Nýja dagblaðið - 26.04.1936, Síða 4
4
N ¥ J A
DAGBLAÐIÖ
Gashernaður Itala
mSanila BlðBMHBa
Flóttmn
Afar spennandi og við-
burðarík amerísk tslmynd
sem sýnir á skemmtilegan
hátt eltingarleik á milli
lögreglunnar og stroku-
fanga, yfir þvera Ameríku
Aöalhlutverkin leika:
Rob. Montgomery
Madge Evans og
Nat Pendleton.
Sýnd kl. 9 og á alþýðu-
sýningu kl. 7
og bernasýningu kl. 5.
Ann^ll
Veðurspá lyrir Reykjavík og ná-
grenni: Norðaustangola. Bjartviöri.
Næturlæknir er nœstu nótt Val-
týr Albertsson, Túngötu 3. Sími
3259; aðra nótt þórður pórðarson,
Eiríksgötu 11, sími 4655.
Næturvörður er í Laugavegs- og
ingólfsapóteki.
Framsóknariélag Reykjavíkur
boðar til íundar n. k. þriðjudags-
kvöld í Sambandshúsinu, saman-
ber auglýsingu í blaðinu í dag.
1’ramsóknarmenn utan af landi,
sem staddir eru í bænum, eru vel-
komnir á fundinn meðan hús-
rúm leyíir.
Dagskrá útvarpsins: Kl. 10,00
Morguntónleikar: a) Wagner: For-
leikurinn að Tannháuser; b) Liszt:
Píanó-konsert í Es-dúr. 10,40 Veð-
urfregnir. 11,00 Messa í Dómkirkj-
unni. Ferming (síra Bjarni Jóns-
son). Hádegisútvarp. 13,00 Ensku-
kennsla, 3. fl. 13,25 Esperantó-
kennsla. 15,00 Miðdegistónleikar:
Létt lög (af plötum). 17,40 Útvarp
til útlanda (öldulengd 24.52). 18,30
Bamatími (Amgr. Kristjánsson
kennari og nemendur hans
skemmta). 19,10 Veðurfregnir. 19,20
Hljómplötur: Létt lög. 19,40 Aug-
lýsingar. 19,45 Fréttir. 20,15 Erindi:
„Nirvana" (Klemens Guðmundsson
bóndi). 20,40 Tónskáldakvöld, II:
•Tónas Helgason og Helgi Helgason:
a) Útvarpskórinn syngur lög eftir
tónskáldin; b) Erindi (Sigfús Ein-
arsson tónskáld); c) Útvarpskór-
inn sýngur. 21,40 Danslög (til kl. 2
rftir miðnætti).
Skólafólk frá Reykholti oy Hvit-
úrbakka heldur skemtifund í Odd-
fellow-húsinu (uppi) í kvöld og
hefst hann kl. 9. — Félagar mega
hafa með sér gesti.
Hilmir kom aí veiðum í Sær
með 50 tunnur eftir 6 daga útivist.
Skiðakvikmyndinni, sem sænski
skíðakennarinn, hr. Tufesson, sýndi
í Nýja Bíó i gærkveldi var tekið
með miklum fögnuði af áhorfend-
um, og mun flestum, sem á horfðu,
Æska og ástir
eftír C. L. Anthony
verður leikið í Iðnó í kvöld
kl. 8.
Aðfrm. seldir frá kl. 1 e. h.
Simi 3191.
Kosningar í dag
á Frakklandi og Spáni
í dag, 26. apríl, fara fram
kosningar á Spáni, og verða
þar kosnir þeir 473 kjörmenn,
sem ásamt þingmönnunum eiga
að kjósa forseta spænska lýð-
veldisins, en sú kosning fer
fram aftur 10. maí. Kosning
kjörmannanna fer fram á sama
hátt og kosning þingmannanna.
Barrio, sem er forseti þings-
is, gegnir nú störfum lýðveldis-
forsetans.
Frönsku kosningarnar fara
einnig fram í dag. Er úrslita
þeirra beðið með mikilli eftir-
væntingu, því eftir þeim fer af-
staða Frakka í alþjóðmálum á
næstunni.
Maður meðgeng-
ur leynivínsölu í
stórum stíl
Gunnar Jónsson, Hverfisgötu
76 B hefir meðgengið að hafa
rekið á laun áfengissölu í all-
stórum stíl síðan sterk vín
fóru aftur að flytjast inn í
landið.
í gær var Gunnar kallaður
fyrir rétt og meðgekk að hafa
keypt vín hjá Áfengisverzlun
ríkisins síðan sterku vínin
komu aftur og selt þau síðan
með hagnaði. Hefir hann á
þeim tíma enga vinnu haft
nema atvinnubótavinnu, en
annars hefir ágóðinn af leyni-
vínsölunni nægt honum til lífs-
framfæris.
Ragnar Jónsson fulltrúi lög-
reglustjóra skýrði blaðinu svo
frá í gærkvöldi, að ýmsar vitna-
leiðslur í hliðstæðum málum
hefðu farið fram í gær.
liafa verið sú ósk efst í huga, að
lokinni sýningu, að þeir fengju að
sjá myndina aftur. — Kennarinn
utskýrði myndina. Fræðir hún vel
um skíðaíþróttina og má hiklaust
telja, að það væri stór ávinningur
að fá hingað fleiri kvikmyndir
sama eðlis.
U. M. F. Velvakandi heldur aðal-
fund sinn í Kaupþingssalnum
næstkomandi þriðjudag og hefst
hann stundvíslega kl. 8y% síðdegis.
Veðrið. í gær var austan- og
norðaustanátt um allt land og
vindur víðast hægur. Á Suður- og
Austurlandi var dátítil úrkoma,
en þoka við norðurströndina. Hiti
var 1—4 stig á Norður- og Austur-
landi, en 4—8 stig á Suður- og
Vesturlandi. Mestur hiti var á
pingvöllum 10 stig.
Höfnin. Margir norskir línuveið-
a'iar komu í gær og fyrradag til
að fá kol o. fl. þeir munu flestir
hafa farið aftur í gær. — Tveir
norskir togarar komu í gær til að
fá kol. — Franskur togari kom í
gær til að fá kol og salt og fór
aítur í gærkvöldi. — Skaftfellingur
fór austur á hafnir í gær. — Súðin
var tckin úr Slipp i fyrradag og
fer í hringferð 29. þ. m. — Tvær
færeyskar skútur komu í gær.
Andlátsfregn. Nýlega er látin á
Halldórsstöðum í Laxárdal í ping-
cyjarsýslu Margrét Kristjánsdóttir,
kona á áttræðisaldri. Hún var ráðs-
kona hjA hinum þjóðkunna braut-
— Bletiur á hvíta
Frá Abessiníu berast nú unn-
vörpum hroðalegar fréttir af
gashernaði Itala, eftir því sem
cnska blaðið Manchester Guar-
dian segir. Fregnir þessar hafa
kornið í kæruformi frá stjórn
Abessiníu til Þjóðabandalags-
ins, og auk þess frá ýmsum
áreiðanlegum aðilum, svo sem
læknum og yfirmönnum Rauða
kross deilda frá ýmsum ríkjum,
sem nú stunda líknarstarfsemi
þar syðra. Mr. Stephens kap-
teinn í hinum Enska Red
Kross, nýkominn frá Addis
Abeba, lýsir því á þessa leið:
„Hörmungar gashemaðarins
eru skelfilegri en orð fá lýst.
Þúsundir kvenna, barna og
gamalmenna hafa auk her-
mannanna orðið þessari ógur-
legu hemaðaraðferð að bráð.
Aðrar þúsundir rotna sundur
hálflifandi með kýli og flakandi
sár, þar sem eiturgasið hefir
snert hörundið. Af 3000 manns,
sem við höfum veitt aðstoð síð-
astliðtnn mánuð, hafa 20 af
hverju þúsundi látið lífið. Gas-
Undanfarið hefir tíð breytzt
nokkuð til batnaðar á harðinda-
svæðinu norðanlands og hefir
það fært mönnum auknar vonir
um að svo kunni að skipast að
heyþrot verði umflúin.
í gær átti blaðið tal við
fréttaritara sinn í Suður-Þing-
eyjarsýslu og sagðist honum
svo frá:
Tíðarfar hefir verið allgott
undanfarið og suma daga þíð-
viðri og hefir snjór minnkað
töluvert. Er því komin allgóð
beitarjörð í flestum sveitum
sýslunnar, nema sumstaðar í
Bárðardal mun vera lítil jörð.
Glæðast því óðum vonir manna
rvðjanda í iðnaði, Magnúsi þórar-
inssyni á Halldórsstöðum, en um
tvo tugi ára hafði hún legið rúm-
föst og tók mótlætinu með ein-
skærri bjartsýni og bjargfastri trú.
Og þeir sem kynntust henni munu
ciga staðgóðar minningar um
mannkosti hennar.
Söngffokkar á AkureyrL Sam-
kvæmt símtali norður á Akureyri
í gær, mun karlakórinn Vísir frd
Siglufirði í dag skcmmta bæjarbú-
um þar mcð söng sínum. Karla-
kórinn Geysir söng á Akureyri s.
1. sunnudag við góða aðsókn og á-
gætar móttökur. — Blaðið hefir
frétt að til mála helði komið að
Björgvin Guðmundsson tónskáld á
Altureyri kæmi með kantötukór
sinn hingað suður i vor. Af ýms-
um ástæðum mun hafa verið horf-
ið frá því ráði.
kynstoSnmum —
inu er dreift úr geymum, sem
komið er fyrir á vængjum flug-
vélanna og fellur það til jarðar
eins og ósýnileg dögg og sest
á fólk eða dauða hluti, en áhrif
þess koma ekki fram fyr en
klukkutíma eftir snertingu, og
geta menn því borið það frá
einum til annars eins og smit-
andi sjúkdóm og án þess að
hafa hugmynd um“.
Önnur tegund hernaðargass,
sem ítalir virðast hafa notað
er eldgas, eða „fljótandi eldur“,
sem þeir svo að segja hella yfir
herdeildirnar. Sem meðlimir
Þjóðabandalagsins er Itölum
óheimilt að nota eiturgas, og til
samanburðar má geta þess, að
í landvinningastríði sínu á meg-
inlandi Asíu, hafa Japanir ekki
gripið til gasnotkunar, þó vit-
anlegt sé, að þeir hafi mögu-
leika til þess, og þó þeir ekki
séu meðlimir Þjóðabandalags-
ins. Með fordæmi sínu hafa
Italir stefnt inn á þá braut,
sem boðar eyðileggingu og
skelfingar fyrir komandi tíma.
um það, að heyþrot verði um-
flúin með fóðurbætisgjöf. Er
gefið mikið af fóðurbæti, sem
fluttur er frá Húsavík og hefir
það orðið nokkur hjálp í upp-
sveitum að snjóbíllinn hefir
getað annast þá flutninga. Mun
hann hafa farið tvær ferðir til
Mývatnssveitar og 3 eða 4 í
Bárðardal. — En nú er færð
góð um sýsluna og sækja marg-
ir fóðurbæti og annan flutning
á hestum og sleðum og eins er
nú bílfært á milli Húsavíkur
og Breiðumýrar og léttir það
flutninga.
Fénaðarhöld eru góð og ekki
vitað að búpeningur líði fyrir
fóðurskort.
ítalir komnir að
Bláu-Níl
Samkvæmt tilkynnmgum,
sem Badoglio marskálkur gef-
ur út i dag, hafa ítalir nú telc-
ið herskildi allt svæðið um-
hverfis Tanavatn. Italskar her-
sveitir hafa nú komizt að suð-
urodda vatnsins, þar sem Bláa
Níl fellur úr því.
Sænskur liðsforingi, sem
lengi hefir verið hernaðarlegur
ráðunautur Abessiníukeisara,
sagði í blaðaviðtali í gær, að
sigri ítalir ekki Abessiníumenn
áður en regntíminn byrjar inn-
an tveggja mánaða, mundu þeir
ekki vinna ófriðinn. Abessiníu-
mönnum gefist þá fjórir mán-
uðir til þess að undirbúa frek-
ari varnir, en það sé álit
margra hernaðarfræðinga, að
Ítalía muni ekki standast byrð-
ar ófriðarins í aðra 6 mán. FÚ.
Vænlegri horfur í Þíngfeyjarsýslu
Allgóð beit víðast i sýsluxsni.
Endur-
fæding
Mikilfengleg amerísk
talmynd samkv. heims-
frægri skáldsögu eftir
rússneska stórskáldið
Leo Tolstoy.
Aðalhlutverkin leika;
Anna sten og
Freric March.
Böm fá ekki aðgang.
SI
fíanp og §al»
——■
Pantið 1 tíma
í sima 3416.
Kjötverzlun
Kjartans Milner.
Fasteignastofan Hafnarstr.
15. Annast kaup og sölu fast-
eigna í Rejrkjavík og úti um
land. Viðtalstími kl. 11—12 og
5—7 og á öðrum tíma eftir
samkomulagi. Sími 3327. Jónas.
Allskonar skinnavörur fást í
útsölu Gefjunar, Laugavegi 10.
Beztu íslenzku fataefnin
fást í
Gefjun, Laugaveg 10.
TUkjDniiig»r
Fasteignasala Helga Sveins-
sonar er í Aðalatrætl 8. Inng.
frá Bröttugötu. Síml 4180.
Húsnœði
Húsnæði í nýbyggðu stórhýsi
í Austurbænum, hentugt fyrir
rakarastofu, hárgreiðslustofu
eða búð, er til leigu frá 14. maí.
Verður innréttað eftir óskum
leigjanda. — Upplýsingar í
síma 3288.
Páll ísólfsson
heldur
Orgeltonleika
í fríkirkjunni þriðjudag 28.
þ.m, kl. 8,30. Verkefni efti
Back— Frank — Reger
Aðgöngumiðar fást í
Hljóðfæraverzl. K. Viðar og
Hljóðfærahúsinu og bóka-
verzlun Sigf. Eymundss.
K a n p i ð