Nýja dagblaðið - 18.07.1937, Side 4

Nýja dagblaðið - 18.07.1937, Side 4
REYKJAVÍK, 18. JÚLl 1937. NYJA DAGBLAÐIÐ 5. ÁRGANGUR — 164. BLAÐ BHHMSamla BióiH—I sýnir í kvöld kl. 7 og 9 »Rose Maríe« Gullfalleg og hrifandi aöng- mynd í 11 þáttum, gerð eftir samnefndum söngleik. Myndin er tekin í fögru og atórfenglegu fjallalands- lagi í Kanada. Aðalhiutverkið leika: ieanette Mac Donald og Nelson Eddy. Alþýðusýning kl. 41/,. BEN HUR Verkfall. Framh. af 1. síðu. semjari ríkisins í vinnudeilum, öem ótilkvaddur hafði boðizt til 1 að ganga í málið, tæki málið í ! í-inar hendur. Jafnframt var stjórn Vinnuveit- j endafélagsins gefið umboð til þess | að semja við stjórn Dagsbrúnar um kaupgjaldsmál þetta. Eimreiðin, april—júní-hefti, er komið út. Hún flytur kvæði eftir Jakobínu Johnson og Gísla H. Er- lendsson og smásögur eftir Krist- mann Guðmundsson og Bjartmar Guðmundsson frá Sandi. Jóhann Hjaliason skrifar ýmislegt um vcrmennsku á 19. öld og er þar 1 ýst útbúnaði báta og veiðarfær- nm, verbúðum og aðbúnaði í þeim, skrínum og fleiru. Stefán Einarsson ritar þætti af Einari Kvaran. Auk þess eru nokkraraðr- ar greinar og sumar alllangar, ritsjá og framhaldssaga. Tíu bátar í Keflavík eru nú að luiast á reknetaveiðar fyrir Norð- urlandi. — FÚ. Annáll Veðurútlit í Reykjavík og ná- grenni: Vaxandi austanátt og dá- iítil rigning. Næturlæknir er í nótt Gísli Páls- son, Laugaveg 15, sími 2474, en á uðfaranótt þriðjudags Halldór Stefánsson, Ránargötu 12, sími 2234. Sunuudagslæknir er Halldór Stefánsson, Ránarg. 12, S. 2234. Næturvörður er þessa viku í Ing- ólfs- og Laugavegs apótekum. Útvarpað í dag: kl. 10,00 Veður- fregnir. 12,15 Hádegisútvarp. 12,15 Messa í Dómkirkjunni (Sr. Friðr. Hallgrímsson. 14,00 Messa í Hafn- arfjarðarkirkju (sr. Garðar þor- steinsson — sr. þorsteinn Björns- son i Árnesi prédikar). 15,30 Mið- negistónleikar frá Hótel Borg. (stjórnandi Bernh. Monslins). 17,40 Útvarp til útlanda (24,52 m.). 19,10 Illjómplötur: Létt klassisk lög. 19,55 Aauglýsingar. 20,00 Fréttir. 20,30 Leikrit: „Við þjóðveginn’1, oftir Kotzeboe (Friðfinnur Guð- jónsson, Alfreð Andrésson, Anna Guðmundsdóttir). 21,15 Hljómplöt- ur: Píanó-konsert í F-dúr, eftir Gershwin. 21,40 Einsöngur (Her- mann Guðmundsson). 22,00 Dans- lög (til kl. 24). Trúlofun sína opinberuðu í gær itngfrú Constanse Jakobsen frá Ilaugasundi í Noregi og Pétur Hoffmann fiskkaupmaður. Minningarsjóður Valgerðar sál. Jónsdóttur biskupsfrúar. Nánustu vandamenn Valgerðar sálugu Jóns- dóttur biskupsfrúar hafa afhent Thorvaldsensfélaginu í Reykjavík minningarsjóð með hennar nafni til fullra umráða. Búizt er við að a næstu árum verði hægt að veita úr sjóðnum til styrktar fátækum, sjúkum konum í Reykjavík. Thoivaldsensfélagið í Rvík selur ininningarspjöld til ágóða fyrir sjóðinn, fást þau daglega frá 10— 12 og 1—2i/2 á Bazar félagsins í Austurstræti 4. Bifreiðaferðir milli Önundar- fjarðar og Dýrafjarðar hófust um síðustu helgi. Var þá mokað all- miklum snjó af veginum, svo að aðeins er skafl beggja megin vegarins á háfjallinu, nokkurra metra hár. —. FÚ. Frá Genéve á Þíngvöll Framh. af 1. síðu. — Astæðan er nú kannske frem- ur sú að við erum svo fámennir að mönnum hér finnst hlægilegt að hugsa um vígbúnað. — Já, kannske gerir famennið yklcur vitrari. En annars er hlut- fallslegt fámenni enginn sjálf- sagður varnargarður við heimsk- unni. því skylduð þið ekki geta komið ykkur upp einum kafbát og 2—3 vígflugdrekum? þið væruð auðvitað eftir sem áður jafn van- húnir gagnvart hverju herveldi, fem vildi gleypa ykkur, en raun- verulega ekkert verr settir en ým- is smáríki, þar sem örfáar milljón- ir eru að sligast undir tilgangs- lausri hervæðingu frá hvirfli til ilja. — Nei, fyrir tveimur árum í iðan var ég í Genéva, og bar þá, eins og allir aðrir, beztu von í brjósti um mátt og nytsemi þjóða- bandalagsins. Nú er svo komið, að mér virðist að fulltrúum þess væri nær að flytja sig hingað á þing- völl, og reyna í auðmýkt að nema af ykkur undirstöðuat.riði hins sanna friðarvilja, og taka sér til fyrirmyndar kjark ykkar og heil- brigða skynsemi, sem hafnar al- gerlega hverju tilboði um að ganga í hinn vitfirrta tilbeiðslu- danz fyrir framan líkneski her- guðsins. — Okkur verður eítirsjá að svo góðum gesti, eða niunduð þér hafa bug á að koma aftur til fslands? — Já, ég hefi ekki getað haft hér líkt því nógu langa viðstöðu. Eg kom hingað vegna þess að ég hafði fengið nokkur kynni af fs- lendingasögum, og fullkomna að- dáun á þeim. En nú þegar ég fer dáist ég bæði að söguöldinni og nútímanum. Búnaðarsamband Skagfirðinga hefir auglýst eftir héraðsráðunaut, or taki til starfa um næstu ára- mót. aðeins Loífur. Listsýnfngin Framh. af 3. síðu. Meðan Ríkarður sagði mér þetta gengum við fram og aftur um stofurnar. í frems'tu stof- unni eru eingöngu málverk eft- ir Ásgrím Jónsson. Þau eru sól- björt og Ijós og sérstaka at- liygli mína vakti mynd af Heklu úr Þjórsárdal. I næstu stofu eru myndir Júlíönu Sveinsdóttur og Jóns Þorleifssonar. Má af þeim | nefna Við Þingvallava'tn eftir Jón og sjálfsmynd Júlíönu. 1 þriðju stofunni eru mál- j verk Gunnlaugs Scheving, Gunnlaugs Blöndal, ein öræfa- mynd eftir Guðmund Einars- son og þar er Snorri Arinbjam- ar með þægilegar bátamyndir. Modell Gunnlaugs Blöndal eru glæsileg og málverk af ungri stúlku er sérstaklega aðlað- andi, líkaminn er fagur og blár kjóllinn fer yndislega. Af mál- | verkum Gunnlaugs Schevings má nefna í haganum. I í 4. stofunni eru myndir J j Sveins Þórarinssonar, af þeim | tók ég sérstaklega eftir lands- lagsmynd úr Kelduhverfi og myndir Finns Jónssonar. Þar sitja skarfarnir hans Finns þrír saman á kletti og úti í homi er málv'erk af litlum at- burði frá sildveiðistöðvum, þar sitja ungir góðvinir saman á síldartunnum og kyssast. í fimmtu stofunni er marg- býli og eiga þar málverk Jó- hann Briem, Karen Agnete Þór- arinsson, Grethe-Linck-Sche- ving, Svafar Guðnason og Þor- valdur Skúlason. Af þeim má sérstaklega nefna Við lækinn eftir Jóhann Briem, Spilakonur eftir frú Þórarinsson og Konu með kö'tt eftir frú Grethe Linck-Scheving. Myndir Svav- ars eru skrítin nýtízku mál- verk, enda er hann enn óþrosk- aður. Þorvaldur Skúlason mál- ar einig í nýjum stíl, en miklu þroskaðri. hbbí Nýja bió mam Kósakka- höíðíngínn Tarass Bulka Frönak itórmynd Bam- kvæmt samnefndri sögu eftir rússneska skáldsnillinginn M. Gogal, gerð undir stjórn rússneska leik- stjórans Alexanders Granowsky. Aðalhlutverkin leika: Harry Baur Danielle Darricux o. il. Börn fá ekki aðgttng. Sýnd i kvöld kl 5, 7 og 9 I Lækkað verð kl. 5 í innstu og sjöttu stofunni eru málverk Jóns Stefánsonar og mörg glæsileg, en hvað mesta athygli veitti ég mynd af karlmanni með hamar og meitil. I-Iöggmyndir Ríkarðar Jóns- sonar eru 9 alls, allt andlits- myndir. Eru þær dreifðar um þrjár stofur og veitti ég sér- staka eftirtekt brjóstlíkneski af formfagurri ísl. stúlku í fremstu stofunni, og verka- manni í næstu stofu, mjög svipmikil og athyglisverð mynd. Þannig kom þetta mér fyrir sjónir. Allir þeir, sem unna list og meta menninguna einhvers- ættu að skoða þessa sýningu í Miðbæjarskólanum. Með því gera menn tvennt í einu. Þeir veita sjálfum sér skemmtilega stund og þeir styrkja list, sem á frekar erfitt uppdráttar, og hjálpa til að skapa menningar- leg verðmæti. ÖRLAGAFJÖTRAR. 4 ur meðal þeirra við borðið, gagnvart hinum illmann- lega Pe'te. Kit gekk rakleitt að borðinu, laut að Far- fax og mælti fast en rólega. — Hættu þessu, Farfax. Langar þig til að lenda í Seattle alveg peningalaus? Farfax virtist ekki heyra aðvörun Kits. Hann hafði á hendi þrjá ása, kóng og fimm. Hann henti tveirn síðari spilunum og fékk upp tvo gosa. Hann var of góður spilamaður til að þess að svipbrigði sæust í andliti hans við þetta mikla happ. Nú var byrjað að veðja. Seðlar, silfur og gull hrúguðust í borðið. Svo fóru menn að týna tölunni. Að síðustu voru þeir eftir Pe'te og Farfax. Þeir voru alvarlegir á svip. Farfax hækkaði boðið. Pete ýgldi sig illilega og hækkaði aftur. Farfax hafði enn nokkra seðla fyrir framan sig, aðeins nóg til þess að „mæta" Pete. Hann kastaði því öllu í borðið og æpti fölur og æs'tur: — Ég ætla að sjá spilin þín! Pete breiddi úr spilum sínum á borðið og brosti makindalega. Hann hafði fjóra kónga. Farfax var steini lostinn. Hann virtist ekki sjá neitt annað en peningahrúguna, sem Pete var að skara til sín. Allt í einu virtist Farfax koma til sjálfs sín. Hann laut fram yfir borðið, greip um hendurnar á Pete og hvessti augun á hann. — Svikari, — falsspilari, æpti hann. Hvar náðir þú í spaðakóng ? Ég lagði hann niður e f t i r að þú hafðir lagt niður þín spil. Slepptu peningunum eða ég skal sannarlega . . . Kit sá hvað verða vildi. Pete stökk á fætur, sleit sig af Farfax, sparn við borðinu og greip eldsnöggt til skammbyssunnar við belti sér. Það heyrðust tvö skot, og síðan tryllingslegt óp. Kit stóð fremstur manna öðru megin við hið umvelta borð með rjúk- andi skammbyssu. Hinu megin stóð Pete. Vopn hans lá á þilfarinu, en hann hafði gripið vinstri hendi um öxlina, þar sem skotið úr byssu Kits hafði farið í gegn. Bak við Pete stóðu tveir félagar hans. Þeir voru að draga slcammbyssurnar úr beltum sér til að jafna sakirnar við Kit Carew. Farfax hljóp að öðr- um þeirra um leið og hann kallaði aðvörunarröddu. — Gáðu að þér, Kit! En rétt í þessu heyrðist há og hvell hringing, og eitthvað hvítt og ógurlegt blasti við örfáa faðma frá hópnum. Svo kom kippurinn. K1 o n d y k e B e 11 e hafði rekið stefnið inn í nokkur þúsund smálestir af borgarís. II. KAFLI. Upp á líf og dauða. Eftir áreksturinn varð skyndilega dauðaþögn. Fólkið starði skelfingu lostið á hið afar stóra ísbjarg er valdið hafði áreksturínn. Vélin hafði stöðvast og skipið hallaðist á hliðina. Undir framþiljum heyrðist sterkur niður, er sjórinn fossaði inn í brotið stefni skipsins. Það var eins og allir vöknuðu af dvala. Fólkið þusti út að borðstokknum og féll hvað um annað. Skipið seig ört og jafnt niður að framan. Bátar voru engir eða björgunarbelti. Allir urðu að bjarga sér af eigin rammleik. Farfax stóð við hlið Kits. Andlit hans var náfölt, og það fór um hann skjálfti er hann sá konur og börn steypast niður í hið græna ískalda haf. Allt er laust var og flotið ga't, var komið fyrir borð og flaut í kjölfar ísbjargsins. Skipstjórinn stóð á fram- þiljum í vatni upp að knjám. Hann veifaði til þeirra félaga og kallaði: — Ut með ykkur. — Hvar erum við staddir? — I sundinu, kallaði skipstjóri, flýtið ykkur, það er að sökkva. Það brast í þilfarinu og hallinn snöggjókst. Farfax kastaði sér útbyrðis. Kit ætlaði að fylgja dæmi hans, en mundi allt í einu ef'tir Gyp. Hann kallaði á hund- inn og er hann hafði hent honum útbyrðis, fleygði hann sér á eftir, á sömu stundu og Klondyke B e 11 e tók síðustu dýfuna. ísinn var horfinn í þokuna, en sjórinn var þakinn allskonar rekaldi. Kit þreif í hurð, er flaut nálægt honum, kom hundinum upp á hana, hélt svo sjálfur í annan enda hennar og synti með fótunum. Kuldinn var geigvænlegur og þokan vam- aði honum þess að sjá nokkuð frá sér. — Kit, Kit, heyrði hann kallað. Hann sneri sér í þá átt er hljóðið kom úr, og fljót- lega sá hann Farfax á sundi. — Kit, heyrðu. Ég sá pólstjörnuna rétt núna. Ef við erum í sundinu, þá er okkur að bera frá landi.

x

Nýja dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.