Nýja dagblaðið - 28.06.1936, Blaðsíða 1

Nýja dagblaðið - 28.06.1936, Blaðsíða 1
Sundmeistaramótið hefsl í dag 39 íjjróttamenn og konur keppa úr 6 ípróttaiélögum Sundmeistaramót íþróttasam- bands íslands hefst í dag' að Álafossi og verður lokið næsta sunnudag. Þátttakendur eru alls 39 frá sex íþróttafélögum. Eru 10 úr Ármann, 6 úr Knattspyrnufé- lagi Akureyrar, 7 úr K. R., 3 úr Knattspyrnufélaginu Þór á Akureyri, 1 frá Ungmennafé- lagi Akureyrar og 12 úr Ægi. I dag keppa 15 karlar í 100 m. sundi, frjálsri aðferð, 6 karlar í 400 m. bringusundi, 3 konur í 100 m. sundi, frjálsri aðferð og 5 sveitir í 4X50 m. boðsundi Eru tvær sveitir frá Ægi, en hinar frá Ármann, K. R., og K. A. og Þór í samein- ingu. Næstkomandi fimmtudag verður keppt í 100 m. bak- sundi, karlar, 400 m. frjáls að- ferð, karlar, og 200 m. bringu- sund, konur. Næsta sunnudag verður keppt í 200 m. bringusundi, karlai', 1500 m. frjáls aðferð, karlar og 50 m. frjáls aðferð, konur. Sundíþróttinni hefir fleygt 1 gærmorgun brann til kaldra kola nýlegt og myndarlegt timburhús í Stykkishólmi, sem Sigurður Jónasson starfsmaður í kaupfélaginu átti. Með naum- indum varð því afstýrt, að 3 önnur hús brynnu. Samkvæmt viðtali við sím- stöðina í Stykkishólmi, hefir eldurinn komið upp með þeim hætti um kl. 8.45 í gærmcrgun, að logandi olíuvél féll um koll í eldhúsi á efri hæð hússins, olían heltist niður og herbergið varð alelda á svipstundu. Kona, sem var með smálbarn í eldhúsinu, flúði með það í of- boði niður í kjallara hússins, þar sem konan á neðri hæð hússins var við þvott. Hún þreif föt í forstofu hússins og fór upp á loft til að reyna að slökkva með þeim eldinn, en þá var eldhúsið alelda og hvarf hún frá. Fjöldi fólks þusti brátt að og slökkviliðið kom á vettvang, en þá var efri hæð húpsins mjög farin að brenna. Árangurslaust var reynt að mjög fram á síðari árum og stöndum við, ef mælt er á al- heimsmælikvarða, framar í sundíþróttinni en flestum eða öllum greinum íþrótta. Standa met því mjög skammt, og í fyrra voru sett ný met í öllum sundraunum, sem nú er keppt í á sundmeistaramótinu, nema 1500 m. sundi, frjálsri aðferð fyrir karla. Það met setti Jón- as Halldórsson 1934. Að þessu sinni búast kunn- ugir menn við því að sett verði ný met í flestum eða öllum sundraunum, en sérstaklega er búist við harðri keppni og góð- um árangri í 100 m. frjálsri aðferð fyrir karla og konur. Hingað kom 21. þ. m. undir stjórn Ólafs Magnússonar sundkennara, flokkur sund- manna og kvenna frá Akur- eyri, og er það allt úrvalslið, sem æft hefir kappsamlega síð- an hingað kom. Og þótt í- þróttafélögin hér eigi mörgu góðu sundfólki á að skipa, er óvíst að það haldi hlut sínum fyrir Norðlendingunum. dæla vatni úr brunni við húsið. Síðar tókst að dæla sjó með tveim dælum, en þá var eldur- inn orðinn svo magnaður, að vonlaust var að bjarga húsinu. Var þvi gengið ötullega að því að verja þrjú næstu hús, sem voru í mikilli hættu. Tókst það, en þó með naumindum, og hjálpaði það mikið, að hið brennandi hús var járnvarið, svo að eldurinn brauzt síður út. En húsið féll saman um klukkustund eftir að eldurinn kom upp. Húsið, sem brann, var ný- legt, tvílyft og vandað. Eigandi þess, Sigurður Jónasson, starfs- maður í Kaupfél. Stykkishólms, bjó á efri hæð þess. Hefir hann orðið fyrir miklu tjóni, því að húsið var lágt vátryggt og all- ir innanstokksmunir hans brunnu óvátryggðir. Á neðri hæð hússins bjó Bergsveinn Jónsson, skipstjóri. Mikið bjargaðist af innan- stokksmunum hans og voru þeir allir vátryggðir. Elsa Slg’Súss söng í Gamla Bíó á fimmtu- dagskvöldið var, fyrir fullu húsi. Foreldrar hennar aðstoð- uðu. Frú Valborg Einarsson lék undir söng dóttur sinnar af skilningi og smekkvísi, en undir forystu Sigfúsar Einars- sonar söng blandaður kór þrjú lög, sem eitt atriði á söng- skráhni. Lögin voru eftir Grieg, Prátorius og Reger, og var prýðilega skilað af söngstjór- anum og flokknum. Það var mjög ánægjulegt að sjá og hlusta á ungfrú Elsu Sigfúss á söngpallinum. Fram- gangan er í senn stílfögur og algerlega látlaus; að öllu ó- venjulega geðfelld. Röddin er lágrödd (,,alt“), sem ómar eins og tónfögur knéfiðla, sérstak- lega í hæglíðandi hendingum. Og' ungfrúin kann vel með þessa fallegu rödd að fara. Aldrei var gerð tilraun til að þvinga hana á nokkurn hátt úr því lægi, sem henni lætur bezt, hvort sem erfitt eða auðvelt viðfangsefni var fyrir hendi. Meðfædd listagfáfa * Og viðfangsefni voru valin svo, að nægilega rúmt væri um þau innan þess sviðs, sem röddin nær yfir. En einmitt í þessum atriðum sést mörgum og jafn- vel vönum söngvurum yfir. En þau tök, sem ungfrú Elsa náði á áheyrendum þetta kvöld, eru hvorki eingöngu að Frh. á 4. tíða Síldveiðarnar Einkaskeyti frá. Siglufirði í gær til Nýja dagblaðsins, skýr- ir frá því að eftirfarandi skip hafi komið með síld til ríkis- verksmiðjanna: Eldborg 1566 mál, Huginn frá Hafnarfirði 1395 mál, Rifs- nes 464 mál, Þorsteinn 643 mál, Vébjörn 565 mál, Sigríð- ur 1022 mál, Sæfari 680 mál, Hrefna 225 mál, Geir goði 491 mál, Bjamey 650 mál, Björg- vin 268. — Til Steindórs Hjaltalins Huginn III 707 mál, Erna 981 mál. — Fitumagn síldarinnar er um 16%. Talið er að það sé austan- ganga af síld, sem nú veiðist við Langanes. I gærkvöldi voru ríkisverk- smiðjumar á Siglufirði búnar að fá 27 þús. mál og verk- smiðjan á Raufarhöfn 8 þús. mál. Eldsvoði í Stykkíshólmi í gær S æ n s k í stúdentakórínn kemur á morgun Ivar Wennerström verður iulltrúi ríkisstjórn- ar sinnar á sænsku vikunni Á morgun kemur hingað með j Lyru sænski stúdentasöngkór- Einar Ralf mn Stockholms studentsángare : undir stjórn hins ágæta söng- ; stjóra síns Einar Ralfs. Söngstj. sænska stúdenta- kórsins, hefir lengi verið söng- stjóri kórsins og farið með hann í margar söngferðir til útlanda, meðal annars til Bandaríkjanna. Ralf er lærður söngkennari og mjög góður stjórnandi. — Iiann hefir gefið út söngbók fyrir karlakór. Kór þessi er einn sá allra bezti í Svíþjóð, og eru þar þó margir afbragðs karlakórar, enda hafa Stockholms student- sángare getið sér hvarvetna mikilla vinsælda þar sem þeir hafa komið, og svo mun hér fara. Auk kórsins og söngstjóra hans, kemur Ivar Wenner- ström fyrv. landvarnarráðh. og kona hans, Lóa Guðmunds- dóttir frá Nesi. Wennerström er Islendingum að góðu kunn- ur, því hann hefir oft dvalið hér á landi á sumrum. Wenn- erström kemur á sænsku vik- una sem fulltrúi sænsku rík- isstjórnarinnar. Hjalmar Lindroth prófessor frá Gautaborg er gamalkunnur hér á landi, því hingað kom hann fyrir mörgum árum og dvaldi þá alllengi á Islandi, og 1930 skrifaði hann góða bók um Island. Lindroth kom til íslands um miðjan júní, sem fararstjóri þeirra stúdenta, sem komu hingað á stúdentanámskeið Norræna félagsins. „Nóttlðus voraldarveröld“ sksín við konungshjóimnum í Nordurlandsförinni Dagurinn í gær var síðasti dagur konungshjónana hér á landi að þessu sinni. I gærmorgun var lagt af stað frá Laugaskóla áleiðis til Akur- eyrar. Veður var enn hið feg- ursta. Var numið staðar í Vaglaskógi og dvalið þar um stund. Til Akureyrar var komið kl. 121/2- Bauð konungur þá til morgunverðar um borð í Dannebrog. Var þar meðal ann- ars íslenzkt skyr á borðum. Síðar um daginn fóru kon- ungur og drottning víða um bæinn og skoðuðu hann, en sumt af fýlgdarliði þeirra fór á hestum fram í Eyjafjörð. I gærkvöldi buðu konungs- hjónin til kvöldverðar um borð, og voru þar mættir ýms- ir bæjarmenn af Akureyri. Að samkvæmi þessu loknu, hélt konungsskipið úr höfn, og siglir austur með Norðurlandi og þaðan í haf til Danmerkur.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.