Nýja dagblaðið - 24.06.1937, Blaðsíða 3
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
8
Iðnaðarframleiðslan
á siðastliðnu ári
Úr skýrslu Landsbankans
Skýrsla Landsbankans fyrir
árið 1936 er nýlega komin út.
Er þar m. a. yfirlit um afkomu
atvinnuveganna á árinu. F’er
hér á eftir yfirlitið um iðnað-
inn:
„Húsabyggingar voru álíka
miklar og árið áður. í Reykja-
vík voru byggð 107 (90)* í-
búðarhús, 10 vinnustofu- og
verksmiðjuhús, 44 gripa- og
geymsluhús o. þvl. og 5 opin- '
berar byggingar og samkomu-
hús, eða alls 166 (144) hús
fyrir samtals 43/4 (43/4) millj.
kr. í húsum þessum voru 279
(220) íbúðir. Á Akureyri voru
byggð 17 hús fyrir samtals [
um 300,000 kr. (400,000 kr.).
Á ísafirði var byggt fyrir 76
þús. kr. (176,000 kr.), en auk
þess var byrjað á byggingu
rafmagnsstöðvar, sem mun 1
kosta 700—800 þús. kr.
Á árinu hafa smjörlíkisverk- 1
smiðjurnar 7 (7) framleitt
1395 (1373) tonn af smjörlíki. ‘
Ullarverksmiðjumar 3 (3) unnu
úr 177 (168) tonnum af ull.
Stærstu mjólkurbúin 5 (4)
unnu úr 9154 (5990) tonnum
af mjólk. Niðursuðuverksmiðj-
urnar 4 (2) suðu niður 41 (37)
tonn af kjöti, 25 (11) tonn af
*) Svigatölurnar eru frá árinu
áður (1935).
fiski, 41 (53) tunnur af síld,
258 (379) tonn af mjólk og
100,000 dósir af rækjum. í
garnastöð Sambands íslenzkra
samvinnufélaga voru hreinsað-
ar 290 (295) þúsund garnir.
Gæruverksmiðjan áfullaði 115
(103) þúsund gærur. Fjórar
(3) sútanir sútuðu 15000
(8000) gærur og um 2200
(1200) önnur skinn.
Ölgerðin Egill Skallagríms-
son framleiddi 2696 (3286) hl.
af öli, gosdrykkjaverksmiðj-
urnar 4 (3) 2595 (2472) hl. af
gosdrykkjum og í 8 (8) verk-
smiðjum voru framleiddir 318
(359) hl. af saft. Sjóklæðagerð
Islands framleidi 33400 (33700)
stk. sjóklæði og regnkápur og
Vinnufa’tagerðin 64000 (58300)
flíkur. Kaffibætisgerðimar 4
(4) framleiddu 240 (239) tonn
af kaffibæti. I 6 (5) verk-
smiðjum voru framleidd 504
(405) tonn af sápu og í 2
verksmiðjum 23 (24) tonn af
kertum. í 8 (5) verksmiðjum
voru framleidd 46 (36) tonn af
skóáburði, fægiáburði og fægi-
legi, í 4 (3) verksmiðjum 75
(26) tonn af þvottadufti og í
6 (4) verksmiðjum 40 (21)
tonn af bökunarefni. I 4 (3)
verksmiðjum voru framleidd
96 (85) tonn af súkkulaði, í
5 (4) verksmiðjum 28 (28)
NÝJA DAGBLAÐH)
Útgeíandi: Blaðaútgáfan h.f.
Ritstjóri:
þórarinn þórarinsson.
Ritstj órnarskrif stof urnar:
Hafnarstr. 16. Sími 2353.
Afgr. og auglýsingaskrifstofa
Haínarstr. 16. Sími 2323.
Áskriftargjald kr. 2,00 á mán.
í lausasölu 10 aura eánt.
Prentsm. Edda h.f.
Sími 3948.
Dómur
Strandamanna
Fyrir seinustu kosningar
leyndu íhaldsmenn aðnámann-
crði af Hermanni Jónassyni og
aftra honum frá framboði með
því að láta ljúgvitni bera það
fyrir rétti, að hann hefði haft
sér það til gamans og dægra-
styttingar að brjóta þau lög,
sem hann var settur til að
gæta. Almenningur lét þó
ekki blekkjast af þessum rétt-
arframburði ljúgvitnanna,
kollumálið varð þvert á móti til
að efla veg og vinsældir Her-
manns og íhaldið hlaut ævar-
andi skömm af málinu.
íslenzka íhaldið hefir jafnan
verið lengi að draga réttar af-
leiðingar af óförum sínum. Það
hefir haldið áfram að berja
höfðinu við steininn og beita
sömu herbrögðunum, enda þótt
þau væru búin fyxir löngu að
hljóta fullkomna vanþökk meg-
inhluta þjóðarinnar. í þessu
máli hvarflaði íhaldið heldur
ekki frá þeirri venju. Það
hugðist í þessum kosningum
að leggja Hermann Jónasson
á sama bragðinu og því hafði
svo gersamlega misheppnazt
áður.
Nú var að vísu ekki teflt
fram hinum lægstu smámenn-
um íhaldsins, heldur var sjálf-
ur foringinn sendur fram á víg-
völlinn og látinn bera fram
bláköld ósannindi, sem áttu að
fella forsætisráðherrann. Ó-
sannindi flokksformannsins
voru auglýst í blöðum, útvarpi,
fregnmiðum og í gegnum sím-
ann var náð sambandi við alla
nndirróðursmenn íhaldsins ú'ti
á landi og þeim fyrirskipað að
breiða út ósannindin. Þegar
Morgunblaðið birti frásögn af
Nesoddafundinum, var Ólafur
látinn segja þar helmingi
meira um þetta mál en hann
raunverulega sagði. Tveim
dögum fyrir kosningar skoraði
Ólafur síðan forsætisráðherr-
ann á hólm norður á Hólma-
vík. Sá fundur átti að setja
smiðshöggið á verkið og
tryggja Pálma Einarssyni
þingsæ'tið í Strandasýslu!
Á sjálfan kjördaginn var
aukaútgáfa af Morgunblaðinu
að seinustu látin dreifa því út
um bæinn, að forsætisráðherr-
snn hefði orðið svo hræddur
við Hólmavíkurfundinn, að
hann hefði brjálast upp í Út-
varpssal, fleygt Ólafi Thors
eins og taðköggli í gólfið og
æpt: Ég get verið 10 sinnum
verri en nokkur annar!
Með Hólmavíkurfundinum
vísaði Ólafur Thors málinu
undir dóm Strandamanna. Fyr-
ir hann átti það að vera mjög
hagstætt, því í seinustu kosn-
ingum höfðu ihaldsflokkarnir
þar 140 atkv. meirahluta. For-
sæ'tisráðherrann átti því ekki
góðs að vænta, ef hann hefði
staðið höllum fæti í málinu.
Morgunblaðsmenn hér í Rvík
voru líka eftir frásögn mál-
gagns þeirra af Hólmavíkur-
fundinum alveg vissir um úr-
slitin. Hermann var fallinn.
Ljúgvitnamálið síðara hafði
sigrað. Til sönnunar fyrir
þessu þóttust þeir líka hafa
það, að forsætisráðherrann
liefði látið þau orð falla í sím-
tali úr kjördæminu, að hann
stæði mjög tæpt!*)
Nú er dómur Strandamanna
í málinu kunnur. Ólafur hefir
fengið þann dóm, sem hann bað
um, en nokkuð á aðra leið, en
hann óskaði eftir. Málstaður
hans hefir verið dæmdur hinn
deyjandi og vonlausi málstaður
Ijúgvitnisins og fylgi hans í
*) Eftir að úrslitin voru kunn
scgja Morgunblaðsmenn að for-
sætisráðherrann hafi sagt þessi
orð til að láta þau leka einhv.ers-
staðar í gegnum símann, geta
borizt þaðan til heildsalana og
vina þeirra í Reykjavík og skapað
í bili lijá þeim tálvonir, sem gerðu
vonbrigðin enn meiri eftir á!
sýslunni minnkað um helming.
Málstaður forsætisráðh. hefir
unnið einn glæsilegasta siguri)nn
í kosningunum. Hann hefir nú
orðið tvöfalt fylgi á við íhaldið,
en var í 140 atkv. minnihluta
áður. Hann hefir gert betur en
að bæta við sig öliu fylgi
Tryggva Þórhallssonar í sein-
ustu kosningum.
Þannig svöruðu Stranda-
menn ljúgvitnaframburði Ólafs
Thors og áskorun hans um að
fella Hermann Jónasson frá
þingsetu. Þeir svöruðu með því
að fylkja sér enn fastar um
þann mann, sem beita átti þess-
um lúalegu vopnum, og for-
dæma á þann hátt hin svívirði-
legu baráttumeðul flokksfor-
ingja íhaldsins.
Þessi er heldur ekki aðeins
dómur Strandamanna, heldur
allra hugsandi kjósenda lands-
ins yfirlei'tt.
Það hlýtur að vera með nokk-
uð blandinni ánægju, sem í-
haldsmenn taka ofan fyrir
flokksformanni sínum þessa
dagana og tæplega með vax-
p.ndi trausti á baráttumeðulum
hans og forystu. Það má líka
fullyrða, að í engum flokki, sem
nokkra virðingu hefir fyrir
heiðarleika og siðgæði, myndi
þeim manni haldast uppi að
vera áfram í foringjasæti, sem
reyndur væri að þvílíkri fram-
komu.
tonn af brjóstsykri, í 6 (5)
verksmiðjum 13,2 (9) tonn af
karamellum, í 4 (3) verk-
smiðjum 12,8 (9,5 tonn af
konfekti og í 4 (3) verksmiðj-
um 65 (44) tonn af ávaxta-
sul'tu. Þrjár kexverksmiðjur
framleiddu 300 (236) tonn af
kexi. I einni (1) verksmiðju
voru framleiddir 23 (14,5) hl.
af hárvatni og í 3 (3) verk-
smiðjum 4,6 (3,9) tonn af feg-
urðarmeðulum.
í Kassagerð Reykjavíkur
voru smíðaðir 90700 (39500)
kassar. Stáltunnugerðin smíð-
aði 25500 (15200) tunnur og
Tunnuverksmiðja Akureyrar
26000 (19600) tunnur. Belgja-
gerðin framleiddi 5200 (5000)
belgi. Hampiðjan framleiddi
120 tonn af garni. ísaga fram-
leiddi 94 (83) tonn af Acety-
lengasi og 12900 (10800) m3
af súrefni. Tvær (2) skóverk-
smiðjur smíðuðu 56400 (44400)
pör af skóm. Tvær (2) veiðar-
færaverksmiðjur framleiddu
2100 (5400) tylftir af fiski-
línum og 6Ú2 (6) millj. öngul-
tauma.
í 7 (9) verksmiðjum voru
framleidd 3170 (4852) tonn af
fiskimjöli. Verðið á fiskimjöli
var mun lægra en árið áður.
Var verðið á sólþurrkuðu fiski-
.mjöli fyrst á árinu 190 kr.
tonnið, en féll síðan og komst
um mitt árið niður í 170 kr.
tonnið. Síðan hækkaði það aft-
ur og var í árslok um 180 kr.
tonnið. Mun meðalverð á seldu
mjöli hafa verið um 180 kr.
tonnið. Tíu (10) síldarverk-
smiðjur störfuðu að síldar-
bræðslu á árinu. Nam fram-
leiðsla þeirra um 15200 (6500)
tonnum af síldarlýsi á um 5,6
millj. kr. og 1480 (6700) tonn
um af síldarmjöli á um 2,8
millj. kr. Síldarlýsið var allmik-
ið hærra en árið áður. Var það
í ársbyrjun rúmlega 380 kr.
tonnið og var allmikið af
framleiðslunni selt fyrirfram
fyrir það verð. Síðan lækkaði
þó verðið nokkuð og var um
sumarið 360—370 kr. tonnið.
Síðast á árinu hækkaði verðið
aftur allverulega, en þá var öll
framleiðslan seld. Síldarmjölið
var heldur lægra en árið áður,
en fór þó hækkandi. Mun það
að meðaltali hafa selzt á um
190 kr. tonnið. Sjö verksmiðj-
ur framleiddu um 1580 (347)
tonn af karfalýsi og um 5900
(1063) tonn af karfamjöli. Var
karfalýsið yfirleitt um 5 kr.
hærra en síldarlýsið, en verð
karfamjölsins álíka hátt og
síldarmjölsins. Á árinu var og
íramlei'tt nokkuð karfalifrar-
lýsi. Er verð þess mörgum
sinnum hærra en karfabúklýs-
isins. Á hvalstöðina í Tálkna-
firði veiddust 85 hvalir. Fram-
leiddi hún úr þeim 574 (122)
tonn af hvallýsi og auk þess
404 tonn af kjöti og rengi.
X a n p 1 d
i | Inguim Blöndal |
I Meðan á kosningabaráttunni
i stóð lézt hér í bænum öldruð
heiðurskuna vinsæl af mörgum
Reykvíkingum. Það var frú
Ingunn Blöndal.
i Hún var fædd að Steinnesi í
, Ilúnavatnssýslu 10. maí 1852,
dóttir þeirra Jóns prófasts
Jónssonar og Elínar Einars-
dóttur frá Skógum undir Eyja-
fjöllum. Var hún í föðurætt
komin af hinni kunnu Bóls’tað-
arhlíðarætt, en í móðurætt af
síra Jóni Steingrímssyni.
Frú Ingunn fluttist snemma
til systur sinnar, að Bæ í
Króksfirði, einu mesta höfuð-
bóli í einni hinni fegurstu
byggð, og á sögulegu tímabili,
þar sem uppi voru samtímis
einmitt úr þessari sömu sveit
þrjú góðskáldin og hvert öðru
nafnkunnara, Jón Thoroddsen,
Matthías og Gestur Pálsson. —
Gestur og Ingunn voru jafn-
aldrar, en steinsnar milli Bæj-
ar og Mýrartungu, þar sem
Gestur hafði alist upp. Var ná-
in vinátta með þeim jafnöldr-
unum og gagnkvæmir dáleikar.
Frú Ingunn giftist Sigvalda
Blöndal gestgjafa á Sauðár-
króki, og bjó þar til 1898, er
þau fluttust til Reykjavíkur,
en manninn missti Ingunn 1901.
Frú Ingunn var fríðleiks og
gæða kona, vinsæl og dáð, af
öllum er kynni höfðu af henni,
og ef til vill fremur fyrir það
ondurskyn, sem manni fannst
maður jafnan verða var við af
kynnunum við hið skarpgáfaða
snilldarskáld, sem þessi kona
hafði vísast haft mikið gildi
fyrir.
Frú Ingunn andaðist 10. júní,
en var til moldar borin laugar-
daginn 19. þ. m. Hún var 85
ára að aldri, er hún lézt.
G. M.
Skaftafellssýsla
Fastar áætlunarferðir að
líirkjubæjarklaustri. Frá Rvík
alla þriðjudagsmorgna kl. 8.
Farið alla leiðina sama daginn.
Frá Kbk. alla föstudaga til
Reykjavíkur.
Afgreiðslu annast Bifreiða-
stöð íslands, sími 1540.