Nýja dagblaðið - 23.07.1935, Side 2
2
NÝJA DAGBLAÐIÐ
Öll fjölskyldan notar
eingöngu Sjafnarsápu,
og reynzlan hefir sann-
fært hana um að
Sjafnarsápan sé bezt.
Nonni: Mamma, voða er gaman að þvo sér úr þessari sápu.
Mamma: Já, Nonni minn, þetta er líka SJAFNARSÁPA.
Isleozk framleidsla.
Sjafnarvörur
Baðsápa Gólfáburður
Handsápa Skóáburður
Sólsápa Tannknem
Stangasápa Næturkrem
Krystalsápa Dagkrem o. fl.
t
Sjafnaruörur eru goöar!
— eru ódýrar!
— eru
SinFNHRUORUR framleiða neytendurnir sjálfir!
Vér notum þvi eingöngu SJafnarvörur.
A tveim dögum:
Alla þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga og annan
hvern sunnudag.
A einum degi:
(hraðferðir) um Borgarnes, alla þriðjudaga og föstu-
daga.
Frá Akureyri áframhaldandi ferðir til Austfjarða.
Afgreiðsla í Reykjavík Bifreiðastöð íslands. Sími 1540.
Bííreíðastöð Akureyrar.
rAT
l-H «T^.Tirt 4 :»J3
rrrm*jPTTO
Skaftfellingur
hleður til Víkur og öræfa
miðvikudaginn 27. þ. m.
Verður þetta síðasta ferð
skipsins til Öræfa á þessu
sumri.
í. S. í. S. R. R.
Múr
Nýkomlð.
Enntremur skarazir,
Máluing & Járnvörnr,
Laugevegi 25.
hamrar
skeiðar
bret'i
filt
Máttur augfýsínga er míkíll
Sundmeistaramótið
1935
verður haldið að Álafossi dag-
ana 18!, 20. og 22. ágúst.
Keppt verður í þessum sundum:
4x50 m. boðsund, karlar
100 — frjáls aðferð —
200 — bringusund —
100 — frjáls aðferð, konur
400 — — — karlar
100 — baksund, —
200 — bringusund, konur
1500 — frjáls aðferð, karlar
400 — bringusund, —
50 — frjáls aðferð, konur
Sundráð Reykjavíkur.
Kappleikurinn
í fyrrakvöld
I fyrrakvöld kepptu úrvals- |
lið úr K. R. og Val við Þjóð-
verjana. Var veður ágætt og á-
horfendur mjög margir. Auk
þess sem Reykvíkingar fjöl-
menntu, kom fjöldi fólks víðs-
vegar að, úr Hafnarfirði og
nærliggjandi kaupstöðum.
Hófst leikurinn af fjöri
miklu. Skorti nú hvorki eggj-
unarorð áhorfendanna né til-
þrifaríkan leik. Gerðu báðir
flokkarnir skarpleg upphlaup
og Þjóðverjar þó fleiri. En alR
kom fyrir ekki, því vörn Is-
iendinganna var sterk og Her-
mann tók knöttinn höndum í
hvert sinn, er hann kom að
marki. Þegar leið á hálfleikinn,
fóru Islendingar að sækja sig.
Þegar 15 mín. voru eftir, gerðu
þeir, sem oftar, vasklegt upp-
hlaup. Hans Kragh sendi knött-
inn fallega til Þorsteins, sem
náði honum fyrir opnu marki.
Virtist nú gefið mark, en í því
hleypur einn Þjóðverjinn á Þor-
stein og hratt honum. Er dæmd
á Þjóðverjana vítaspyrna og
spyrnir Björgvin á mark. Mark.
vörður Þjóðverja kemur við
knöttinn, en nær ekki að höndla
hann og hrekkur hann frá
marki. Hleypur Björgvin þá
fram og spymir honum í mark.
Fyrsta markið, sem skorað er
hjá Þjóðverjum! Kveða nú við
óhemju fagnaðarlæti þeirra
þúsunda áhorfenda, sem mættar
voru á vellinum. Sækja nú
Þjóðverjar fast á, en vörn Is-
lendinga og leikur allur er nú
jafnvel enn betri en áður og
tekst þeim jafnframt að ná all-
mörgum upphlaupum og að
verja mark sitt fyrir öllum
skakkaföllum. Lauk svo fyrri
hálfleik, að íslendingar hafa 1
mark á móti 0.
Þegar síðari hálfleikur hefst,
er orðin sú breyting, að Rass-
elnberg, vinstri innframherji
hefir orðið frá að hverfa og er
annar maður kominn í hans
stað. Keppa bæði liðin djarflega
þó eru upphlaup Þjóðverja
fleiri og meiri hraði í leik
þeirra, en íslendingar verjast af
kappi miklu og leggja nú bak-
verðirnir og Hermann mikið í
leik sinn. Þó kom svo, er nokk-
uð var liðið á leikinn, að Þjóð-
verjar gera hart upphlaup og
nær vinstri útframherji að
skora mark og mátti ekki við
gera. Skönmiu síðar skorar
hægri útframherji annað mark.
Leggja Islendingar sig nú mjög
fram við vörnina, og þótt Þjóð-
verjar sæktu fast á til leiks-
loka, tókst þeim ekki að skora
fleiri mörk og lauk leiknum þvi
þannig, að Þjóðverjar sigruðu
með 2:1.
Þessi leikur er eflaust sá
glæsilegasti kappleikur, sem hér
hefir verið háður. Þjóðverjar
léku af kunnáttu og hraða, sem
vænta mátti. Aftur á móti var
dugnaður Islendinganna mikill,
þótt þá skorti nokkuð til jafns
við Þjóðverjana hvað snertir
leikni með knöttinn og samleik.
Sérstaklega var vörn íslendinga
með ágætum sterk. Hermann
stóð sig prýðilega í markinu og
var sem auga væri á hverjum
fingri. Frímann lék vel, sem oft
áður og eins Gísli. Björgvin var
ágætur og af framherjunum
léku þeir bezt Hans og Jó-
hannes.
Allir liðsmenn Þjóðverjanna
léku ágætlega, en sér í lagi var
leikur Langenbein og Pickartz
mjög sftirtektarverður.
Dómari var Guðjón Einars-
son og fórst honum þetta vanda
verk vel úr hendi.
Leikur þessi var að öllu hinn
drengilegasti. Mega íslenzkir
knattspymumenn vera glaðir
yfir frammistöðu knattspymu-
manna úr tveimur tiltölulega
fámennum félögum, sem keppa
með þvílíkum árangri við valið
lið stórþjóðar, og marka þann-
ig merkan þátt í íslenzkri
knattspyrnusögu.
E*ra,staliixiduia -
- Laugarvatn
Ferðir alla daga frá Reykjavík kl. 10 árd.
Eifreiðastöð Islands Sími 1540
Trúlofunarhringar - Tækifærísgjaflr
Haraldur Hagan - Austurstrat. 13
FREYJIJ kaffibætisduftið
— nýtilbúið — inniheldur aðeine ilmandi kafflbaeti, ekkert vatn
eða önnur efni til uppfyllingar. Þess vegna er Freyju kafflbœtia-
duftið drýgst, heilnæmast og bezt. Og þó er það ódýrara en kaffl-
bætir í stöngum.
Notið það bezta, seei nnnið er í landinu