Nýja dagblaðið - 17.07.1937, Page 1
Geríst kaupendur
Nýja dagblaðsíns
strax í dag!
rvyj/%
0/^(5» IBIL?MÐIHÐ
5. ár. Reykjavík, laugardaginn 17. júlí 1937. 163. blað
Framsóknarflokkuriun og Alþýðuflokkuriim
votta núverandí ríkísstjórn
traust íram tíl næsta Alþíngis
Þegar landkjörsstjórn hafði lokið talningu atkvæða og út-
hlutað uppbótarsætum, var þingræðisleg nauðsyn að veita nú-
verandi ríkisstjórn stuðning þingmeirahlutans þar til Alþingi
kemur saman, væntanlega um miðjan októbei’. Þeir af þing-
mönnum stjórnarflokkanna, sem heima eiga hér í bænum og í
grendinni, hafa nú þegar lýst yfir slíkum stuðningi, en þeir sem
fjær búa, munu gefa slíka yfirlýsingu símleiðis í dag. Auk þess
hafa miðstjórnir beggja flokka í gær samþykkt svofellda yfir-
lýsingu um áframhaldandi samstarf fram til haustþingsins:
•>••'• " - ■ f •■• :
„Framsóknarflokkurinn og Alþýðuflokkurinn, sem hafa sam-
Síldaríréttír
Togarinn Brimir kom í gær-
morgun til Norðfjarðar með 732
mál síldar, er hann veiddi austan
við Langanes.
Til Siglufjarðar komu frá því
kl. 10,30 í fyrradag til kl. 15,30 í
gær aðeins 4 skip. Eitt þeirra,
Síldin, fékk 700 mál í tveim köst-
um, út af Vatnsnesj. Hægara veð-
ur var í gær og minni sjór, en
livasst var þó enn útifyrir.
I gær sást mjög mikil síld vaða
ínni í Vopnafirði. Sjómenn veiddu
vel i lagnet. — þegar skejdi var
sent, kl. 16, sáust engin síldveiði-
skip i firðinum. — FÚ.
eiginlega meira hluta á Alþingi, hafa komið sér saman um að
leita samninga um ágreiningsmál sín og önnur mál, sem úrlausn-
ar krefjast og gera, ef samkomulag næst, opinberan málefna-
••:tS6M
samning um áframhaldandi stjóniarsamvinnu. Á meðan á þess-
um samningaumleitunum stendur, korna flokkarnir sér saman
um að styðja núverandi ríkisstjórn, enda verði Alþingi kvatt
saman eigi síðar en 15. okt. næstkomandi.“
Togari dæmdur.
Togarinn Napier frá Aberdeen, er
varðskipið Ægir tók innan land-
lielgislínu við Dyrhólaey síðast-
liðinn sunnudag, var í fyrrakvöld
dæmdur í lögreglurétti Vestm.-
eyja til þess að greiða 22 þúsund
krónur og afli og veiðarfæri gert
upptækt. — Skipstjórinn áfrýjaði
dóminum. — FÚ.
Beínagrind nýfundin af
manni, sem varð útí
fyrir 16 árum
Lax
Hann er tekinn
að gauga í ár
víð ísaf jarðardjúp
það er ekki vitað að lax hafi
gengið í ár við ísafjarðardjúp fyr
on á allra siðustu árum.
í fyrrasumar veiddqst 20 laxar í
algengt silunganet í Ósá við Bol-
ungarvík. þá hafa veiðst nokkrir
iaxar i Hvannadalsá i Nauteyrar-
hreppi, sem er fyrir botni ísafjarð-
ardjúps. Virðist laxagengdin fara
fremur vaxandi.
Ilefir þetta leitt til þess að nú
er farið að setja klakseyði í ár
vestra. Verða að þessu sinni flutt
12 þús. klakseiði í Laugardalsá, 25 '
þús. i Selá hjá Melgraseyri og 10
þús. í ísafjarðará, en hún rennur !
i samnefndan fjörð innst í Djúp- j
inu.
í boði
Búnaðarfélagfs
Steingrímur Steinþórsson bún-
aðarmálastjóri fór með Ole Her-
'Mg ritara búnaðarfélagsins
norska og Winther Lutzen búnað-
arráðunaut Færeyinga í sex daga
ferð til Norðurlands í boði Bún-
aðarfélags íslands. Voru skoðaðir
meðal annars bændaskólarnir á
Hvanneyri og Hólum, tilrauna-
* stöðin á Akureyri og verksmiðjur
Kaupfélags Eyfirðinga. Einnig var
ekið fram Eyjafjörð og kynntu
þeir sér búnaðarháttu bænda.
I fyrramorgun fann Valdimar
Jóhannsson kennari mannsbein í
þrengslum, hálftíma gang í suður
frá Kolviðarhóli. — Farangur og
peningar, sem fundust á staðnum,
leiddu i ljós, að þetta voru bein
Dagbjartar Gestssonar, bátasmiðs,
íþróttaskólanum að Laugarvatni
lauk 30. f. m. — Skólinn stendur
vfir í 9 mánuði. Forstöðurnaður og
aðalkennari skólans er Bjöm Jak-
obsson. — Að þessu sinni voru
Af orustum í Madrid fréttist
það helzt í gær, að ákafar loftor-
ustur hafa verið háðar yfir Mad-
rid bæði i fyrradag og gær og
veitir stjórnarhernum betur. Hins-
cr úti varð á Hellisheiði i des-
cmbcr 1921. — Dagbjartur ætlaði
írá Eyrarbakka til Reykjavíkur
einn og gangandi.
Var hans á sinum tíma mikið
leitað, en árangurslaust. — FÚ.
brottskráðir 4 kennarar: Guðjón
Tngimundarson, Svanshóli Stranda-
sýslu, .Tón F. Hjartar, Siglufirði,
Páll Sigurðsson Ilólum í Hjalta-
dal og Sigrún Jónsdóttir, Höfn í
Hornafirði. — FÚ.
að her hennar hafi beðið lægri
lilut í Arragoníu.
Framsókn uppreisnarmanna við
Santander er stöðvuð.
Síðustu daga hefir stjómarher-
inn tekið tvö þúsund uppreisnar-
\egar er það játað af stjórninni,
liermenn höndum á vígstöðvunum
við Madrid. — FÚ.
Iþróttaskólanum
að Laugarvatní slitið
Fjórir nýír ípróttakennarar
Loftornstur yíír Madrid
Stjórnarherínn tekur tvö þúsund fanga
LONDON:
Tóli prestaköll óveitt.
Þeim, sem stunda guðiræðinám, ier iækkandi.
Fjórir guðiræðingar luku próii í iyrra
og einn á pessu ári.
Viðtal við dr. Jón Helgason, biskup.
Eins og mörgum mun kunnugt,
voru nýlega auglýst á milli 10 og
20 óveitt prestaköll. Af því að
þetta eru óvenjulega mörg presta-
köll, sem laus eru á sama tíma,
íór ég frant á það við Dr. Jón
H.elgason biskup, að fá upplýsingar
um þetta fyrir Nýja dagblaðið. !
Varð biskup fúslega við þeirri !
málaleitun.
Biskupinn var að vinnu í skrif-
stofu sinni er ég kom lieim til
hans í gær.
— Hvað eru þetta mörg óveitt
prestaköll, sem þér auglýsið í
sumar?
— það eru þessi 12 prestaköll,
sem nú sem stendur eru óveitt:
Stafholtsprestakall í Mýrapró-
fastsdæmi, Brjánslækjarprestakall
í Barðastrandarprófastsdæmi,
Staðarprcstakall í Norður-ísafjarð-
arprófastsdæmi, Viðvíkurpresta-
kall í Skagafjarðarprófastsdæmi,
Hvammsprestakall í Laxárdal í
Skagafjarðarprófastsdæmi, Glaum-
hæjarprestakall i Skagafjarðar-
prófastsdæmi, Hálsprestakall i
Suður-þingeyjarprófastsdæmi,
Skeggjastaðaprestakall í Norður-
Múlaprófastsdæmi, Hofteigspresta-
kall í Norður-Múlaprófastsdæmi,
Hofsprestakall i Suður-Múlapró-
fastsdæmi, Kirkjubæjarklausturs-
prestakall i Vestur-Skaftafellspró-
fastsdæmi og Sandfellsprestakall í
Austur-Skaftafellsprófastsdæmi.
Á Hálsi og Skeggjastöðum eru
settir prestar.
— Eru svo til prestar i öll þessi
prestaköll?
— það er nú líklega varla, því
í fyrra útskrifuðust ekki nema
fjórir guðfræðingar og á þessu ári
aöeins einn.
— Verða samt ekki kosnir prest-
ai bráðlega á sumum þessum stöð-
um?
— .Tú líklega í fjórum presta-
köllum og á sunnudaginn á að
fara fram prestskosning í Staf-
lioltsprestakalli og þar eru fimm
umsækjendur, þeir: Bergur Björns-
son prestur á Breiðabólstað á
Skógarströnd, Páll þorleifsosn
prcstur á Skinnastað, Gisli Bryn-
jólfsson cand. theol., þorgrímur
V. Sigurðsson prestur á Grenjað-
arstað og- þorsteinn Björnsson,
sem var kapelán hjá Sveini Guð-
mundssyni í Árnesi í Stranda-
rýslu.
Um Glaumbæjarprestakall í
Skagáfirði hafa svo sótt þeir I
Tryggvi Kvaran prestur á Mæli-
felli og Lárus Arnórsson prestur á
Miklabæ.
þcgar hér var komið hringdi
síminn, og- á samtalinu lieyrði ég
að biskup mundi vera að fara í
ferðalag. — Já, ég ætla að skjót-
ast vestur í Súgandaíjörð með
Brúarfossi næst og vigja kirkju,
sem er nýbyggð á Suðureyri.
En kemur Brúarfoss á Suður-
eyri?
— Nei, en ég verð sóttur á mót-
orbát út í fjarðarmynnið og skip-
stjórinn ætlar að vera svo góður
að liægja á skipinu og skjóta mér
ofan í bátinn, og ef til vill kemst
ég á sama hátt með skipinu til
iiaka.
— Mér finnst biskupinn tala um
þetta ferðalag eins og hanr sé ung-
iii maður ennþá.
— Já, eg er vanur við að ferðast,
og Súgfirðingar hafa sýnt svo
rnikinn myndarskap við þessa
kirkjubyggingu — fullbyggð er
luin alveg skuldlaus — að mér
-annst sjálfsagt, að ég færi, þó ég
þyrfti eitthvað á mig að leggja.
— Eru þetta einhver fornbréf
sem þér hafið þarna í þessari stóru
skrifuðu bók á borðinu yðar?
— Já, það er bréfabók Skálholts-
i iskupsdæmis fr 1684—89, en ann-
ars er ég að ijúka við að ganga
frá Sögu Reykjavíkur einmitt
núna í kvöld, og hérna hefi ég
hana hjá mér. þetta verður 20
arka bók og mikið af myndum í
henni af Reykjavik frá ýmsum
tímum. þarna er t. d. mynd af
Hólavallaskóla, sem ég hefi gert
eftir grunnmáli og lýsingum;
þarna cr dómkirkjan eins og hún
var áður en byggt var við hana
og hún stækkuð. þarna er mynd
af gömlum bæ, í þessum bæ fædd-
ist .Tón Guðmundsson, fyrsti rit-
stjóri þjóðólfs, og svo eru hér
nýrri myndir: Arnarhvoll, Sjafn-
argata o. s. frv. Alls eru 232
myndir í bókinni, en um helming-
ur bókarinnar er lesmál.
—• Eruð þér búinn að vinna
lengi að þessari sögu?
— Já, og eiginlega fór ég fyrst
að hugsa um þetta á skólaárum
mínum; þetta er aðallega bygg-
ingarsaga Reykjavikur fram um
1900, en eftir þann tíma fer vöxt-
urinn að verða svo ör, að illmögu-
legt er að fylgjast með því, —
svona í hjáverkum.
Eg hefði gjarnan viliað vera
þarna lengur og fá meiri fréttir,
því af nógu var að taka, en mér
fansl það of mikil ágengni, að
tefja lengur, óskaði ég svo bisk-
upi góðrar ferðar vestur með
Brúarfossi og mótorbátnum, til að
vigja þessa nýju kirkju, en það
mun vera 17. kirkjan, sem Dr. Jón
Helgason biskup vígir.
Magnús Stefánsson.
Flug yfír Atlantshaf
LONDON:
Brezku og amerisku flugbátarnir
,,Caledonia“ og ,Clipper“ lögðu af
stað í gærkvöldi í annað tilrauna-
f’.ug sitt yfir Atlantshaf. Lagði
Caledonia af stað frá Newfound-
land, en Clipper frá írlandi. - FÚ.