Nýja dagblaðið - 25.11.1936, Page 4
REYKJAVlK, 25. NÓV. 1986. NYJA PAGBLAÐIÐ 4. ÁRGANGUR — 272. BLAÐ
Samníngar oltuS élaganna
vid l)£ít*6£dslstödvslt*nslw
HHGamla BlóBHKi
Dáleíðsla
spennandi og eftirtekt-
arverð talmynd um
dulrœn efni, dáleiðslu
og hugsanaflutning.
Aðalhlutverkin eru
prýðilega leikin af:
Sir Guy Sftandíng
Judiftft Allen og
John Halliday.
Aukamynd 1 2 þáttum
með Bing Crosby.
Böm fá ekki aðgang.
Úr öllum áttum
— Fyrra ár komu 11.290
Englendingar til Svíþjóðar og
nam samanlögð eyðsla þeirra í
landinu 5.117.310 kr. Sama
ár komu þangað 21.037 Þjóð-
verjar og eyddu þeir 16.075.850
kr. meðan þeir dvöldu í land-
inu. Meðaleyðsla útlendra
ferðamanna í Svíþjóð þetta ár
voru 30 kr. á dag.
— Eric Femiliough, enski
aksturskappinn, hefir nýlega
sett heimsmet. Ók hann á bif-
hjóli eina enska mflu með
hraða, sem svarar til þess að
hann hefði farið 263.6 km. á
kiukkustund.
— Franska stjórnin heíir
lagt fram fjárlagafrv. sitt fyr-
ir árið 1937. Samkvæmt því
verða útgjöldin ca. 48.000
millj. franka eða 3.500 millj.
franka meiri en í ár. Útgjöldin
til hemaðar er ráðgert að auka
um 1.205 millj. franka.
Gostir í bænum. Árni Hafstað
lióndi í Vík, Friðjón .Tónsson bóndi
;í Hofstöðum, Árni Tómasson
breppstjóri, Stokkseyri.
Anná.11
Veðurspá fyrir Reykjavík og ná-
grenni: Allhvasst sunnan. Rign-
ing.
Næturlæknir er í nótt Axel
Blöndal, B-götu 1, sími 3451.
Næturvörður er i Laugavegs- og
Ingólfs Apóteki.
Dagskrá útvarpsins: Kl. 8,00
Morgunleikfimi. 8,15 fslenzku-
kennsla. 8,40 þýzkukennsla. 10,00
Veðurfregnir. 12,00 Hádegisútvarp.
15,00 Veðurfregnir. 19,10 Veður-
fregnir. 19,20 Hljómplötur: Spán-
versk lög. 19,55 Auglýsingar. 20,00
Fréttir. 20,30 Erindi: Um selveið-
ar, II (Árni Friðrilcsson fiskifræð-
ingur). 20,55 Hljómplötur: Kvartett
i F-dúr, eftir Ravel. 21,25 Útvarps-
sagan. 21,45 Hljómplötm’: Endur-
tekin lög (tii kl. 22,30).
Togararnir. Brimir kom í fyrra-
kvöld. — Geir kom írá Englandi i
fyrrinótt, en Belgaum í gærmorg-
un. Skallagrimur fór á veiðar í
iyrrakvöld, en Gulltoppur i gær.
Laxfoss, sem verið hefir í að-
gerð undanfarið, hefir nýhafið
ícrðir til Borgarness og fór þang-
að í gær og kom aftur í gær-
kvöldi.
Hægviðri var um allt land í gær
og víðast bjartviðri. Hiti var 3—4
stig við vesturströndina, en víðast
annarsstaðar var dálítið frost.
Hjúskapur. Gefin voru saman í
hjónaband s. 1. laugardag ung-
frú Jlórunn Sigurðardóttir og Sig-
urjón póroddsson, verzlunarmað-
ur. Framkvæmdi sr. Ámi Sigurðs-
son vígsluná. — Heimili ungu
ltjónanna er á Vesturgötu 34.
Háskólaiyririestrar á sænsku.
Sven Jansson flytur í kvöld erindi
í fyrirlestraflokki sínum um
sænskar seinnitima bókmenntir.
Vegna liinnar miklu aðsóknar að
i'yrirlestrunum verður erindið flutt
í Alþýðuhúsinu (inng. frá Hverf-
isgötu). Erindið, sem hefst kl. 8
(stundvísl.) verður um nokkra rit-
höfunda í Stokkhólmi (Bo Berg-
man och Sigfrid Simertz) Erindið
heitir: Frigörelse fr&n flanörmen-
taliteten.
Kolaskip með kol til Ólaís
Gíslasonar, urnlxiðssala, er vænt-
anlegt í dag.
Skinfaxi, 2. h. þ. árs, er nýkom-
:nn úl. Merkásta greinin í heftinu
Undanfarna þrjá daga hafa
staðið yfir yfirheyrslur í sambandi
við málaferli olíufélaganna og
liafa þœr leitt í ljós ýmislegt í
sambandi við samninga þá, er
oiíufélögin hafa gert við bifreiða-
stöðvar um benzínkaup.
Shell — B. S. R
og Hekla
Hallgrímur Hallgrímsson heldur
því fram, að munnlegur samning-
ur hafi verið gerður um að B. S.
Ií. og afgreiðslubílar þar keyptu
benzín af Shell, en þó væri ekki
skylt að reka bíla úr afgreiðsiu,
þótf þeir skiptu við aðra.
En Magnús Guðjónsson formað-
ur B. S. R. telur, að samkomu-
lagið nái aðeins til bíla, sem eru
eign stöðvarinnar, en stöðin hafi
ongin slík skilyrði sett afgreiðslu-
bílum.
Egill Vilhjálmsson, útsölumaðui'
Shell hefir, án fyrirskipana írá fé-
iaginu, lialdið því fram við tvo
bilstjóra af B. S. R., að þeir væru
skyldir að kaupa benzín hjá Shell.
Minnti hann annan þeirra á það,
að B. S. R. gæti látið hann fara
af stöðinni, ef hann hefði ekki öll
sín benzinkaup hjá SheR.
Bifreiðastöðin Hekla hefir munn-
legt samkomulag við Shell, en
skriflegan leigusamning við Egil
Vilhjálmsson, um það, að stöðin
er frásögn ritstjórans, Aðalst. Sig-
mundssonar, af Sambandsþingi U.
M. F. í. s). vor; meðferð mála og
samþykktum. Auk þess á A. S.
margar smærri greinar i heftinu,
þ. á m.: Núpsskólinn þrítugur.
Af öðru efni má nefna: í landi
Selmu Lagerlöf, ferðaminingar
eftir Margréti Jónsdóttur. Prófið,
saga eftir Stefón Jónsson. Land-
nám og landnámsmenn, eftir
Richard Beck. Ungm.f. og skóla-
mól sveitanna, eftir Sigurð Thor-
lacius. Farfuglafundir eftir Skúla
þorsteinsson. pá eru og kvæði
eftir Margréti Jónsdóttur, Óskar
þórðarson, Richard Beck og Hall-
dór Kristjánsson.
kaupi benzín á bifreiðar sínar þar.
Á móti koma afnot af Shellpori-
inu í Lækjargötu.
B. P. — Liftla bílstöð
in og Aðalsftöðin
Olíuverzlun íslands hefir samn-
inga við Litlu bílastöðina og Aðal-
stöðina um leigu á húsnæði með
því skilyrði, að bifreiðar þær, sem
frá stöðvunum ganga kaupi B. P.
benzín. Halda stöðvarstjóramir
því fram, að þeir hafi sett öllum
bifreiðarstjórum, sem hafa þar af-
greiðslu, samskonar skilyrði. Séu
þeir því allir bundnir við að
kaupa benzín af B. P.
Forstjóri Olíuverzlunarinnar
gerði umkvörtun um benzínkaup
bílstjóra frá Litlu bílastöðinni hjá
Nafta með þeim árangri, að bíl-
stjórarnir fóru aftur að verzla við
B. P. Gerði forstjórinn samskonar
umkvörtun til bílstjóra Aðalstöðv-
arinnar, eftir beiðni stöðvarstjór-
ans. Krafðist hann þess, að þeir
verzluðu við B. P. og taldi sig
ckki hafa hag af því, að leigja út
stöðina annars. Beni hann m. a.
á það, að þinglýs kvöð væri á
búsinu, um að bifreiðastöðvar, sem
héldu þar til húsa, skyldu skipta
við B. P.
Fengu bílstjórar þá frest til að
ganga ó ný til viðskipta við B. P.
Hið ísl. stcinolíu-
hlutafélag' — Bif-
reiðastöð íslands
Hið íslenzka steinolíuhlutafélag
hefir munnlega samninga við Bif-
reiðastöð íslands um að allir bíl-
ar, sem þar eru afgreddir, verzli
við félagið. Heldur stöðvarstjórinn
því fram, að hann taki enga bíla
i afgreiðslu nema með þessu skil-
yrði.
Bæði stöðvarstjórinn og Jes
Zimsen, forstjóri, neita að hafa
notað þetta til þess að knýja bíi-
stjóra til að skipta við Steinolíu-
félagið, eða hótað brottrekstri • ef
þetta samningsákvæði væri rofið.
Fimm-
Efnisrík og fjörug
kvikmynd frá Fox
Aðalhlutverkin leika:
Jan Hersholft,
June Lang og
hinir heimsfrægu
kanadisku
fimmburar
Sem dæmi viðvíkj-
andi vinsæidum mynd-
arinnar má geta þess,
að í Ameríku var frum
sýning hennar haldin
á yfir 300 leikhúsum
samtfmis.
K a u p 1 ð
William Randolp
Hearsft
Framh. af 2. síðu.
hefir þó aldrei komizt í verk
til fulls, og er sagt að hann
eigi vöruhús í ýmsum hafnar-
borgum, full af gömlu rofi og
öðrum fornminjum. Ein af
höllum W. R. Hearst er í Holly-
wood. Þar býr hin fræga leik-
kona, Marion Davies, sem líka
er hjákona Hearsts.
William Randolph Hearst er
nú á sjötugs aldri. Bandaríkja-
menn kalla hann „eitt af
vandamálum þjóðarinnar“.
MELEESA 23
hann vinna ást stúlkunnar, ef það á annað borð
átti fyrir honum að liggja að fá hennar.
Nú er hann var kominn til sjálfs sín, varð hann
varasamari. Hann gekk með varúð heim að kofan-
um. Það var ekkert kvikt sjáanlegt í kring um
þennan veiðikofa. Hann læddist að dyrunum og
opnaði.
Frammi fyrir stónni, á stórum kassa sat Jack.
Hann s'tóð á fætur er Howland kom ixm, en 6-
lundarsvipur indíánans kom Howland til að spyrja:
— Hefir nokkur komið hér, Jack?
Gamli sleðamaðurinn hristi höfuðið og yppti
öxlum, og benti um leið á borðið, þar sem lá sam-
anbrotinn bréfmiði.
— Tliorne, mælti hann.
Howland braut miðann í sundur, og las:
Kæri Howland!
Ég gleymdi að segja þér að póstsleðinn fer
um hádegi á morgun, og af því að ég fer með hon-
um, þá vil ég að þú komir eins snemma og þú get-
ur í fyrramálið, svo að ég geti sett þig inn í þetta
alltsaman áður en ég fer. Thorne.
Howland gaf frá sér undrunarfullt blístur.
— Hvar sefur þú Jack?
— Kofa í skógarjaðrinum, svaraði indíáninn.
— Hvemig er það með morgunmatinn ? Thome
hefir ekki gefið mér neinar upplýsingar um mál-
tíðirnar ennþá.
— Thome segir að þú borðir með honum í
fyrramálið. Ég koma snemma og vekja þig. Eftir
hann farinn á morgun, þú borða hér.
— Þú þarft varla að vekja mig, mælti Howland
og snaraði sér úr treyjunni. Ég fer og hitti Thome,
máske áður en hann er kominn á fætur. Góða nótt.
Jack hafði opnað dyrnar til hálfs, og verkfræð-
ingurinn sá í andlit hans, er hann leit til baka um
leið og hann gekk út úr dyrunum. Það var bros á
andlitinu og hann gaf frá sér þetta ókennilega
hláturshljóð indíánanna.
Howland dró lokur fyrir hurðina og bjó sig til
svefns.
Maður verður að reyna að ná í einhvem svefn,
þó að útlit sé fyrir að einhver stórtíðindi séu í
vændum.
Þrátt fyrir venjulega árvekni Howlands, þá var
það Jack, sem vakti hann fáum klukkustundum
seinna. Það var allt þögult í tjaldbúðunum, er hann
fylgdi eftir indíánanum niður á milli kofanna,
þangað sem Thome átti heima. Hann var klæddur.
— Mér þykir leiðinlegt að þurfa að reka þig á
fætur, en ég verð að fara með póstinum í dag. Þér
að segja, þá er ég hræddur um að þessi læknir okk-
ar hérna sé ekki á marga fiska. Handleggurinn á
mér, og herðablaðið, er svo stirt og sárt. Það verð-
ur áreiðanlega það fyrsta sem ég geri að fara til
góðs læknis, þegar ég kemst héðan.
— Fór ekki Weston með ykkur hingað uppeftir?
Howland vissi að Weston var bezti slysalæknir, sem
var á vegum félagsins.
— Jú, mælti Thorne og leit skarplega á hinn.
Weston er hér og ég ætla ekki að fara að lasta
hann, en einhvemveginn hefir honum ekki tekizt
við þetta meiðsli mitt. Meðal annars, þá leit ég yf-
ir vinnulistann, og það er enginn maður hjá okkur,
sem heitir Croisset.
Eftir morgunverð litu þeir í gegn um uppdrætti
og áætlanir viðvíkjandi vinnunni. Howland hafði
fylgst vel með því frá Chicago, og um það leyti
sem þeir höfðu áttað sig á því, var hann þess full-
viss, að sér tækist að koma þessu áfram án hjálp-
ar Thome eða Gregson’s. En hann var líka jafn-
viss um annað, og það var, að þeir höfðu reynst
menn til að halda öllu í ágætis horfi hvað vinnuna
snerti. Hann hafði hálfvegis búizt við að finna ó-
reiðuna á því er að verkinu laut, eins og á verk-
fræðingunum sjálfum, en þó að mikið hefði á þá
reynt, þá var það ekki sjáanlegt í skjöium þeim er
Howland hafði á borðinu fyrir framan sig.
— Þetta er stórkostlegt misserisverk, mælti
Thorne, þegar þeir höfðu lokið yfirlitinu. Ég skal
segja þér, lagsmaður, að þegar við komum hingað
uppeftir fyrst, þá gat ekki einu sinni héri skriðið í
gegn um skóginn, þar sem við sitjum núna, og
sjáðu hvað við höfum gert. Byggt 50 kofa, fjórar
borðstofur, tvö stærstu geymsluhúsin sem til eru
norður af Winnipeg, spítala, þrjár smiðjur og
skipastöð.
— Hvað! skipastöð, spui'ði Howland, fullur undr-
unar.