Nýja dagblaðið - 28.05.1935, Síða 4
4
N Ý J A
DAG B L A Ð I Ð
I DAG
Sólarupprás kl. 2.40.
Sólarlag kl. 10.11.
Plóð árdegis kl. 1.55.
Flóð síðdegis kl. 14.25.
Ljóaatimi hjóla og bifreiða kl.
9,45- 3,05.
Veðurspó: Suðaustan kaldi. Skýj-
að, en úrkomulaust að mestu.
SMa og aktUatotari
Landsbókasafnið...... 1-7 og 3-10
Alþýðubókasafnið ... 10-12 og 1-10
þjóðminjasafnið ............. 1-3
Náttúrugripasafníð .......... 2-3
þjóðakjalasafnið ............. 14
Landsbankinn ............... 10-3
Búnaðarbankinn .... 10-12 og 1-3
Útvegsbankinn ...... 10-12 og 14
Útbú Landsb., Klapparst........ 2-7
Pósthúsið: Bréfapdststoían .. 10-6
Bögglapóststöfan ........... 10-5
Skriístofa útvarpsins.. 10-12 og 1-6
Landssíminn ................... 8-9
tíúnaðarfélagið ...... 10-12 og 14
Fiskiíélagið (skrifstt) 10-12 og 1-5
Skipaútgerð ríkisins .. 9-12 og 1-6
Eimskip ....................... 9-6
Stjórnarráðsskrifst .. 10-12 og 14
Samb. ísl. samv.fél.....9-12 og 1-6
Sölus.b. isl. fiskfrl. .. 10-12 og 1-6
Skrifstofur bœjarins .. 9-12 og 14
Skrifst. tollstjóra .... 10-12 og 1-4
Skrifst. lögmanns .... 10-12 og 1-4
Ilafnarskrifstofan .... 9-12 og 1-6
Skipa- og skrán^t. rík. 10-12 og 1-5
Heimsóknartiml sjákraháM:
Landsspítalinn ............... 34
Landakotssþitalinn .......... 3-5
VifilsUðahKlið . 12ya-lHog3V44%
Laugameaapitali .......... 12V4-2
Kleppur .................... 1-5
Elliheimilið ................. 14
Sjúkrahús Hvítabandsins .... 24
Fæðingarh., Eirikag. 37 .. 1-3 og 8-9
NæturvörQur i Laugavegs- og Ing-
ólfs-apóteki.
Næturlæknir: Kristín Ólafsdóttir,
Tjamargötu 10. Sími 2161.
Bkenuntanir og itmkomor:
Nýja Bíó: Nana kL 9.
Gamla Bíó: Unnusti um of kl. 9.
Karlakór Reykjavíkur: Söng-
skemmtun i Gamla Bíó ki. 7,15.
Samoðngnr og póatferðlr:
Suðurland til Borgamess og frá
Borgarnesi.
Gullfoss til Akureyrar.
Esja vestur um i hringferð.
Dettifoss væntanlegur að norðan.
Dagakrá útrarpaina:
Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,10 Hó-
degisútvarp. 15,00 Veðurfregnir.
19,00 Tónleikar. 19,10 Veðurfregn-
ir. 19,20 Erindi Búnaðarfélagsins:
Garðyrkjan, II (Ragnar Ásgeirs-
son ráðunautur). 19,50 Auglýsing-
ar. 20,00 Klukkuslóttur. Fréttir.
20,30 500 óra afmæli sænska rík-
isþingsins: 'a) Ræða (Ásgeir Ás-
geirsson, f. forsætisráðherra); b)
Sænsk lög (Útvarpshljómsveitin).
21,00 Útvarpskvöld Skógræktarfé-
lagsins: a) þorst. Ö. Stephensen:
Upplestur; b) Hákon Bjamason:
Sænsku skógamir; c) Ásgeir L.
Jónsson: Bæjarstaðaskógur; d)
Geir Gígja: Dýrin í skóginum; e)
Maggi J. Magnús: Skógræktarfé-
lag fslands. — Enníremur: Ein-
söngur (Einar Markan) og íslenzk
lög.
Hannes r&ðherra er nýkominn
af veiðum með 84 lifrartn.
Esja fer í hringferð vestur um í
kvöld.
Karlakúr Heykjavíkur heldur
söngskemmtun í kvöld kl. 7.15 sd.
í Gamla BÍ4
(Jnnusti um oí
Afarfjörug og skemmtileg
talmynd með töfrandi
söngvum, sungnum af hin-
um ágæta söngvara
LANNY ROSS,
en aðalhlutverkið í mynd-
inni er svo bráðskemmti-
lega leikið af
Charlie Ruggles,
að undir mim taka í húsinu
Aam&U
Skipafréttir. Gulifoss fer vestur
og norður í kvöld, aukahöín ön-
undarfjörður. Goðafoss er í Hull.
Dettifoss var væntanlegur til
Reykjavíkur snemma í morgun.
Brúarfoss er í Kaupmannahöfn.
þau mistök urðu, að grein, er
frú Aðalbjörg Sigurðardóttir hafði
ritað um „Mæðradaginn" fyrir
Nýja dagblaðið, og átti að koma
á sunnudaginn, barst ekki rit-
btjórninni fyrr en í gær, og var
þó ekki höfundi um að kenna.
Skemmtiferð til Akraness efnir
K. R. til á fimmtudaginn (upp-
stigningardag). Verður Lúðrasveit
Reykjavíkur með í förinni og
spilar fyrir danzi bæði á leiðinni
og ó Akranesi. Ýmiskonar íþrótta-
keppní fer fram á Akranesi og
skemmtanir. Má búast við veru-
lega góðri ferð, þar sem Lúðra-
sveitin og K. R.-ingar leggja sam-
an til að gera hana ánægjulega,
að ógleymdu Akranesi, sem að
gamalla manna máli — og ungra
— hefir fegurst að bjóða hér á
landi af því sem sagt er að karl-
mönnum almennt þyki „drottins
fegursta smíði". K.
Knattspymumót II. fL Síðastl.
sunnudagskvöld voru þreyttir
tveir leikir, Valur vaim Víking
með 4:1 og K. R. vann Fram með
1:0. Standa félögin nú jöfn, hafa
öll 2 stig. f kvöld kl. 73/4 keppa
Víkingur og Fram og kl. 83/4 K.
R. og Valur. Verða kappleikir
þessir án efa fjörugir og eins og
menn geta séð á úrslitum hinna
leikjanna, er mjög óvíst um hvert
félagið verður hlutskarpast. Fyrir
knattspymuvini verður góð
skemmtun að vera ó íþróttavellin-
um í kvöld.
Kappreiðar fóru fram á Skeið-
vellinum við Elliðaámar síðastl.
sunnudag. Áhorfendur voru á
þriðja þúsund manns. Úrslitin
urðu þessi: Skeiðhestar (250 m.).
I þessu hlaupi voru reyndir 12
hestar í þrem flokkum. Fyrstur
varð ,,þokki“ Friðriks Hannesson-
ar, Lögbergi, 27 sek. í hlaupinu
tóku þátt 6 hestar. Stökkhestar
(300 m.) í þessum flokki kepptu
12 hestar í þrem flokkum. í
fyrsta flokki urðu jafnir á 25.2
sek. „Balbo“ Stefáns Thorarensen
lögregluþjóns og „Herkúles"
Steinunnar Einarsdóttur, Rvík. í
öðrum flokki varð fyrst „Gjósta"
Birgis Kristjánssonar á 24.3 sek.
og annar „Fengur" Guðm. Magn-
ússonar Hafnarfirði, 24.5 sek. f
þriðja flokki var fyrstur „Fróði“
Hjartar Sigmundssonar, Deildar-
tungu á 24.8 sek. og annar
„Krummi" Einars Sæmundssonar
á 26 sek. í úrslitaspretti varð fyrst
Gjósta á 24.6 sek. Stökkhestar
(350 m.) í þessum flokki kepptu
II hestar í tveim fíokkum. í fyrsta
flokki nóði enginn hestur tilskyld-
um hraða, en i öðmm flokki varð
fyrstur „Fálki“ þorgeirs í Varma-
dal á 28.2 sek. í úrslitaspretti
varð fyrstur „Reykur" á 27.8 sek.
og — Kappreiðamar voru kvik-
myndaðar.
Jarðarför Sigurðar Símonarsonar, kaupfélags-
8tjóra, fer fram frá Dómkirkjunni í dag kl. 1.
Vandamenn
Auglýsing um síldarkaup.
Hefi verið beðinn að útvega ferska síld til söltunar á Siglu-
flrði n. k. síldarvertíð, af 1—2 skipum. Þeir, sem vildu sinna
þessu, geri svo vel að hringja í síma 9210 eftir kl. 8 að kvöldi
og verða þá gefnar allar frekari upplýeingar.
Hafnarfirði 27. maí 1935.
Oskar Jónsson.
Karlakór Reykjavíkur
hylltur
Framh. af 1. síðu.
erlendu karlakóra. Því hefir
hin nýafstaðna utanför kórs-
ins skorið úr. Og þó að í er-
lendum dómum um söng kórs-
ins kenni auðvitað bæði sjálf-
sagðrar kurteisi og velvildar,
er kjarni þeirra á þá lund, að
kórinn er vafalaust kominn í
fremstu röð norrænna karla-
kóra.
Karlakór Reykjavíkur- Þeg-
ar þú sigldir héðan á dögun-
um, fylgdu1 þér ótal fagrar
óskir og miklar vonir. Vinir
þínir og velunnarar hér heima
leituðu fyrst af öllu að fregn-
um1 um söng þinn, er þeir sáu
dagblöðin, og margir þeirra
skrúfuðu frá útvarpinu í þeirri
von, að heyra þar eitthvað
fallegt um þig.
Það gladdi okkur öll, er við
fréttum, að kórinn hefði gagn-
tekið Færeyinga með söng sín-
um á útleið. En þar sem fær-
eyskt orðtak segir, að Islend-
ingar geti allt, og hér er um
smáþjóð að ræða, vorum við
ekki með öllu áhyggjulaus um
kórinn fyrr en fyrstu' fregnirn-
ar frá skandinavisku löndun-
um1 tóku að berast hingað. Þær
voru allar á eina lund. óskipt
aðdáun. Stokkhólmur, hin
glæsilega höfuðborg Svíanna,
fagnaði kómum með snjó, þar
var alhvít jörð, og með því
auðsýndi hin fagra borg yður
kurteisi sína. — En hér heima,
úti á ultima Thule, hefir jörð-
in að þessu sinni flýtt sér meir
að grænka en dæmi munu til
áður á þessari öld. Fósturjörð
ykkar hefir að undanfömu
verið að skrýðast í fegurstu
vorklæðin, sem hún á til, svo
að hún gæti fagnað sem bezt
yður, sem komuð, sáuð og
sigruðuð. Og nú vil ég biðja
yður, kæru áheyrendur að
hylla með ferföldu húrra
Karlakór Reykjavíkur. Farar-
stjóri, söngmenn, söngkeimari
SELO-króm-filmur
eru BEZTAR
Skófatnaður
*
Stærðir: 36 til 41 kr. 5.75
Stærðir: 42 til 45 kr. 6.50
Strigaskór með gúmmíbotnum:
Stærðir: 22—28 Verð 1.90
do. 29—35 — 2.50
do. 36—42 — 3.00
Karlmannsskór úr leðri 9.00
Skóv. B. Stefánssonar
Laugaveg 22 A. — Sími 8628.
Gúmmílímgerðin
~ Laugaveg 76 ~—
vekur athyg-li á því
að limið reynist ágætlega.
Get nú afgreitt stærri og
smærri pantanir með stutt-
um fyrirvara.
Þórariun Kjartanssou
Sími 3176.
og síðast, en ekki sízt söng-
stjóri, Sigurður Þórðarson,
lengi lifi!
Má vafalaust telja að þessi
hylling bæri flokknum ein-
róma álit allra áheyrenda og
bæjarbúa. Því lýstu fagnaðar-
lætin.
Nánari umgetning verður að
bíða. En á ýmsu mátti skilja,
að mörg lofsamlegustu umimæli
erlendra blaða, væru ekki ein-
göngu ritug af kurteisi eða
frændsamlegri velvild. Annars
syngur Karlakór Reykjavíkur
aftur í kvö.ld.
Sjötugur ferjumaður
Framh. af 1. síðu.
verzlunarumdæmum skiptu
Papós og Eyrarbakki með
þeim einum undantekningum,
sem Vestmannaeyjar orsökuðu,
en skreið sótt allt á Suðurnes.
Er mér aldrei skiljanlegri en ■
nú áBtsæld Ólafs meðal eldri |
manna austan Þjórsár. Ganga
þjóðsögur eystra um hreysti
Ólafs og úrræðasemi og jafnan
fylgdi þá með, hvílíkur fjör-
og gleðimaður hann var og góð_
ur drengur. Er gott til þess að
vita, að mótatkvæðalaust veitti
Alþingi ólafi 300 króna ár-
. legan styrk fyrir nokkrum ár-
I um. Mundi það ekki falla í
NÝÍa Bfó
Nana
Stórfengleg amerisk tal-
og tónmynd, samkvæmt
heim8frægri sögu meö sama
nafni eftir franska stór-
akáldið Emile Zola.
Aðalhlutverkin leika:
Anna Sten, Linonel Atwill
og Phillip Holmes.
Böm fá ekki aðgang.
0 Odýra §
aug’lýsingarnar
Hreinar léreftstuskur
eru keyptar daglega á kr. 1.00
pr. kg.
Prentsm. Acta,
Laugaveg 1.-------Sími 3948.
Belti, kragar og hnappar úr
skinni og margt fleira til
skrauts á kjóla. Hanskasauma-
stofa Guðrúnar Eiríksdóttur,
Austurstræti 5.
Hanskaskinn nýkomið í fjöl-
breyttum litum. Komið og
skoðið. Hanskasaumastofa Guð-
rúnar Eiríksdóttur, Austur-
stræti 5.
Til sölu: Hnakkur með öllu
tilheyrandi, ' beizli, haft og
svipa. Sími 4246.
Húsnæði
Tveggja til þriggja herbergja
íbúð óskast í Skerjafirði nú
þegar eða 1. okt. Tilboð merkt
999 leggist á afgr. blaðsins fyr-
ir mánaðamót.
Sumaríbúð til leigu á Klé-
bergi á Kjalarnesi. Veitingar
geta komið til greina. Upplýs-
ingar hjá ólafi Magnússyni.
Sími 2112.
Tilkynningar
Stangaveiði í Laxá í Þing-
eyjarsýslú fæst á leigu. Uppl.
veitir Aðajsteinn Sigmundsson
Austurbæjarskólanum. — Sími
4868.
Vantar kaupakonu, kaupa-
mann og vikadreng. Bjarni
Bjarnason, Skáney. Til viðtals
á Ránargötu 6 A.
16—18 ára piltur óskast á
gott sveitaheimili í Borgar-
firði, helzt yfir árið. A. v. á.
Til Stykkishólms alla mánu-
daga og fimmtudaga. Bifreiða-
stöðin Hekla. Sími 1515.
Nýja blfreiðast. Sími 1216.
Aðalstöðin, sfmi 1383.
smekk þeirra, er nú sitja á
alþingi, að minnast 40 ára
afmælis Þjórsárbrúarinnar með
því að hækka að nokkru elli-
styrkinn til þessa ósérhlífna
eftirlifandi fulltrúa hinna
mörgu, sem urðú að taka á sig
erfiðleika sem við, sem nú lif-
um, þekkjum lítillega að af-
spum?
Ólafur dvelur nú á heimili
Kjartans fyrverandi bæjarfull-
trúa í Hafnarfirði.
Aðfluttur Rangæingiu.