Nýja dagblaðið - 23.07.1935, Síða 1
DAGBIAÐIÐ
Reykjavík, þríðjudaginn 23. júlí 1935. 167. blað
NYJA
3. ár.
Ríkisfangelsið
í Reykjavík
Bærinn þarf sjálfur að eígnast
fangahús
Eftir Jóu Sigtryggsion, fangaYörð
Tvö börn drukkna
í Alftavatni
I. Tvö skref.
Refsimálin og fangelsismál-
in um leið, eru orðin — fyrir
löngu — meðal stórmála þjóð-
anna. Það hefir víða verið
keppt að því um alllangt skeið,
að gera fangelsin sem vistleg-
ust: björt, loftgóð og hlý. Er
þetta. gert í þeim tvennum til-
gangi aðallega, að vernda heilsu
fanganna, og einnig til þess
að það hafi bætandi áhrif á þá,
sálfræðilega séð.
Hér á landi virðist áhugi fyr-
ir þessum málum mjög lítill
ennþá. Þau tvö skref, sem um
áratugi hafa verið stigin, þess-
um málum til framgangs, hafa
verið stigin af þeim eina
manni — Jónasi Jónssyni —
sem hefir sýnt verulegan
áhuga fyrir þessum málum, en
þar á ég við byggingu vinnu-
hælisins á LitlarHrauni, (sem'
hann fékk mikla óþökk fyrir
frá andstæðingum! sínum, en
sem nú er af öllum viðurkennt
nauðsynlegt), og svo endur-
bæturnar á hegningarhúsinu í
Reykjavík, gerðar 1929, sem
voru löngu fyr alveg nauðsyn-
legar og voru mjög góðar, það
sem þær náðu.
II. Hegningarhúsið of
lítíð.
Fyrir rúmum 60 árum var
lokið við byggingú hegningar-
hússins í Reykjavík. Á þeim
tíma hefir bygging þessi getað
talizt voldug og stór. — En
tímarnir breytast. Fyrir 60 ár-
um voru íbúar Reykjavíkur
rúmlega 2 þúsund, en nú eru
þeir yfir 30 þúsund. Þessi öri
Fær fslenzkt skáld
Nobelsverðlaun?
Kaupm.höfn 22./7. FÚ.
Dagens Nyheder í Kaup.
mannahöfn skýrir frá því, að
nefnd sú, sem á að úthluta
Nobelsverðlaunum fyrir bók-
menntaafrek, hafi lagt það til,
að þeim yrði að þessu sinni
skift milli færeyska skáldsins
Djurhus og íslenzks skálds, sem
þó ekki er nefnt.
vöxtur bæjarins gerir víða vart
við sig, og ekki sízt inn-
an múra fangelsisins, en í
fangelsinu hefir ekkert víkkað
milli veggja, frá því það fyrst
var byggt. Og af því ríkisfang-
elsið var byggt í þessum' bæ,
sem ekkert fangelsi á og aldrei
hefir átt fangelsi (sjálfsagt af
því að ríkisfangelsið stóð þar),
þá hefir ríkisfangelsið verið
notað jafnframt sem bæjar-
fangelsi Reykjavíkurbæjar. Af
þessu leiðir, að það hefir orðið æ
því meir ófullnægjandi sem
aukning bæjarins varð meiri.
Fangatalan utan af landi er að
vísu nokkru hærri nú en áður,
en er þó hverfandi lítil, miðað
við fangatöluna úr Reykjavík-
urbæ.
in. Fangelsin og
menningin.
Það virðist svo I fljótu
bragði, að aukin ménning þjóð-
anna ætti að draga úr þörfinni
fyrir fangelsi, en reynslan sýn-
ir annað. Glæpir og hverskonar
afbrot virðast litlu fátíðari,
meðal hinna meiri menningar-
þjóða en þeirra, er lakari eru í
menningarlegu tilliti. En því
meiri sem menningin er, því
hærri kröfur gera borgararnir
til hlutaðeigandi yfirvalda, um
tryggingu fyrir fé sitt og fjör
gegn glæpamönnum. Og þá er
gripið til þess, að taka frelsið
af afbrotamönnunum — loka
þá inni. Fangelsin verða því að
stækka, með aukinni fólkstölu
landanna, og auknum kröfum
Framh. á 8. síðu.
0ryggi
flugferða,
London kl. 16, 22./7. FÚ.
Flugmálaráðherra Bretlands
skýrði opinberlega frá því í
dag, að á síðastliðnu ári hefðu
engin slys orðið á vegum flug-
félagsins Imperial Airways og
hefðu þó vélar félagsins flogið
vegalengd, sem alls næmi 2
milj. 315 þús. enskra mílna.
Skólabörn
f heimboði hjá K.E.A.
Menningarsj óður Kaupfélags
Eyfirðinga bauð fullnaðarprófs
börnum úr héraðinu, ásamt
kennurum þeirra, til Akureyrar
síðastliðinn föstudag. Var þeim
sýnd Iðnsýningin, gróðrarstöð-
in, listigarðurinn, verksmiðjur
kaupfélagsins og Sambands ísl.
samvinnufélaga, og kvikmynd
í Nýja bíó. Börnin, sem voru
112 að tölu, voru flutt í bifreið.
um að heiman og heim og veitt.
ur beini. Snorri Sigfússon skóla
stjóri leiðbeindi börnunum um
bæinn.
Tólf menn
drukkna
London kl. 16, 22./7. FÚ.
Nálægt Allenstein í Austur-
Prússlandi vildi í gær það slys
til, að 12 manns drukknuðu af
vélbát.
Vélbáturinn var aðeins ætl-
aður fyrir 16 manns, en þegar
hann var að leggja af stað frá
bryggjunni, tróðust 6 farþegar
i hann í viðbót, svo að vatnið
náði næstum því upp að borð-
stokk. Á leiðinni yfir um vatnið
skall á hvassviðri, farþegarnir
sentust öðrumegin í bátinn og
hvolfdj honum. Nokkrir bátar
voru þarna nálægt og tókst
þeim að bjarga 9 m'anns.
Síðastliðinn sunnudag hélt
slysavamadeildin á Akranesi ;
skemmtun fyrir ofan þorpið, í ■
svonefndum Holtum. Var fólk
flutt þangað á vöruflutninga-
bifreiðum og var komið fyrir
á þeim skýli og bekkjum, eins
og venja er, þegar slíkar bif-
reiðar eru hafðar til fólksflutn-
inga.
Seint um kvöldið var ein
slík bifreið, MB 57, að flytja
fólk í þorpið. Voru m!eð henni
20 farþegar, aðallega börn og
unglingar. Bílstjóri var Sigur-
jón Sigurðsson, miðaldra mað-
ur, búsettur á Akranesi.
Hraði bifreiðarinnar var ekki
sérstaklega mikill, en þegar
komið var á vegamót Óðinsgötu
og Sleipnisvegar, virtist bif-
reiðarstjórinn missa vald á bif-
reiðinni; fór hún út af vegin-
um hægramegin, rann á grjót-
vegg og eftir honum langan
spöl, unz hún lenti á þungum
Á sunnudaginn var vildi það
hörmulega slys til, að tvö börn
Sveins Jóhannssonar kaup-
mánns á Bergstaðastræti 14,
drukknuðu í Álftavatni.
Þennan dag var Sveinn
staddur á sumarbústað sínum
við Álftavatn, ásamt fjölskyldu
sinni og fleira fólki.
Veður var fagurt og vatnið
kyrrt. Fór því Sveinn ásamt
börnum sínum þremur, telpu,
sem heitir Guðrún Matthías-
dóttir, Traðarkotssundi 6, sem
er hjá Sveini í sumar, af-
greiðslumanni í búð sinni og
sendisveini, á bát fram á vatn-
ið.
Þegar þau voru á heimleið
laust eftir hádegi hvessti nokk-
uð og þegar þau; voru komin
fyrir tang'a einn lítinn og á vílc
fyrir framan bústað Sveins,
fyllti bátinn. Varð fólkið þá
laust við bátinn, nema annar
piltanna. Sveini tókst að ná i
yngsta barn sitt og synti með
það til lands. Guðrún litla synti
sjálf einnig til lands, afgreiðslu!
mánninum og sendisveininum
var bjargað af bátum, sem voru
á vatninu og sáu, er slysið varð
og komu á vettvang litlu síðar.
En tvö elztu börn Sveins, Kort
valtara, sparn honum áfram
um V/2 metra og kollsteyptist
yfir hann að lokum. Skýlið,
bekkirnar, fólkið og annað laus-
legt, tættist í allar áttir og sjálf
var bifreiðin gereyðilögð.
Af farþegunum sluppu níu ó-
meiddir, eða þeir, sem sátu aft-
ast í bílnum. Hinir voru meira
og minna meiddir.
Stúlka, innan við fermingu,
Ragnheiður Ingólfsdóttir, fékk
stórt sár á höfuðið og var hún
flutt til Reykjavíkur um kvöld-
ið með Laxfossi. Leið henni eft_
ir vonum í gær.
Daníel Vigfússon, trésmiður,
meiddist mikið. Brotnuðu a. m.
k. tvö rif, en vafi mun um hið
þriðja. Var hann þungt hald-
inn í gær.
Hjörleifur Guðmundsson og
Katrín Gísladóttir, 14 ára göm-
ul. viðbeinsbrotnuðu.
Ásgrímur Sigurðsson, bróðir
bif reiðarst j órans varð einnig
fyrir allmiklum meiðslum á
Sævar, 8 ára, og Stella, 10 ára,
sukku þegar og varð ekki náð
fyr en eftir nær þrjá stúndar-
fjórðunga.
Strax og börnin náðust, var>
brugðið við og sent niður að
Þrastarlundi til að síma eftir
Lúðvik Nordal, lækni á Eyrar-
bakka. Hann var ekki heima, en
Ólafur Thorlacius, læknir úr
Reykjavík, sem var gestkom-
andi í Þrastarlundi, brá þegar
við og fór uppeftir. Stóðu lífg-
unartilraunir yfir í fullar fjór-
ar klukkustundir, eða frá kl.
tæplega 1 til kl. að ganga sex,
en reyndust, því miður, árang-
urslausar.
Mikill og sár harmur er
kveðinn að foreldrum barnanna,
er fórust með svo voveiflegum
og sviplegum hætti. Og slíkir at
burðir, sem þessi, setja sorg-
arblæ á sumargleði þeirra, sem
til frétta. Þannig var það á
sunnudaginn með flesta þá, sem
um slys þetta fréttu eystra, að
mitt í gleðinni urðu menn hljóð-
ir við fregnina.
Heimsmet
ikappgÖDgn
Fregn frá London hermir, að
nýl. hafi enskur maður, Coep-
er, sett heimsmet á 3000 metra
göngu. Var hann 12 mín. 38,2
sek. á leiðinni. Hefir hann þann-
ig hnekkt meti Danans Rass-
mussen, er hann setti í júlí 1918
með 12 mín. 53,6 sek. FÚ.
Laxarækt
á Vestfjörðum
Nýlega var 100 þús. laxaseið-
um sleppt í Ósinn í Bolungavík
og 20 þús. seiðum í Sandá í
Dýrafirði. Seiði, sem fara áttu
til önundarfjarðar ónýttust en
ný sending er væntanleg þang-
að aftur. Ætlunin er að setja
60 þús. seiði í árnar þar.
höndum og bifreiðarstjórinn
sjálfur meiddist talsvert á
höfði.
Auk þessa fengu fimm stúlk-
ur nokkur meiðsli, en þó ekki
alvarleg.
Enn er ekki fullvíst um or-
sök slyssins. Getið er til, að
stýrisumbúnaður hafi bilað,
en ekki er það sannað. Upplýst
þykir, að bílstjórinn muni ekki
hafa verið ölvaður.
Bifreiðaslys
Ellefu menn verða fyrir meiðslum