Nýja dagblaðið


Nýja dagblaðið - 23.03.1937, Qupperneq 2

Nýja dagblaðið - 23.03.1937, Qupperneq 2
2 N Ý J A DAGBLAÐIÐ Kaupið í páskamatinn hjá Sláturfélagi Suðurlands. Nýreykt hangikjöt, Svmakjöt, Nautakjöt, Dilkakjöt Rjúpur, Hænsni, Gæsir, Grænmeti flestar teg. o. m. fl. Pántanir ógkast sem allra fyrst, sér- ataklega á spikþrceddum r-j ú p u m. - Matardeildin, Hafnarstræti 5, simi 1211. Matarbúðin, Laugavcg 42, — 3812. Rjötbúðin, Týsgötu 1, — 4685. Kjötbúð Sólvalla — 4359. Kjötbúð Austurbæjar, Laugav. 82 - 1947. Það er ekkí fílvíljun að þvoftaduftíð Perla er orðíð vínsælasfa þvottaduftíð \ Muníð Perlu íyrír næsta þvott _v\\__ nimjpma austur um fimmtudag 25. p. m. kl. 9 síðdegís Tekið á mótLvörum aðeins til kl. 4 í dag. E.s. LYRA fer héðan flmmtudaginn 25. þ. m. kl. 7 síðd. til Bergen, um Vestmannaeyjar og Thorshavn. Flutningi veitt móttaka til há- degis á miðvikudag. Farseðlar sækist fyrir sama tíma. Garnír Kaupum saltaðar, vel verkaðar garnir og langa úr kindum, kálfum, nautum og BYÍnum. Garnastöðin, Reykfavík, Sími 4241. Pr o s i ö kjot af vænu rosknu fé seijum við í heildsölu. Kjötið er ágætt og mjög ódýrt samanbor- ið við aðrar matvörur. ísbúsið Herðubreið Sími 2678. P. Smíth & Co. Happdrætfi. 16. des. 1936 var dregið um happdrætti Kvenfélags Þing- vallahrepps. — Upp komu þessi númer: 299 handsnúin sauma- vél, 347 reykborð, 199 50 kr. í peningura. Tlít Dieð islenskum skipnm! ajþ] Engin verðhækkun hefir ennþá orðið hjá okkur. Við seljum allar okkar vörur með sama lága verðinu og áður, svo sem: Postulins-, leir og glervörur, Borðbúnað úr stáli. og pletti, Keramik, Kristalls- vörur, Barnaleikföng og ýmsar smávörur. K. Eínarssosi & Björsissoit Bankastræti 11. III. Gu&jón Samúelsson tók við tilmælum Alþingis 1924 og byrjaði að gera skipulagsupp- drætti að sundhöllinni í sam- ráði við, þá menn, sem áhuga höfðu á málinu. En ríkiss'tjórn- iiv hi'eyfði ekki sundhallarmál- iriu og elcki var minnst á það á Alþingi 1925 og 1926. Jón Magnús’son var þá stjórnarfor- maSur og réði mestu um stefnu flokksins. Átti hann á þessum ái-um í harðri baráttu við að hindra, að héraðsskóli risi á Laugarvatni, og tókst það með- an hann lifði. Áhuginn fyrir sundhöllinni í Reykjavík lifði í leyni eins og gróður á vorin, sem bíður eft- ir að skafla vorhretsins ieysí, þegar sunnanátt kemur. Einu lífsmerki sundhallarinn- ar frá þessum íhaldsárum eru þau, að 1926 birtist i Samvinn- unni stutt grein urri málið, og myndir af bráðabirgðarteikn- ingum Guðjóns Samúelssonar. Er þar gert ráð fyrir að sund- laugarnar séu1 þrjár. Ein 25 m. að lengd fyrir sundmenn, og tvær minni. Önnur með sjó- vatni, en hin með vatni úr Laugunum. Sjólaugin átti að vera baðstaður, einkum fyrir eidra fólk, en hin minni laugin til kennslu fyrir börn og ung- linga. Jafnframt þessarí lýs- ingu er tekið fram, að borgar- stjórinn, Knútur Zimsen, vilji láta sundlaugina vera skammt : írá Austurbæjarskólarium og ; ætli. henni þar stað. Má sjá af | þessu, að Zimsen borgarstjórí i hefir veVið fyrstur af valda- mönnum í íhaldsflokknum, að mæta Framsóknarmönum á miðri leið í framkvæmd sund- hallarmáisins. Jón Magnússón andaðist vor- ið 1926, í fylgd með konungi austur á Norðfirði, en Jón Þor- láksson varð stjórnarforseti í nimlega eitt ár. Á því þingi, \eturinn 1927, var sótt á í sundhallarmálinu í báðum deildum Alþingis. í neðri deild fluttu allir þingmenn Reykvík- inga tillögu við fjárlögin um að ríkið skyldi á næsta ári greiða 50 þús. kr. til sundhall- ar í Reykjavík gegn jafrimiklu framlagi úr bæjarsjóði. Jakob | Möllér hafði framsögu í málinu og flutti um það góða ræðu. Hafði hann á íhaldstímabilinu verið í náinni samvinnu við P'ramsóknarmenn og beitti sömu rökum í málinu eins og þeir. En Jón Þorláksson lét fella tillögu þessa. í efri deild flutti ég tillögur um sama efni. Áður höfðu sundlaugar \'erið styrktar með Vs úr ríkis- sjóði, og styrkur til þeirra nam 3000 kr. á ári. Nú lagði c'g til að upphæðin yrði ferföld- uð og að ríkið legði til helming móti byggðunum. Jafnframt þessu lagði ég til að ríkið legði 100 þús. kr. fram á tveim ár- um í sundhöll í Reykjavík, gegn jafnmiklu frá Reykjavík- urbæ. Jón Þoriáksson lagði til að þessar tillögur mínar væru felldar, því að þær væru fjár- hagslega mjög óaðgengilegar. Voru báðar tillögurnar felldar af íhaldsmönnurn. En tæplega mun þá hafa grunað, að sigur sundhallarmálsins væri í nánd. Fáum vikum eftir að Jón Þorláksson hafði mælt þessi orð, að sundhallarmálið væii mjög óaðgengilegt af fjárhags- ástæðum, voru almennar kosn- ingar í landinu. Ihaldsflokkur- inn beið mikinn ósigur, en Framsóknarmenn og Alþýðu- flokkurinn fengu til samans all- sterkan meirahluta, og mynd- uðu nýja stjórn seint um sum- arið 1927. Tóku þessir tveir ílokkar nú til óspiltra máianna um að undirbúa fjölmörg fram- faramál, sem íhaldið hafði stöðvað á undangengnum árum. Og eitt af þeim málum, sem nú átti að leysa, var sundhall- armálið. En þar var við ramm- an reip að draga. íhaldsflokk- urinn hafði beitt sér gegn mál- inu frá því að það var fyrst borið fram. Og þessi flokkur var einvaldur í bæjarstjórn Reykjavíkuv. En þaðan varð helmingur fjármagnsins að koma, ef úr framkvæmdum áíti að verða. Eftir að ég hafði tekið við yfirstjórn heilbrigðis- og kennslumálanna, var fyrir mig sérstök skylda að vinna fyrir þetta mál og það því fremur, sem þetta hafði verið mitt íyrsta þingmál.' Ég stóð nú í sambandi við mestu áhuga- rnenn íþróttamálanna í Reykja- vík um það liversu skyldi haga berferðinni að velcja bæinn. Það var samkomulag milli stjórnarflokkanna að veita ríf- lega fé til fyrirtækisins úr rík- | issjpði. En það var öllum ljóst, að eina ráðið til að knýja irieira hlúta bæjarstjórnar tii að veita fé frá bænum móti ríki&styrkn- um, var að skapa brennandi á- huga hjá íþróttamönnum í bænum fyrir þessari fram- kvæmd. Þá myndi bæjarstjórn- ar meirihlutinn beygja síg fyrir hinum fjölmenna hóp í- þróttamanna í bænum. Tveir af þekktustu rithöf- undum og ræðumönnum í bæn- um voru miklir stuðningsmenn suijdhallarinnar. Það voru þeir Sigurður Nordal og Guðm. Björnson landlæknir. Sigurður átti' aðalhugmyndiria að sjó- baðinú og landlæknir var bfenn- &ndi’ áhugamaður uiri öll í- þróttarriál. Var nú_ afráðið, að halda stóra vakningasamkonui í -Tðfló í febrúar 1928, til eflingar sundhallarmálinu. Þar töluðu margir íþróttamenn, m. a. Er- iingur Pálsson, og auk þess Sigurður Nordal, landiæknir og eg fýrir hönd fíkisstjórnaririri- ar, sem ætlaðj að bera fram frumvarp um rriálið. Fundurinn vai:. afarfjölsóttur og áh.rifa- rnikill. Var auðheyri að fundar- mönnum þótti einsætt, aö Reykjavíkurbær yrði að leggja rífléga fram fé í sundhöllina, ef Alþirigi riði á váðið með myndarlega fjárveitingu. Fund- ufinn hafði að þessu leyti til- ætluð áhrif. En af röksemdum, sem komu frám i ræðunum, þótti það bezt er Guðm. Björn- son sagði: „I-Ivernig haldið þið að hrein sál geti búið í óhrein- um líkama“. Framh. J. J. K a n p 1 ð

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.