Nýja dagblaðið - 07.10.1937, Síða 1

Nýja dagblaðið - 07.10.1937, Síða 1
Geríst kaupendur Nýja dagblaðsíns strax í dag! rWJIA IDA.Gr IB ILAJÐ II \Ð 5. ár. Reykjavíb, fimmtudaginn 7. október 1937. 232. blað ANNÁLL 280. dagur ársins. Sólaruppkoma kl. 6.52. Sólarlag kl. 5.38. Árdegisliáflæður í Reykjavík kl. 6.45. Næturlæknir er í nótt Ólafur Þorsteinsson, D-götu 4, sími 2255. — NæturvörSur er í lyfja- búðinni Iðunn og Reykjavíkur Apóteki. Ljósatími bifreiða er frá kl. 6.05 að kvöldi til 6.25 að morgni. Skemmtanir og fundir. Gamla Bíó: Gimsteinaránið mikla. Nýja Bíó sýnir kl. 9: Sýðasti Mohikan- inn. — Framsóknarfélögin halda skemmtifund að Hótel Borg kl. 8.30. Skipafregnir. Esja var á Sauðárkróki í gærkvöldi. Súðin fór frá Vestmannaeyjum í gær tO Hornafjarðar. — Lyra fer kl. 7 í kvöld í leið til Bergen. Nova var á Ak- ureyri í gær. Píanóhljómleikar. Rögnvaldur sonur Sigurjóns Markús- sonar, helt í gærkvöldi hljómleika í öðru kvikmyndahúsinu fyrir fullu húsi. Rögnvaldur er aðeins 19 ára, en virðist vera búinn að ná óvenjulegum þroska sem píanósnillingur. Áheyrendur fögn- uðu leik hans hvað eftir annað með miklum fagnaðarlátum. Þóttust marg- ir finna glöggt ættarmót með Rögn- valdi og frænda hans, Markúsi heitn- um Kristjánssyni. Verður síðar sagt frá hljómleik þessum hér í blaðinu. Ingrid krónprinsessa var meðal gesta á íslenzku garðyrkju- sýningunni í Kaupmannahöfn fyrir nokkrum dögum. Stærstí saltfísksmarkaðurínn er í Portúg en portúgalskír togarar eru nú að koma af veiðum frá Nýfundnalandí í lok seinasta mánaðar voru salt- fisksafurðabirgðirnar í öllu landinu um 14.000 smál. Af þeim er fyrirfram selt um 600—800 tonn til Suður-Ame- ríku og verður það flutt út smám- saman á næstu mánuðum. Einn skips- farmur, 1200—1300 smál., verður send- ur tl Ítalíu í þessum mánuði. Að öðru leyti mun ekki neitt víst um sölu á þeim fiskbirgðum, sem voru hér 1 lok sl. mánaðar. Gert er ráð fyrir að Portúgalar verði stærstu saltfiskskaupendurnir á næst- unni, en ekki er enn vitað með vissu hvenær þeir muni byrja fiskkaup sín. Skip þeirra eru nú sem óðast að koma frá Nýfundnalandi og fer það eftir því, hversu mikið þau hafa aflað, hvenær þeir þurfa að hefja fiskkaup frá öðrum löndum að nýju. Litlar vonir eru um það, að hægt verði að selja fisk til Spánar á næst- unni. í sumar var reynt að selja einn farm til stjórnarinnar, en samningar tókust ekki, vegna þess að hún gat ekki sett næga tryggingu fyrir borg- uninni. Útflutningurinn á þessu ári. Fyrstu níu mánuði ársins hefir verið selt af þessa árs framleiðslu eins og hér segir: Til Ítalíu 5350 smál. — Portugal 4500 — — Englands 11000 — — Frakklands 410 — — Danmerkur 500 — — Cuba 620 — — Brazilíu 500 — — Argentínu 270 — — Egyptalands 300 — — Bandaríkjanna 30 — Samtals 13580 smál. Af fyrra árs framleiðslu hafa verið seld á þessu ári um 6000 smál. til Por- tugal, 2700 smál. til Ítalíu, 900 smál. til Spánar og um 1000 smál. til Ítalíu og víðar. Verð á saltfiskinum má heita alveg óbreytt frá því, sem var á síðastl ári. Ræða Roosevelts vekur athyglí um allan heím Henni er líkt við ræðuna, sem Wilson flutfi áður en Bandaríkin sögðu Þjóð- verjum stríð á hendur 1917 Isfiskssala. Maí seldi afla sinn í Grimsby í gær, 980 vættir fyrir 1084 sterlingspund. Smygl. Nýlega fundu tollþjónarnir fjórar flöskur áfengis og nokkur hundruð vindlinga, sem ætlunin hafði verið að smygla í land, um borð í togaranum Ólafi. Málið hefir verið fengið í hend- ur lögreglunni til rannsóknar og dóms- álagningar. Leikfélag Reykjavíkur er að hefja leikstarfsemi sína og verður fyrsta sýning þess í kvöld. Mun það sýna skopleikinn ,Þorlákur þreytti' eftir Femer og Neal. Emil Thoroddsen hefir staðfært leikinn. Leikstjóri er Indriði Waage, en aðalhlutverkið leik- ur Haraldur Á. Sigurðsson. Ægir. September-hefti Ægis er nýkomið út. Fyrsta greinin er um svifrannsóknir í þágu fiskiveiðannna, rituð af dr. Finni Guðmundssyni, sem ráðinn hef- ir verið starfsmaður við fiskideild At- vinnudeildar Háskólans. Aðrar greinar í ritinu fjalla um fiskirannsóknir, á- höld til fiskileita, síldveiðarnar, At- vinnudeildina, dragnótaveiðarnar og margt fleira. Húsmæðraskólinn á Laugalandi í Eyjafirði var vígður og settur síðastliðinn sunnudag að við- stöddum miklum mannfjölda. Athöfn- in hófst með guðsþjónustu, er Benja- min Kristjánsson flutti. Davið Jónsson á Kroppi rakti sögu skólamálsins. Kristján Eggertsson flutti ræðu. Einar Árnason minntist hin eldra Lauga- landsskóla og forstöðukonu hans, Val- gerðar Þorsteinsdóttur. Sigrún Ingólfs- dóttir setti skólann og talaði til náms- meyja. Gegnir hún forstöðustörfum, unz Valgerður Halldórsdóttir frá Hvanneyri tekur við. Vígslusöngur og skólasöngur var fluttur af blönduðum kór. Voru lög eftir Björgvin Guð- mundsson, en textar eftir Friðgeir H. Berg. Skólinn hefir fengið nýjan hús- búnað. Eru húsgögn öll smíðuð í hús- gagnavinnustofu Ólafs Ágústssonar. Eru þau vönduð mjög og öllu hagan- lega fyrir komið í skólastofum og svefnherbergjum. Námsmeyjar eru 28. — FÚ. Úr Suður-Þingeyjarsýslu er skrifað að heyafli muni vera í meðallagi. Sláttur byrjaði seint og hey- skapartíð vaY erfið í júlímánuði. Töðu- fengur var í minna lagi. í ágústmánuði og fyrstu viku septembermánaðar var hagstæð heyskapartíð, náðist því mest- ur hluti útheys með góðri verkun. En síðasti heyskapurinn hefir hrakizt og sumstaðar er ekki fullhirt enn. Þó komu góðir þurrkar 27. og 29. septem- ber og munu þeir hafa dugað flestum. LONDON: Roosevelt forseti er nú á ferðalagi um helztu stórborgir Bandaríkjanna og flytur erindi um stjórnmál allsstað: ar þar sem því verður við komið. í fyrradag flutti hann ræðu, sem vakið hefir heimsathygli og talin er einn merkasti atburður, sem gerzt hefir í alþjóðastjórnmálum undanfarið. í sumum blöðum er þessari ræðu líkt við hina frægu ræðu, sem Wilson forseti flutti rétt áður en Bandaríkjamenn lýstu yfir þátttöku sinni í heimsstyrj- öldinni. í ræðu sinni niinntist forsetinn á það, að nauðsynlegt væri að koma á sameiginlegum átökum til þess að kveða niður þau öfl, sem eru á vegi með að granda vestrænni menningu. Jafnframt lýsti hann samúð Banda- ríkjannna við alla þá viðleitni, sem miðaði að því að varðveita samhjálp og samábyrgð þjóðannna. Heimsblöðin hafa rætt mikið um þessa ræðu Roosevelts. Telja brezk blöð aö hún geti haft mikla þýðingu og með henni sé bundin endi á ein- angrunarstefnu Bandaríkjanna. Þýzk blöð segja fátt um ræðuna og í Ítalíu er aðeins sagt frá henni í 5 línum á öftustu síðu í einu blaði Rómaborgar. í Genf hefir þessi ræða Bandarikja- forsetans haft mjög mikil áhrif. Hefir hún vakið hjá mönnum þær vonir, að Bandaríkin mundu nú standa algjör- lega með Þjóðabandalaginu í ályktun- um þeim, sem það tekur um helztu að- kallandi vandamál, eins og styrjaldirn- ar á Spáni og í Kína. — FÚ. Afkoma hrezkra fisk- veiða með lakasta móti. 4 smálestir af kolum þurfti til veiða á einni smálest af fiski. LONDON: Skýrslur um fiskveiðar Englendinga á árinu 1936 hafa verið birtar. Sam- kvæmt þeim varð afkoman með lak- asta móti. Veiði var óhemju mikil, og verð þar af leiðandi lágt, en kostnaður mikill. Talið er að 4 smálestir kola hafi þurft til veiða á einni smálest fiskjar. — FÚ. Simdmeistaramót í. s. í. Þrjú ný met Sundmeistaramót í. S. í. hófst í fyrrakvöld .og voru þá sett þrjú ný ís- landsmet. Jónas Halldórsson úr Ægi synti 100 m., frjáls aðferð, á 1. mín. 0.4 sek. Ingi Sveinsson úr Ægi synti 200 m. bringusund á 3. mín. 6.3 sek. Erla ísleifsdóttir úr Vestmannaneyjum synti 100 m., frjáls aðferð, á 1 mín. 22.5 sek., en hið fyrra met átti hún sjálf. Sundmótið heldur áfram í kvöld og mun fara fram: 400 m. sund, frjáls aðferð, karlar, 9 keppendur. 50 m. bringusund, telpur innan 14 ára, 6 keppendur. 25 metra sund, frjáls aðferð, drengir innan 12 ára, 6 keppendur. 100 metra baksund, karlar, 3 kepp- endur. BÚIÐ AÐ SLÁTRA ca. 257 pús ijár í lok seinustu viku var búið að slátra 256.663 fjár á öllu landinu, þar af voru 243,834 dilkar. Stendur slátrunin nú sem hæst yfir á öllum helztu sláturstöðum landsins. 12 íslenzkir stúdentar stunda nám í Svíþjóð Útvarpið skýrði frá því í gærkvöldi, að 12 íslenzkir stúdentar stundi nám við sænska háskóla nú í vetur. Af þeim eru 9 í Stokkhólmi, 2 í Uppsölum og 1 í Lundi. Er það Áskell Löwe, sá sem hlaut gullpennaverðlaun Menntaskól- ans í vor fyrir ritgerð um Hornbjarg, og les hann grasafræði. Búið að kjósa í kirkjuráð Prestar kusu sr. Ásmund og sr. Þorstein Briem, en Ólaíur Björnsson og Gísli Sveinsson voru kosnir afi safinaðarfiulltrúum Kosningar 4 fulltrúa til kirkjuráðs hafa staðið yfir í sumar og voru niður- stöður þeirra birtar í gær. Kusu hér- aðsfundir safnaðarfulltrúa í 17 pró- fastsdæmum. Ólaf B. Björnsson á Akranesi með 146 atkv. og Gísla Sveinsson sýslumann með 97 atkvæð- um, en prestar þjóðkirkjunnar kusu Ásmund Guðmundsson prófessor með 50 atkvæðum og sr. Þorstein Briem með 38 atkvæðum. Biskup er sjálf- kjörinn formaður kirkjuráðsins. Þetta er í annað sinn, sem kosið er í kirkju- ráð, en starfstímabilið er fimm ár. — Kirkjuráðið hefir ráðgjafaratkvæði og tillögurétt um þau mál kirkjunnar, sem heyra undir löggjafarvaldið eða sæta konungsúrskurði og samþykktar- atkvæði og ákvörðunarrétt um guðs- þjónustur kirkjunnar, veitingu sakra- menta, kirkjulegar athafnir og helgi- siði, en þó ekki fyrr en tillögur ráðs- ins hafa verið samþykktar á presta- stefnu. Að öðru leyti er starfssvið þess að vinna að eflingu kikjulífs í land- inu og styrkja menningaráhrif þjóð- kirkjunnar. Framsóknarmenn halda satnkomuíkvöld að Hótel Borg Framsóknarfélögin í Reykjavík halda skemmtun á Hótel Borg kl. 8.30 í kvöld. Hefst hún með sameiginlegri kaffi- drykkju og verður skemmt með ræðum og söng meðan setið er undir borðum. Að kaffidrykkjunni lokinni verður dansað. Séu einhverjir, sem heldur óska eftir að spila, verður þeim séð fyrir spilum og húsrúmi til þess. Framsóknarmönnum í Reykjavík og flokksmönnum utan af landi, sem staddir eru í bænum, er velkomið að hafa með sér gesti. En þess er óskað, að menn tryggi sér aðgöngumiða í tíma, vegna veitinganna. Aðgöngumiðar verða seldir á af- greiðslu Nýja Dagblaðsins í dag til kl. 6 og við innganginn. Vei'ður faríð að búa til heymjöl hér á landí? Landbúnaðarráðherra hefir falið Agli Thorarensen kaupfélagsstjóra, sem nú er staddur erlendis, að kynna sér nýjustu heyþurrkunaraðferðir með vélum. Hefir ein aðferð þótt gefast sérstaklega vel á Norðurlöndum, en hún er í því fólgin að framleiða nokk- urskonar heymjöl, sem siðan er gefið með öðrum fóðurbæti. Þykir líklegt að slík heyþurrlcunar- aðferð geti komið að notum hér á landi og sé vel viðráðanleg kostnaðar- ins vegna, mun verða hafinn undir- búningur af hálfu þess opinbera um þaö, að gerðar verði tilraunir með hana hér á landi næsta sumar. Skiptar skodanir um stjórnmálatHenn Bjarni Benediktsson prófessor minn- ist Jóns heitins Þorlákssonar í grein í Morgunblaðinu í sambandi við Sogs- virkjunina og telur Jón Þorláksson verið hafa „mesta stjórnmálamann sinnar samtíðar hér á landi.“ í nýrri bók eftir sænska rithöfund- inn Thorsten Odhe, sem kynnt hefir sér málefni íslands, hefir þessi fræði- maður eftirfarandi ummæli um annan íslenzkan stjórnmálamann „Óhætt er að fullyrða að enginn nú- lifandi íslendingur hafi orkað meiru um að gera ísland að framfaralandi á nútímavísu, en Jónas Jónsson." .... „Síðan Jón Sigm-ðsson leið, hefir held- ur enginn íslendingur vakið aðra eins eftirtekt á landi sínu meðal Norður- landaþjóða eða annarsstaðar, eins og þessi gáfaði, menntaði og hagsýni stjórnmálamaður, sem jafnframt er óbifanlegur fylgismaður grundvallar- stefnu norræns frjálslyndis." Þessar skiptu skoðanir umræddra fræðimanna, benda til að erfitt sé fyr- ir samtíðarmenn að fella dóma um stj órnmálamenn. Hjartaslögum útvarpað. Sérkennileg útvarpstilraun var gerð í enska útvarpinu fyrir nokkrum dögum. Var hún fólg- in í því, að varpa út hjartaslög- um enska Olympíuhlauparans Jack Lovelock til allra hlust- enda brezka heimsveldisins. Til- raunin heppnaðist ágætlega. í Kapstad í Suður-Afríku heyrð- ust hjartaslögin skýrt og greini- lega, þrátt fyrir 1000 mílna fjarlægð. Lovelock er talinn hafa það, sem kallað er 100% hjarta. Hve stórar eru haföldurnar? Þegar talað er um stórsjó, er venjulega sagt, að öldurnar séu himinháar. Orðatiltækið er náttúrlega óákveðið, en hve há- ar eru þá öldurnar? Það er ekki auðvelt að svara því. Á opnu hafi hefir maður engan fastan grundvöll til að mæla frá. Þýzk- um haffræðingi, dr. Georg Weinblum, við hafrannsókna- deild í Berlín, hefir heppnazt að mæla stærð aldanna með ljósmyndamælingu. Á rann- sóknarferð á Atlantshafi mæld- ist ölduhæðin mest 18.5 m. og öldubreiddin allt að 300 metrum, þegar hvassast var. Maður getur þvi ætlað að hæstu öldur komist yfir 20 metra, sem er þriðjungi hærra en hingað til hefir verið haldið. Jafnvel öldubreiddin er talsvert meiri en haldið hefir verið.

x

Nýja dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.