Nýja dagblaðið - 28.08.1937, Page 4

Nýja dagblaðið - 28.08.1937, Page 4
REYKJAVlK, 28. ÁGÚST 1937 5. ÁRGANGUR — 198. BLAÐ NYIA DAGBLAÐIÐ MIHHiGamla BlóHWHi „Blóð og gull" Grollfalleg og hrífandi mynd, um gullæðið í Kaliforníu, á öldinni sem leið, Aðalhlutverkið leika: Edward Amold, Binníe Barnes og Lee Tracy. Böm fá ekki aCgang. Annáll Næturlœknir er í nótt Kjartan ólal'sson, Lækjargötu ÖB, sími ?614. — Næturvörður er í lyfjabúð- úini Iðunn og Reykjavíkurapóteki. Dagskrá átvarpsins: Kl. 10,00 Veðurfr. 12,00 Hádegisútvarp. 15,00 Veðurfr. 19,10 Veðurfr. 19,20 Út- varpstríóið leikur. 19,55 Auglýs- ■ngar. 20,00 Fréttir. 20,30 Erindi: pjóðhátíð Vestmannaeyja (Ámi Guðmundsson kennari). 21,00 Hljómplötur: Gleðilög. 21,30 Út- varpshljómsveitin leikur. 22,00 Danslög (til kl. 24). Messa í Lauganesskóla á morg- un kl. 2. Séra Garðar Svafarsson predikar. Oullioss var væntanlegur hingað til Reykjavíkur árla í morgun og nunu íslenzku skátamir, sem fóru á Jamboree í Bloemendaal í Hol- landi hafa komið með honum. Jón Oddgeir Jónsson skátaforingi mun þó dveljast ytra eitthvað lengur og kynna sér hjálp i viðlögum og annað, er varðar starf við slysa- varnir á landi. Tveir piltar, Kjart- an Guðbrandsson og Björn Jónsson, urðu eftir við svifflugnám í pýzka- landi. Ferðafélag íslands hefir ákveðið að efna til samkeppni um uppkast að merki fyrir fél^igið. Er skorað á hagleiks- og listamenn að senda iélagsstjórninni tillögur sínar um gerð merkisins fyrir 1. okt. n. k. — Skulu þær sendar í merktu um- slagi en nafn höfundar í samL merktu og iokuðu umslagi. Fyrir 1 ezta uppkastið heitir félagið kr. 50,00 í verðlaun, en kr. 25,00 fyrir það næstbezta. Bifreið hlekkist á. Seint í fyrra- kvöld kom bifreiðin R 797 niður Laugaveg, en er hún kom móts við Ás, bilaði stýrisumbúnaðurinn og missti bifreiðarstjórinn vald á bifreiðinni. Rakst hún á síma- staur og brotnaði framrúðan og fleiri skemmdír urðu. Tveir piltar, sem í bifreiðinni voru, sluppu ó- meiddir, og vildi til, að bifreiðin var ekki á hraðri ferð, er atburð þennan bar að. Barnaleikvöllurian við Grettis- götu. það var lærdómsríkt fyrir þá sem vildu kynnast aðbúnaði íhaldsins að hinni yngstu æsku í borg sinni, að sjá barnaleikvöllinn við Grettisgötu, þegar rigningunni stytti upp í fyrradag. Hann flaut allur í vatni, þar stóðu stórar ijarnir af óhreinu vatni, sem börn- in ösluðu í upp í kálfa. Háseti af skipinu Signhild, er lá úti á höfn í Siglufirði aðfaranóít föstudags, var á leið til skipsins um kl. 1 í litlum báti, er snörp vindkviða skall á bátnum og hvolfdi honum. Veður var hvasst og sjór úfinn. Hásetinn, Ólafur þórðarson úr Rvík, er vel syntur rg reyndi hann að rétta bátinn við. Er það tókst ekki sneri hann á sundi til lands, en dapraðist skjót.t sundið. Skipverjar á línuveiða- skipinu Venus, sem var að leggj- ast að bryggju SRP heyrðu köll Ólafs og tókst þeim að bjarga hon- um á síðustu stundu. Ólafi leið 'i el í fyrradag eftir, atvikum. FÚ. S.l. þriðjud. syntu yfir Hrútafjörð frá Gilsstöðum til Borðeyrar Bald- 'ir Pálsson 27 ára, Ásta Snæbjöms- son 20 ára og Hulda Pétursdóttir 10 ára, öll frá Borðeyri. Vegalengd- in er um 1100 metrar og synti J-Iulda hana á 23. mín. og var um 0 mín. á undan hinum. Sjávarhiti var 8 stig. Ekki er kunnugt um að áður hafi verið synt yfir fjörðinn. GóS fjármálastjóm, góðs vlti. þ'að mun venjan, þegar menn áætla kostnað við skemmtanir eða skemmtiferðalög, að heldur vilji c-yðast meira en áætlað hefir ver- :ð. Tvær undantekningar veit ég Síldaríregnir SIGLUFIRÐI: Mikil síld var í gæiTnorgun í þistilfirði og þar þá sæmilegt veiðiveður, en v.ernsnaði er vestar dró. -Fengu skip þar stór köst. Tvö skip, er komu til Siglufjarðar í gærmorgun höfðu fengið þar svo stór köst, að nætur þeirra rifnuðu. 1 fyrrinótt og í gærmorgun hvessti þa af austri og gerði því nær ófært veiðiveður um tíma. Veður fer nú fcatnandi úti fyrir Norðurlandi og sjó lægir. Um hádegi í gær biðu 19 skip löndunar í Siglufirði með um 17 þús. mál og munu þau öll komaht að til löndunar í nótt og í dag. Veiðiskip Kveldúlfs eru nú á miðunum Norðanlands að leita síldar. Er sjó heldur að lægja. Hafa skipin fengið lítil köst. þó iiefir Otur fengið 11—1200 mál úti fyrir Norðausturlandi og Snorri goði var væntanlegur til Hjalteyr- ar í gækvöldi með 1700 mál, er hann veiddi á austanverðu veiði- svæðinu. þó um í þessum efnum, og hefir Siysavarnafélag íslands verið lát- ið njóta góðs af sparseminni í bæði skiptin. — í fyrra skiptið var það þegar stýrimannaskólapiltar liéldu sína árlega jólaskemmtun s. 1. vetur, að afgangs urðu kr. 50,00 írá áœtluðum kostnaði, sem svo törgöngumenn skemmtunarinnar íærðu Slysavamafélaginu að gjöf nokkru síðar. — Hitt skiptið var Þegar rafmagnsdeild Vélstjóraskól- ans í Reykjavík fór að afloknu prófi i skemmtiferðalag og sparaði kr. 14,00 frá áætluðum kostnaði við ferðina. Einnig þá upphæð íærðu forgöngumennirnir -Slysa- varnafélagínu að gjöf. — Fyrir báðar þessar gjafir þakka ég gef- endunum kærlega, ekki aðeins fyr- ir peningana, heldur eifinig og ekki siður fyrir þann velvildarhug, sem felst bak við gjafimar. Ég vil jafnframt óska þessum ungu mönnum til hamingju með ný- byrjað lífsstarf og vona að hin góða fjármálastjóm þeirra á gleði- stundum skólaáranna, verði þeim leiðarljós í framtíðinni. Jón E. Bergsveinsson. Færeyskar bókmenntír Framh. af 2. síðu. að aldri, en hefir þó skrifað mikið af smásögum og auk þess stærri sögur, Lognbrá og Fastatökur. Rithöfundarhæfi- leikar hans eru ótvíræðir, stíllinn er hreinn og næmar lýsingar hans á færeysku fólki og færeyskri náttúru. Við hann eru tengdar vonir, sem allar líkur benda til að rætist. Eini Færeyingurinn er ritar á dönsku, er William Heinesen. Eftir hann var sorgarleikurinn Ranafelli, sem sýndur var hér Reykjavík veturinn 1932. J. Dahl prófestur hefir ritað mjög glögga færeyska mál- fræði og fleira hefir hann innt af höndum í þágu bókmennt- anna. Jakob Jakobsen ritaði sögu Nolseyjar-Páls. Það er mjög að vonum, að smásagnagerðin hefir, auk hins bundna máls, orðið veigamestur þáttur í færeyskum skáldskap. Meðal jafn famennrar þjóðar og Færeyingar eru, er það miklum annmörkum bundið, að skrifa og gefa út langar skáld- sögur, ekki sízt þegar hver ein- asti maður skilur dönsku og á auðvelt með að afla sér danskra bóka. En blöðin og al- veg sérstaklega tímaritið Varð- in hafa getað gefið skáldunum gott tækifæri til þess að koma því á framfæri, er bezt hefir verið ritað í smásagnaformi eða ljóðum. Hér hefir þeirra verið getið, sem lagt hafa drýgstan skerf til hinna nýju færeysku bók- mennta. Þær bókmenntir eru að vísu ekki mjög miklar að vöxtum, en þó mjög álitlegar, sé þess gætt, að hér á hlut að máli þjóð, sem í dag telur að- eins 26 þúsundir manna og stundum hefir ekki verið nema um 5000 sálir, þjóð, sem nýlega hefir eignazt sitt eigið ritmál og á við fremur örðug kjör að búa, að minnsta kosti í bili. J. H. Serenade Hrífandi fögur ame- rísk ■öngrakvikmynd frá COLUMBIA film. Aðalhlutverkið leikur og syngur hin heimg- fræga göngkona: Grace Moore og hinn fagri og karl- mannlegi Gary Grant. Serenade er tvímæla- laust b e z t a söngva- mynd sem gerð hefir verið í Ameríku til þessa dags. íbúð 3—4 herbergja með öllum þægindum óskast sem fyrst Uppl. I síma 1080. aðeins Loitur. Verzlun íslendtnga Framh. af 3. síðu. hrömandi múrum hins alda- gamla skipulags, sem viður- kennir aðeins nokkum hluta mannkynsins rétthæfan til auðs og allsnægta meðan allur þorri manna á að vera dæmdur til þess, að svelta þar sem grimmd mannanna og miskunarleysi r.áttúruaflanna skilja þá eftir i slóðinni. Reykjavík, 27. ágúst 1987. Jónas Þorbergsson. ÖRLAGAFJÖTRAR 28 an sal, þar sem fjöldi sjúklinga fékk að koma sam- an, stutta stund úr deginum. 1 fyrstu var Kit dvölin þar nær óbærileg, fyrst sökum andúðar og síðar meðaumkvunar með þess- um vesalingum. Sumir æptu og orguðu. Aðrir skríktu og böbluðu óskiljanlegt mál. Enn aðrir störðu á hann þögulir og hræðilegir. Sumir þeir er tóku eftir því, að hann var gestur þéirra á meðal, komu til hans og kröfsuðu í hann með höndunum, en stukku svo í burtu, er hann færði sig undan snerting þeira. Kit óskaði sér af öllu hjarta burt úr þessum fé- lagsskap, og honum vai'ð það fullvel ljóst, að löng dvöl á þessum stað og undir þvílíkum kringumstæð- um, hlyti að gera hann að vitfirringi. Bak við hinar dapurlegu hugsanir, er orsökuðust af dvöl hans þarna, — risu stórar og geigvænlegar hugsanir. Það var hatur Kits og hefndarþorsti gagnvart hinum samvizkulausu þorpurum, er höfðu leikið hann svo grátt. En hvernig kæmi hann hefnd sinni fram. Það var úr vöndu að ráða. Svo var hann einnig kvíðafullur út af tilhugsuninni um hvað orð- ið hefði af Gyp. Þessum eina trygga vini, er hann átti í heiminum. Það kom einstöku sinnum fyrir að Kit hélt að hann fengi ekki staðist þessa martröð lengur. Hann var farinn að tala upphátt, aUskonar sam- hengislausa vitleysu, — og honum fannst að dauð- inn sjálfur væri betri en þessi tilvera. Hann var . stirður og sár undan spennitreyjunni, og klefinn var svo rambyggður, að það virtist ekki á nokkurs færi að komast út úr honum. Kit settist niður á rúmið sitt og fór að reyna að brjóta heiiann um ástand sitt og möguleika til burtkomu. Hann fann enn til lítilsháttar verkjar í öxlinni, þar sem hann hafði verið særður, — og það gaf honum umhugsunarefni. Hann athugaði umgjörðina um rúm sitt og hló við með ánægjusvip. Svo tók hann til að berja öxlinni; við eitt homið á rúmstólp- unum. Hann fann lítið eitt til, en það skipti engu máli. Hann vissi að sárið mundi opnast, og eftir litla stund var kominn rauður blóðflekkur út í gegn um spennitreyjuna á öxl hans. Það var bjalla í ein- um veggnum og nann hringdi henni. Augnabliki síð- ar sést andlit við grindurnar í hurðinni. — Ég meiddi mig í öxlinni, mælti Kit við vörðinn. Hann starði á blóðblettinn á öxl hans og flýtti sér svo á brott. Litlu síðar kom Dr. Crispin ásam tveimur aðstoðai-mönnum með sáraumbúðir. Kit sat krafkyr meðan þeir klæddu hann úr treyjunni. Svo stöðvaði læknirinn blóðrásina og batt um sárið. Að því loknu ætluðu verðimir að færa Kit í treyjuna aftur, en hann stökk á fætur, hristi þá af sér og hljóp að dyrunum. Hann snéri sér að þeim og hreyfði hand- leggina til þess að fá liðleik í hina stirðu og sáru vöðva. — Þið verðið að klæða hann í treyjuna aftur, mælti Crispin. Hann er hættulegur. Annar varðanna greip til hljóðpípu við belti sér, en Kit stökk á hann og þreif hana af honum. — Hættið þið þessu, mælti Kit rólega. Þið verðið að fá það inn í hausinn á ykkur að ég ætla ekk að láta klæða mig í þetta aftur. Ég hefi sagt ykkur það áður, að ég er með fullu viti, og þið hafið ekkert að óttast. En ef þið ætlið að hleypa á mig fjölda manna til þess að taka mig með valdi, þá lofa ég ykkur því, að það skal enginn ykkar verða fær um að segja frá þeim endalokum, því ég ætla að ryðja ykkur úr vegi, áður en hinir koma. Svo ræður þú læknir góður, hvern kostinn þú tekur. Crispin hopaði á hæli fyrir hinum einráðna svip og hiklausu orðum Kits. Hann trúði því fastlega að Kit væri til alls trúandi, og áleit því að réttara væri að fara að öllu með hægð og gætni. — Það er ástæðulaust að færa þig í spennitreyj- una, ef að þú hegðar þér almennilega, — stamaði hann. Kit hló kuldalega og færði sig frá dyrunum. Cris- pin og verðirnir fóru, og lokuðu á eftir sér. Fótatak þeirra heyrðist fjarlægjast eftir göngun- um. Kit beið ekki boðanna. Hann þreif fötin úr rúm- inu og athugaði rúmstæðið. Bríkumar vom greypt- ar vandlega inn í gaflana, og um allt mjög sterklega búið. Hann þóttist sjá, að gæti hann losað aðra rúmbríkina, mætti nota hana sem vogstöng til þess

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.