Nýja dagblaðið - 08.05.1936, Page 2

Nýja dagblaðið - 08.05.1936, Page 2
2 N Ý J A DAGBLAÐIÐ . er viðurkennt''’ að fullnægi hmum ströng- ustu kröfum. YOUNG’S baðduft: Drepur algerlega lús og annan óþrifnað. YOUNG’S »Red Label Paste«-baðlyf: Auk þess að lækna kláða og drepa öll snýkjudýr, hefir það þann mikla kost, að að útrýma algerlega nit (færilúsaeggjum) YOUNG’S „Springbok“-baðlyf: Er fram- úrskárandi gott til allra venjul. notkunar. Aliar nánari upplýsingar gefur Samband ísl. samvinnuféiaga Búið til hjá: Robert Young & Company Limitea, Glasgow, Seotland. Smiðir. Vid höfum til sölu efni til gljáning- ar (Poleringar) sem eru flótvirkari en eldrí aðferðir. Allmargir smiðir eru þegar farnir að nota þeasi efni. Vélritaðar notkunarreglur fyrir hendi. Biðjið um þær á skrifstofunni. Áfengisverzlun ríkisins. Stofnun kennaradeild> ar við Háskólann Framh. af 1. síðu. manna. Og á Akureyri er vist- in í menntaskólanum og heinia- vist hans það ódýr, að dug- legir menn vinna þar fyrir námskostnaði sínum með sum- arvinnu. Og fjöldi dugandi manna brýzt í gegnum nám í báðum skólunum, þó að þeir séu fátækir og eigi fáa hjálpar- menn. Það er þess vegna full- komlega tímabært að taka út- rétta hönd kennarastéttarinnar í þessu efni og auka kröfum- ar um leið og lífs- og starfs- skilyrði kennara eru bætt. Ég hygg, að heppilegast væri í þessum efnum, að hafa sér- staka kennslu í sambandi við G. bekk Akureyrarskólans fyr- ir þau stúdentsefni, sem ætluðu að ganga í uppeldisvísinda- deildina, og að nemendur úr Reykjavíkurskóla væru á Ak- ureyri þann vetur. Auk hins yenjulega bóklega náms þyrftu slíkir menn að læra teikningu cg smíði. Auk þess þyrftu þeir að vera hraustmenni; vel færir íþróttamenn og ferðamenn, geta leiðbeint um garðyrkju og mörg önnur dagleg störf. Nokkuð af þessum lærdómi yrði að fá ann- arsstaðar, t. d. á væntanlegum garðyrkjuskóla á Reykjum. En af þessari greinargerð er ljóst, að hér er stefnt að djúptækri breytingu. Kennannn á að vera félagi og forustumaðui- bamanna, ekki aðeins við and- lega vinnu, heldur við íþróttir, ferðalög og margháttaða lík- amlega vinnu. Tveggja ára nám í háskólan- um í uppeldisvísindum og við verklegt kennslunám myndi vera stórmikil hjálp fyrir l.ennarastéttina. Þá gætu ís~ lenzkír kennarar í fyrsta sinn íengið aðstöðu til að kynnast undir góðum starfsskilyi’ðum þeim niðurstöðum, sem uppeld- isfræðingar nútímans hafa fundið með langvarandi og margháttuðum rannsóknum. Sumir menn halda, að það sé lítill vandi að kenna böm- um. Til þess þurfi ekki nema lágmál af þekkingu. En þetta álit styðst ekki við dóm reynsl- unnar. Að vísu geta börn ekki tekið á móti mjög miklum þekkingarforða. En það skiptir máli að láta þá réttu þekkingu i té á þeim rétta tíma, ekki of mikið og ekki of lítið, og með þeim aðferðum, sem bezt eiga við sálarlíf barna. Með háskólabygingarlögun- um hefir Alþingi markað aí- stöðu sína í þessu máli, og með samþykkt sinni á kennaraþing- inu 1935 hefir stéttarfélag kennara heitið málinu fylgi sínu. Nú liggur næst fyrir, að ríkisstjómin láti rannsaka mál- ið frá ýmsum hliðum fram til næsta þings, jafnframt því sem henni og byggingamefnd háskólans ber skylda til að ætla væntanlegri deild fyrir uppeld- isvísindi heppilegt húsrúm í \æntanlegri byggingu Háskóla Jslands‘\ L Q. G. T, • SO ára afmæli bamasíúkunnar „Æskan“ nr. 1 verður haldið laugardaginn 9. maí og hefst með há- tíðafundi, kl. 3 síðd. — Á þeim fundi verður tekið á móti heimsóknarnefndum frá stúkum o. fl. — Að fund- inum loknum hefst Sjölbreytt skemmtun fyrir fólaga stúkunnar. — Kl. 8,30 verður skemmtun haldin fyrir foreldra og gesti barnanna, — Félagar vitji aðgöngu- miða í Templarahúsið í dag kl. 5,30 til 7 síðdegis. Sunnudaginn 10. maí safnast félagar allra barna- stúknanna saman við Templarahúsíð kl. 3 og þaðan hefst skrúðganga um götur bæjarins, með lúðrasveit í fararbroddi, og haldið í dórakirkjuna. Síra Friðrik Hallgrímsson heldur þar minningarræðu. — Kirkjuat- höfninni verður útvarpað. fyrir Reykvíkinga Allir bæjarbúar eiga kost á, meðan skipsrúm leyfir, að fara skemmtiferð til Akraness með Glímufélaginu Ármann, sunnudag- inn 10. maí. Lagt verður af stað kl. 9 árd. með e. s. Esju frá Hafnarbakkanum. Lúðrasreit Reykjavíkur verður með í förinni og spilar á báðum leiðum. Dagskrá á Akranesl: Kl. 1 e. h. LúðraBveitin leikur. Úrvalsflokkur kvenna sýnir leikfimi Kl. 2—3 Hlé (messað í Akranesskirkju). Ll. 3 Lúðrasveitin leikur. Úrvalsflokkur karla sýnir flmleika, reiptog og fleira. Kl. 4 Hnefaleikasýning og dansleikur í Báruhúsinu. Kl. 8,30 Lagt af stað heimleiðis. Parmiðar kosta kr. 4,00 fyrir fullorðna og kr. 2,50 fyrir böm að fermingu og fást hjá Þórarni Magnússyni, á afgr. Álafoss og í bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar. Dynjandi músik og íjör allan daginn. í heildsölu Frosið kjöt af vænu rosknu fé Kjötið er ágætt og mjög ódýrt samanborið við aðrar matvörur Samband isl. samvinnuiélaga Sími 1080. L O, G, T. Er Reykjavík fallegur bær? i. Reykjavík er höfuðstaður landsins og hefir eiginlega ver- ið það síðan á landnámstíð. ís- lendingar sækja í þennan bæ á eftir súlum Ingólfs. Enginn staður á landinu virðist hafa eins mikið aðdráttarafl og Reykjavík. íbúum þar hefir til skamms tíma fjölgað um 1000 á ári. Hér býr nálega þriðji hluti þjóðarinnar, og hlutfallinu milli þeirra, sem búa í höfuðstaðnum og utan hans, hafa um nokkur ár allt af orðið meira og meira í vil hinum hraðvaxandi höfuðstað. Sennilega er ekki rétt að balda því fram, að það sé feg- urð Reykjavíkur, sem veldur hinni miklu aðsókn Islendinga hingað. Hitt mun valda meiru, að Reykjavík er vel í sveit sett i landi hér. Hún stendur innst við stóran fiskisælan flóa, mitt á milii tveggja stærstu byggða landsins. Hún er svo að segja í nábýli við beztu fiskimið landsins. Golfstraumurinn fell- • ur að landinu báðum megin við höfuðstaðinn, og á því svæði nær hafísinn aldrei að umloka landið. Reykjavík er á kross- götum, þar sem mætast hinir mestu lands og sjávarkostir á íslandi. Þessvegna fór vel á því að hinn fyrsti landnámsmaður festi hér byggð sína, að Skúli fógeti kom hér á hinum fyrsta iðnaði, og að höfuðstaður hins ’ íslenzka nútímaríkis hefir byggst á þessum stað. Þessi fjárhagslega aðstaða ) hefir skapað Reykjavík og á þessari aðstöðu byggist fram- ; tíð hennar. En í greinum þeim, ' sem hér fara á eftir verður ekki verulega talað um fjár- mál og atvinnumál bæjarins, heldur um fegurð hans, bæði þá, sem honum er veitt af þeim sem skóp landið og þá íegurð, sem bæjarbúar eru búnir að skapa og eru að skapa með starfi sínu og fyrirhyggju. Það sem einkennir náttúm íslands er breytileiki hennar. ísland er land mótsetninganna. ís og eldur eru hér stöðugt að verki, og þessi tvö voldugu skapandi öfl setja á náttúru landsins svipmót, sem ekki á sinn líka í allri álfunni. Ef far- ið er um England, Frakkland, Danmöku, Svíþjóð og Noreg, þá má með nokkrum rétti segja, að sá sem hefir séð eitt hérað, hafi séð landið allt. En þessu er allt öðruvísi háttað um fegurð Islands. Hún er ná- lega ótæmandi og margbreyti- leg. Ég nefni nokkur dæmi hér á landinu sunnanverðu til að sýna mun á útsýni og yfirbragði landsins. Tökum út- sýni frá Hamrahlíð í Mosfells- sveit yfir Faxaflóa, og allan fjallahringinn kringum Reykja- vík. Tökum næst Þingvalla- sveit, Laugardal, Þjórsár- dal, Fljótshlíð, Eyjafjöll, Síð- una og Homafjörð af Al- mannaskarði. Hver af þessum byggðum hefir sinn einkenni- lega og formlega svip. Við Faxaflóa er hinn víði, breiði faðmur, með Snæfellsjökli eins og risa á verði við innganginn. Þingvallasveit með hinu *mikla stöðuvatni, hrauninu, hinum löngu og fagurgjörðu gjám, einstökum fjöllum allt um kring en mjög mismunandi að útliti og jarðmyndun eins og Skjaldbreiður og Hengill. I björtu veðri er Þingvallasveit hátignarleg eins og gotnesk dómkirkja frá miðöldum. En í rigningu er sveitin þung og myrk eins og fangelsi í göml- um stíl. Tuttugu og fimm km. austan er Laugardalurinn létt- ur og mjúkur, opinn móti sól og sumri, skýll og gróðursæil. Munurinn á þessum tveim sveitum er eins og heil heims- áifa sé á milli þeirra. Hið sama má segja um mun hinna sveit- anna, sem nefndar voru, og ótal annarra fagurra byggða á Is- landi. En meðal hinna mörgu fögru héraða er Reykjavík í einu hinu fegursta. Hinar lágu hæð- ir á tanganum, í hlé af gróður- sælum eyjum, er ágætt borgar- stæði. Víðsýni er mikið í allar áttir. Flóinn er víður, og op- inn móti skini kvöldsólarinnar. Á aðra hönd eru hin miklu, biádökku basaltfjöll, Esjan og Akrafjall. Síðan taka við Mýrafjöll, Snæfellsnes og loks jökullinn sjálfur, með hinn mikla hvíta hjálm, sem sólin varpar gullgliti yfir á vori og sumardögum. Þessi fjöll eru eins og varnarveggur móti kuldaáttinni. Þau eru há og tignarleg, mörg með skörpum brotlínum og hafa áhrif á menn eins og svipmiklar högg- myndir. En á bak við Reykja- vík, í átt til Þingvalla og slétt- unnar miklu, og alla leið út eftir Reykjanesfjallgarði er lág fjöll úr linu efni, sem ísinn hefir mótað og meitlað nálega að vild. Þar eru hinar miklu mjúku línur í landslaginu eins og í Apenníufjöllunum á Italíu. Þannig eru höfuðeinkenni ís- lenzkrar náttúru alveg sérstak- lega mörkuð í umhverfi um bæ Tngólfs Arnarsonar. (Frh.). J. J.

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.