Nýja dagblaðið - 14.08.1936, Side 1
4- ár. Reykjavík, i'östudaginn 14. ágúst 1936. 184. blað
Fjöldí þýzkra og ítalskra flugvéla
komínn tíl stöðva uppreísnarmanna
Stórorusfa um Sau Sebasfíau. - Loftárás á Granada.
Orustur gfeysa víðsvegfar um landíð
London í gæi*. FTJ.
Á Spáni standa nú aðalbav-
dagarnir um San Sebastian og
Granada. — Uppreisnarmenn
héldu lengi uppi skothríð á
San Sebastian í dag síðdegis,
og eru sagðir að hafa komizt
innan einnar til tveggja mílna
frá Irun. Búizt er við, að her-
skip, sem uppreisnarmenn
hafa á valdi sínu, ásamt tveim-
ur beitiskipum, muni fara til
San Sebastian, og gera árás á
borgina af sjónum.
Flugvélar uppreisnarmanna
köstuðu fjölda sprengja yfir
Badajoz í ntorgun, og köstuðu
auk þess flugritum niður á göt-
urnar, þar sem stjómarherinn
var hvattur til þess að gefast
upp, ella myndi loftárásum
haldið áfram.
Borgin er þó enn í höndum
stjómarinnar.
Árás á Granada
Aftur á rnóti hafa flugvélar
stjómarinnar haldið uppi
sprengjukasti á Granada, og
skorað á uppreisnarmenn að
gefast upp, til þess að forðast
frekari loftárásir. Stjórnar-
lierinn hefir tekið Loja,
skammt fyrir vestan Granada,
og annan bæ, skammt fyrir
suðaustan borgina.
Þá hefir einnig verið barizt
í nánd við Saragossa, og segir
stjórnin sig hafa náð 12 vél-
Hljómleikar
Eánars
Kristjánssonar
í Tivoli
Kbh. Einkaskeyti FÚ.
Geysi mannfjöldi sótti hljóm-
leika Einars Kristjánssonar í
Tivoli í gær. Varð hann að
syngja fimm aukalög. En
blaðadómar um Einar eru mjög
ósamhljóða, og finna öll blöðin
eitthvað að honum, þó að þau
lofi hann einnig. Pólitiken seg-
ir, að Einari hafi farið aftur.
Berlingske Tidende segir, að
Einar hafi vel skólaðan og
fagran tenor, en skorti tilfinn-
ingu. Social Demokraten seg-
ir, að rödd Einars sé ágæt, en
hann beiti röddinni ekki af
nægilegri vandvirkni. Börsen
segir, að Einar hafi óvenjulega
fagra rödd, en vanti ljóðrænan
skilning.
byssum og nokkru af skotfær-
um frá uppreisnarmönnum.
I
Uppreisnarmenn hafa nú haf-
| ið nýja sókn í áttina til Mal-
aga. Segja þeir að Colmenar,
7 mílur fyrir norðan Malaga,
I liafi fallið í þeirra hendur.
í dag hefir talsvert kveðið
J að því, að skip uppreisnar-
| manna hafi skotið af handa-
hófi á Barcelona, og hafa bæði
frönsk og ensk skip orðið fyrir
kúlum uppreisnarmanna. —
Spánska stjórnin hefir beðið
afsökunar á þessum atburðum.
Spánski sendiherrann í Lon-
don hefir borið til baka flugu-
fregnir um það, að spánska
stjórnin hafi flutt sig til Val-
encia.
Dómstólar og trúmála-
félög leyst upp
Azana forseti hefir gefið út
tilskipun um, að allir dóm-
stólar og öll trúmálafélög og
klausturreglur skuli uppleyst í
þeim Iandshlutum, sem upp-
reisnarmenn hafa á valdi sínu,
og mun tilgangurinn vera sá,
að koma í veg fyrir það, að
uppreisnarmenn geti kúgað lög-
lega skipaða dómstóla til að
dæma að vild sinni.
Fréttaritari New York Times
í Sevilla, segir í fréttaskeyti til
blaðs síns, að 25 þýzkar flug-
Framh. á 4. síðu.
IV AR
VENNERSTRÖM
RÆÐIR UM ÍSLAND
við Social Demokraten
Kbh. Einkaskeyti FÚ.
Sænska blaðið, Social Demo-
kraten, flytur í dag viðtal við
Ivar Vennerström, um sam-
vinnu íslands og Svíþjóðar, um
menningarlega og atvinnulega
þróun íslands hin síðari ár, og
um stjórnmálaástandið á ts-
landi. Vennerström leggur
mikla áherzlu á, hverja þýð-
| ingu samvinna núverandi
stjórnarflokka á íslandi hafi
haft og álítur að sú samvinna
muni haldast áfram í framtíð-
inni.
Olympiu-
leikarnir
París í gær. FÚ.
|
j Frá Olympiuleikunum í gær:
í 100 metra sundi karla varð
t fyrstur Kiefer frá Bandaríkj-
t unum, á 1 mín. 6.9 sek., og
1 setti nýtt Olympiumet. Annar
var Massigi Kiokawa, Japani.
t næstu atrennu sama sunds
varð fyrstur Taylor Drysdale,
frá Bandaríkjunum, á 1 mín.
9 sek., næstur varð Þjóðverj-
inn Schluss. í þriðju atrennu
varð fyrstur Tajima, Japani, á
1 mín. 7,7 sek. í fjórðu at-
rennu sama sunds sigraði
brezkur maður, á 1 mín. 12
sek., og í fimmtu atrennu, Yos-
hida, Japani, á 1 mín. 10 sek.
t úrslitaleik, 400 metra sundi,
vann Medica frá Bandaríkjun-
um, á 4 mín. 44,5 sek. — (1
Kaupm.hafnarskeyti segir 4
mín. 45,5 sek.) og setti Olynt-
piumet. Næstur- varð Uto,
Japani, á 4 mín. 45,6 sek.,
þriðji Makino, Japani, á 4 mín.
48,1 sek., fjórði Flanagan frá
Bandaríkjunum, á 4 mín. 52,7
sek., og fimmti Tajima, jap-
anskur maður.
I sundknattleik unnu Belgar
Breta, með 6 mörkum á móti
einu, Frakkland Ástralíu, með
4 mörkum á móti tveimur,
Ungverjaland Holland, með 8
mörkum á móti núll, og Þýzka-
land Svíþjóð, með 4 gegn ein-
um.
Berlin í gær. FÚ.
í hockey-keppni sigraði Ind-
land Frakkland með 10:0 og
Þýzkaland Holland með 13:0.
t basket-ball keppni unnu
Bandaríkin sigur yfir Filipps-
eyjum með 56:23, Canada
sigraði Ungverjaland með
43:21, og Mexico sigraði ítalíu
með 20:17.
Kbh. Einkaskeyti FÚ.
I kappsiglingum með 6
metra snekkjum sigraði Eng-
land í gær og hlaut 67 stig,
Noregur var næstur með 66
stig, og Svíþjóð þriðja, með 62
stig.
Maðurinn sem kostar
spönsko uppreisnina
Hann aflaði auðsins með múfum og
smygli. - Gaf mikið hl kirkju og kpisfni-
halds og vap áfpúnaðapgoð lýðsins
Enginn efi getur á þvi leikið, j
að á bak við uppreisnaröflin á !
Spáni, þau öfl er steypt hafa j
þjóðinni út í grimmari bræðra- j
víg en dæmi eru til um langan
aldur, á bak við þau standa
ekki aðeins ákveðnar, leiðandi
persónur heldur mikið og á-
hrifaríkt fjármagn, er kostar
byltingartilraunina, að því leyti
sem fé getur gert.
t eftirfarandi grein verður
nokkuð rætt um þann manninn
sem talið er fullvíst að leggi
mest fé fram til styrjaldarinn-
ar og þeirra, sem kollvarpa vilja !
lýðræðisstjórn landsins og setja
fascistaeinræði í staðinn.
45umsóknir
um lorstjórasföð-
una víð Sundhöll-
ina
Þessir menn hafa sótt til
bæjarstjórnar um forstjóra-
starfið við Sundhöllina, sem
nýlega var auglýst:
Haraldur Sveinbjörnss., New
York.
Lárus J. Rist, óð. 13.
Rögnvaldur Sveinbjömsson,
Bergþórug. 9.
Hallsteinn Hinriksson, Hafn-
arfirði.
Friðjón Guðbjömsson, Grett-
isgötu 63.
Þórður Ingimundars., Klapp-
arstíg 5.
Franz Hákansson, Lauf. 19.
Vignir Andrésson, íþrótta-
kennari.
Bjami Grímsson, Baróns-
stíg 59.
Ólafur Sigurðsson, Baróns-
stíg 49.
Framh. á 4. síðu.
Kbh. Einkaskeyti FÚ.
Frá Olympiuleikunum í dag:
í 400 metra crawl-sundi
kvenna vann dönsk stúlka,
Ragnhild Hveger, á 5 mín. 28
sek., og setti nýtt Olympiu-
ntet. Hún er aðeins 15 ára.
Juan March Ordinos
j er kunnugt nafn á Spáni. Eig-
j andi þess er gagnauðugur og
dirfskubrögð hans með full-
lcomnum æfintýrablæ. Hann er
fæddur á eynni Mallorka í Mið-
jarðarhafinu. Juan var af fá-
tæku fólki kominn og ólst upp
við mikla íhaldssemi í skoðun-
um og trú.
En löngun hans til valda og
auðs var mikil. Og hann sá
fljótt að greiðasta leiðin til
þeirrar upphefðar var stjórn-
I málaferillinn.
Vitanlega gekk hann í íhalds-
Framh. á 2. alöu.
60°|0 lygi
Síðan Nýja dagblaðið veitti
íhaldinu seinustu ráðninguna í
skattamálum, hafa ritstjórar
Mbl. legið fram á lappir sínar
og ekki þorað að minnast á
þau efni.
Tímunum saman höfðu í-
haldsblöðin þrástagast á því, að
gjöld manna til ríkissjóðsins
væru hér á landi hærri en
nokkursstaðar annarsstaðar í
víðri veröld. Á þessari staðhæf-
ingu hafði svo verið byggður
endalaus rógburður um núver-
andi ríkisstjóm.
En Nýja dagblaðið sannaði
það með tilvitnun í opinberlega
viðurkenndar tölur í amerísku
hagfræðingatímariti, að gjöld
til ríkissjóðs eru hér á landi
lægri á mann en nokkursstaðar
í nágrannalöndunum og lægri
en skattameðaltal Norðurálf-
unnar.
Þá þögðu moðhausamir eins
og steinar.
En nú eru þeir aftur komn-
ir á kreik — halda víst, að
farið sé að fymast yfir það,
hvernig ósannindin voru rekin
ofan í þá og þeir stimplaðir
sem ómerkingar.
í gær fræðir Mbl. atkvæða-
fénað sinn á því, að gjöldin til
ríkisins séu 19 milljónir á ári!
Þetta era rakalaus og vísvit-
andi ósannindi.
Árið 1935 voru allir skattar
Framh. á 4. síðu.