Nýja dagblaðið - 28.06.1936, Blaðsíða 3

Nýja dagblaðið - 28.06.1936, Blaðsíða 3
N * J A DAGBLAÐ. IÐ 3 NÝJA DAGBLAÐIÐ Útgefandi: Bla&aótgáfan h.f. Ritnefnd: Guöbrandur Magnö»son, Gísli Guömundsson, GuÖm. Kr. Guðmundsaon. Ritstjóri og ábyrgöarm&öur: pórarinn pórarinsaon. Ritstj ómarskrif stofur: Hafn. 16. Símar 4373 og 2358. Afgr. og auglýsingaskrifstofa Hafnarstr. 16. Sími 2328. Áskriftargjald kr. E^OO á mán. - í lausaaölu 10 aura eint. - Prentsm. Acta. Simi 3948. Síldveídin Síldin er nú komin fyrir norðan með fyrra móti. Og daglega eys nú síldarflotinn upp verðmæti fyrir tugi þús- unda við Langanes. Bræðslu- verksmiðjurnar eru í fullum gangi og hafa ekki við. Reynt er að koma á flot hverri fleytu, sem á síld getur farið. Jafnvel Kveldúlfstogaramir drattast nú úr höfn, eftir að hafa lokið við að flytja efnivið í sumarbú- staði framkvæmdastjóranna. Enginn veit þó, hvernig síld- arvertíðin muni rejmast, þegar til lengdar lætur. Menn muna, að vertíðin í fyrra byrjaði vel, en eftir skamman tíma tók fyrir síldina að mestu. Von- andi er, að nú fari á aðra leið. En hvað sem því líður, þá er það næsta gleðilegt, að ekki skyldi heppnast skaðræðisverk þeirra manna, sem ætluðu að reyna að koma því til leiðar, að allur síldveiðiflotinn yrði bundinn í höfn, því að jafnvel þó að slík innilega hefði vænt- anlega ekki orðið langvarandi, þá hefði hún þó vel getað orð- ið til þess, að ekkert af þeim mikla afla, er á land kemur núna fyrir mánaðamótin, hefði orðið að notum. Eftir því sem þetta mál er nánar íhugað, því blöskrunar- legra verður ábyrgðarleysi þeirra Ólafs Thors og Sveins Benediktssonar. Dag eftir dag moka veiði- skipin upp síldinni og fá fyrir liana til bræðslu miklu hærra verð en nokkru sinni fyr á undanförnum árum. Og út af þessu háa síldar- verði áttu útgerðarmenn og sjómenn að gera veiðiverkfall, ef farið hefði verið að ráðum þeirra félaga, Ólafs og Sveins! Sumir muna kannske, að ein aðalröksemd Sv. B. fyrir 6 króna verðinu, var sú, að sfld- in myndi reynast feitari en venjulega, feitari en verk- smiðjustjórnin og Trausti Ól- afsson gerðu ráð fyrir. En að minnsta kosti núna fyrstu dagana sýnir það sig, að síldin er mun magrari en verk- smiðjustjórnin gerði ráð fyrir. Fitan þarf því að aukast til mikilla muna til þess, að lýsis- magnið hjá verksmiðjunum standist áætlun þá, sem t'il Kirkjuíundur fyrir Sunnlendingafjórdung Hinn nýi leidtogi í stjórn- málum Frakklands Fundur þessi stóð hér í bæn- um dagana 21.—28. þ. m. og hófst með guðsþjónustu í dóm- kirkjunni. Þar prédikaði sr. Erlendur Þórðarson í Odda, en sr. Jón Þorvarðsson í Vík þjón- aði fyrir altari. Kl. 4*4 var svo fundurinn settur í húsi K. F. U. M., af Gísla Sveinssyni sýslumanni. Fundarstjóri var kosinn Matthías Þórðarson fommenjavörður. Minnst var 70 ára afmælis dr. Jóns Helga- sonar biskups, og honum sent heillaskeyti. Hófust þá umræður urn skip- un prestakalla, og hafði Gísli Sveinsson framsögu. Var nefnd kosin til að ræða við kirkju- málaráðherra um þetta mál, og gerði hún það meðan á fundi stóð, Samþykkti fundurinn til- lögur á móti fækkun presta- kalla. Guðbrandur Jónsson bóndi á Spákelsstöðum flutti erindi um ferðalög til safnaða og samtölc í söfnuðum. Samþykkt var til- laga frá Ásmundi Guðmunds- syni prófessor um að kjósa 9 manna nefnd til athugunar á ferðum leikmanna og presta til safnaðanna í Sunnlendinga- fjórðungi nú í sumar. Steinn Sigurðsson rithöfund- undur flutti erindi um upp- risu Krists. Pétur Sigurðsson flutti er- indi um kirkjuna og útvarpið. Samþykkt var tillaga frá próf. Ásmundi Guðmundssyni um stofnun kirkjulegs útvarpsnot- endafélags. Sr. Þorsteinn L. Jónsson og sr. Þórður Ólafsson fluttu er- indi um kirkjuna og æskuna — og Magnús Runólfsson cand. theol. talaði um starf- semi K. F. U. M. Á mánudagskvöld var altar- isganga fyrir fundarmenn í dómkirkjunni. Samþykktar voru tillögur um kristindómsfræðslu barna og að æskilegt væri að hún væri í höndum prestanna, enn- fremur tillögur um bamaguðs- þjónustur og sunnudagaskóla, áskorun til kirkjuráðs um að hlutast til um að völ sé á hæf- um mönnum til að ferðast um landið til eflingar kirkju og kristindómi og tillaga um að skora á alla hlutaðeigendur að. beitast fyrir því að helgidaga- grundvallar liggur því verði, sem ákveðið var, kr. 5,30 pr. mál. Þan.iig reynist nú hinn „fræðilegi" grundvöllur Sveins Benediktssonar, og svo þykist þessi maður hafa öðrum frem- ur vit á síld! En þjóðin hefir á þessum annatíma um flest merkilegra að hugsa en Ólaf Thors og Svein Benediktsson. Þeir eru báðir ómerkilegir menn. En síldin er merkilegur fiskur og getur vonandi orðið sannkallað bjargræði þjóðarinnar eftir hina slæmu vetrarvertíð. löggjöfinni verði betur fram- fylgt en áður. Frá 14 fulltrúum fyrir „Heimatrúboð leikmanna“ og K. F. U. M. kom fram svo- hljóðandi tillaga: „Kirkjufundur fyrir Sunn- lendingafjórðung, sem haldinn er í Reykjavík 21.—23. júní 1936 samþykkir að skora á alla þjónandi presta landsins, sem ekki trúa allri heilagri litningu, og ekki kenna guðs orð rétt og hreint eins og það er að finna í hinum spámann- legu og postullegu ritum sam- lcvæmt játningarritum evan- geliskrar lútherskrar kirkju, að snúa sér og halda prestaheit sitt eða segja lausu embætti sínu í þjónustu kirkjunnar taf- arlaust“. Um þessa tillögu urðu miklar umræður, en að lokum var hún tekin aftur, en miðlunartillaga samþykkt frá sr. Bjarna Jóns- syni, um almenna hvatningu til vakandi áhuga og trúarstarfs. Um erindi þau, sem getið er hér að framan urðu meiri og minni umræður, og verður e. t. v. á þær minnst síðar hér í biaðinu og sumar þær stefnur, sem nú virðast uppi vera í trú- arlífi hér í Sunnlendingafjórð- ungi. Svona kom ég til þín, vinur Ég kom heim svo glaður í heiðríku næturveldi, með hugann fullan af þrá eftir langa daga. Ég hélt að við myndum mætast á næsta kveldi — og minningin þín hún verður mín æfisaga. En þá lástu veikur og þrek mitt var lamað af lcvíða, og þráin svo sterk til að vita hvernig þér liði. það var engan að spyrja, aðeins að vona og bíða. En óttafull kvölin hún iét ekki sál mína í friði. Svo varð ég að koma, ég kom eins og vinur og bróðir, með kærleikans trausti og ótta í viðkvæmu geði, því mér varstu kærri en manni er ljúfasta móðir. Að mætast, það hélt ég yrði okkur báðum til gleði. En vinátta manna cr hún völtust af öllu í heimi? Og vonir og traust, á að kveðja þau hinzta sinni? Nei! Traustlyndir vinir — það getur ei hent að þeir gleymi. }>eir geyma sín hjarians mál í tállausu minni. Dulinn. Maðurinn, sem nú stýrir pólitík Fi’akklands, Leon Blurn, er fæddur 1872 í París. Ungur gekk hann inn í flokk Laurés og varð upp úr ófriðnum leið- andi maður socialista. Þegar Blum stendur upp í þinginu til að flytja ræðu, taka andstæðingar hans honum með ópum og hávaða — í byrjun. En fljótt hætta ólætin og allir lilusta. Blum er ekki einungis mælskur, heldur hefir því nær hver setning, er hann segir, pólitíska þýðingu. Með því að hlusta á mál hans — og fáir þekkja betur en hann mátt orðsins — og með því að taka sérstaklega eftir því, sem hann lætur ósagt, er oft hægt að sjá fyrir úrslit stórmála, sem á dagskrá eru, stundum örlög ríkisstjórnarinnar. Sem ræðumaður og rithöf- undur er Blum harður í sókn, en þó gætinn. Stíll hans er hvorttveggja í senn fjölbreyttur og fágaður. Það er ávöxtur skaplyndis hans og uppeldis. Leon Blum er kominn af auðugum borgaraættum í Par- ís. Hann er lögfræðingur að menntun. En jafnframt mála- Frábær sundafrek Fimmtán ára stúlka setur heimsmet I sundi. Fyrir tæpum hálfum mánuði var sett einstakt sundafrek í sundhöll Kaupmannahafnar. Það var 15 ára gömul stúlka, Ragnhild Hveger, sem synti 500 metra „crawl“-sund á 6 mín, 45,7 sek. Var það 3 sek. styttri tími en hin fræga hollenska sund- kona Willy den Ouden þurfti til að synda sömu vegalengd og ná með þvi heimsmeti á sínum tíma. Synt yfir Stórabelti á 7 klukkust. og 43 mín. Einstakt afrek. Lilli Andersen heitir hún, hin 21 árs gamla stúlka, sem þann 19. þ. m. synti fyrst allra yfir Stórabelti, milli Sjálands og Fjóns. Kl. 4.33 varpaði hún sér í sjóinn austanmegin sunds- ins og kl. 12.16 náði hún landi á Fjóni. 2000 manna hópur hafði safnast saman til þess að fagna þessari ungu afburðahraustu og þrautseigu sundkonu. Hrifn- ingin var takmarkalaus. Fólkið hló og grét, ein kona kastaði sér í sjóinn í ákafanum. En sundið var líka afburða- gíæsilegt. Straumar eru mjög óreglu- legir í sundinu. Og sjómennirn- ir, sem úti voru á bátum sín- um, hristu vonleysislega höfuð yfir þessari tilraun, er gerð i. Leon Blum. færslustörfum, stundaði hann bókmenntir og var ritdómari. Kunnur varð hann fyrst veru- lega með bók sinni „Nýjar við- ræður Goethes og Ecker- manns“. Ein af bókum hans, um hjónabandið, vakti mikið hneyksli. Leon Blum býr í eih- um fegursta hluta Parísar. Ilann er fyndinn og skemmt- inn í samkvæmum — og að ýmsu leyti að skapi borgara- stéttarinnar í höfuðstað Frakk- lands, sem annars er honum harðlega andstæð í stjórnmál- um. FelunöSnin á »landsSundinum « „Landsfundi“ íhaldsmanna er nú lokið fyrir rúmri viku. Morgunblaðið sagði, að á þess- um fundi hefðu mætt um 300 fulltrúa víðsvegar að af land- inu. En hvemig stendur á því, að Mbl. hefir ennþá ekki birt nöfn þessara „300 fulltrúa“? Hefir blaðið gleymt að birta nöfnin? Eða telur flokksstjórn- in af einhverjum ástæðum ekki rétt að birta þau opinberlega? Þegar Framsóknai’menn hafa haldið hin fjölmennu flokks- þing sín, hafa nöfn fulltrúanna æfinlega verið birt og um leið tilgreint hvaðan þeir væru af landinu og fyrir hverja þeir hefðu umboð. Nýja dagblaðið vill hérmeð skora á miðstjórn íhaldsflokks- ins að láta tafarlaust birta nöfn allra hinna „300 fulltrúa“ hins svokallaða „landsfundar“. var af Lilli annað skipti þá í vikunni. Hún synti crawl alla leið, en þar sem straumurinn var harð- astur og stóð í fangið, hrakti hana drjúgan aftur á bak, í hvert skipti og linað var á sundtökunum. Það er talið að Lilli Ander- sen hafi til jafnaðar synt með slíkum hraða þessa vegalengd, að venjulegur róðrarbátur fari lítið eða ekkert harðara, með einn mann við árar. Sama kona er heimsmeistari í 800 m. crawlsundi kvenna.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.