Nýja dagblaðið - 21.05.1937, Side 1

Nýja dagblaðið - 21.05.1937, Side 1
Kosaingaskrifstofa F r amsóknar f lokks- ins er opin kl. 9-12 f. h. og 1-10 e. h. Sírnar 1029 og 1529 EWsEUMDIÐ 5. ár. Reykjavík, föstudaginn 21. maí 1937. 113. blað Frá bœjarstjérnar- fundi í gær Bæjarstjórnarlundur var haldinn .síðdegis í gær. par gerðist ekkert merkilegt frekar en venjulega. Síð- an fjárhagsáætlunin var afgreidd liefir engu markverðu máli verið F álmíð og drátturínn um framkvæmd hitaveitunnar er rétt myndj Gróðursetning af vínnubrögðum íhaldsíns erlendra trjátegunda I útvarpserindi, er Árni G. Ey- hreyft í bæjarstjórninni. Devfð og áhugaleysi fulltrúa aðalflokk- anna, sem þar eiga sæti, getul’ t'kki komið greinilegar fram en í "1-ví sinnvileysi fyrir málum Revk- javikurbæjar, sem einkennt hefir fundi hæjarstjórnarinnar í vetur. I gær urðu mestar tunræður um tillögú frá Jóni Axel um að unnið skyldi við borunina. úr Reykjum dag og nótt. íhaldinu fannst lík- legt að tillagan væri framkomin \egna kosninganna og vilsaði henni til bæjarráðs. þá bar Ólafur Friðriksson fram tillögu um að fela bæjarráði að athuga, hvort ekki væri rétt að nota eignarnámsheimiidina á Graíarvogi. Að gömlum vana lagði borgarstjóri til að tillögunni yrði vísað til bæjarráðs. Urðu út af þessu töluvert kýmilegar umræð- ur, því Ólafur sýndi fram á, að tillaga sín fæli einungis í sér að bæjarráð athugaði málið og það væri það sem borgarstjórinn vildi líka með því að vísa henni til bæjarráðs. En borgarstjóri sat fast- ur við sinn keip og íhaldið sam- þykkti tillögu borgarstjóra. þá fór fram seinni umræða um 1-reytingar þæ r á lokunartíma sölubúða, sem kaupmenn og verzl- unarmenn hafa orðið ásáttir um og er í því fólgin að búðum skuli lokað kl. 6, nema á föstudögum, þá skulu búðir opnar til kl. 8. Yf- ii sumarið skulu búðir lokaðar kl. 1 ú laugardögum. Breytingar þessar nú þó ekki til mjólkurbúða. Bæjarstjórn samþykkti þessa breytingu á lokunartímanum. Kosningahugur í Jóni Axel. — Guðrún Jónas- son og Guðm. Oddsson vilja e k k i ólöglega verzlun með brauðvör- ur og sœlgæti í sambandi við þetta mál bað Guðrún Jónasson að séð yrði um að ekki yrði verzlað ólöglega með sælgæti eftir lokunartíma, og Guð- mundur Oddsson bað bæjarráðið að hlutast til um það, að brauð- vörur yrðu ekki seldar frá veit- ingastöðum eftir lokunartíma eins og nú væri gert. þar með var áhugamálum bæj- arfulltrúanna á fundinum í gær lokið. Það lætur reynslulausan unglíng nýkomínn frá skólaborðínu hafa méð höndum rannsókn og undirbúníng þess míkílsverða fyrírtækis Það sem parl að gera, er að Sá valínn ítalskan sér- Sræðíngf um jarðhitavírkjun, til pess að rannsaka, með hverju móti pessu máli verður á hagkvæmastan hátt hrint í Sramkvæmc það voru ekki verkfræðingar, sem fyrstir beittust fyrir notkun jarðhitans hér á landi. Bóndi upp í Borgarfirði og ann- ar bóndi í Mosfellssveit riðu þar jafnsnemma á vaðið, þeir Erlendur •Guðnason á Sturlu-Reykjum og Stefán B. Jónsson á Reykjum, báð- ir mjög kunnir að hugkvæmni. þegar Sigurjón á Álafossi leitaði ráða verkfræðinga um sína hita- veitu, voru þeir margir á einu máli um það, að hún yrði til- gangslaus, og einn hinn færasti þeirra, Jón heitinn þorláksson, taldi að vatnið mundi kólna niður í 12 stig. Fyrsti stjórnmálamaðurinn, sem skildi nytsemi jarðhitans, var Jón- as Jónsson. Fyrsta frumvarp hans á Alþingi, frumvarpið um sund- liöllina, byggðist á þessum skiln- ingi. Síðan hefir hann látið virkja jarðhitann á margvíslegan hátt í unglingaskólunum og víðar. J. J. keypti Reykjatorfuna í Ölfusi með samtals hundrað jarðhitaupp- sprettum, handa ríkinu, fyrir brot af því verði, sem nú mundi boðið fyrir þessar jarðir, og allt gerði hann þetta við harða andstöðu og hæðiyrði íhaldsins. En Jón þorláksson vaknaði til skilnings á jarðhitanum, barði ekki höfðinu til lengdar við stein- inn, svo sem flokksmönnum hans er svo gjarnt, og tók að undirbúa athugun á stórfelldri hitaveitu til Reykjavíkur. Hitt virðist komið á daginn, að hitaveitumálið hafi ekki verið upp tekið með nægilegri fyrirhyggju. Er liér um margfalt milljónafyrir- tæki að ræða, og því skylt að fá til ráða hina hæfustu sérfræðinga, sem völ er á. Nú er það alkunnugt, að ítalir slanda fremstir allra þjóða um jarðhitavirkjun. þurfti því að sjálfsögðu að kveðja þá til. Við höfum sjálfir fullkomlega bóklærða rafmagnsfræðinga, og suma hina myndarlegustu menn. Allt um það var þó talið sjálfsagt að leita reyndra rafmagnsfræðinga í Noregi og þýzkalandi, þegar virkja skyldi Sogið. Vita allir að þetta var rétt ráðið. Hversvegna ekki að fara eins að um enn stærra, enn mikilsverðara og- enn vandasamara framkvæmda- mál — hitaveituna? Mundi það ekki hafa verið byggilegra að ráðfæra sig við þá verkfróða menn, sem unnið hafa að jarðborunum suður á Ítalíu, áður en lagt var í hinar kostnað- arsömu boranir að Reykjum? — Mundu þeir ekki hafa getað farið nærri um það, hve mikið mundi hægt að auka vatnsmegnið, miðað við vatnsmagn það, sem sjálfkrafa brýzt upp á yfirborðið, eða við það, sem nokkrar fyrstu holurnar hættu við af heitu vatni? Hefði ekki verið ráðlegra að fá þessa erlendu menn til þess að rannsaka hér allar aðstæður? Leikmenn vita að jarðhitavatn er haldið efnum, sem ýmist éta í sundur allar algengar vatnsleiðslu- pípur eða þrengja þær og fylla hrennisteinskendimi efnum. Leikmenn vita ennfremur að ör- uggasta úrræðið um hitaveitur, er að leiða vatn úr stöðuvötnum eða ám í heita hveri til upphitunar og þaðan á notkunarstaðinn. Slík aðstaða mun vera fyrir hendi hér, og það ekki aðeins fyr- ir Reykjavík heldur og einnig fyrir Hafnarfjörð. En það er, að leiða vatn úr Kleifarvatni upp í hinn mikla Krísuvíkurhver og þaðan um Haínarljörð til Reykjavikur. þrátt fyrir hinar áralöngu bor- anir á Reykjum, mun enn ekki fenginn af nægilega heitu vatni NEMA HELMINGURINN af þvi sem talið erað nægi Reykjavík, eins og hún er nú. A Reykjavík ekki að halda á- fram að stækka? Eiga byggingar þær, sem reistar verða í Reykjavík í framtíðinni, ekki að eiga kost jarðhitans til upphitunar? Alþýðuflokksmaður hefir bent á gufuhverinn í Innstadal í Henglin- um. En er auðvelt að nota gufu til iiitaveitu um langan veg? Og er það ekki þeim mun erfið- ara, þegar leiða þarf gufuna ofan í móti? í nánd við Innstadal er engin á og ekkert vatn, sem hitað yrði upp við orku gufuhversins og síðan leitt hingað til bæjarins. Síðan hinn nýi öflugi jarðbor kom til sögunnar á Reykjum, kvað vatnsmegnið hafa aukizt mjög lít- ið, enda gengur illa vinna með honum, hvort sem það liggur í tækinu sjálfu eða hinu, að menn kunni ekki með það að fara. Vísir segir nýlega í fyrirsögn: „Nægilegt vatn til að hægt sé að byrja framkvæmdir, íæst bráð- lega“. . „Mamma kemur bráðum", er stundum sagt við börn. En mundi það styrkja trú Reyk- víkinga á aðalfyrirsögn Vísis í þetta sama skipti, að „fram- kvæmd hitaveltunnar velti á því að Sjálfstæðismenn fari með völdin", að siðan þeir fengu hinn nýja, dýra jarðbor, þá má heita að þeir séu hættir að hafa niður úr jarðskorpunni, og þá sjaldan sem þeim tekst það, þá er árang- ur sára lítill. „Nægilegt vatn til að byrja fram- kvæmdir", segir Vísir. þó eru. þeir ekki búnir að fá heitt vatn nema handa hálfum hænum eins og hann er í dag! Hitaveitan er ekkert leikfang í- baldsins. Hún á ekki að verða neitt kák. Jarðhitinn er eitt af okkar dá- ramlegustu náttúrugæðum. Við skulum njóta aðstoðar reyndustu sérfræðinga um það, hvernig við eigum að standa að því að notfæra okkur þessi nátt- úruauðæfi. Við höfum ekki ráð á að draga það lengur. Suðurlandsbrautin nýja um Krísuvík léttir undir ef við eigum ekki annars úrkosta en að snúa okkur að Kleifarvatni og Krísu- víkurhver, til þess að geta hitað allan bæinn og öll þau híbýli, sem hér verða reist um langa framtíð. Reykir verða vísast ekki annað en varasjóður, sem til verður tek- ið þegar Kleifarvatnsleiðsluna þrýt- ur. Guðbrandur Magnússon. lands flutti í vetur, setti hann fram þá hugmynd, a ð reynt yrði í stórum stíl að gróðursetja hér erlendar trjáplöntur, sérstaklega harrtegundir, inni í gömlum skóg- arrjóðrum, sem friðaðir eru. Taldi hann líklegt, að mjög góður á- rangur næðist af slíkri gróður- setningu og benti á það máli sínu til sönnunar, að grenitré, sem fyrir löngu síðan hefðu v.erið gróð- ursett í Hallormsstaðaskógi, hefðu náð góðum vexti, t. d. væri þar eitt G metra hátt tré. Á þingvöll- uin og í þrastalundi hefir þessi aðferð einnig gefizt vel. Nú hefir Skógræktarfélag ís- lands, fyrir atbeina Áma, hafizt banda í þessu efni. Verða í vor gróðursettar 20 þús. erlendar trjá- plöntur, og leggur skógrækt ríkis- ins til helminginn, en 10 þús. er gjöf frá norskum skógræktarfé- lögum og fylgdu þeim verkfæri til gróðursetningarinnar. Svo er til ætlazt að mikið af þessum plöntum verði sett niður með hjálp og aðstoð bama úr efstu bekkjum barnaskólanna hér í hænum og á ísafirði og Akuiv eyri. Fyrir þau getur gróðursetn- ingin verið bæði starf og leikur, og vakið þau til umhugsunar um það, sem annars færi fyrir ofan garð og neðan hjá þeim og skap- að þeim hugðarefni og áhugamál. A gróðursetningunni var byrj- að suður í Fossvogi í fyrradag og haldið áfram við Rauðavatn í gær og í dag. Eftir helgina er fyrirhugað að gróðursetja á þing- völlum og á Laugarvatni. f dag starfar Ungmennafélag Skeiða- manna að gróðursetningu í þrasta- lundi, en félagar úr U. M. F. Vel- vakandi munu halda því verki á- fram á sunnudag. Til Akureyrar og ísafjarðar er verið að senda talsvert af plöntum einmitt þessa tíagana. — þeir, sem að þessu standa, vonast til þess að þetta verði aðeins byrjun á áframhald- andi starfi, og að unnt verði að Framh. á 4. síðu. Þnr nýir frambjóðendur Auk þeirra frambjóðenda, sem skýrt var frá í blaðinu í gær, er Árni Jakobsson frambjóðandi Bændaflokksins í Suður-þingeyjar- sýslu, en utan flokka bjóða sig fram Gunnlaugur Br. Jónsson í Vestmannaeyjum og Jón Sívertsen í Dalasýslu. Eru frambjóðendur þá alls 149.

x

Nýja dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.