Nýja dagblaðið - 20.10.1936, Síða 4
4
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
Til brúðarg-jafa —
tækifærisgjafa
Postulín — Kristall —
Nýtísku Karamikvörur.
K« Eínarsson & Björnsson
Bankastræti 11.
Atvinnulausir unglingar
sem hafa látið skrá sig til þátttöku í starfsemi, sem
stofnað er til fyrir þá, eru beðnir að mæta til viðtals
í Kaupþingssalnum í kvöld (þriðjudag) ki. 8,30.
Vilhj. S. Vilhjálmsson
Björn Snæbjörnsson
Miðstjórn
F ramsóknarf lokksíns
heldur fund i Sambandshúsinu
kl. 5 á morgun, miðvikudag.
Jónas Jónsson. Eystelnn Jónsson.
Skorað á ungt
Sólk í Madrid
til herpjónustu
París í gær. FÚ.
Málgagn félaga ungra lýð-
veldissinna á Spáni hefir birt
áskorun til allra ungra manna
og kvenna í Madrid, sem unna
lýðveldinu, að ganga í þjónustu
þess tafarlaust, ef þeir hafi
ekki þegar gert það. Er skorað
á unga menn, að gefa sig fram
til herþjónustu, en á ungar
stúlkur, að leysa sem flesta
menn frá störfum sínum, til
þess að þeir geti tekið sér vopn
í hendur.
V íggirðmgu uum
um Madrid
að verða lokið
J arðskjálfti
hefir orðið 24
mönnum að bana
á Íialíu
London í gær. FÚ.
Mörg hundruð hús hafa hrun-
ið, eða skemmst svo að ekki
verður í þeim búið, í héruðum
þeim á Italíu, þar sem jarð-
skjálftans varð vart í fyrrinótt.
Skriður hafa fallið úr fjöllun-
um og gert mikinn skaða á
görðum. I Belluno, Vittorio og
San Vito hafa hús verið rifin
af ótta við að þau myndu
hrynja og ef tií vill valda
manntjóni. Alls hata 23 eða 24
menn farizt.
I dag fannst annar kippur á
þessum slóðum, en ekki eins
snarpur og sá fyrri.
HMKHIGfemla BióHBBHggjSg
Tvær
borgír
Stórkostleg og áhrifa-
mikil talmynd í 13
þáttum gerð eftir
skáldsögu
Charles Dickens
um fröasku stjórnar-
byltinguna.
Aðalhlutv. leikur
Ronald Colman
Böm fá ekki aðgang.
Annáll
Veðurspá fyrir Reykjavík og ná-
grenni: Allhvasst suðvestan. Rigíi-
ing.
Næturlæknir er í nótt Axel
Blöndal, Freyjug. 39. Sími 3251.
3251.
Næturvörðux er í nótt í Reykja-
víkur Apóteki og Lyfjabúðinni
Iðunn.
Útvarpað í dag: kl. 10,00 Veður-
fregnir, 12,00 Hádegisútvarp. 15,00
Veðurfregnir. 19,10 Veðurfregnir.
19,20 Hljómplötur: Norsk lög. 19,40
Auglýsingar. 19,45 Fréttir. 20,15
Erindi: Læknisrannsóknir á miðli
í dásvefni (Einar H. Kvaran rit-
höf.). 20,40 Hljómplötur: Píanólög
eftir Brahms. 21,05 Erindi: Tón-
listardagskráin í vetur (Páll ís-
ólfsson tónskáld),. 21,20 Symfónia í
F-dúr, eftir Brahms (plötur) (til
kl. 22).
550 börn eru nú i bamaskóla
Akureyrar. Hófst kennsla þar 10.
þ. m. og starfar skólinn í 21 deild.
Skákkeppni fór á sunnudags-
rióttina fram milli skákfélaganna
í Keflavík og Vestmannaeyjum.
Fór hún fram símleiðis og var
teflt. á 8 borðum. Leikar fóru
þannig að Vestmannaeyingar sigr-
uðu með 7% vinning gegn %
vinning.
Háskólaiyririestrar á þýzku. Dr.
W. Iwan flytur næsta fyrirlestur
sinn í háskólanum í kvöld kl. 8,05.
Efni: Erfolg und Sorgen im Ko-
hlenrevier. Öllum heimill aðgang-
ur.
Togarínn Gyllir fór á veiðar í
gær.
Esja fór í gærkvöldi í strandferð
austur um land.
Markaðurinn í Grimsby í gær
(mánudag): Bezti sólkoli 45 shill-
ings per box, rauðspretta 60 sh.
per box, stór ýsa 38 sh. per box,
miðlungs ýsa 15 sh. pr. box, stór
þorskur 42 sh. pr. 20 stk. (score),
stór þorskur 12 sh. per box og
smáþorskur 8 sh. pcr box. (Tilk.
frá Fiskimálanefnd. FB.).
Hlutavelta alþýðufélaganna. í
gærmorgun var dregið í happ-
drætti hlutaveltunnar, og komu
upp þessi númer: Nr. 2324: olíu-
tunna, 2449 armbandsúr, 3959
brauð handa 5 manna fjölskyldu
í mánuð, 1364 25 kr. í peningum,
2474 farseðill, 1736 útvarpstæki,
1620 25 krónur í peningum, 2616
brauð handa 5 manna fjölskyldu í
mánuð, 1411 200 lftrar olía. Vinn-
inganna sé vitjað í skrifstofu
Sjómannafélags Reykjávíkur kl. 4
—7 i dag eða næstu daga.
Sundlaugamar verða lokaðar til
laugardags, vegna viðgerða.
Glimufélagið Ármanu heldur
skemmtifund í Iðnó, uppi.í kvöld
Tjón af völdum
fárveðurs
Framh. af 1. síðu.
í Hjaltlandi eru 30 kvik-
myndá'tökumenn kyrsettir
vegna veðursins, en þar hefir
sjór verið svo mikill alla undan-
íarna viku, að vistaskip þeirra
hefir ekki komizt til þeirra, og
hefir nú verið horfið að því
ráði, að skammta þær vistir,
sem eftir eru.
í Skotlandi fylgdi hellirigning
hvassviðrinu, og hafa smálækir
orðið að ólgandi fljótum.
Hvassviðrið hefir valdið því,
að tvær brezkar farþegaflug-
vélar hafa sett ný met í ferð-
um sínum í dag, önnur milli
Corydon og Dublin, en hin milli
Liverpool og Mánareyjar. Frá
Cro.ydon til Dublin fór flugvél-
in á 90 mín., eða með 220
mílna meðalhraða.
22 menu farast
í Erievatní í Canada
Á Erievatni í Canada hvolfdi
dýpkunarskipi með 25—30
manns. Tuttugu og tveir menn
fórust, en sjö mönnum hefir
verið bjargað. Komust þeir á
kjöl á björgunarbát.
í Ástralíu hvolfdi skemmti-
snekkju á Hawkesbury-ánni og
drukknuðu 12 manns. Tveir
menn hafa fundizt lifandi, og
hafði þeim skolað á land.
og befst hann kl. 9. þar verður
margt til skemmtunar og fróð-
leiks, t. d. flytur Konráð Gislason,
ritstjóri íþróttablaðsins, fyrirlestur
frá Olympiuleikunum í Berlin i
suraar. Félagar eru beðnir að
mæta réttstundis.
Lyra var væntanleg frá útlönd-
um í morgun kl. 5—6 árdegis.
Me'ðal farþega með Gullfossi lil
útlanda i gær, voru: Bósa Her-
mamisdóttir, Ragnar Kvaran,
Bjarni Guðjónsson, Halldóra
Sveinbjarnardóttir, Guðriður Jóns-
dóttir, Óskar Jónsson, Jón Bjöi’ns-
son, Ásm. Sveinsson, .Tónas Krisl-
jánsson, Dr. Ben. S. þórarinsson,
Guðrún Sigurjónsdóttir, Hulda
Nordal, .Tóna Guðjónsdóttir, Hail-
dór Pálsson, Sveinbjörg Erasmus-
aóttir, Björn Bessason, Ólafur Elí-
asson, Sveinn porsteinsson, Geir
Agnar Zoega, Haraldur Gíslason,
Ólöf Briem, Elín Jónsdóttir, Jóna
Kristófersdóttir, Svava Sigfús-
dóttir.
í nýjum verzlunarsamningi, sem
Danmörk og Ítalía hafa gert með
sér, er álcveðið að skifti fari fram
á færeyskum saltfiski og suðræn-
um ávöxtum. — FÚ.
Frá Abessiníu. Fregn frá Djibuti
heiTnir, að rigningaíímabilinu sé
nú að verða lokið í Abessiníu, og
búist ítalir nú til sóknar, inn i
þau héruð, sem þeir hafa ennþá
ekki lagt undir sig. þá hafa þeir
sent verkfræðingadeildir til þess
að gera við járnbrautarlínuna
milli Addis Abeba og Djibuti, en
Abessiniumenn hafa skemmt
hana á nokkrum stöðum. Nokkrir
háttsettir Abessiníumenn, þ. á m.
Volde Emanuel, fyrrum landstjóri
í Jima, eru sagðir hafa gengið ít-
ölum á hönd, ásamt áhangendum
sínum. — FÚ.
Veitt hefir verið fé til áfram-
haldandi auglýsingastarfsemi fyr-
ir norsakn fisk í Ameríku næsta
ár, vegna aukinnar sölu í ár. FÚ.
Berlín í fyrradag-. FÚ.
Hermálaráðuneyti lýðveldis-
stjórnarinnar á Spáni tilkynnir,
að innan fárra daga muni verða
íull-lokið við víggirgingu borg-
arinnar. Er sagt í tilkynning-
unni, að virki þessi hafi verið
útbúin með vélbyssufylgsnum
og fallbyssustæðum, í samræmi
við fyllstu hernaðarkröfur nú-
tímans, og hafi stjórnin notið
aðstoðar erlendra hernaðarsér-
fræðinga við þetta verk.
Isvestia, blað Sóvétstjórnar-
innar rússnesku, birtir langa
grein um „hlutleysisskrípaleik-
inn“, sem balðið kallar starf
hlutleysisnefndarinnar í Lon-
don. Gagnrýnir blaðið sérstak-
lega afstöðu stjóma Frakk-
lands og Bretlands, og lætur
svo um mælt, að menn hljóti að
líta svo á, að hlu'tleysissamn-
ingurinn sé úr gildi fallinn, þar
sem ekkert hafi verið aðhafst
til þess að tryggja framkvæmd
hans.
Frá Spáni
Framh. af 1. síðu.
i'eisnarmanna, sem í upphafi
var 3000 menn, telst nú aðeins
300 menn.
Frá hernaðarlegu sjónarmiði
hefir Oviedo mikla þýðingu.
Þaðan er talið líklegt, að upp-
reisnarmenn hefji nú sókn i
áttina til Gijon og Santander,
og að þeir muni nota borgina
sem bækistöð sína í Astúriu-
héraði, er þeir nú geri sér von-
ir um að leggja algerlega undir
sig.
Stjómin heldur því enn fram,
að Oviedo sé henni ekki alger-
lega glötuð. Hún segir, að
hjálparhersveit, sem uppreisn-
armenn höfðu sent þangað, hafi
verið hrakin til baka, og að
enn sé barizt í borginni. Það er
ekki útilokað, að fregnina megi
skýra á þann hátt, að stjóm-
arliðar hafi gert gagnárás á
borgina.
Nýja Bíó
Orlag'aleíðin
Back street
Efnisrík og áhrifamikil
amerísk talmynd.
Aðalhlutverkin leika:
Irene Dunn og John Boles
Atvinnulausir
unglingar
Framh. af 1. síðu.
daga og föstudaga. Á sunnu-
dögum er leikfimi kl. 9—11.
Þá er gert ráð fyrir að unnið
\-erði um 3 klst. á dag við und-
irbúning hins nýja íþróttavall-
ar í Öskjuhlíð. Piltar á aldrin-
um 16—18 ára sitja fyrir vinn-
unni og fá greitt venjulegt
tímavinnukaup kr. 1,36.
Kl. 5—7 daglega verður
kennsla í bóklegum fræðum:
reikningi og íslenzku, og fer
liún fram í Stýrimannaskólan-
um.
Á kvöldin verður kennd
smíði í bamaskólunum. Fá
piltarnir alla kennsluna ókeypis
og eins efni allt og smíðisgripi
sína.
Nefndin, sem skipuð hefir
verið til að annast um starf-
semi þessa, hefir tjáð Nýja
dagblaðinu, að það sé ófrávíkj-
anlegt skilyrði, að þátttakendur
tak i þátt í öllum greinum
starfseminnar. Hafi verið
nokkur brögð að því 1 fyrra, aö
þátttakendur hafi vanrækt
störf sín og nám, sérstaklega
leikfimina. Verði slíkt alls ekki
látið viðgangast eftirleiðis.
Væntanlegir þátttakendur
starfseminnar eru allir beðnir
að mæfa í Kaupþingssalnum í
kvöld stundvíslega kl. 8V2, og
verður þar nánar greint frá til-
högun allri.
Gjöl til Oxlordháskóla
Oxford háskóla hafa verið
gefin 1250000 sterlingspund,
til stofnunar skóla í læknavís-
indum.
Gefandinn er Nuffield lávarð-
ur, betur þekktur sem William
Morris, stofnandi Morris bif-
reiðaverksmiðjanna. Er hann
nú einn af auðugustu mönnum
Englands, en var í ungdæmi
sínu svo fátækur, að hann gat
ekki kostað sig í læknaskóla,
en langaði til þess að verða
skurðlæknir. Hann fór þá að
gefa sig að vélavinnu, og setti
á fót viðgerðarverkstæði fyrir
reiðhjól, en smátt og smátt
réðst hann í stærri fyrirtæki,
þar til hann veit ekki aura
sinna tal. —
Nuffield lávarður gaf nýlega
Blindravinafélagi Englands 35
þús. sterlingspund, og á að
verja 5000 sterlingspundum af
þessari fjárhæð árlega í 7 ár
til þess að láta gera „talandi
bækur“ fyrir blinda meirn. FÚ.