Nýja dagblaðið - 23.06.1935, Blaðsíða 4

Nýja dagblaðið - 23.06.1935, Blaðsíða 4
4 H ♦ i ▲ DAGBLABXÐ / DAG Sólaruppkoma kl. 2,00. Sólarlag kl. 10,57. Flóð árdegis kl. 10,10. Flóð síðdegis 10.40. Veðurspó: Sunnan og suðvestan kaldi. Smáskúrir, en bjart á milli. Ljósatími lijóla og bifreiða kl. 9,45-3,05. Messur: 1 dómkirkjunni: Kl. li guðsþjón- usta í sambandi við setningu kirkjuþings. Sr. Eiríkur Bryn- jólfsson predikar, en sr. Garðar þorsteinsson verður fyrir altar- inu. Kl. 5 sía Friðrik Hallgríms- son. I fríkirkjunni: Kl. 5 síra Árni Sig- urðsson. Helgidagavörður: Óiafur Helga- son. Ing. 6. ími 2128. Hoinisóknartími sjúkrahúsa: Landsspítalinn ................ 3-4 Landakotsspítalim* ........... 3-5 Vífilstaðaliselið . lZy2-iyz og 3y2-iY2 Laugarnesspítali ........... lZy2-2 Sjúkrahús Hvítabandsins .... 2-4 Fæðingarh., Eiríksg. 37 .. 1-3 og 8-9 Kleppur ....................... 1-5 Elliheimilið .................. 1-4 Næturvörður í Laugavegs- og Ing- ólfsapóteki. Næturlæknir: Jón Norland, Skóla- vörðustíg 6B. Simi 4348. Næturlæknir aðra nótt Daníei Féldsted, Aðalstr. 9. Sími 3272. Samgöngur og pósUarðlr: ísland til Khafnar kl. 8. Skenuntanir og samkomwi Gamla Bíó: Æfintýri tónskóld- anna, kl. 5, 7 og 9. Nýja Bíó: Orustan, kl. 7 og 9. Sérstök barnasýning kl. 5. Dagskri útvarpslnai Kl. 10,40 Veðurfregnir. 11,00 Messa í Dómkirkjunni (síra Garðar þor- steinsson og síra Eiríkur Bryn- jólfsson). Settur almennur kirkju- íundur. 15,00 Tónleikar (frá Hótel ísland). 18,45 Barnatími: Um Siglufjörð (Friðrik Hjartar skólastj.). 19,10 Veðurfregnir. 19,20 Tónleikar: Sönglög eftir Schubert (plötur). 19,50 Aúglýsingar. 20,00 Klukku- sláttur. Fréttir. 20,30 Erindi (úr Dómkirkjunni): Um skipun prestakalla (síra Friðrik Rafnar). 21,15 Tónleikar: a) Sumarlög (plötur); b) Endurtekin lög (plöt- ur). — Danslög til kl. 24. Steinnökkvann, sem getið var um í Nýja dagblaðinu, í viðtali vjð Benedikt Björnsson, skóla- stjóra, kom „Óðinn“ með til Húsa- víltur á þriðjudaginn var, og fóru margir bátar fullir af fólki ó móti skipunum. Var mikil gleði auð- sæ yfir því að hafa fengið þenna dreka heim heilu og höldnu. Lengdin er um 60 metrar, en breiddin um 10 metra, þar sem hann er breiðastur. Verður þetta bryggjuhausinn, þegar búið er að gera hann nógu rambyggi- legan til þess að standa í botn, eftir að búið er að stevpa innan i Iiann. Vorður það gert á höfninni og ekki lagt að bryggjuhausnum fy-rr en fullfermt er af grjóti, og jafnhliða þá lokið við þá 30 metra landgangsins, sem eftir er að steypa. — Verður þetta góð at- vinnubót ó Húsavík í sumar. Æ-fintýri tónskáldanna Bráðskemnxtileg og fjörug tal- og söngvamynd, tekin af Paramount-félaginu. Aðalhlutverkin leika: Jack Oakie, Jack Haley Ginger Rogers og Thelma Todd. Aukamyndir: Fréttablað og Teiknimynd. Sýnd í dag kl. 5, 7 og 9. (Barnasýning kl. 5, Alþýðu- sýningu kl. 7). *HLXIl33l áls 3. J. Skipaíréttir. Gullfoss kom fró Leith og Kaupmannahöfn í fyrra- kvöld. Goðafoss fór frá Hamborg í gær á leið til Hull. Bnlarfoss kom til Leith í gærmorgun og fór þaðan í gærkvöldi ó leið til Kaup- mannahafnar. Dettifoss var á Ak- ureyri í gær. Lagarfoss fór frá Fá- skrúðsfirði í fyrrakvöld kl. 10 á leið til útlanda. Selfoss fór fró Vestmannaeyjum í fyrradag kl. 5 á leið tii Aberdeen. Strokufangamir, Magnús Gísla- son og Friðþjófur Óskarsson, voru fluttir austur að Litla-Hrauni i gær, en Vernharður Eggertsson varð eftir hér í fangahúsinu. Hefir forstöðumaðurinn á vinnuhælinu neitað að taka við honum, þvi að hann reyni að spilla föngunum. Norræna stúdentamótið verður sett í Kaupmannahöfn í dag. þátt- takendur eru um 1400. Ejnar Fors Bergström ritstjóri og frú hans, er með honum kom, dvelja á Laugarvatni til miðviku- dags. Fara þau þó til Norðurlands, en koma aftur snemma í júlí, og staldra þó við nokkra daga. Almennur kirkjufundur. í dag hefst annar almenni kirkjufund- urinn með guðsþjónustu í dóm- kirkjunm. Til hans boðar undir- húningsnefnd sú, er kirkjufundur- inn í fyrra kaus. Lítur út fyrir, að hann muni verða allfjölsóttur, því að daglega berast fregnir um að fulltrúar safnaða og prestar séu væntanlegir til borgarinnar næstu daga. Nokkrir eru þegar komnir. Kirkjufundurinn verður haldinn í samkomuhúsi K. F. .U M. og er öllum almenningi heimilt að sitja hann, meðan húsrúm leyfir, þó að atkvæðisrétt og mál- frelsi hafi aðeins fulltrúamir og prestar. Að gefnu tilefni skal það fram tekið, að fyrverandi prestar hafa full fundaréttindi, og væntir undirbúningsnefndin, að þeir sæki fundinn sem flestir. Sömuleiðis væntir nefndin, að almenningur fylgi störfum fundarins með áhuga og góðri sókn. Fyrir fundinn munu verða lögð mörg mól og merk, þótt hér verði þeirra eigi getið. — Dag- skráin birtst hér i blaðinu í gær. V. S. Leiðrétting. í nokkru af upplagi Dvalar hefir 3. lína í sögunni, Og lyftan féll, ruglazt. Á að vera: ásthrifinn þangað inn á undan — Góðfús lesari er beðinn að at- huga þetta. Gamanvísnasafn Bjarna Bjöms- sonar. Vísur þær, sem hann syng- ur nú, ásamt beztu visum þeim, sem hann áður hefir sungið og cru nýlega komnar út í einni heild og mun alla þó, sem hlust- að hafa á Bjama langa til að eignast þær. Svo sem: „Vísur urn útvarpsráðið“, Minnisvarðavísurn- Island erlendis Framh. af 1. síðu. breiðsla ný-íslenzkra bók- mennta, myndlistar og hljóm- listar mjög stuðlað að þeirri vaxandi athygli, sem landinu er veitt erlendis. Að vísu skortir enn mikið á, að Island nútímans sé orðið svo þekkt út um heim, sem vera ber, en þekkingin fer vaxandi. Og það er höfuðatriðið. Vil ég nú íiefna nokkur dæmi, sem nýlega hafa fram komið og bera vott um vax- andi áhuga meðal erlendra manna á íslenzkum málefn- um. Þekktur Englendingur skrifar athyglisverða grein um tsland. Bæði ensk blöð og eins ,,Berlingske Aftenavis" birtu samtímis merkilega grein um ísland eftir enska bókaútgef- andann Mr. Stanley Unwin. Hann er forstjóri fyrir Ge- orge AJlen & Unwin Ltd., sem1 er eitt voldugasta bókaútgáfu- félag í London og ennfremur formaður The Publishers As- sociation of Great Britain and Ireland. Forsögn greinarinnar er svolátandi: „tsland — para- dís ferðamanna". Er hún öll óslitin lofgjörð um Island og íslendinga. 1 upphafi greinarinnar skýr- ir Mr. Unwin frá því, að sögu- sagnir annai’ra manna, en sér- staklega Bryce lávarðar, hafi skapað hjá sér ómotstæðilega löngun eftir að kynnast land- inu. Síðan segir hann frá ferð sinni til íslands. „Hvernig eru tslendingar?" segir hann. „Það er aðeins hörmulegt að þeir skulu ekki telja nema 100 þús. Hörmulegt vegna þess, hvað þeir eru geðfelldir, gestrisnir og alúðlegir. Alþingi þeirra hefir staðið í meira en þúsund ár og getúr engin þjóð stært sig af að eiga svo gamalt þing. Þeir bönnuðu hólmgöng- ur með lögum 60 árumj áður en Vilhjálmur bastarður lagði England undir sig. Jafnvel á smæstu bændabýlum eru bóka- söfn og oft bækur á mörgum tungumálum.“ Þvínæst skýrir Mr. Unwin m. a. frá hinum mikla sögu- fræðilega áhuga íslenzku ,þjóð- arinnar, íslenzkum eldfjöllum og heitum uppsprettúm. Getur jafnframt lækningamáttar hins heita vatns o g þýðingu þess fyrir garðrækt. Ennfremur segir hann frá því, hve lax- veiði þar sé skemmtileg. Um landið hafi verið lagðir vegir með ærnum kostnaði osf. Lýk- ur hann greininni með þessum orðum: „Sá sem ferðast til ís- lands mun aldrei iðrast þeirrar farar. Ef einhver spyr síðar hvers vegna hann sé svo hrifinn af landinu, mun honum verða ógreitt uni svar, því að ástæð- umar eru svo margar“. ar“, „Hvað amar að?“, ,Sól úti, sól inni“, „Sogsvísurnar", „Jón í hjáleigunni", „Sumir gera það aldrei", „Sjómannasöngur", „Alveg eins og ég“, „Framfarimar í Reykjuvík11 o. fl. ógætt. Sumar (,Laxfoss“ Frekja eða misskilningur? Heyrzt hafa nokkurar óánægjuraddir yfir nafni hins nýja skips Borgfirðinga, af því það rninni of mikið á skip Eimskipafélags íslands. En það hefir annað eins skeð og að öll skip, sem annpst siglingar að og frá landinu og umhverfis það, yrðu eign eins félags, sem þjóðin í heild réði yfir, en ekki nokkurir fjármagns yfirráða- menn. Og það félag héti Eim- skipafélag tslands. Mun mörg- um finnast það ekki ótrúlegur draumur og ef hann skyldi ræt. ast, myndu margir mæla, að Borgfirðingar hefðu verið framsýnir. En þótt svo yrði ekki, þá er varla hægt að lá Borgfirðingum með réttu, þó að þeir kalli hið nýja skip sitt eftir einum af sínum fögru fossum. Ýmis skip, annarra manna eign, hafa fyr og síðar verið kölluð fossanöfnurríj meira að segja sömu fossa- nöfnunum og skip Eimskipa- félags tslands. Ég tala nú ekki um hús, verzlanir o. fl. o. fl., sem hefir heitið og heita nafni, sem endar á „foss“. — Einu sinni þekkti ég foreldra, sem létú alla syni sína heita Óskar. Nágranna þeirra fædd- ist sonur nokkru seinna, sem! hann lét líka heita óskar, án þess að* tala við hina foreldr- ana um það! — Blöndal, Hjaltalín o. fl. eru fræg ættar- nöfn vissra ætta, þó hafa ýms- ir óskyldir einstaklingar leyft sér að skíra börn sín Blön- dal, Hjaltalín o. s. frv. Og enginn heimskað sig á að heimta, að skímarnafnið yrði tekið af þeim. Væri þar þó fremúr ástæða en um „fossa“- nafnið. Svona mætti lengi halda áfram1 að telja upp rökin í sömu átt. — Og eitt er m. a.: Mönnum þykir vænt um fagra staði á æskustöðvum sínum, og vilja gjarnan flytja kenndir þær, sem1 bundnar erú við þá í gegnum örnefni þeirra, yfir á þá nýsköpun, sem þeir sjálfir erú valdir að. — Laxfoss í Norðurá er einn af „gimstein- um“ hins fagra Borgarfjarðar- héraðs, og skipið „Laxfoss“ verður vonandi giftudrjúgur tengiliður milli þess og höfuð- staðarins. Líklegt er, að vin- sældir hins nýskapaðla „Lax- foss“ verði engu minni en nafna hans í Norðurá. Og að ekki eingöngu höfuðstaðarbúar og Borgfirðingar úni í framtíðinni vel hinu fagra nafni skipsins, heldur einnig hluthafar í Eim- skipafélagi íslands kunni hið bezta við nafnið á þessum hálf- bróður sinna „fossa". V. G. vísurnar eru snjallar, en hinar alls ekki verri en annar skáld- skapur, sem þykir íullgóður og selst vel. En aðalkostur vísna- safnsins er, að það ber með sér hreim hins ógleymanlega Bjarna, enda er mynd hans sem einskon- ar filmstjörnu framan á bókinni. Bókin er 64 síður og kostar aðeins 1 kr. Hún fæst hjá öllum bók- sölum. Krossfiskurlnn. Ntte Bfi M. Sýnd í kvöld kL 7 (lækkað verð) og kl. 9. Barnasýning kl. 5. þó verða sýndur bráð- skemmtilegar myndir, teikni myndir, fræðimyndir o. fl. m Odýrn # au f singarnar Notaður peningaskápur ósk- ast til kaups. A. v. á. Nokkur þúsund í veðdeildar- bréfum er til sölu. — Tilboð leggist inn á afgreiðslu blaðs- ins fyrir 25. þ. m. merkt „Veð- deild“.________________________ 5 manna bifreið í ágætu standi er til sölu nú þegar með tækifærisverði. Jón Arinbjöms- son, Laugaveg 68. Sími 2175, heima 6—8 síðd. Lítið notaður dívan óskast til kaups. A. v. á. Saltfiskbúðin er vel birg af nýjurn fiski. Sími 2098. Smurt brauð, margar teg- undir. Laugavegs Automat. Góðar og ódýrar sportbuxur selur GEFJUN, Laugaveg 10. Sími 2838. Hreinar léreftstuskur eru keyptar daglega á kr. 1.00 pr. kg. Prentsm. Acta, Tapað-Fimdið Tapast hefir ljósgulur ketl- ingur. Ef einhver skyldi verða hans var, er hann beðinn að koma honum eða gera aðvart í Skólastræti 1, niðri. Q Ö Húsnæði Þriggja herbergja íbúð ósk- ast 1. sept. A. v. á. D II Atvinna Bílstjóri (piltur eða stúlka) óskast hálfs mánaðar tíma. IJppl. hjá Helga Lárussyni kaupfélagsstjóra. I Sumarpeysur nýkomnar, frá 3,25. Sum- arblússur. Kragar. Hnapp- ar. Clips. Ódýrir sumarkjólar. — Góð, hentug pils. Fallegar, nýtízku slæð- ur. — Allt með sann- gjömu verði. NINON Austurstræti 12. Opið 11—121/2 og 2—7.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.