Nýja dagblaðið - 27.06.1935, Síða 1

Nýja dagblaðið - 27.06.1935, Síða 1
Norræna rithöfundamótið í Helsingfors í Viðtal við Gunnar Gunnarsson Liður Kínaveldi undir lok? ÞJóðabandalagið aðgerðalaust. - Bretar daufheyrast. FRÁ FRÉTTARITARA NÝJA DAGBLAÐSINS Kaupm.höfn í júní. Eins og- kunnugt er, var Gunnar Gunnarsson skáld full- trúi Bandalags íslenzkra lista- manna á norræna rithöfunda- mótinu í Helsingfors. Er hann nýkominn aftur hingað heim til borgarinnar úr þeirri ferð. Hef. Gunnar Gunnarsson. ir fréttaritari Nýja dagblaðs- ins náð tali af honum og spurt hann frétta af mötinu. — Meðal annars var rætt um réttaraðstöðuna milli rit- höfunda og bókaútgefenda, segir hann. Er það í fyrsta sinn, sem rithöfundar og bókaútgef- endur mætast á rithöfundamóti, til að rökræða um sameiginleg málefni. Frá Noregi mætti Har. ald Grieg forstjóri fyrir „Nprsk Gyldendals Forlag“ og frá Sví- þjóð, Thor Bonnier, forstjóri fyrir „Bonniers Forlag“. Gáfu þeir báðir til kynna, að þeir væru því ekki mótfallnir, að rithöfundar hefðu hönd í bagga með því hve mörg eintök væru prentuð af bókum þeirra. Það er kunnugt, að fyrir hefir kom. ið, að bókaútgáfufélög — þó hvorugt þeirra, sem áður er nefnt — hafa prentað og selt miklu stærra upplag af bókum, en þau hafa borgað höfundun- um fyrir. Annað mál, sem rætt var á mótinu, var uppástunga frá norsku fulltrúunum þess efnis, að hver sá, er kaupi bækur skuli greiða aukagjald, sem renni til rithöfundasamband- anna. En fulltrúar annara landa snerust á móti þessari tillögu og héldu því fram', að í stað þess að hækka bækurn- ar í verði, bæri að vinna að því, að þær lækkuðu í verði. Einnig kom það fram í öðr- um málum, sem voru til um- ræðu á mótinu, að fulltrúar Norðmanna áttu ekki samleið með fulltrúum hinna land- London kL 21J)0 25/6. FÚ. Nýjar skærur hafa orðið í Norður-Kína, og hafa þær enn hleypt illu blóði í Japana gagn- Manchuriu, og réðust á landa- mæralögreglu í Manchuriu, eða Manchukuo. Nokkrir úr lög- regluliðin féllu í viðureigninni. Chi Lu, einn af elztu stjórn- i dag hvað væri urri ástandið í Norður-Kína. Hann sagði, að þar væri enn- þá mikill glundroði, en síðustu fregnir virtust þó benda til anna. — Til dæmis gætti þess, að þegar rithöfundar ann. ara landa róa að því öllum ár- um, að tryggja réttaraðstöðu rithöfundanna innan þjóðfé- lagsins, álíta Norðmenn að þeir eigi að vera undantekning hvað snertir rétt og lagalega vernd. Eftir því sem ég kemst næst, eru Norðménn þeirrar skoðunar, að það, sé ekki mikil- vægt, hvort rithöfundar njóti hinna söm'u réttinda og aðrar stéttir þjóðfélagsins, heldur sé hitt meginatriðið, að tryggja aðstöðu þeirra með gjöfum og styrkjum. Aðstaða Norðmanna er mér alveg óskilj anleg, því að viðleitni okkar til að vernda réttindi okkar, stefnir vitan- lega að því marki að koma í veg fyrir misnotkun verka okkar og að réttur okkar sé þann veg fyrir borð borinn. ísland og Beraar-sam- bandið. Og þeir rithöfundar, sem skrifa á íslenzku munu eflaust vera á sömu skoðun, heldur Framh. á 2. síðu. vart Kínverjum. Um 500 kín- verskir hermenn, segir fregnin, ruddust yfir kínverska núír- inn nálægt Tushi-kiu og yfir landamærin milli Chahar og Ófriður voflr yfir Italskir þegnar rýma Abessiniu Berlin kl. 21.45, 25/6. FÚ. Eftir því, sem enska blaðið „Daily Express“ tilkynnir, hef- ir ítalski sendiherrann í Abes- siníu, fyrir hönd ítölsku stjórn- arinnar, gefið öllum ítölskum ríkisborgurum, sem staddir eru í Abessiníu, skipun um að hverfa úr landi innan 10 daga. Bendir þetta til þess, að ítalir muni nú ætla sér að láta skríða til skarar innan skamms þar suðurfrá. London kL 16, 26/6. FÚ- Mr. Anthony Eden hefir undanfarið verið í Róm til að ræða utanrikismálin við Musso- lini, en fór þaðan í dag, áleiðis til Parísar. Þótt vitað sé nú, að hann hafi rætt við Musso- lini um Abessiníumálin, er það ekki kunnugt, hvað þeim’ hefir farið á milli um þau mál, að öðru leyti en því, að Mussolini á að hafa sett skýrt fram mál- stað ítala, svo að Mr. Eden getur nú sagt ensku stjórninni nákvæmlega frá allri afstöðu ítala. En manna á mili er álitið, að Mussolini hafi sett fram þrenn- ar kröfur: 1. Að ítalir skuli hafa rétt til þess, að framfylgja frið- samlega eignarhaldinu á ný- lendum sínum í Afríku. 2. Um rétt Itala til þess að fara um í Abessiníu til þess að byggja vegi og brýr og stofna skóla. 3. Um rétt ítala til þess að hafa góð áhrif á menningu landsins. Af Abessiníumálunum er það annars að segja, að enska stjórnin hefir ákveðið, að full- trúi hennar í Abessiníu skuli vera kyrr þar, en annars var það í ráði, að hann fengi orlof um þessar mundir. Sáttanefndin í deilum Itala og Abessiníumanna er sezt á rökstóla í Haag. Hluti aí kínverska múrnum. málamönnum Kína í Canton- ríki, gerði í dag mjög harðvít- uga árás á Japana, Þjóðabanda- lagið og Nanking-stjómina. Iíann kvað Japana fyrst og fremst hafa rofið níu-velda samninginn með aðgjörðum sínum í Manchuriu og Jehol; þar næst hefði Þjóðabandalag- ið látið þetta viðgangast, og loks hafði Nanking stjómin lagt allt Kínaveldi í hættu, með því að veita Japönurú ekki við- nám, og kvað hann ekki annað fyrirsjáanlegt, en að Kínaveldi væri þá og þegar úr sögunni, ef þessu héldi áfram. London kl. 16, 26/6. FÚ- Enski utanríkismálaráðherr- ann var spurður þess í þinginu þess, að misklíðin út af kín- verskum og japönskum hags- munurn væri nú að jafnast, og ástandið því nokkru' rólegra en áður. Ráðherrann sagði enn- fremur, að eftir því sem bezt yrði vitað, hefði ekki verið hróflað enskum hagsmunum eða réttindum’ og væri þess vegna engin ástæða til þess, að Bretar létu málið til sín taka. Ennfremur var ráðherrann spurður þess hvort Japanai hefðu gefið nokkura tryggingv fyrir því, að réttur annara þjóða yrði ekki fyrir borð bor- inn í Norður-Kína. Hann svar- aði því, að þetta atriði hefðí ekki þurft að athuga vegna þess, að engar árásir hefðr verið gerðar á þessi réttindi. Aðalfundur S. I. S. Þrem nýjum félögum veitt innganga Aðalfundúr Sambands ísl. samVinnufélaga var settur í gær. Sækja fundinn rúmlega 40 fulltrúar víðsvegar af land- inu. I gær fór fram kosning á starfsmönnum fundarins. Var Sigurður Bjarklind kaupfélags- stjóri kosinn fundarstjóri og Þorsteinn Jónsson kaupfélags- stjóri til vara. Ritarar voru kjömir Hólmgeir Þorsteinsson Hrafnagili og Karl Kristjáns- son, Húsavík. Auk þess fór fram rannsókn kjörbréfa, kosning nefnda og inntaka nýrra félaga. Höfðu þrjú kaupfélög sótt um inngöngu, Kaupfélag Stöð- firðinga, Kaupfélag Fáskrúðs- firðinga og Samvinnufélag Dalahrepps. Var innganga þess- ara félaga samþykkt. í dag hefst fundur kl. 9Vi árdegis og gefur þá forstjórinn skýrslu um efnahag og rekstur Sis á síðastl. ári.

x

Nýja dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.