Nýja dagblaðið - 23.10.1937, Page 1
AÐAL
Astasaga
árslns er
MELEESA
ID/^GfIBILPUÐIHÐ
5. ár. Reykjavík, laugardaginn 23. október 1937. 246. blað
Gomal hjón fórust í eldsvoða
ÍSLENZK KONA í HEIMSÓKN EFTIR
FIMMTÁN ÁRA
00
DVOL I KINA
Frú Oddný Sen ásamt tveímur
bðrnum sínum kom híngað í
í fyrrakvðld
Hun heidur að Japanir
hafi nú lagt heitnili
sitt í rustir
Með Selfossi í fyrrakvöld kom hingað
íslenzk kona, sem búsett er í Kína, á-
samt tveimur börnum sínum. Er það
frú Oddný Sen, dóttir Erlendar bónda
á Breiðabólsstöðum á Álftanesi, en
systir dr. Jóns E. Vestdal.
Tíðindamaður blaðsins hitti frúna á
heimili bróður hennar í gærdag.
Sen-fjölskyldan.
ANNÁLL
296. dagur ársins.
Sólarupprás kl. 7.37. Sólarlag kl. 4.39.
Árdegisháflæður í Reykjavík kl. 7.48.
Veðrið.
(í gærkvöldi kl. 5). Vindur allhvass
NA um allt land. Norðan lands er
nokkur snjókoma og 2—4 st. frost. Veð-
urútlit í Reykjavík í dag: NA-kaldi.
Léttskýjað.
Ljósatími bifreiða
er frá kl. 5.15 að kvöldi til kl. 5.10 að
morgni.
Næturlæknir
er í nótt Kristján Grímsson, Hverfis-
götu 39, sími 2845. — Næturvörður er í
Lyfjabúðinni Iðunn og Reykjavíkur
Apóteki.
Skipafréttir.
Gullfoss er á leið til Vestmannaeyja
frá Kaupmannahöfn. Goðafoss fer til
Hu'll og Hamborgar í kvöld kl. 10. Brú-
arfoss er á leið til Leith frá London.
Dettifoss kemur til Vestmannaeyja í
fyrramálið. Lagarfoss er á leið til Ber-
gen frá Djúpavogi. Selfoss er í Reykja-
vík. — Esja fór frá Seyðisfirði id. 4 í
gær áleiðis til Þórshafnar. Súðin er í
Búðardal. — Lyra er á leiö til Bergen.
— Drottningin fór frá Akureyri í gær-
kvöldi.
Messur á morgun.
í dómkirkjunni kl. 11, séra Friðrik
Hallgrímsson. í Laugarnessskóla kl. 2.
Garðar Svavarsson (Vetrarkoma). í
Dómkirkjunni kl. 5, séra Garðar Svav-
arsson. Við þessar guðsþjónustur allar
gefst mönnum tækifæri til að leggja
fram frjálsar gjafir til þess að standast
kostnað við kirkjulegt starf í úthverf-
um bæjarins.
Útvarpið.
19.20 Þingfréttir. 19.40 Auglýsingar.
19.50 Fréttir. 20.15 Erindi: Vetrardag-
skrá útvarpsins (Formaður útvarps-
ráðs). 20.40 Leikrit: „Útvarp á bænum",
(Brynjólfur Jóhannesson, Anna Guð-
mundsdóttir, Bjarni Björnsson, Gunn-
þórunn Halldórsdóttir). 21.15 Útvarps-
kórinn syngur íslenzk lög. 21.45 Dans-
lög. 24.00 Dagskrárlok.
Tímarit iðnaðarmanna,
4.—5. hefti, er komið út. Mest af efni
þess fjallar um iðnþingið síðastliðið
sumar. Þá eru birtar þar reglur gerðar-
dóms Landssambands iðnaðarmanna
og lög sambandsins. Síðasta greinin er
um rannsóknarstofnun háskólans og
fylgja henni myndir af húsinu og
nokkrum starfsmönnum stofnunarinn-
ar.
Nýja Bíó
hefir að undanförnu sýnt mynd að
nafni „Gullgrafararnir". Þar eru
skammbyssurnar lausar í loftinu og allt
gengur í eltingaleikjum og erjum. —
Aukamyndir eru teiknimynd og af
endasleppu brúðkaupi.
Botten Soot
og sonur hennar, Svend von Diiring,
halda fyrsta skemmtikvöld sitt í Gamla
Bíó í kvöld kl. 7.15. Skemmtiskráin er
fjölbreytt. Aðgöngumiðar fást í Hljóð-
færahúsinu og 1 bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar.
Fyrsti vetrardagur.
í dag er fyrsti vetrardagur og fer
skólasetning fram í mörgum af héraðs-
skólunum í dag. í þetta skipti vill svo
til, að frost og kuldar ganga einmitt í
garð í sama mund sem talið að vetur-
inn byrjar. Hér sunnanlands eru þetta
fyrstu frostin, sem teljandi eru.
Húsbruni.
íbúðarhúsið Hjarðarholt í Glerár-
þorpi í Glæsibæjarhreppi í Eyjafirði,
brann til grunna fyrir miðaftan í
fyrradag og varð engu af innanstokks-
munum bjargað. Hús þetta var eign
hjónanna Guðrúnar Jakobsdóttur og
Árna Árnasonar. Ókunnugt er um, hver
upptök eldsins hafi verið.
Á Hólmavík
hefir verið slátrað um 7500 fjár í
haust. Meðalþyngd dilksskrokka hefir
reynzt 16 kg., en vænstir hafa dilkar
reynzt frá Stóra-Fjaröarhorni, Ósi,
Kirkjubóli og Húsavík, alls staðar um
og yfir 18 kg. að meðaltali.
— Eg hafði ráðið ferð mína hingað
til ársdvalar, eftir 15 ára búsetu i Kína
áður en ófriðurinn brauzt út í heima-
landi mínu, sagði frúin. Og einmitt fyr-
ir það, að ég fylgdi áætlun uin þetta
ferðalag, þá munaði minnstu að ekkert
yrði úr förinni.
— Heimili okkar er á lítilli eyju sem
heitir Amoy og er skammt undan
ströndu Fu-Kien-fylkis í Suðaustur-
Kína, gegnt Formosa, sem er mikið ey-
land, er Japanir eiga, og ekki alllangt
þar undan landi.
Mánuði áður en ég lagði upp, var
fólk tekið að flýja frá eynni Amoy, en
þar er samnefnd borg, með á að gizka
200 þúsund íbúum. Utan við borgina er
háskóli sem aðeins er 16 ára gamall,
stofnaður af kínverskum auðmanni,
sem einnig lagði honum til rekstursfé
fyrstu árin. Við þennan háskóla starf-
ar maðurinn minn. Hann er prófessor
í uppeldis- og sálarfræði. En við kynnt-
umst í Skotlandi, þegar hann stundaði
þar nám, og fluttist ég með honum til
Kína áriö 1922, þegar við giftum okkur.
Viku eftir að frú Oddný lagði af stað
með börnin, var árás gerð á Amoy. Þá
komu 8 japanskar flugvélar og 3 her-
skip, sem árásina gerðu. Býst frúin við
að nú sé háskólinn illa kominn, þar eð
Japanir viðast leggja sérstaka áherzlu
á að eyðileggja háskóla og aðrar menn-
ingarstofnanir Kínverja, en það, ásamt
hinum óvenju grimmilegu loftárásum
á varnarlaust fólk, hyggur frúin að sé
gert með þeim ásetningi, að brjóta á
bak aftur andlegt þrek kínversku þjóð-
arinnar.
Heimili Sen-hjónanna var í háskóla-
hverfinu, en tvö vígi voru sitt hvoru
megin við háskólann, en auk þess loft-
skeytastöð skammt til annarar hand-
arinnar og flugvöllur til hinnar. Með-
fram af þessum ástæðum óttast frúin
aö háskólinn og heimili hennar séu nú
rústir einar, þótt ekki hafi hún fengið
um það Ijósar fregnir. Hitt vissi frúin,
að íbúunum á Amoy hafði tekizt að
varna því, að Japanir næðu landgöngu
á eyna í tveim fyrstu árásunum sem
þeir hófu í því skyni.
Ferðalagið heim
— Frá Amoy lögðum við af stað 21.
ágúst sjóveg til Hong-Kong. En þaðan
héldum við með stóru, japönsku far-
þegaskipi 30. ágúst og komum með því
til Lundúna 3. október, eftir viðkomu
á ýmsum stöðum. Eftir hálfsmánaðar
bið í Englandi var Selfoss fyrsta skipið
heim til íslands, og tókum við okkur
far með því.
Þegar til Hong-Kong kom, geysaði
þar kólera, svo að fleiri hundruð manns
dóu daglega. „Það var ég hræddust við,“
sagði frúin stillilega.
Frúin lætur vel af
dvölinni S Kína
— Hvað segið þér mér um dvöl yðar
í Kína?
— Mér hefir liðið þar mjög vel. Hefir
mér fallið jafnvel við hvorttveggja,
landið og fólkið. Landið er fagurt og
frjósamt, tvær lirisgrjónauppskerur á
j hverju ári og a. m. k. ein grænmetis- |
j uppskera að auki upp úr sama land-
svæðinu, og þá um há-veturinn! Kín-
verjar þeir er ég kynntist, voru kurt-
i eisir, friðsamir, glaðlyndir, hreinskiln-
j ir og orðheldnir.
— En hvernig var með málið?
I — Ekki glapti fyrir mér íslenzkan.
Eg hefi aðeins einn íslending fyrir hitt,
öll þessi ár. Það var frú Steinunn Hays,
hún var gift amerískum trúboða, og
það var strax fyrsta árið sem ég var í
Kína.
— Annars eru mállýskurnar margar,
jafnvel margar í sama fylkinu, og frá-
brugðnar, svo menn skilja ekki hvorir
aðra, en ritmálið er sameiginlegt, og
það heldur kínversku þjóðinni sam-
einaðri. Eg þyki tala sæmilega Amoy-
mállýsku, en ritmálið hefi ég hvorki
lært að lesa né skrifa. Hinsvegar get
ég bjargað mér í „alþjóðarmálinu“, en
það nefnist „mandarin" og var upphaf-
lega skyldunámsgrein opinberra starfs- '
manna, en þeir nefnast í Kína mand-
arínar, en nú er þetta mál, með út-
breiðslu skólanna.að verða almennings-
eign. Annars er mandarin mállýska
Peking-byggðarlagsins, en Peking var
höfuðborgin.
Miklar framSarir
í Kína
Annars hafa orðið alhliða framfarir
hjá kínversku þjóðinni síðan byltingin
varð 1911, enda miða Kínverjar tíma-
tal sitt við byltinguna, segir frúin, nú
er ártalið 26 í Kína.
— Er komin á skólaskylda hjá ykk-
ur?
— Nei, en skólum hefir fjölgað geysi-
lega, flest börn læra nú að lesa og
skrifa og þá jafnframt fleiri náms-
greinar. Og hafi einhverjir ekki notið
fræðslu um tvítugt, þá er gengið í það,
einkum af stúdentum, að uppfræða
þetta fólk.
— Það er talið, segir frúin, að ef Ja-
panir hefðu frestað árásum sínum að-
eins í tvö ár enn, þá hefðu Kínverjar
reynzt óvinnandi fyrir þá. Svo stór-
stígar hafa framfarirnar verið og al-
hliða, einkum á allra síðustu árum.
Kmversku
Islendingamir
— Signý litla, sem nú er 9 ára, og
frúin kinkar kolli til litlu dótturinnar,
Frh. á 4. síðu.
JAPANIR
drepa 30 amer-
íska borgara
LONDON:
Bardögunum við Shanghai heldur
áfram sleitulaust. Sprengjur úr flug-
vélum Japana féllu í gær niður yfir
þann hluta alþjóðahverfisins, sem
telst til gæzlusvæðis Bandaríkjanna,
þrjátíu amerískir hermenn voru drepn-
ir, og allmargir særðust.
Við Tazan, þar sem aðalorrustan á
Shanghai-vígstögðunum fer nú fram,
telja báði stríðsaðilar sig liafa sótt
fram.
Kínverska stjórnin segir, að her Kín-
verja hafi neytt Japani til þess að
draga saman lið sitt, og stytta víglín-
una á þessum slóðum. — FÚ.
hér í bænum
ummiðjandag
í gær
Kl. um hálf þrjú í gær varð
eldur laus í húsinu nr. 16 við
Bergþórugötu. Eldurinn greip
fljótt um sig og varð húsið al-
elda á svipstundu og brann til
kaldra kola áður en við nokkuð
varð ráðið og fórust gömul hjón,
sem bjuggu á efri hæð, án þess
að við yrði gert.
Tildrög þessa hörmulega slyss
voru þau, að Lára Valdadóttir,
sem bjó í austurenda neðri hæð-
arinnar, hafði beðið dóttur sína,
9 ára gamla, að taka til íbúð-
inni, en sjálf fór hún til vinnu
úti í bæ að afloknum hádegis-
verði.
Tók dóttir hennar til að bóna
gólfin og gekk jafnaldra hennar
úr nágrannahúsi að því starfi
með henni. Fannst telpunum,
að ekki myndi nægja að bóna
gólfin, heldur þyrfti að þvo þau.
Ákváðu þær að velgja vatn í því
augnamiði. Virtist þeim, sem
dautt væri í eldavélinni og
hugðust því að kveikja upp í
henni, en raunverulega hafði
Lára falið eldinn áður en hún
fór út. Þar eð þær fundu engan
eldspýtnastokk, fengu þær hann
að láni hjá mæðgum, sem
bjuggu í austurenda á efri hæö.
í vesturenda uppi bjuggu gömlu
hjónin sem inni brunnu, Ástríð-
ur Jónsdóttir og Kristófer Bárð-
arson, en auk þeirra var dóttir
þeirra, Jónína, heima.
Þegar telpurnar höfðu fengið
eldstokkinn, vættu þær pappírs-
blað í benzíni úr leirbrúsa sem
geymdur var í skáp í eldhúsinu,
og að líkindum hefir verið not-
að til að hreinsa föt, og
kveiktu í, en það fuðraði upp
og virtist síðan ætla að kulna
út. Þá hellti önnur telpan úr
benzínbrúsanum og gaus nú
skyndilega mikill blossi út úr
eldavélinni og missti hún við
það brúsann á gólfið. Komst
loginn þegar í benzínið og læst-
ist óðar um allt eldhúsið. Þó
sluppu telpurnar út litt brennd-
ar.
Stúlkan, sem lánað hafði eld-
spýturnar, heyrði óp telpnanna
og kom hlaupandi niður, og
móðir hennar á eftir. Hljóp
stúlkan út til þess að gera
slökkviliðinu aðvart, en móðir
hennar reyndi að kæfa bálið,
með því að kasta gólfmottum á
eldinn.
í þessum svifum kom Jónína,
dóttir gömlu hjónanna, sem
inni brunnu, niður af loftinu.
Lagði logann út um opnar eld-
hússdyrnar í áttina til stigans,
og hamlaði henni að fara upp
aftur, en er hún sá, hvar komið
var, leitaði hún aðstoðar verka-
manna, sem voru að vinna þar
skammt frá, til að bjarga for-
eldrum sínum. En þegar þeir
komu á vettvang, var húsið tek-
ið að loga og uppgangan alelda.
Þó komst einn þeirra eitthvað
upp í stigann, en varð frá að
Frh. á 4. síðu.