Nýja dagblaðið - 24.06.1937, Blaðsíða 4

Nýja dagblaðið - 24.06.1937, Blaðsíða 4
REYKJAVÍK, 24. JtJNl 1937. 5. ÁRGANGUR — 143. BLAÐ HHHGamla BíóBBHH Morðið í náttúrugrípa- saínínu Framúrskarandi apenn andi amerísk leynilög- reglumynd. Aðalhlutverkin leika: Edna May Oliver og Robert Armstrong. Tvær aukamyndir; Joe Louis aigrar Max Baer og Carnera 1 hnefaleik. Síðasta sinn Böm fá ekki aðgang. Komandi tímar Framh. af 2. síðu. um og nýtur alls þess bez'ta, sem vísindin gefa. En þeim er þetta ekki nóg. Ungur maður og stúlka sjást síðast þjóta út í geiminn í háloftsvél í rann- I sóknarferð til tunglsins. Feður ! þeirra horfa áhyggjufullir á eftir þeim. Mun fólki loks tak- ast að sigra alheiminn og sýna þannig yfirburð sinn yfir öði-- j um lifandi verum? „Komandi tímar" svara að vísu ekki þess- 1 ari æfagömlu spumingu, en myndin er nægilega frumleg og vel tekin til þess að henni sé veitt góð athygli. Anná>ll Næturlæknir er i nótt Eyþói' Gunnarsson, Laugaveg 98, sími 2111. Dagskrá útvarpsins: Kl. 10,00 Vcðurfr. 12,00 Hádegisútvarp. 15,00 Veðurfr. 19,10 Veðurfr. 19,20 Lesin dagskrá næstu viku. 19,30 Hljóm- plötur: Létt lög. 19,55 Augl. 20,00 Fréttir. 20,30 Frá útlöndum. 20,55 Einleikur á píanó (Emil Tliorodd- sen). 21,20 Útvarpshljómsveitin leikur (til kl. 22). Nýlega lézt að heimili sín.u, Ár- móti á Akranesi, Guðrúnu Jóns- dóttir frá Ferstiklu á Hvalíjarðar- :1 rönd, 73 ára að aldri. Ferðafélag íslands fer skemmti- iör í Dyrfjöll og Dyradal og líka á Hengil næstk. sunnudag. Ekið í bílum austur yfir Mosfeilisheiði niður með Heiðabæ og suður með þingvallavatni að Nesjavöllum. Frá Nesjavöllum er ráðgert að fara i tveim hópum. Annar hópur- inn gengur í Dyradal og á Dyrfjöll og norður með Hengli i Marardal og til Kolviðarhóls. I-Iinn hópurinn fer upp að hverunum austan í Henglinum og þaðan gengið á liæstan Hengil. þá farið niður i Innstadal að stóra gufuhvernum, og suður dalinn um Sleggjubeins- ( skarð að Kolviðarhól. Báðir hóp- árnir mætast að Kolviðarhóli og fara þaðan í bílum tii Reykja- víkur. Rangæingafélayið í Reykjavík og Ungmennafélag Hvolbrepps, cfna til samkomu í Krappa hjá Árgilsstöðum í Hvoilireppi, næstk. sunnudag 27. júní. Samkoman hefst kl. 1 síðd., og byrjar með guðsþjónustu. Til skemmtunar: Ræður, söngur, dans. Veitingar á staðnum. Aðg. kostar 1 kr. fyrir fullorðna, 25 au. fyrir börn. Far- miðar seldir á B.S.R. til kl. 8 á laugardagskvöld. Lagt af stað kl. 8 á sunnudagsmorgun, stundvísl. j Ldstasafn Einars Jónssonar er 1 Helldsalarnir j í felum - ! Ýmsir bílar heildverzlana og' kaupmanna hér í bænum sjást ' um þessar mundir talsvert sér- | kennilega útlítandi. Fyrir kosn- ’ ingarnar var á þeim mörgum j letrað stórum stöfum nafn hlutaðeigandi heildverzlunar eða kaupmanns. Nú hefir verið málað yfir nafnið á mörgum og aðrar málaðar algerlega að nýju og ekkert nafn verið sett á þær ennþá. Ástæðan er auðskilin: Á kjör- dag var þessum bílum dreift út um allt land til að smala íhaldskjósendum og skoðana- , lausum kjósendum á kjörstað. En vegna verðskuldaðra óvin- j sælda * heildsalanna þar þótti ekki heppilegt að láta nöfn stór- kaupmanna sjást á bílum. Það er ekki í fyrsta sinn, sem íhaldið hefir reynt að leyna innræti sínu og tilgangi með því að mála eða „breiða yfir nafn og númer“. Þær aðferðir eru frá fornu farj kunnar þeim inanni, sem nú er formaður íhaldsflokksins. Kennslu-kvikmyndir Framh. af 2. síðu. barnaskemmtanir o. þ. u. I. Kennslufilmunni er ætlað að vera almennt kennslutæki í öll- ! um skólum, en ekki venjuleg j bíósýning. 8. Til þess að sýna mjófilm- j urnar hefir kennslulcvikmynda- j miðstöðin látið gera einfaldar ! og ódýrar sýningarvélar. Al- gengasta tegundin kostar ca. 450 ríkismörk. Sýningarvélinni, ásamt því, sem henni þarf að fylgja, er komið fyrir í liagan- lega gerðum kassa. Er því mjög fjótlegt að sýna kvik- myndimar hvar og hvenær, sem henta þykir. Sýning þessi var athyglis- verð og lærdómsrík fyrir kenn- arana. Dr. Daudert lofaðist til þess að sýna kvikmyndir og meðferð sýningarvéla í septem- ber í haust áður en hann og fé- lagi hans fara heimleiðis. Á meðan að á fulltrúaþingi og uppeldismálaþinginu stendur verða 3 sýningarvélar til sýnis 1 í Austurbæjarskólanum. Þeir, sem kynnu að vilja sjá þær, ! snúi sér til Gísla Jónasonar ^ yfirkennara. Síðar mun mál þetta verða rætt nánar á full- 1 trúaþinginu. niult jári oo koiii Móttaka daglega frá kl. 8—12 og 1—6 í porti voru víð Naitastöðina. Dagiegar útborganír og hæsta verð. þennan tnánuð opið sunnudaga, ju'iðjudaga og löstudaga kl. 1—3. Okeypis á sunnudögum. Compensatíon Trade Co. h.f. Sími 3464. Tryggvagötu 28. ■Bi Nýja Bló gHHl Komandí tímar Stórfengleg ensk kvik- mynd, samkvæmt hinni heimsfrægu sögu ,Things to come'. eftir enska skáldið H. Qt. Wells. Aðalhlutverkin leika: Raymond Massey Ann Todd o. fl. Myndin er ,tekni«ktl listaverk, sem vakið hefir undrun og aðdá- un um allau heim. aðeins Loftur. Tvær kosningavísur Þessi vísa er sögð hafa verið gerð fyrir framan Morgun- blaðsgluggann, þegar talningu atkvæða var lokið í Dalasýslu: Eignazt hafa gallagrip, sem gagn ei vinna kunni, mennirnir, sem „móðurskip“ mynduðu’ úr „doríunni". Fyrir kosningarnar var eftir. farandi vísa gerð á Austfjörð- um: í eina sæng við „sjálfstæðið“ er svikahjörðin stokkin. Nú kýs enginn íhaldið eða „Bændaflokkinn". KONAN 1 FRUMSKÓGINUM (Framhald) um við nokkur ár í Malajaeyjunum, á Ceylon og í Egiftalandi. Síðustu tólf ár höfum við dvalið í Afríku, og ég þori að fullyrða, að við erum sér- fræðingar í því að taka ljósmyndir og kvikmyndir af hinni viltu náttúru. Við höfum líka ágæt tæki, sem eru athuguð og endurbætt í hvert sinn, er við komum til Bandaríkjanna. Ég spurði, hvort þau hjónin lifðu eii.s einföldu lífi og umhverfið gæfi tilefni til. — Nei, svaraði hún. Jafnvel í eyðimörkinni og frumskóginum lifum við eftir amerískum siðvenj- um. Það er sagt, að Englendingar klæðist ávalt í smóking, þótt þeir ma'tist einir sér í Indlandi eða Afríku, hundruð mílna frá mannabyggðum. Það gera þeir til þess að „halda sér við“. Við hjónin tökum það ekki svo hátíðlega, en við skiptum ávalt um föt. Hann er í kakifötum, en ég í skraddara- saumaðri dragt, ef svalt er í veðri, annars í skraut- legum silkislopp, með smekklegu sniði, bláum, rauðum eða rauðgulum; og hár mitt er ávalt vel hirt. Við eigum reglulegt heimili í Afríku, ofurlítinn búgarð, sem liggur við norður-landamæri brezku Austur-Afrílcu, skammt frá Abyssiníu. Við köllum hann Lake Paradise. Og sá s’taður finnst mér hinn yndislegasti í heimi. — Okkur líður einnig ágæt- lega á ferðum okkar. — Og eftir að hafa sýnt mér mynd af tjaldinu, þar sem þau matast, heldur frú- in áfram: — Við breiðum ávalt dúk á reglulegt borð og notum munndúka. Brauðið okkar bökum við sjálf. Höfum hænsni og mikið af niðursoðnum matvælum: grænmeti, ávöxtum og yfirleitt af öllu því, er í dósum fæst. Enda borðum við ágætan miðdegis- verð á hverjum degi. Við höfum alltaf innfæddan matsvein. Ég kenni honum eins vel matreiðslu og unnt er, en verð, þrátt fyrir það, að gefa starfi hans nánar gætur, auk þess, sem ég verð sjálf að vinna ýmislegt að matreiðslunni. Svertingjarnir skilja aldrei siði okkar og háttu. Matsveinn, sem ég hafði haít í fjögur ár, gat aldrei búið út máltíð einn saman, hvað þá að breiða rétt dúk á borð. — Þið hafið alltaf nóg að starfa? spyr ég. — Já. — Maðurinn minn Ijósmyndar og fram- kallar allar myndir sjálfur. Ég fer með skotvopn, en þar eð aðaltilgangur okkar er að ljósmynda, beiti ég þeim aðeins, þegar hætta er á ferðum eða okkur vantar kjöt til matar. — Og þér eruð aldrei hræddar? -— Ju-ú, það kemur fyrir, svarar Osa Johnson. Ég hefi oft verið hrædd um líf mannsins míns, þegar villidýr t. d. allt í einu tekur stefnu í áttina til hans. En ég hefi riffilinn ávalt tilbúinn .... — OG EFhann „klikkaði“? — Það hefi raldrei komið fyrir. Kvikmyndatöku- áhöld okkar, myndavélar og rifflar, er athugað mjög nákvæmlega hér heima. Einnig reynum við sjálf hvern riffil og hvert áhald, áður en við tök- um það með í leiðangra okkar. — Það krefst mik- illar þolinmæði að ná góðum dýramyndum. Fyrst leitum við þeirra staða, þar sem dýrin helzt halda sig. Þá gefum við gaum að háfctum þeirra og leitum síðan veiði- og drykkjarstaða þeirra. Loks er að finna stað, þar sem við hjónin getum dvalið ásamt hinum innfæddu burðarmönnum, og maðurinn minn getur komið fyrir áhöldum sínum, án þess að dýr- in veiti því athygli. Við verðum að gæta þess, að vindinn leggi frá dýrunum, því að annars verða þau okkar vör og flýja tafarlaust. Aðeins undirbúning- urinn getur þannig tekið marga daga, jafnvel vikur og mánuði. Það er erfitt og hættulegt að ljósmynda fíla. Það hefir oft komið fyrir, að fílar hafa uppgötvað fylgsni okkar og þo'tið beint í áttina að því. Þá hefir okkur engin lífsvon virzt vera framundan — en við lifum samt enn. — Mannaþefur hefir eng- in áhrif á fíla, og þeir eru ekki vitund hræddir við flugvélar eða vélahljóð. Það er vafalaust vegna þess, að þeim finnst þeir sjálfir vera svo voldugir, að ekkert muni geta ráðið niðurlögum þeirra. Eftir því, sem tímar liðu, fékk ég mikla æfingu í að fara með skotvopn. En það er ekki nóg að hafa örugga hönd og óskeikult auga. Maður verður einnig að vita, h v a r á að hitta dýrin. Ef maður skýtur á fíla upp á von og óvon, svo að kúlan aðeins særir en drepur ekki, væri líf manns lítilsvirði. Gíraffarnir eru með erfiðustu dýrum að ljós- mynda. Þessi stóru dýr með hið hlálega útlit, eru svo stygg og vör um sig, að það er nær ógerningur að komast í nálægð þeirra til myndatöku. Það er auðveldara að ná samkomulagi við inn- fæddu íbúana, þó að sumir þeirra hafi mikinn ótta af ljósmyndavélinni. Litlu, skrítnu dvergamir í Kongo, Pygmæarnir, vildu helzt alltaf láta vera að ljósmynda sig, þegar þeir fóru að venjast okkur. Þó að ég sé ekki hávaxin, þá gnæfði ég yfir þá. Enda er þorri karlmannanna aðeins 120 cm. á hæð, og þeir vega, til jafnaðar 30 kílógrömm, en konurnar eru enn smávaxnari. — Þetta dvergvaxna fólk var afar hugfangið af okkur, eða þó öllu fram- ar af tóbakinu og saltinu, sem við gáfum þvi. Saltið át það eins og hvert annað lostæt-i, Ég hafði í fór-

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.