Nýja dagblaðið - 23.10.1937, Side 2

Nýja dagblaðið - 23.10.1937, Side 2
2 N Y J A D A GBLAÐIÐ Norðlenzkt dilkakjöt í heílldsölu og smásölu Svið og mör. Geríð kjötinnkaupm sem fyrst, Þér fáiö pað vænst hjá okkur. Kj ötverzlunin Herðubreið Fríkirkjuvegi 7. Sími 4565. Matargerðín, Laugavegí 58 Býður yður í sunnudagsmatinn: glænýtt folaldakjöt og' nautakjjöt í buff og gullash. Elnnlg léttsaltað folaklakjöt, dllka- kjöt o. fl. Hringið í síma 3827. Höfum landsíns mesta úrval ai nýjum bíl- umíbæjarakstur. - Opíðallansólarhríngínn BIFREIÐASTÖÐ ÍSLANDS Sími 1540 (þrjár línur). Nú er kalf og vetur að ganga í garð. Fyrirliggjandi gott úrval af hlýjum og góðum vetrar- fataefnum. Fötin frá kr. 125.00. Sömuleiðis svart og blátt sparifataefni. Klœ&averzlunin (iu&m. B. Vihar. Sími 3245. — Laugaveg 17. M.s. Dronning Alexandrine fer mánudaginn 25. þ. m. kl. 8 síðd. til Kaupmannahafnar (um Vestmannaeyj ar og Thors- havn). Farþegar sæki farseðla fyrir kl. 3 e. h. í dag. Tilkynningar um vörur komi sem fyrst. Jes Zimsen Skipaafgreiðsla Tryggkgöíu. Sími 3025 K I 1 a&eins Loftur. Góð gjöf: Þœíííp úr sögu Reykjavíkur Pæst hjá bók8ölum. Úrvals spaðkjöt í faeílum, hálium og kvart tunnum nýkomið. Pantið sem iyrst, meðan úr nógu er að velja Samband ísl. samvinnuiélaga Sími 1080. Til Keflavíkur, Garðs og Sandgerðís daglega tvisvar á dag. Steindór, sízni 1580. ♦♦♦♦♦♦♦< H0W TO "KEEP EDUCATED’’ Read Daily the World-wide Constructive News in The Christian Science Monitor An lnternational Daily Newspaper It gives all the construclive vrorld news but does not exploit crimo and scandal. Men liko the column, "The World’s Day”—news at a glance for the busy rcadcr. It lias intcresting fcature pages for all the family. A Weekly Magazino Scction, written by distinguished authorities on eco- nomic, social and political probloms. gives a survey of world affairs. The Christian Science Publishing Society One, Norway Street, Boston, Massachusetts Please enter my subscription to The Christian Science Monitor for a period of □ 1 year $9.00 □ 6 months $4.50 □ 3 months $2.25 Q I month 75c Wednesday issue, including Magazine Section: 1 year $-2.60; 6 issues 25c Name Address________ SAMPLE COPY ON REQDEST Við, sem enn erum ung, en munum þó 15—20 ár aftur í tímann, minnumst þess, að hafa heyrt hinar ægilegustu og ótrú- legustu sögur um lífið á Siglu- firði. Þeir, sem dvalið höfðu sumarlangt í síldinni, töluðú margt, er þeir voru komnir það- an. Okkur var ságt frá bardög- um milli heilla skipshafna, eða á rnilli Norðmanna og íslend- inga. Með hrollkaldri hrifningu hlustuðum við á frásagnir um lífið í „brökkunum“, um laus- lætið, drykkjuskapinn og knæp- urnar, um hlaðafla af síld og ótrúlega hátt kaupgjald. Það var einhver spennandi æfintýra- blær yfir flestum þessum sögum, allir þessir útlendingar, öll þessi skip, hinar ótrúlegu fjárhæðir, sem hægt var að afla sér á skömmum tíma, fólksmergðin og hið fjöruga, slarkfengna skemmtanalíf. Já, þó að þessar sögur væru allægilegar, langaði okkur mörg áreiðanlega til að fara til Siglufjarðar í síldina. ; En hafi eitthvert okkar gengið svo langt að fara til mömmu j og pabba og biðja um leyfi til j þess, hefir svarið, a. m. k. fyrst, verið það sama hjá flest- um. „Nei, barnið gott, þangað hefir þú ekkert gott af að fara“. Sum okkar fengu því ekki : að fara og hafa aldrei verið í j síld á Siglufirði. Önnur fengu I óskir sínar uppfylltar og dvöldu j margsinnis sumarlangt í þess- ; um æfintýrabæ. Hvort þau hafa I öðlast þar gull og 'gæfu, eru þau ein til frásagnar um. En eitt er víst, að mörgum fannst eins fljótlegt að eyða peningunum ; og afla þeirra, og gæfan .hverf- ul og dutlungafull — — eins og síldin. Lífið á Siélufirði Blaðinu hefir borizt meðfylgjandi grein frá ung- um menntamanni, sem dvalið hefir á Siglufirði. Til- lagan, sem hann kemur fram með, hefir talsvert verið rædd og undirbúin af áhugamönnum á Siglufirði, en fleiri og fjársterkari aðilar verða að koma til sög- unnar, ef af framkvæmdum ætti að geta orðið. Væri ekki rétt að síldarverksmiðjurnar og aðrir atvinnu- rekendur, sem láta stunda þar atvinnu á sumrin, legðu fram skerf til þessarar framkvæmdar? Á síðari árum hefir margt breytzt um Siglufjörð. Bærinn hefi smám saman stækkað og prýkkað. Útlendinga gætir þar miklu minna en áður, svo að það er ekki lengur hægt að kenna þeim um það, sem aflaga fer. Síldveiðin hefir færzt yfir á hendur íslendinga og er orð- in einn hinn arðbærasti atvinnu- vegur. Siglufjörður er ennþá höfuðborg síldveiðanna og lokkar til sín á hverju sumri þúsundir manna og kvenna. Hin seinustu ár hafa fleiri farið til Siglufjarðar en nokkru sinni fyr, og hafa nú margir haft tækifæri til þess að dæma sjálfir um sannleiksgildi sagnanna um lífið þar. Við, sem dvaiið höfum á Siglufirði undanfarin sumur, höfum komizt að raun um, að lífið hefir fágast á síðari árum, ef sögurnar hafa verið sannar, sem okkur voru sagðar í gamla daga. Lífið þar er ekki eins taumlaust og siðlaust og okkur hafði verið sagt. En það er þó svo slæmt, að margur ungur maður og stúlka tapar áreiðan- lega á veru sinni þar, jafnvel þó að farið sé þaðan með þunga pyngju. Það er óþarft að fjöl- yrða um það, sem er á allra vitorði, en það er mikill drykkju skapur á Siglufirði, tryllt og siðspillandi skemmtanalíf. Ekki ósjaldan kemur það fyrir, að menn fara „blankir" þaðan, jafnvel þó að þeir hafi unnið sér inn mikla peninga, en þeim hefir þá verið eytt í vín og skemmtanir. Þessi hlið málsins : er alvarleg og sárgrætileg, en hin er þó ennþá alvarlegri, að margt ungt fólk, sem ef til vill hefir farið í síldina beint úr for- eldrahúsum, bíður þar tjón á sálu sinni, týnir mörgu af sínu dýrmætasta í drykkjuskapnum og hringiðunni og finnst þetta ) vera eina lífið, sem vert sé þess að lifa. Sem betur fer eru ýmsir farnir að sjá, að við svo búið má ekki lengur standa og harma það mjög, að slíkt þurfi endi- lega að sigla í kjölfar eins af af helztu atvinnuvegum þjóð- arinnar. Þau skáld, sem skrifað hafa um lífið á Siglufirði, hafa aðeins lýst því með dökkum lit- um, en ekki bent á nein úrræði til hins betra. Góðtemplarar og margir aðrir hafa bent á þá leið að loka áfengisverzluninni. En flestir láta þetta allt saman í léttu rúmi liggja og hugsa að- eins, að þetta síldarfólk og sjó- j menn sé mesti trantaralýður, ! og þess vegna geti hegðunin ekki verið öðruvísi. Það er vel þess vert að reyna að gera sér grein fyrir því hvort þetta sé rétt, hvort rætur meinsins liggi hjá fólkinu sjálfu eða einhverju öðru. Hugsaðu þér, lesari góður, að þú sért á síldarskipi, sem legg- ur upp á Siglufirði. Við skulum gera ráð fyrir, að þið liggið inni j vegna veðurs, eða eins og oft er, að skipið sé fullt af síld og bíði affermingar. Þú hefir frí og ferð í þín beztu föt, þig langar í ein- hverja upplyftingu, einhverja tilbreytingu eftir sjóvolkið og stritið. Þú helzt ekki við um borð í grútarlyktinni og óþrifn- aðinum, sem alltaf fylgir bless- aðri síldinni. Þar er heldur ekk- ert við að vera. Nei, þú ferð í land og blandast fólksfjöldan- um, sem reikar um götur Siglu- fjarðar á sumarkvöldum og veit ekkert hvað hann á af sér að gera. Þú þekkir engan í bænum, og nú verðurðu að ráða við þig, hvað þú ætlar að gera, hvernig þú ætlar að fara að því að láta kvöldið líða notalega og skemmti lega. Geturðu nokkursstaðar feng- ið að hlusta á útvarp og skemmt þér við það? Nei, það er hvergi hægt. Er til nokkur lesstofa á Siglu- frði, þar sem þú getur fengið skemmtibækur og blöð til láns og lestrar? Nei, þú munt komast að raun um að svo er ekki. Ef til vll þarftu að skrifa bréf til vina og vandamanna, hvar geturðu gert það? Hvergi. Ef til vill þarftu að skrifa bréf hverja félaga þína til þess að spila „bridge“ eða tefla, hvar er tækifæri til þess? Hvergi. Það er ef til vill rigning, eins og oft á Siglufirði. Þú reikar um göturnar og finnst það vera fátt, sem hægt sé að gera, það séu flestar bjargir bannaðar. En svo að segja við hvert götu- horn í miðbænum er kaffihús. Þaðan heyrast dynjandi dans- lög, þar er glaumur og gleði fram á nótt. Áður en þú veizt af ertu kominn inn á eitt þeirra. Þú ert velkominn, og þér finnst, Framh. á 3. síðu.

x

Nýja dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.