn eru nú á einu máli um það, að eldur þessi hafi ekki komið úr iðrum jarðar, en að öðru leyti eru1 menn allmjög ósammála um hvað valdið hafi eldinum. Eink- um' er mönnum ráðgáta hvem- ig á því muni standa, að eld- urinn stefndi þvert á vindátt“. Það er þetta með vindáttina. — En þeim, er brennt hafa sinu, gæti dottið í hug, að ó- gætilega hefði verið varpað frá sér eldspýtu, og eldurinn þá læst sig um mólendið eftir því á hverju svæði mestur feyskjugróður hefði legið inn- an um skógarkjarrið.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.