Nýja dagblaðið - 11.10.1936, Blaðsíða 1

Nýja dagblaðið - 11.10.1936, Blaðsíða 1
IAÐIÐ 4. ár. Reykjavík, sunnudaginn 11. október 1936. aBææassasBassæa 234. blað. Fátækraframfærið og íhaldið Raunverulegf fátækraframfæri Reykjavíkurbæjar nam yfir 2 míllj. kr. árid 1935 og hefir pó stóraukizft síðan Skuldár bæjarsjóds hækka um 900 pús. kr. Morgunblaðíð geiur upp alla vörn, lýsir vantrausfi á íhaldsstjórn bæjarins og ákallar ríkíssf jérnína um hjálp Reikningar Revkjavíkurbæj- ar fyrir árið 1935 eru nýlega komnir út. Væri æskilegt að sem flestir bæjarbúar kynntu sér þetta plagg, enda er það eina skilagreinin, sem íhaldið efnum kaupstaðarins og fyrir því fé, sem borgararnir leggja lionum til. Tekjur bæjarsjóðs hafa á ár- inu 1935 numið kr. 5.130.482,75. gefur fyrir stjórn sinni á mál- j Þar af eru: Útsvör og dráttarvextir........................ kr. 3.888.696,86 Tekið frá stofnunum bæj. (aðall. neyzlusk.) . — 371.000,00 Tillag frá ríkissjóði til atvinnubótavinnu (kr. 257.923,42) og önnur framlög frá ríkinu (krónur 18.118,12)............................ — 276.041,54 Fasteignagjöld.................................. — 607.967,25 Aðrar tekjur: leiga, tekjur af ýmsri starf- rækslu o. fl.................................. kr. 4.638.705,65 491.777,10 Kr. 5.130.482,75 Frumsýning þessa leiks var í nemur krónum ■ Iðnó s- 1. fimmtudagskvöld. Efni hans hefir áður verið rak- I ið hér í blaðinu. Margt áhorf- ! enda var á þessari frumsýn- ‘ ingu, en þó eigi fullskipaður | salurinn. Hlutverkum er svo skipt: Soffía Guðlaugsdóttir leikur | aðalpersónuna, frú Beáte, ekkju ■ Eiríks Rungs fyrv. dómsmála- Af gjöldum bæjarins, sem nema alls kr. 4.777.215,99 fer hér um bil helmingur í fá- tækraframfærslu, atvinnubóta- vinnu og til stjómar bæjarins. Fátækraframfærið ásamt sjúkrastyrkjum nemur krónum 1.421.149,75, atvinnubótavinn- an kr. 666.931,68 og kostnaður við stjórn bæjarins (fyrir utan sérstofnanir) 276.220,16. Þessir þrír liðir nema til samans kr. 2.364.301,16. 1 þetta sinn verður eigi farið nánar út í einstaka liði bæjar- reikninganna. Þó skal bent á að þrátt fyrir það að reikningur bæjarins sýnir nokkurn tekju- afgang, hafa skuldir bæjarsjóðs vaxið á árinu 1935 um ca. 900 þús. kr. Langalvarlegasta atriðið í sambandi við rekstúr bæjarins, ei hækkun fátækraframfæris- ins. Það hefir aukizt frá því árið á undan um 361 þús. kr. Fátækraframfærslan og at- vinnubótavinnan nema til sam- ans 2 millj. 88 þús. kr., en það svarar til 300 kr. á hverja 5 manna fjölskyldu í Reykjavík- urbæ. Hér er um svo háa fjárliæð að ræða, að almenningur í þessum bæ hefir rétt til að krefjast fullrar greinargerðar fyrir því, hvernig henni er ráð- stafað, jafnt gjaldþegnarnir, sem hafa aflað bæjarstjórninni þess fjár, sem hún hefir handa á milli og hinir, sem forðast í lengstu lög, að flýja á náðir bæjarins, þótt þeir kynnu að hafa þess sömu þörf og sumir hverjir, sem styrks njóta. Það verður að skoðast skýlaus krafa borgaranna, að bærinn gefi þegar í stað skýrslu um alla úthlutun fátækraframfæris og atvinnubótavinnu, almenn- ingi til sýnis, og ekkert verði undan dregið. Vegna styrkþeg- anna sjálfra virðist ekkert vera því til fyrirstöðu. Þeir þurfa ekkert að fela. Þó er önnur hlið á málinu, sem skiptir aðalmáli. Hvernig er úthlutuninni eða styrknum varið og hvað kemur í aðra hönd fyrir þessar 2 millj. kr., Framh. á 4. síðu. Lcikhúsið Reiknmgsskíl eStir Carl Gandrup Sjónl. í 5 sýníiagum — Leikstf. Haraldur Björnss. Beati og Wahl Soffía Guðlaugsdóttir og Bjarni Bjamason. ráðherra, sem áður hefir verið gift Þorsteini Wahl og Lauritz Hoff. Sigurður Magnússon leikur Anton prest, son frú Beate Þorsteins Wahl. Bjarni Bjarnason leikur óperusöngvarann og tónskáldið Þorstein Wahl. Brynjólfur Jóhannesson leikur Framh. á 2. síðu. Viðbótarleyfi til innflutn- ing'S í Englandi fyrir skipsfarm af kjöti Teknir verða upp nýír viðskipta- samningar við Breftland Prof. Thingsted (Gestur Pálsson). Ríkisstjómin hefir unnið að því undanfarið og einkum nú i sumar, að fá rýmkað um inn- flutningur á skipsfarmi af til Englands. Hefir ríkisstjórninni nú bor- izt tilkynning unt það frá brezkum stjórnarvöldum, að leyfður verði á þessu ári inn- flutningur af skipsfarmi af frosnu kjöti fram yfir það inn- flutningsmagn, sem gildandi samningar hafa heimilað. Jafnframt hefir það orðið að samkomulagi við brezku stjórn- ina, að sendimenn fari héðan nú þegar, til viðræðna um nýjan viðskiptasamning milli íslands og Bretlands. Af íslands hálfu verða sex j menn við samningana: Jón ; Árnason, framkv.stj., Sveinn Björnsson, sendiherra, Héðinn Valdimarsson, alþrn., Magnús Sigurðsson, bankastjóri, Stef- án Þorvarðsson, stjórnarráðs- fulltrúi og Richard Thors framkv.stj. (kosinn til farar- innar af togaraeigendum). 1 Fjórir hinir síðasttöldu leggja af stað héðan með Dettifossi í kvöld. Jón Árnason er staddur | í Englandi. Minningarathöfn í Paris yfir líkum skipverjanna af Pourquoi pas? Kaupm.höfn í gær. FÚ. Lík skipverjanna af Pour- quoís Pas? eru nú komin heim til Frakklands, og voru í dag flutt úr skipinu „Aude“ í land í St. Malo. Fór þar fram sorg- arathöfn, og blöð birtu minn- ingargreinar um hina látnu. Á mánudaginn kemur fer fram minningarathöfn í Notre Dame kirkjunni í París, að til- ldutun frönsku stjórnarinnar. Fulltrúar Danmerkur við þetta tækifæri verða þeir Daugaard- Jensen, formaður Grænlandsfé- lagsins, Lauge Koch, Niels Nielsen, Einar Mikkelsen skip- stjóri, og sendiherra Dana í París. Búízt við árás á Madrid í dag Taka fascistar Mussolinis beinan pátt í borg- arastyrjöldinni á Spáni? London í gær. FÚ. Árásin á Madrid var ekki hafin í dag, eins og þó hafði verið búist við. Aftur á móti skipaði Franco hershöfðingi svo fyrir, að hersveitii uppreisnar- manna umhverfis Madrid skyldu halda kyrru fyrir í dag, cg hefir hann ferðast á milli herstöðvanna til herskoðunar. Það er því búizt við, að árásin verði hafin fyrir alvöru á morgun. Uppreisnarmenn hafa nú lið á fimm stöðvum umhverfis Madrid. Það er ennþá barist í Oviedo, og segir stjóniin, að námu- mennirnir frá Astúriu taki nú hverja götuna á fætur annari, og hafi náð flestum opinberum byggingum og öðrum mikils- verðum stöðum í borginni. Það hefir gosið upp kvittur um það, að ítalska stjómin hafi sent svartstakka til Iviza í Balear-eyjum, en þessari fregn er andmælt í Róm. Þá hefir einnig verið sagt í Mad- rid, að svartstakkar hafi sézt í liði uppreisnarmanna í Bale- ar-eyjunum í sumar, þegar bar- dagarnir stóðu þar. Þegnskylduvinna Menníaskóiapilf- anna á Akureyri Nemendur Menntaskólans á Akureyri hafa nú í byrjun skólaársins gefið öðrum skólum Framh. á 4. síðu.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.