Nýja dagblaðið - 22.12.1935, Qupperneq 3
N t J A
DAGBLAÐIÐ
S
UppreisfartSlraui
Framh. af 1. síöu.
stýrðu bifreiðum sínum á veg-
leysunum íslenzku.
Undirróðursmenn í hópi bíl-
stjóra og utan við bentu þeim
á, að félagið væri of veikt til
að geta hækkað taxta sína eins
og svaraði skattinum. Bílstjór-
unum var talin trú um, að
ýmsir innan félagsins myndu
svíkja heit sín, keppa hver við
annan, lækka hver fyrir öðrum.
Eina vonin væri að geta drepið
benzínskattinn, þó að vegirnir
yrðu jafnslæmir eða verri en
áður.
En þessir sömu undirróðurs- !
menn gleymdu því í málafylgju
sinni, að ef bifreiðaeigendur ;
væru of máttvana og of sund- !
urlausir til að geta flutt
skatthækkunina yfir á aðra, i
þá voru slíkir menn býsna ólík- !
legir til að geta gert sigursælt
verkfall, hvað þá sigursæla ;
uppreist.
Ihaldið og kommúnistar ýttu
félagsmönnum út í verkfall,
sem er uppreist. Og þeir not-
uðu sér reynsluleysi duglegu
mannanna í bílstjórahópnum til
að lokka þá í gildru, til skaða
fyrir þá sjálfa og gagns fyrir
aðra.
Ihaldið ér búið að sýna bif-
reiðastjórunum hug sinn í
Sogsdeilunni. Um kommúnista
þarf aldrei að efast. Þeir vilja
jafnan spilla allri friðsamlegri >
þróun, því að gengi þeirra
byggist á, að sem flestum vegni
illa.
Forsætisráðherra lýsti yfir í
ræðu í efri deild í gær að hann
vissi með fullri vissu, að íhald-
ið hefði komið upphlaupi þessu
af stað. Pétur Magnússon og
Magnús Jónsson sátu gneypir
undir þessari ásökun, því að
þeir vissu, að flokksmenn
þeirra voru sannir að sök.
Þetta er ekki nýlunda. Vorið
1931 byrjuðu íhaldsmenn á of-
beldisframkomu eftir þingrofið,
í von um, að þeir hefðu Alþýðu-
flokkinn með sér. Þeir vildu
efna til uppreistar gegn mjólk-
ur- og kjötlögunum í fyrra, en
þorðu ekki fyrir samtökum
vinnandi manna í landinu. Síð-
an þá hefir Ólafur Thors stöð-
ugt prédikað, að hendur ættu
að skipta og beita skyldi of-
beldi gegn núverandi stjórn.
Það má telja sennilegt, að
bílarnir muni fá að hvíla sig
næstu dagana. Almenningur fer
leiðar sinnai’ gangandi um bæ-
inn eins og í gamla daga, áður
en bílar komu. Sumum finnst
jafnvel þægilegt að geta geng-
ið á miðri götu, og verið laus
við nálægð bílanna. Bifreiðar-
stjórar tapa miklu fyrir hvern
dag, sem þeir fá enga vinnu,
og vitanlega leggur tugthús-
limur sá úr bifreiðastétt, sem
mest lét á sér bera, þegar upp-
reistin var ákveðin, tæplega til
fé í sjóð handa atvinnulausum
heimilum bílstjóranna. Fyrir
allar verzlanir í bænum verður
uppsteytur þessi til stórvægi-
legs frádráttar. Menn fara
minna um bæinn, og menn
kaupa minna en annars hefði
‘verið. Smákaupmenn bæjarins
munu enn finna tjónið, sem
þeir hafa af forustu öreiga
fiskspekulanta. . Því lengur
sem leikurinn er þreyttur, því
meir munu allir þessir aðilar
skaðast.
Jakob Sigurðsson, Kristján
Karlsson, Einar Olgeirsson og
Eggert Claessen munu vonast
eftir, að þeir geti látið vanta
j mjólk í bæinn. En sá draumur
i þeirra mun varla rætast mjög
| vel. Mjólkin úr nágrenninu
j verður flutt á hestvögnum; af
; Kjalarnesi, Akranesi, Borgar-
j nesi og sunnan með. sjó á bát-
j um og skipum. Aðeins úr ein-
um þessum stað má fá sjóleiðis
allt að helming af þeirri mjólk,
sem bærinn þarf, til að geta
komizt af. Auk þess er mjólkin
austan yfir fjall, og munu aust-
anbændur sjá nægar leiðir til
að koma henni í bæinn, hvað
sem Jakob Sigurðsson og
Kristján kolasali segja.
Flutningar um bæinn geta
vel orðið að verulegu leyti með
hestvögnum, og það er- senni-
legt, að akstur með hestvögn-
um verði yfirleitt tekinn
upp meira en áður. I Kaup-
mannahöfn flytja sum stærstu
fyrirtæki vörur sínar á hest-
vögnum út um borgina. Carls-
bergsverksmiðjurnar einar hafa
100 hesta í flutningum innan-
bæ j ar. G j aldey riserf iðleikarnir
verða sjálfsagt til þess að
hestanotkun fer aftur í vöxt
hér sem annarsstaðar.
Mjólkursamsalan mun vafa-
laust gera sitt ýtrasta til að
hafa nóga mjólk í búðum sín-
um, en vel má vera að meira
verði ‘að gera að því að sækja
mjólkina í búðir, heldur en
gert er venjulega. En meðan
jólafríið varir, mun nógur liðs-
kostur á flestum heimilum til
að komast fram úr þeirn örð-
ugleikum.
Uppþot það, sem hér um
ræðir er áframhald af flani
húsmæðranna í fyrra. Þær voru
viðvaningar í höndum óvand-
aðra íhaldsmanna og kommún-
ista. Þær höfðu eingöngu
skömm og skaða af forhleypis-
verkum sínum. Svo illa, sem
það uppþot var undirbúið, þá
er það, sem hér um ræðir enn-
þá giftulausara. Bezti hluti
verkfallsmannanna, hinir starf- 1
i
sömu bílstjórar tapa vmnu og
kaupi, verzlunarstéttir við-
skiptum og fjármunum. Skikk-
anlegt íhaldsfólk missir af
veizlum og heimboðum um jöl-
in, og verður máske stundum
að láta börn sín sækja mjólk
og rjóma í hendur Samsölunn-
ar. Þetta eru þeir sýnilegu erf-
iðleikar, sem uppþotið fæðir af
sér.
En að því leyti sem uppþotið
er uppreist móti lögum lands-
ins, þá eru skuggahliðarnar
fyrir upphafsmennina enn aug-
NÝJA DAGBLAÐIÐ
Útgefandi: Blaðaútgáfan h.f.
.. . . Ritstjóri: . .
Sigfús Iialldórs frá Höfnum
Ritstjórnarskrifstofur:
Laugav. 10. Simar 4373 og 2353
Afgr. og auglýsingaskrifstofa
Austurstr. 12. Sími 2323 ..
í lausasölu 10 aura eint.
Áskriftargjald kr. 2 á mán.
Prentsm. Acta.
'wmmmmmmmmmmmmmmmmm
ljósari. Framsóknarmenn og
Alþýðuflokkurinn standa sam-
an að núverandi stjórn og um-
bótastarfi hennar, þar á meðal
þeim stórfelldu framkvæmdum,
sem hér á að gera í samgöngu-
raálum. Þessir flokkar líta ekki
I aðeins á augnablikið, ekki þann
einstaka þátt, sem hér er um
að ræða, heldur á hina miklu
landsnaúðsyn að verja lög og
rétt í landinu. Ef látið væri
undan duttlungum einstakra fé-
laga um löggjöf landsins, jafn-
vel þó að þau væru ekki í hönd-
um óhlutvandra æsingamanna,
þá væri þjóðfélagið lagt í
rústir.
Hér er um miklu meira að
ræða heldur en það, hver eigi
að borga umbætur veganna,
sem spara því meira fé í bætt-
um samgöngum. Hér er um að
ræða, hvort á íslandi eigi að
vera lög og réttur, eðá drauma-
land Jakobs Sigurðssonar og
Eggerts Claessen.
J. J.
Vandamália rædd.
Það er blandað hinu g'ómaæta og viðurkennda Akureyrarsmjöri. Það fæst í öllum
mjólkursölubúðum bæjarins, hjá Kaupfólagi Reykjavíkur og víðar og það kostar að-
eins 70 aura pundspakkinn.
^ Kaupfélag Eyflrðinga, Akureyri
%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%&%&
Borðsalur í smjörlíkisgerð KEA