Nýja dagblaðið - 09.07.1935, Side 2
2
NÝJA DAGBLAÐIÐ
Tímhurkaup.
TimburverzL Skógur
hefir, sem stendur, allar tegundir af húsatimbri.
Nýjar birgðír. 1, íiokks vörur.
Lægst verð.
Dragið ekki að ákveða timburkaup þar til birgðirnar
eru þrotnar, sem verður mjög bráðlega.
H.f. Timbuitverzl. Skógur
Skrifstofa Hafnarstræti 19. — Sími 4799.
Afgreiðsla við Mýrargötu. — Sími 4231.
LjósmæðraskóH Islands
Námsárið hefst 1. október næstkomandi. Nemendur skulu
ekki vera yngrí en 20 ára og ekki eldri en 30 ára, heilsu:
hraustar (heilbrigðisástand verður nánar athugað í Lands-
spítalanum). — Konur, sem lokið hafa héraðsskólaprófj eða
gagnfræðaprófi, ganga fyrir öðrum. — Eiginhandar umsókn
sendist stjórn skólans á Landspítalanum fyrir 1. september.
Umsókninni fylgi aldursvottorð, heilbrigðisvottorð og próf-
vottorð frá skóla, ef fyrir hendi er.
Umsækjendur, sem hafa skuldbundið sig til að gegna
ljósmóðurumdæmi að námi loknu, skulu senda vottorð um
það frá viðkomandi oddvita.
Landspítalanum, 8. júlí 1935.
Cfruðm. Thoroddsen.
Dömur!
Nú eru silkisokkarnir komnir í miklu urvali, á 2,90
og ekta silkisokkar. mattir, á 3,75, ljómaodi fallegir,
Parísarbúðin,
Hafnarstræti 7, sími 4266.
Il-H
skilvindurnar eru ætíð
þær beztu og sterkustu,
sem fáanlegar eru Nýj-
asta gerðin er með
algerlega sjálfvirkri
smurningu, og skálar
og skilkarl úr ryðfríu
efni.
Samband
isl.
samvinnufélaga.
Allsherjarfundur
Landssambands norskra bænda
FRÁ FRÉTTARITARA
NÝJA DAGBLAÐSINS
Oslo í júlí.
Undanfarið hefir landsfund-
ur Landssambands norskra
bænda (Norges Bondelag)stað-
ið yfir í Stavanger. Voru mörg
þúsund bændur frá öllum Nor-
egi mættir á móti þessu. Auk
þess voru þar, sem boðsgestir,
nokkrir íslendingar og 32 Fær-
eyingar, allir klæddir þjóðbún-
ingum sínum. Joannes Paturs-
son kongsbóndi, var fyrir Fær-
eyingum. Formaður Landssam-
bands norskra bænda, Mellbye
fyrrum ráðherra, bauð Færey-
inga og íslendinga velkomna
með ræðu. Sér í lagi var Jo-
annesi Paturssyni vel fagnað.
Án þess að það væri beinlínis
sagt á mótinu, kom1 það greini-
lega í ljós, að Landssamband
norskra bænda lítur méð full-
urú samhug til nánari sam-
vinnu milli Norðmanna og
Færeyinga. í ræðu, sem Jo-
annes Patursson flutti, sagði
hann, að Færeyingar gætu
aidrei né vildu gleyma gamla
landinu (Noregi). Norski pró-
fessorinn, Mohn, sem flutti
ræðu fyrir minni Færeyja,
komst m. a. svo að orði, að
Færeyingar hefðu enn ekki
unnið sinn 1905-sigur. — Eins
og kunnugt er, slitu Norðmenn
sarhbandi við Svía það ár. —
En í baráttu sinni, sagði pró-
fessorinn ennfremur, mega
Færeyingar vera þess fullviss-
ir, að Norðm'enn munu láta
þeim í té alla þá velvild og
stuðning, sem þeir mögulega
geta.
Landssamband norskra
bænda krefst þess að
Kielar-samningurinn
verði endurskoðaður.
Annars er það fullkomlega
athyglisvert, að landsfundur-
inn samþykkti í einu hljóði og
með miklum fagnaðarlátum,
að skora á ríkisstjórnina. og
Stórþingið að beita sér fyrir
endurskoðun Kielarsamnings-
ins „að því leyti er snertir
þann ójöfnuð, að Grænland
samkvæmt samningi þessuin
er skilið frá Noregi“. Enn-
frem'ur segir svo í þessari
samþykkt, að „með þjóð vorri
er ekkert sem vekur sterkari
kenndir um fornan órétt, sem
og- framtíðinni ber skylda til
úr að bæta“.
Dr. Smedal, sem þekktur er
a.f Grænlandsdeilunni, flutti
fyrirlestur á landsfundinum
um Grænlandsmálið. Sagði I
hann m. a., að dómurinn í
Haag 1933 hefði einungis snert
land Eiríks rauða. Þess vegna
hefði hann ekki tekið þann
rétt frá Norðmönnum, að bera
fram þá kröfu við Dani, að
Kielarsam'ningiu’inn verði end-
urskoðaður. Lauk dr. Smedal
máli sínu með því að segja, að
Danir yrðu fyrst að sanna að
þeir væru fúsir til að bæta
Norðmönnum gerðan órétt, áð-
ur en Norðmenn gætu af al-
vöru stutt kröfu Dana um sam-
vinnu Norðurlanda, með það
fyrir augum, að Danir geti bet-
ur varið landamæri sín að
sunnan.
Stefnuskrá landssam-
bandsins, sem miðar að
því, að Norðmenn verði
sjálfum sér nógir.
Auk samþykktarinnar um
Grænlandsdeiluna, samþykkti
fundurinn fjölmörg stefnu-
skráratriði til eflingar at-
hafnalífinu og framleiðslunni í
landinu, en sérstaklega innan
landbúnaðarins. „Það verður
að auka framleiðsluna“, segir í
greinagerðinni, „svo að hægt
verði að jafna þann halla, sem
orðið hefir vegna innflutnings
á nauðsynj avörum“. Helztu at-
riðin í stefnuskrá landbúnað-
armálanna fara, hér á eftir í
íáum dráttum: Vinna að auk-
inni kornrækt, skipuleggja
verzlun norskra skinna, húða
og ullar. Halda áfram að skipu-
leggja verzlun og verð land-
búnaðarafurðanna, fá styrk frá
ríkinu til nýbýlaræktar við
sjávarsíðuna, svo að sjómenn
geti stundað jarðrækt. Nýbýla-
byggj endur, sem vilji margir í
hóp taka stór óræktuð land-
svæði til ræktunar, skulu fá
landið ókeypis. óræktað land
og ræktanleg skógarsvæði, sem
eru í eign ríkisins, skal láta af
hendi og skipta. niður í sma-
býli og taka til ræktunar, koma
á slysatryggingu fyrir verka-
menn, sem vinna að landbún-
aði, vinna, að hagkvæmari að-
stöðu fyrir hið upprennandi
bændafólk, alla skólafræðslu
skal miða við starfslíf heim-
ilanna. og með hliðsjón af þjóð-
menningu okkar, en sér í lagi
til að auka þekkinguna á fram-
leiðslumöguleikum þjóðarinnar.
Að þegar komi til framkvæmda
hin nýafgreiddu norsku lög um
æðri skóla, svo sveitirnar geti
fengið þá skóla, sem bezt hæfa
þeim. Offramleiðsluna á smjöri
ber að nota í landinu sjálfu o.
m. a. á þann hátt, að fiski. og
hvalveiðaflotinn fái smjör með
útflutningsverði.
Kjör þeirra verkamanna,
sem vinna við landbúnað
verða bætt með föstum
taxta.
Ennfremur er svo komizt að
orði í stefnuskrá Bændasam-
bandsins: Bæta skal kjör
verkamanna, sem vinna að
jarðrækt og skógarhöggi, þann-
ig að reynt verði að fastákveða
verkalaun þeirra eftir grund-
vallarreglugerð um verkalaun í
einstökum héruðum og að þeir
fái einnig uppbót í samræmi við
það, hvaða verð fæst fyrir
landbúnaðarafurðir og timbur.
Þau framleiðslusambönd, sem
eru stofnuð innan landbúnaðar-
ins eða fiskveiðanna, skulu svo
sem önnur fjármálasamtök,
hafa sjálfstjórn undir eftirliti
ríkisstj órnarinnar.
Fiskveiðar og fleira.
Bændasambandið gerði það
að tillögú sinni, að til þess að
auka kunnáttu þeirra manna,
sem stunda fiskveiðar, sé
stofnaður fiskveiðaháskóli, sem
starfi í nánu sambandi við haf-
rannsóknirnar og verzlunarhá-
skólann. Ennfremur að stofnuð
verði sérstök stjórnardeild,
sem hafi fiskveiðamálin með
höndum', að ríkið leggi fram fé
til byggingar frystihúsa á ver-
stöðvum, þar sem skipaleiðir
og járnbrauta mætast, að hag-
kvæmari reksturslán fáist til
fiskverzlunarmiðstöðvar og að
bæði útflutningur síldar og inn-
anlandsverzlunar og auk þess
fiskverzlunin verði skipulögð
þannig að sjómönnunum sé
tryggt sannvirði fyrir vinnu
sína.
Meðal annara stefnuskrár-
atriða,, sem samþykkt voru á
landsmótinu, má nefna, að inn-
flutning þeirra vara, sem
Norðmenn framleiða sjálfir og
eins hinn óhagstæða verzlun-
jöfnuð skal hindra með inn-
flutningsbönnum| og höftum í
samræmi við tilsvarandi tak-
markanir í öðrum löndum.
Einnig kom fram á mótinu
ákveðin krafa um að haft sé
strangt eftirlit með því, að nú-
gildandi refsilögum um fóstur-
eyðingar sé fylgt fram. Enn-
fremur að vinna ákveðið að
aukinni bindindisstarfsemi.
Sökum þess, að útlit sé fyrir
að fækkun barnsfæðinga verði
Norðmönnum til hnekkis innan
skamms ef ekkert er að gert,
krefst Bændasambandið þess,
að stefnt verði að því marki að
bæta sem mest afkomu fjöl-
skyldumanna. Sér í lagi verði
tryggt að fólkinu geti fjölgað
í sveitunum, — þar fari fram
endurnýjun hraustrar þjóðar.
Nygaardsvold forsætis-
ráðherra er mótfallinn
stefnu Bændasambands-
ins í Grænlandsmálinu.
Johan Nygaardsvold for-
sætisráðherra, hefir haldið
ræðu um þá ákvörðun Bænda-
sambandsins, að krefjast þess
að Kielarsamningurinn verði
Framh. á 4. síðu.
ad ná í miða.