Nýja dagblaðið - 24.06.1936, Side 3

Nýja dagblaðið - 24.06.1936, Side 3
N Ý J A 9AGBLA»I» | 8 Sigurður Jónsson skóiasljóri NÝJA DAGBLAÐIÐ Útgefaodi: Blaöaútgáfan h.f. Ritnefnd: Guöbrandur Magnúsr-on, Gísli GuBmundsson, Guðrn. Rr. GuömundssOEu Ritstjóri og ébyrgðannaður: pórarinn Jtóraiinason. Ritetjómarskriíatofur: Hafn. 16. Símar 4373 og 3388. Afgr. og auglýsingaskrifstofa Hafnarstr. 16. Simi 2323. Áskriftargjald kr. 2JX) á mén. -í lausasðlu 10 aura eint. - Prentsm. Acta. Simi 3948. Molar Srá »lands- fundi« íhaldsins Mbl. í g’ær telur upp 18 ræðumenn, er tekið hafi þátt í hinum „frjálsu umræðum" „landfundarins“ auk þeirra, sem „erindin“ fluttu. Gefur þessi ræðumannaskrá talsverða hugmynd um, hvernig fundur- inn hefir verið saman settur. Mest ber þar á einni af mjólk- urverkfallsfrúm „húsmæðra- félagsins“. Þá korna þjóðskör- ungar eins og Jón Normann og Lúðvík C. Magnússon, Júlíus Nýborg, Sólmundur Einarsson o. þvíl., en af bændum utau þings eru ekki aðrir tilnefndir en Bjarni í Vigur (sá sem skrifaði „löngu vitleysuna“ um kjötlögin) og Þórður nokkur á Bakka í Landeyjum. Sýnir þetta, hve vendilega bænda- stéttin hefir forðast samkundu þessa. Þá skýrir Mbl. frá því, hverj- ir hafi verið í undirbúnings- nefnd fundarins, og eru það þeir Valtýr Stefánsson, Stefán Pálsson, Einar Einarsson tré- smiður og Guðjón bryti. Hefir þessi nefnd sýnilega verið meir valin með tilliti til matfang- anna en landsmálanna. Og eft- irtektarvert er það, sem blaðið skýrir frá, að Ólafur Thors hafi viljað kenna Valtý um það, að flokkurinn sýndi Þing- völlum þann vafasama heiður að halda fundinn þar. Mun Ól- af hafa verið farið að gruna, að þjóðemisi’embingurinn í sambandi við þessa samkundu, myndi ekki verða flokknum til neins heiðurs í framtíðinni, og þá vissara að skella skuldinni á þann, sem vanastur er að láta sér blæða fyrir afglöpin. Um ræðuhöldin á fundinum segir blaðið að öðru leyti: „Það var alveg sérstaklega eftirtektarvert*), hve margar af þessum ræðum — auk sjálfra frumerindanna — voru bæði vel samdar og vel flutt- ar — —“. f dag verður Sigurður Jóns- son skólastjóri Miðbæjarskól- ans borinn til moldar. Með honum er fallinn í valinn einn hinn merkasti og ágætasti maður. Sigurður Jónsson er fæddur að Lækjarkoti í Mosfellssveit 6. maí 1872. Hann stundaði nám við kennaraskólann í Jon- strup í Danm. og lauk þaðan prófi. Árið 1898 gerðist hann starfsmaður við barnaskóla Reykjavíkur og starfaði við hann til dauðadags, eða 38 ár. Skólastjóri var hann frá 1923. Auk hins langa og merka starfs við barnaskóla Reykja- víkur gegndi Sig. Jónsson mörgum trúnaðarstörfum. — Hann átti um skeið sæti í bæj- arstjórn Reykjavíkur og var nokkrum sinnum settur borg- arstjóri. Árið 1899—1900 gaf hann út, að tilhlutun „hins ís- lenzka kennarafélags“ Kenn- arablaðið og var hvorttveggja í senn ritstjóri og útgefandi. 1901—1903 var Sig. Jónsson ritstjóri Goodtemplars. Mörg- um öðrum trúnaðarstörfum gegndi hann fyrir Goodtempl- araregluna. Hann var æðsti maður Reglunnar hér á landi 1927—1929, í framkvæmda- nefnd stórstúkunnar 1927— 1930 og aftur kosinn þangað (gjaldkeri) 1935. Sig. Jónsson átti sæti í barnaverndamefnd Rvíkur frá byrjun. Þetta yfirlit sýnir, hversu mikils trausts Sig. Jónsson hef- ir notið meðal samtíðar sinn- ar, og sýnir það þó ekki nema að nokkru leyti. Það er sem sé fullvíst, að Sig. Jónsson átti miklu oftar kost á að takast á hendur opinber störf, t. d. bæði fyrir bæjarfélagið og Goodtemplara, en hafnaði því vegna samvizkusemi og trún- aðar við sitt aðalstarf, sem var bæði umsvifa- og ábyrgðar- mikið. Það mun eigi ofmælt að telja Sig. Jónsson einn hinn ötulasta og farsælasta forvígismann bindindismálanna síðan um aldamót. Á stórtemplarsárum hans stóð Reglan með mestum blóma, bæði um fjölmenni og fjárhag. Hann var mjög ein- dreginn bannmaður og sá glögglega fyrir það böl, sem af afnámi bannlaganna hlaut að leiða, einkum fyrir æskuna í landinu. Svo sem fyrr er getið var starf Sig. Jónssonar í þágu skólamálanna bæði langt og merkilegt. En það verður eigi | að fullu skilið né metið, án þess að jafníramt sé tekið til- lit til hinna óvenjulegu erfið- leika, sem við var að etja í starfi hans. Ég vil sem dæmi um það hvernig móttökur æskuáhugi og fórnfýsi Sig. Jónssonar fékk, 'benda á afdrif kennarablaðsins. Kennarablaðið fór mjög myndarlega af stað og flutti margar fróðlegar og vekjandi greinar um innlend og erlend skóla- og uppeldis- mál, en allt um það voru und- irtektir kennara og almennings með þeim hætti, að vonlaust var fyrir efnalítinn mann að halda útgáfunni áfram. Ör- lögin urðu þau sömu og upp- eldistímarit þeirra ögmundar og Jóns Þórarinssonar hafði áour hlotið. Eitt af því, sem Sig. Jónsson barðist fyrir í blaði sínu, var stofnun kennaraskóla á íslandi. Og telur hann sérmenntaða kennarastétt eitt grundvallar- at.riði fyrir kennslumálin í landinu. Ég tilfæri hér ummæli úr ávarpi kennarablaðsins, er það hóf göngu sína. Ummæli þessi eru í fullu gildi enn og lýsa vel trú Sig. Jónssonar á þýðingu skóla og góðs uppeld- is: „Það er þýðingarlaust að ætla sér að uppbyggja þjóðina, að ætla sér að gera hana að svo eða svo mikilli framfara- þjóð í búnaði, verzlun eða öðr- um atvinnugreinum, að ætla sér að gera hana að svo eða svo vel kristinni, hraustri og bindindissamri þjóð, — það er allt þýðingarlaust, ef að upp- eldi barnanna og sönn mennt- un þeirra er vanrækt. Grund- völlinn til þjóðþrifa vorra verð- ur að leggja hjá hinum ungu, það eru þeir, sem hafa í sér fólgna möguleikana fyrir því, að þjóðinni geti þokað eitthvað áleiðis á komandi öldum, — frækornin, sem framtíð hennar á að spretta upp af“. Sig. Jónsson naut virðingar og vinsælda meðal kennara, bæði sem yfirmaður og sam- verkamaður. Ég kynntist hon- um aðallega frá því um haust- ið 1930, er ég gerðist sam- verkamaður hans hér í Reykja- vík. Um samvinnu við Sig. Jónsson get ég í stuttu máli sagt það, að hann reyndist mér í öllum greinum hinn drengi- legasti og virðingarverðasti starfsbróðir. Þessa er því frem- ur vert að geta, sem það er alkunnugt, að skoðanir okk- ar voru stundum skiptar. Sigurður Thorlacius. Munu fundarmönnum finn- ast þetta nokkuð vafasöm „compliment". En N. dbl. getur fyrir sitt leyti vel gengið inn á það, að það sé „sérstaklega eftirtektarvert“, ef sá söfnuð- ur, sem talinn er upp í Mbl. hefir haldið „vel samdar og vel fluttar ræður“. Sýna þessi um- mæli, að moðhausiarnir kunna, *) Auðkennt hér. a. m. k. undir niðri, góð skil á sínu heimafólki. En lang eftirtektaxverðust eru þó þau niðurlagsummæli Mbl., að Sjálfstæðismönnum sé það ljóst að nú sé um það tvennt að gera að „snúa við eða tortímast“. Á þetta senni- lega við hin dæmalausu skrif Ólafs Thors nú undanfarið um atvinnu- og fjármál þjóðarinn- ar, þar sem hann m. a. hefir haldið því fram, að atvinnu- fyrirtækin þurfi ekki að bera sig, að sjálfsagt sé að gera verkföll til að knýja fram kröfur og að óþarfi sé að standa í skilum með vexti og afborganir af skuldum. En tæpast er hugsanlegt, að flokkurinn „snúi við“ héðan aí nema því aðeins að hann losi sig við hinn hvatvísa og á- byrgðarlausa formann. Frá miimmgarathöfii Haligríms Krístinssonar Eins og áður hefir verið sagt frá ýtarlega, átti Kaupfélag Eyfirðinga 50 ára starfsafmæli 19. þ. m. í sambandi við veglega minn- ingai’athöfn, er fram fór á Hrafnagili þann dag, var sér- staklega minnst Hallgi’íms heitins Kristinssonar, sem einhvers hins glæsilegasta brautryðjanda samvinnumál- anna í landinu. Var minningar- ræðu formanns Kaupfélags Ey- firðinga, Einars Árnasonar, útvarpað, en hér syðra söfn- uðust samvinnumenn á sama tíma saman við leiði Hallgríms og lögðu á það blómsveig. Myndirnar eru af því, er sú athöfn fór fram. Vátryggir hverskonar lausafé, nema verzlunar- birgðir, í Reykjavík og öðrum kaupstöðum, 1 kaup- túnum og í sveitum. Upplýsingar á aðalskrifstofu félagsins og hjá öllum umboðsmönnum. Brunabðtafélag Itlaida Aðstoðarmannsstarf við skrifstofu Iðnsambands byggingamanna í Reykjavík er laust til umsóknar. Mánaðarlaun kr. 350,00. Skriflegar umsóknir sendist til skrif- stofu sambandsins, Suðurgötu 3 fyrir 7. júlí n.k. Sambandsstjórnin.

x

Nýja dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.