Nýja dagblaðið - 27.01.1937, Page 1
VENUS skógljái er
þad bezta
á> skóna
hreinsar, mýkir, gljáir.
rwji/\
IDAvCilBllAMÐIHÐ
5. ár. Reykjavík, miðvikudaginn 27. janúar 1937. 21. blað
Ölafur Thors segir sðgu Kveldúlfs
Þau merkilegu tíðindi gerðust síðastli|Sinn sunnudag, að
formaður Sjálfstæðisflokksins, Ólafur Thors, kvaddi flokks-
menn sína santan á múgfund í Gamla bíó og Varðarhúsinu,
skýrði þeim frá hag Kveldúlfs og bað um
»öflugt viðnám Sjálistæð-
issteinunnar í tæka tíð«
gegn því að bankarnír gerðu Kveldúli upp.
Ræða Ólafs Thors, svo og aðrar
ræður á fundinum hafa nú verið
birtar í aðalblöðum Sjálfstæðis-
flokksins, og er a. m. k. ræða Ól.
T.b. þann vcg, áð full ástæða er
til að athuga hana nokkuð. Ræða
þessi er tvímælaláust eitthvert hið
undarlegasta plagg, sem komið
hefir frám í nokkru máli, sam-
bland af íullkomnum og hálfsögð-
um sannleika og tæpitungu, ó-
sannindum, frckjulegum fullyrð-
ingum um sakleysi, um leið og
sektin er játuð og stóryrðum, sem
eiga að skýla tómleikanum í
hugsun og skortinum á skilningi
á málinu. þar sem Ólafur segist
ætla að greiða svo úr þessum mál-
um, „að hver maður geti dæmt
íyrir sig og öðlazt fullkomna
vissu", verður hann hér krafinn
skýringar á því, sem enn þykir
ekki fullskýrt.
Þáttur Jensens
Ólafur byrjar á því að reyna að
hræra flokksbræður sína til með-
aumkunar á föður sínum, sem
píslarvotti, og skýrir í fjálgleg-
um orðum frá því, að nú eigi að
íara að naga aí honum hálfátt-
ræðum, æruna. Segir hann stjórn-
arhlöðin lýsa föður sínum, þannig
„beinum orðum og milli línanna:
Thor Jensen er gamali bragða-
refur, sem margt misjafnt hefir á
samvizkunni, enda þótt hann til -
þessa hafi komizt undan refsi-
vendi laganna". Hyggst Ólafur
svo að reka af Th. J. ámælið og
segir æfisögu hans eins og- hann
getur sagt hana fallegasta. Sú
saga tekst sæmilega, meðan Ólafur
segir frá Th. J. ungum „í at-
vinnuleit" hér á íslandi, fyrsta
stórgróða hans og gjaldþroti og
nýjum gróða eftir það gjaldþrot.
En þegar Ólafur fer að segja frá
skiptunum við Milljónafélagið, er
það a. m. k. vafasamt, hvort
stjómarblöðin hafa fundið nokkuð
þvílíkt er þau „gengu á lyktina og
settust að krásinni", sem lykt þá,
sem er af frásögn Ólafs.
það er upplýst af firmaskrán-
ingunni, að Jcnsen tclst ekki hlut-
hafi i Kveldúlfi þegar félagið er
stofnað, heldur aðeins- synir hans
og vitanlega telst Jensen þá held-
ur ekki í stjórn félagsins hcldur
eru það synir hans (þá um tví-
tugt). En um þetta upplýsir Ólaf-
ur: „1911 stofnaði hann (þ, e. Jen-
sen) Kveldúlí. Fékk hann til þess
90 þús. kr. lán í Landsbankanum
— — tryggt með 1. veðrétti í
-----Skallagrími, auk veðs í eign
Thor Jensen Snorra goða og því
er hann átti í húseigninni Frí-
kirkjuveg 11. Var Th. Jensen og
fjölskylda hans einkacigendur
Kveldúlfs, en vegna ákvæða í
stárfssamningi Th. Jensen við
Milljónafélagið, tók hann ekki
sæti í stjórn Kveldúlfs“. Sagan er
þessi: Jensen má ekki samkv.
starfssamningi sínum vera i stjóm
annars atvinnufyrirtækis en Mill-
jónafélagsins og þá náttúrlega enn
síður stofnandi, eigandi og raun-
verulegur aSal stjórnandi þess.
Hann er raunverulega þetta allt í
Kveldúlfi samkv. frásögn Ólafs,
sem hér verður ekki rengd, en að
nafninu til er hann það ekki,
beldur notar barnunga sonu sína
fyrir leppa?
Og það verður þá heldur ekki
vefengd frásögn Ólafs um það, að
Jensen hafi eftir þetta (1913)
farið úr stjórn Milljónafél. „vegna
ágreinings við meðeigendur um
ýmsar framkvæmdir félagsins".
Af því sem Ólafur segir um við-
skilnað Jensens við Milljónafé-
lagið, er það eftirtektarverðast, að
hann telur .Tensen hafa staðið „í
persónulegri ábyrgð fyrir öllum
skuldum Milljónafélagsins", en
„hinir erlendu lánardrottnar töldu
ekki ástæðu til að hagnýta sér
það, nema að litlu leyti“. þeir
„seldu honum togara Milljónafé-
lagsins við vægu verði og góðum
grciðsluskilmálum í því skyni, að
arður þess reksturs stæði undir
þeim tiltölulega sanngjörnu skuld-
bindingum, sem Thor Jensen tók
á sig vegna Milljónafélagsins".
Hér upplýsir Ólafur, að hinir er-
lendu skuldheimtumenn Milljóna-
lélagsins hafi samið við Jensen
sérstaklega >im að han tæki á sig
„tiltölulega sanngjarnar skuld-
bindingar", sem ekki hafi verið
„nema að litlu leyti“ það sem
honum bar, og til að gera þetta
skiljanlegt flokksmönnum sínum,
segir Ólafur, að þetta hafi verið
einskonar verðlaun „eigi aðeins
fyrir heiðarleik“, hcldur og „skyn-
samlegar tillögur".
Annars er þvi ekki að neita, að
þrátt fyrir skýringar Ólafs er
þetta fyrirbrigði ekki fullkomlega
skiljanlegt, nema þessi ályktuii sá
af frásögninni dregin: Jensen
safnaði miklu af eignum sínum á
nöfn, sem voru óháð skuldum
Milljónafélagsins, sem hann sjálf-
ur var framkvæmdastjóri fyrir.
Skuldheimtumenn Milljónafélags-
ins gátu ekki gcngið að þeim eign-
um og kusu því heldur að semja
við Jensen, en hirða þær
eignir, sem voru á hans eigin
nafni og hægt var að fá fangstað-
ar á. Líklcgra er því, að þetta
hafi fremur verið praktiskur
samningur eins og á stóð en verð-
laun til .Tcnsen fyrir heiðarleik.
Ef Ólafur vill gera hreint fyrir
dyrum i þessum málum í stað
þess að vaða upp fyrir höfuð í
vaðli og elg í þeirri trú, að hann
geti með því falið kjarna málsins,
cr honum skylt að upplýsa hverj-
London:
Runciman, verzlunarmálaráð-
herra Breta, er nú staddur í Was-
hington og verður þar fram á
íimmtudag. Um helgina var hann
gestur Roosevelts í Hvita húsinu.
Sérfræðingar munu ganga frá
einstökum atriðum verzlunar-
samningsins milli Breta og Banda-
ríkjanna, en tilgangurinn með för
Runcimans er að koma á við-
skiptasamningi milli þessara
þjóða um gagnkvæm viðskipti og
er álitið að það muni takast.
Runciman hefir einnig látið þess
getið, að hann væri að kynna sér
I gær var fyrir tilstilli lögregt-
unnar sýnd í Gamla Bíó kvik-
mynd, sem nefndist „Döden paa
Landevejen". Mynd þessi sýnir
baráttu þá, sem lögrcgluforingi
einn í Bandaríkjunum hefir tek-
ið upp gegn ógætilegum og hröð-
um akstri. Hafði hann látið setja
upp dauðamerki, hauskúpur og
leggi, á þá staði, þar sem slys
hafði borið að höndum. Lét hann
og setja á fót sérsakan skóla fyr-
ir ökuníðinga. Var meðal annars
farið með nemendur skólans á
sjúkrahús, þar sem þeir lágu á
sjúkrabeði, sem fyrir umferða-
ar voru raunverulega ki’öfurnar á
hendur Jensen vegna Milljónafé-
lagsins, hvað hann taldist eiga
upp í þær kröfur og hverjar voru
þessar „tiltölulcga sanngjörnu
skuldbindingar, sem samið var
um, að Jensen tæki á sig?
Annars hefir þessi saga um
Milljónafélagið ekki aðra þýðingu
en sem forsaga Kvcldúlfs. þctta
er upplýst: Við þrotabú Milljóna-
ielagsins slapp Jensen með „til—
tölulega sanngjarnar skuldbind-
ingar“. Á hann nú svo og synir
hans að sleppa aftur með „tiltölu-
lega sanngjarnar skuldbindingar"
við þrotabú Kveldúlfs, sem verð-
luun fyrir heiðarleika og skyn-
samlegar tillögur?
Framh. á 3. síðu.
það, hvar helzt Bretar gætu keypt
hergögn, ef ófrið bæri að höndum.
Sagði hann í viðtali við blaða-
menn, að Bandaríkin framleiddu
ýmsar hcrgagna-tegundir, sem
Bretland kynni að vilja kaupa, en
Bretland framleiddi aftur aðrar
tegundir hergagna, sem Banda-
rikjunum kynni að koma vel að
fá þaðan.
Runciman kvaðst þeirrar skoð-
unar, að fyrsta áhugamál þeirra,
sem vildu koma í veg fyrir stríð,
ætti að vera að koma lieimsverzl-
uninni á heilbrigðan grundvöll.
— FÚ.
slysum höfðu orðið, og á líkhús,
þar sem þeim voru sýnd lík
þeirra, er farizt höfðu af þesshátt-
ar slysum. Tvö systkini úr yfir-
stétt lcnda á þessum skóla. En
þcgar þau koma út úr honum,
valda þau ægilegu bílslysi og er
ölvun bróðurins orsök þess. En
það er borið á systurina, að hún
hafi setið við stýrið, og hún ber
ekki. á móti því. Bróðirinn hefir
hinsvegar ekki manndóm í sér til
að segja sannleikann. Systirin er
dæmd til fangelsisvistar. þó fell-
ur grunur á bróður hennar, en
liann flýr í bifreið, þegar hann
Almennur
kjósendafundur
á Kópaskeri lýsir
ylir trausti á rík-
isstíórninni og
pingrmanni Norð-
ur-Þíngeyínga
Síðastliðinn sunnudag hélt Fram-
sóknarfélag Norður-þingeyinga
(vestan Öxarfjarðarheiðar) fund á
Kópaskeri. Var fundurinn vel
söttur. Kosnir voru fjórir fulltrúar
a flokksþing Framsóknarmanna.
Á sunnudagskvöldið yar haldirin
almennúr kjósendafundur á Kópa-
skeri. Fóru þar fram umræður
um landsmál og héraðsmál.
Ymsai’ tillögur voru samþykkt-
ar. þ. á m. tillaga um að lýsa
trausti á ríkisstjórninni og þing-
manni kjördæmisins.
Framsóknarfélag Langnesinga
(sem nær yfir Langanes og þist-
ilfjörð) hefir einnig haldið fund
og kosið tvo fulltrúa á flokksþing -
ið. —
TROTSKI
MÓTMÆLIR
LONDON:
Trotski hefir sent skeyti til
enska blaðsins „Manchester Guar-
dian“, þar sem hann ber á móti
að nokkur fótur sé fyrir þeim stað-
liæfingum, sem hinir ákærðu fyr-
ir réttinum í Moskva séu nú látn-
ir gera. Segir hann að þessi mála-
ferli og réttarhöld séu með þeim
svívirðilegustu sem sögur fari
af. — FÚ.
Stjórnarskíptin
í Japan
LONDON:
Ugaki hershöfðingi hefir enn
ekki tekizt að mynda stjórn, en
lieldur áfram tilraunum sínum,
þrátt fyrir mótstöðu hcrsins. Hann
hefir beðið um nokkurra daga
frest, og fengið hann. Ugaki nýtur
stuðnings flestra þingflokkanna.
— FÚ.
Framhald aS greínínní
um Kveldúll verður í
blaðinu á morgun.
verður þess vísari. Hann ekur út
af veginum, stórmeiðist og er
fluttuj’ dauðvona á sjúkrahús. Áð-
ur en hann andazt gerir hann
játningu sína.
þessi mynd er holl og ekki á-
stæðulaus áminning um hvað af
því getur hlotizt að aka ógætilega
eða undir áhrifum víns.
U m ferðakvikmynd
sýnd í Gamla Bíó að tilhlutun
lögreglunnar
Samningar um gagnkvæm
viðskípti milli Breta og
Bandaríkjamanna