Nýja dagblaðið - 20.08.1936, Blaðsíða 3

Nýja dagblaðið - 20.08.1936, Blaðsíða 3
N Ý J A DAGBLAÐIÐ 8 Q Á KROSSGÖTUM Sala íslenzkra afurða til Danmerkur FRÁ FRÉTTARITARA NÝJA DAGBLAÐSINS. Khöfn í ágúst. Um það hefir nokkuð verið rætt í dönskum blöðum, hvort ekki væri hægt að auka kaup í Danmörku á ísl. afurðum frá því sem nú er. Til dæmis segir í „Danmarks Handels- og Söfai'tstidende“ að krafa íslendinga um meiri sölu til Danmerkur sé sann- gjörn. Aftur á móti hefir t. d. „Kristilegt Dagblad“ lagst á móti slíku áliti og álit H. Hend- riksen er áður kunnugt um verzlunarviðskiptin. Til þess að fá umsögn þess aðila, sem einna bezt þekkir þessi mál af eigin afskiptum, hefir fréttaritarinn snúið sér til firmans Jakob Gunnlaugs- son & Co. og hitt forstjóra | þess að máli, hr. Laurus Gunn- laugsson. Vöruhús þetta hefir um 40 j ára skeið rekið verzlun við Is- ( land, enda er hr. Laurus af Is- lenzkum kominn,þótt hann hafi j búið í Danmörku frá því hann J var 4 ára. Og nýlega hefir firmað selt síðustu verzlunarhúsin á ís- landi (í Bakkafirði) og keypti Kaupfélag Langnesinga. ÍSLENZKAR VÖRUR MÆLA MEÐ SÉR SJÁLFAR. — Hér í landi, segir L. Gunn- laugsson, er aukinn áhugi fyrir íslandi og íslenzkum efnum. Þessi aukni áhugi og þekking er til mikils gagns iyrir sölu íslenzkra vara til Danmerkur. Og auglýsingastarfsemi í sambandi við íslenzkar vörur er ekki nauðsynleg — þær mæla með sér sjálfar. — Hvaða íslenzkar afurðir hafa mest líkindi til að ná vax- andi sölu hér í landi? — Líklega fyrst og fremst sildarolía og síldarmjöl. Allmikið hefir verið að því unnið, að auka þessi vörukaup og mætti þó sjálfsagt meir. Einnig mætti sennilega færa hér út saltsíldarmarkaðinn, þótt síldarkaupendur láti sér hægt í bili, vegna mikils tjóns á þeim kaupum í fyrra. — Eru sölumöguleikar í Dan- mörku fyrir íslenzkar rækjur? — Það er óvíst, en þó ekki útilokað. — En útlit um sölu fiskjar hingað ? — Af þurfiski hefir mjög lítið selst hér þetta ár. Þó er íslenzkur þurfiskur ágætis vara. En hér veldur það um senni- lega, að fólk kýs heldur nýjan fisk, og þar sem nýr (þ. e. ís- aður) íslenzkur fiskur er stór- um betri en danskur fiskur, ættu hér að vera miklir sölumöguleikar fyrir hann, og með nýjustu verkunaraðferð- um, er, eins og kunnugt er hægt að halda fiskinum sem nýjum mánuðum saman, svo að fjarlægðin frá Islandi væri til lítillar hindrunar. Og það er efalítið heilagfiski, sem hér hefir álitlegasta sölumöguleika — og ef til vill þorskur. Af öðrum vörum mætti nefna fryst lambakjöt, er fellur ágætlega í smekk danskra neytenda. Sömuleiðis ætti hér að vera markaður fyrir lýsi, bæði til iðnaðar og meðalagerðar. Og yfirleitt getur það naum- ast verið stórum erfiðleikum bundið að auka til muna sölu ýmsra íslenzkra afurða hér í Danmörku. — En haldið þér að verð ís- lenzkra vara sé of hátt? — Nei! Ekki þegar tekið er fullt tillit til gæðanna, segir L. Gunnlaugsson að lokum. B. Rikisútgáfa námsbóka enn Svar til Sigurðar Thorlacius, skólastjóra Stjórnarmildi eða stjórnarkúgun Mbl. telur núverandi stjórn harðleikna við minnihlutann, og segir íhaldið beitt hörku á Alþingi. Hvar eru sannanirnar? Lítum á fjárlögin, þar sem fjárveitingarnefnd með 4 í- haldsmönnum og 5 stjómar- sinnum stendur saman um af- greiðsluna, og engin óánægju- rödd kemur fram í þingi um hlutdrægni í fjái'veitingum. Kjördæmi með svæsnum í- haldsþingmanni eins og Jóni Auðunn og Jóhanni í Eyjum, hafa fengið hina stórkostleg- ustu hjálp í verklegum fram- kvæmdum fyrir forgöngu og atbeina núverandi þingmeira hluta og ríkisstjórnar. En hlutdrægni íhaldsins er söm við sig. Þannig hefir íhaldið í Skagafirði hindrað að lagað- ur væri vegur eða sími um sveit austan Héraðsvatna, þar sem meiri hluti kjósendanna voru Framsóknarmenn. Allir kunnugir vissu að hér var ein- göngu um hefnd að ræða frá íhaldsmönnum fyrir að vera á móti flokki þeirra. Bráðahirgðalög íhalds og Framsóknar íhaldið telur það hið mesta þingræðisbrot, er núverandi stjórn gaf út bráðabirgðalög um síldarverksmið j ust j órnina. En M'. Guðm. gaf líka út bráðabirgðalög um ríkisrekstur á Sólbakkaverksmiðjunni og og hundadagaráðherra íhalds- ins gaf út bráðabirgðarlög um einkasölu á útfluttum fiski. Bæði þessi lög voru gefin út í beinni mótsögn við yfirlýsta stefnu íhaldsmanna. Hvernig vill Mbl. verja það mál? Fríður borgaranna Meðan íhaldið hafði einn ráð- herra í bráðabirgðarstjórn með tveim fyrverandi Framsóknar- mönnum, knúðu hin óhreinu öfl í flokknum þennan ráðherra til að byrja hverja persónulegu ofsóknina af annari á leiðandi menn í Framsóknarflokknum. I öllum tilfellunum vissu Mbl.- menn að árásin var upplogin. Á þennan hátt var ljúgvitnum raðað móti Hermanni Jónas- syni og upplognar árásir á Guðbrand Magnússon, Pálma Loftsson og Einar Einarsson. Þrátt fyrir hina svívirðileg- ustu framkomu íhaldsins í öll- um þessum málum, tókst því ekki að kasta minnsta bletti á mannorð nokkurs þessara manna. Þvert á móti leiddi if- sóknin í ljós, að þeir höfðu all- ir staðið ágætlega í stöðu sinni. En vilja íhaldsmenn bera sam- an réttarvernd borgaranna undir núverandi stjóm, við léttleysi þeirra á tímum bræð- ingsst jórnarinnar ? Krabbe og kvenfólkið Mbl. telur það höfuðsynd, að J. J. skuli ekki vita, að Krabbe vitamálastjóri hafi skrifað Al- þingi um að hann ætlaði að flytja af landi burt. En Mbl. gleymir því, að J. J. var ekki í fjárveitinganefnd, þegar Krabbe lýsti landflótta sínum. Sézt af þessu hve létt Valtýs- tetri er að fara með ósann- indi. Þá segir Mbl., að J. J. hafi byrjað blaðadeilu við konu utan Reykjavíkur og nefnt frú lngibjörgu Þorláksson í sambandi við utanferðir. En hið sanna er það, að kona ein út á landi ritaði viðvanings- lega ádeilugrein gegn J. J. og lét auglýsa það á torgum og gatnamótum, að hér væri um persónulega árás að ræða. J. J. svaraði konu þessari nokkru síðar með svo mikilli mildi og umburðarlyndi, að sök himiar deilugjörnu konu varð enn á- takanlegri. Þá hafði J. J. ekki minnst á frú Þorláksson, held- ur er það Mbl., sem dag eftir dag skýrir frá því, að hún sé að flytja úr landi. Ætti Mbl. að kunna að gæta tungu sinnar betur en verið hefir í þessu efni. I fyrra réðist það á einn nafngreindan Framsóknarmann fyrir að leita nánum vanda- rnanni læknishjálpar erlendis stutta stund. Þá sá Mbl. eftir gjaldeyrinum. Og nokkru þar áður hældi Mbl. glæpamanni, sem sendur var inn á heimili Framsóknarmanns til að Ijúga að konu um meiriháttar veik- indi, sem maður hennar átti að vera haldinn af. Hvemig var sá drengskapur? Boðað til ráð- stefnu, er ákveði möskvastærð á nefjum Ritari í brezka landbúnaðar- ráðuneytinu. Herwald Rams- botham hefir nýlega svarað fyrirspurn, er fram kom í mál- stofu brezka þingsins snertandi fiskveiðar. Hefir hann sagt, að hið al- þjóðlega hafrannsóknarráð hafi mælt með því, að ríki þau, er hafi hagsmuna að gæta um fiskiveiðar, fallizt á hinar brezku reglur um möskvastærð fiskinetja. I því tilefni hefir ríkisstjórn Bretaveldis — að því er fréttir herma — boðið öllum þeim ríkj- um, er hér geta átt hlut að máli, að senda fulltrúa á þing, er komi saman í London í haust er kemur, til þess að ræða þetta mál o. fl. Nýlega skrifaði ég stutta grein í Nýja Dagbl. vegna til- lagna fulltrúaþings bamakenn- ara um ríkisútgáfu námsbóka; en þar hafði því verið haldið fram, að kennarar héraðs- og gagnfræðaskóla hefðu ekki átt að eiga hlutdeild í stjórn ríkis- útgáfu námsbóka, heldur barna- kennarar einir. Ég benti á, að lögin gerðu ráð fyrir því, að útgáfan næði einnig til kennslu- bóka fyrir unglingaskólana, og þegar af þeirri ástæðu mælti öll sanngirni með því, að kenn- arar þeirra ætti fulltrúa í út- gáfustjórninni, eins og lögin gera líka ráð fyrir. Þá benti ég á, að fjölmargir kennarar unglingaskólanna hefðu kenn- aramenntun og hefðu stundað bamakennslu. Loks hélt ég því fram, að við, sem kennum við héraðs- og gagnfræðaskólana, liefðum mjög góða aðstöðu til að dæma barnaskólana og þekkja og skilja þarfir þeirra og kröfur, með því að börnin kæmu til okkar úr barnaskól- unum. En einmitt þessi að- staða okkar til að fylgjast með og þeklcja starfsemi barnaskól- anna, er sterk rök með því, að einn maður í stjóm útgáfu- nefndar sé tilnefndur af kenn- urum héraðs- og gagnfræða- skóla, og- útgáfan taki sem fyrst jafnt til námsbóka fyrir báða eða alla skólana. Nú hefir herra Sigurður Thorlacius, bamaskólastjóri í Reykjavík, tekið sér fyrir hendur að verja tillögu full- trúaþingsins og andmæla grein minni. En gagnrök S. Th. virð- ast ekki sanna það, sem þeim r iiminiminiT'iiiiniirHWirii wiirimn miiwiiwiiíh NÝJA DAGBLAÐIÐ Útgef&ndi: BlaSaútgáfon h.f. Ritnefnd: Guðbrandur M&gnúsaon, Gísli Guömundsson, Guðm. Kr. Guðmundason. Ritstjóri og ábyrgöarmaður: pórarinn pórarinsaon. R i tst j óma rsk ri tatof ur: Hafn. 16. Símar 4373 og 2353. Afgr. og auglýsingaskrifstofa Hafnaratr. 16. Sími 2323. Askriítargjald kr. 2,00 á mán. í lausasölu 10 aura eint. Prentsm. Acta. Slmi 3948. er ætlað að sanna. Það er alrangt hjá S. Th., að í grein minni komi fram sú skoðun, að uppeldi bama eigi að „miðast við það, sem þeim er ætlað að verða, þegar þau eru orðin stór“. Og það eru ýmsir fleiri en S. Th. og barna- kennarar, sem eru þess vel vit- andi, að „börnin eru lifandi og sjálfstæðir einstaklingar, sem lifa eftir eigin bamslega lög- máli, sem börn“ — og að bóka- vali, kennsluaðferðum og náms- efni beri að haga nokkuð eftir því. En úr því að S. Th. fer inn á þessi efni, vil ég nota tæki- færið til að benda barnakenn- urunum á nokkuð, sem þeir hafa vanrækt meira en góðu hófi gegnir, ef dæma má eftir árangrinum. Aukin vinnu- kennsla í bamaskólunum og nýjar kennsluaðferðir mega aldrei skyggja á þann mikla vísdóm, sem fellst í vísunni: „Að lesa og skrifa list er góð“. En það er mál manna, að þeim „listum“ ásamt reikningskunn- áttu bama, fari nú mjög hrak- andi, jafnvel svo, að til vand- ræða horfi fyrir allt síðara nám bamanna. Merkir erlendir upp- eldisfræðingar vilja láta leggja megináherzlu á þessar þrjár höfuðlistir allra mennta. Ég minni á hinn heimsfræga upp- eldisfræðing, Kerschensteiner. Hann vildi að vísu ala börn upp við uppeldisfræðileg vinnu- brögð, sem tækju fullt tillit til sérhæfileika einstaklingsins og vekti sjálfrýni hans og sjálfs- þekkingu. En bamaskólar ættu þó fyrst og fremst að skapa undirstöðuþekkingu, leggja al- mennan grundvöll fyrir síðara nám. Og þar er einkum átt við það, að í barnaskólum sé lögð mest rækt við kennslu í móður- máli, skrift og reikningi. Ég er að vísu ekki lærður barnakennari, þótt ég hafi of- urlítið fengizt við barna- kennslu. En mér þykir furðu- leg sú stafhæfing S. Th., að starf barnaskóla eigi ekki að miða að því að skapa úr böm- unum „efni í skósmiði, lækna, gagnfræðaskólakennara eða bændur“, eins og hann orðar það. Þeir uppeldisfræðingar, sem ég hefi eitthvað kynnt mér eru á gagnstæðri skoðun við S. Th. Bamaskólinn á einmitt að gera bamið svo úr garði, er það hverfur úr honum, að það sé Framh. á 4 síðu.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.