Nýja dagblaðið - 11.11.1937, Síða 1

Nýja dagblaðið - 11.11.1937, Síða 1
AÐAL ÁSTASAGA ársins er MELEESA ID/^GflBIL^iÐIMÐ 5. ár. ; Reykjavík, fimmtudaginn 11. nóv. 1937. 262. blað ANNÁLL 315. dagur ársins. Sólaruppkoma kl. 8,45. Sólarlag kl. 3,38. — Árdegisháflæður í Reykjavík kl. 10,30. Ljósatími bifreiða er frá kl. 4,20 síðdegis til kl. 8,05 að morgni. Næturlæknir er í nótt Kristján Grímsson, Hverfis- götu 39, sími 2845. — Næturvörður er í Ingólfsapóteki og Laugavegs apóteki. Dagskrá útvarpsins: Kl. 8,30 Dönskukennsla. 10,00 Veð- urfr. 12,00 Hádegisútvarp. 13,00 Skýrsla um vinninga í happdrætti Háskólans. 15,00 Veðurfr. 18,48 Þýzkukennsla. 19,10 Veðurfr. 19,20 Lesin dagskrá næstu viku. 19,30 Þingfréttir. 19,40 Augl. 19,50 Préttir. 20,15 Erindi: „Mennskir menn“, I (Grétar Fells rithöfundur). 20,40 Einleikur á fiðlu (Þórarinn Guð- mundsson). 21,00 Frá útlöndum. 21,15 Útvarpshljómsveitin leikur. 21,45 Hljómplötur: Danslög. 22,15 Dagskrár- lok. Veðurútlit í Reykjavík: Minnkandi NV-átt. Bjartviðri. Held- ur kaldara. Veðrið. í gær var lægð fyrir norðan land, er» hæð fyrir sunnan. Ný lægð nálgaðist S.-Grænland. Vindur var hvass V og NV hér á landi með lítilsháttar skúr- um eða éljum á Norður- og Vestur- landi. Hiti var 1—5 st. um allt land. Mannslát. Jóhann Jóhannesson bóndi í Króki í ÍGrafningi, lézt aðfaranótt 9. þ. m. á sjúkrahúsi Hvítabandsins eftir þunga legu. Leikfélag Reykjavíkur sýnir gamanleikinn „Þorlákur þreytti" í kvöld kl. 8. Aflasölur. í gær seldu afla sinn í Grimsby tog- aramir Hafsteinn, 663 vættir á 610 sterlingspund, og Garðar 1620 vættir á 820 sterlingspund. Þeir nemendur sr. Magnúsar Helgasonar fyrv. skóla- stjóra, sem óska að skrifa undir ávarp til hans, eru beðnir að gera það í dag eftir hádegi í bókaverzlun Sigfús- ar Eymundssonar eða hjá skólastjóra Miðbæjarskólans eða Austurbæjarskól- ans. Háskólafyrirlestur á ensku. Ungfrú Grace Thornton flytur fyrir- lestur í kvöld í háskólanum um Rudy- ard Kipling. Fyrirlesturinn hefst kl. 8 og er öllum heimill aðgangur. Matvörukaupmenn breyta verzlunarháttum sínum. Yfir 80 verzlanir, sem eru í Félagi matvörukaupmanna í Reykjavík, aug- lýsa hér í blaðinu í dag þá breytingu á verzlunarháttum sínum, að fram- vegis verður enginn afsláttur gefinn á verði varanna. Jafnframt því. að þessi regla er upptekin, þá hafa þess- ar verzlanir fært verð á vörunum nið- ur í það sem þær treysta sér framast til, t. d. sykur um 10% og ýmsar aðrar vörur meira. Sérstaklega hefir verið lögð áhersla á það að lækka sem mest allar mestu nauðsynjasörur. Annar þáttur þessara breytinga á verzlunar- háttum matvörukaupmannanna er sá, að reyna að koma á staðgreiðslu og er verðið bundið við það að vörurnar sé greiddar við móttöku; þó geta menn haft mánaðarviðskipti við þessar verzlanir áfram með því skilyrði, að greitt sé mánaðarlega að fuilu, eftir á, 1.—10. hvers mánaðar, en ef út af ber þá verður kostnaður við innheimtu svo og vextir lagðir á og því bætt við vöruverðið. Matvörukaupmenn þessir telja, að með þessari reglu komist á meira réttlæti í viðskiptunum, því að oft muni það hafa komið fyrir, að kaupandinn, sem greiddi við búðar- borðið, fékk ekki afslátt, en hinn, sem borgaði á eftir og stóð illa í skilum íékk töluverðan afslátt. Ramsey MacDonald látinn Strandferðasjóður Jones Ramsey MacDonald, fyrv. for- sætisráðherra Englands andaðist í fyrrinótt um borð á skipi, sem var á leið til Suður-Ameríku, en þangað ætlaði hann til þriggja mánaðar dval- ar sér til hressingar. Hann var 71 árs að aldri. MacDonald var þrisvar forsætisráð- herra. Hann var kominn af fátæku sveitafólki, en hófst tiltölulega ung- ur til áhrifa hjá jafnaðarmönnum, Á stríðsárunum missti hann þó flest sln völd hjá flokknum, vegna pess að hann snerist öndverður gegn því að Bretar færu f stríð. Féll hann þess- vegna tvisvar við þingkosningar. 1918 og 1921. Vegur hans tók þá að vaxa að nýju. 1924 myndaði hann fyrstu jafnaðarmannastjóm f Englandi, w sú stjórn varð ekki langlíf. 1929 mynd- aði hann áftur stjórn og var þrotlaust forsætisráðherra þangað til 1935. Klofningur reis á þeim árum milli hans og jafnaðarmanna, sem endaði með þvi að MacDonald og nokkur hluti flokksins mynduðu þjóðstjórn með íhaldsmönnum. Ýms tíðindi — Fréttaritari Reuters í Tokio álít- ur að komið geti til mála að Japanir sendi fulltrúa á níuveldaráðstefnuna. Japanska stjórnin hefir ákveðið að fresta ákvörðun um það þangað til á stjórnarfundi 12. nóv. — Spanska stjórnin hefir flutt að- setur sitt frá Valencia til Barcelona. — Franska stjórnin hefir ákveðið að kalla þingið saman 16. þ. m. — Fimm Gyðingar voru skotnir í gærmorgun utan við Jerúsalem af arabiskum óaldarflokki. Jón Axel Pétursson gerir vanmátt- uga tilraun í Alþýðubl. í gær til að svara grein Jóns Árnasonar um kaup verkafólks í verksmiðjunum á Akur- eyri. J. Á. hafði sannað lið fyrir lið hve verksmiðjur samvinnumanna þola samanburð um kaup við sambærileg fyrirtæki. Jón Axel getur ekki hrund- ið einni einustu af röksemdum J. Á. Grein Jóns Axels er þess vegna full- komin uppgjöf algerður flótti á þeim vettvangi, þar sem deilan er háð. Samanburður Jóns Axels á sam- vinnufélögunum og verklýðssamtökun- um eins og Iðju, verður honum sízt til meiri gleði. Bændur hafa byggt upp sín félög af eigin ramleik, eigin fórn- fýsi og eigin elju. Aldrei hefir eitt einasta samvinnufélag beitt ofbeldi við nokkurn andstæðing eða keppinaut. Á Akureyri hafa samvinnumenn komið upp mörgum myndarlegum verksmiðj- um, allt af eigin ramleik. Þeir hafa veitt atvinnu í tugatali fólki, sem annars hefði verið atvinnulaust á göt- unum eða í enn meiri vanda. En allt í einu koma snáðar eins og Jón Axel, Jón Sigurðsson og fleiri gersamlega óviðkomandi menn, og stöðva vinnu í þessum fyrirtækjum með ofbeldi. Rétt hafa þeir engan til þess laga- legan eða siðferðilegan, annan en þann, sem stigamaðurinn hefir, er hann stöðvar ferðamanninn, setur skammbyssu fyrir brjóst honum og Frumvarp frá Þor- bergí Þorleífssyní Þorbergur Þorleifsson flytur frv. til laga um strandferða- sjóð. Stofna skal sjóð, er nefnist strandferðasjóður. Tilgangur hans er að stuðla að bættum samgöngum á sjó meðfram tröndum landsins með því að: a. að styrkja strandferðirnar með fjárframlögum, og einkum i því augnamiði að fjölga skipa- 'hðkomum á þær hafnir, sem annars verða útundan í því efni. b. Með því að leggja fram fé fcil kaupa á hentugum skipum ti. starndferða. Tekjur sjóðsins eru: i. 10% af öllum far- og farm- gjöldum með skipum milli hafna i.nnanlands. b. Afgangur, sem kann að i erð'a af því, sem veitt er í fjár- tögum til strandferða á hverj- vim tíma. c. Hverskonar aðrar tekjur, seni sjóðnum kunna að áskotn- ast eða ákveðnar kunna að ■ e 'i a síðar. Kú verður fé það, sem veitt er fjárlögum, ekki nægilegt til rekslrar starndferða, og ber þá strandferðasjóður, ef fé er fyrir hendi af árstekjum sjóðsins, segir: „Peningana eða lífið!“ Bezt sýnir það hinn auma málstað Jóns Axles, þegar hann reynir að sví- virða forstöðumenn Sís með því að þeir vilji ekki semja við viðurkenndan félagsskap verkamanna. Eins og mönnum er kunnugt af þeirri deilu, sem stendur yfir á Akureyri, er hér um fullkomnustu ósannindi að ræða. Samningar hafa strandað þar í meira en viku, ekki vegna þess, að það stæði á S. í. S. að taka upp samninga, heldur vegna þess að Alþýðusamband- ið hefir ekki gefið nein svör við þeim skilyrðum, sem S. í. S. setti fyrir samningsumleitunum. Það er sannar- lega ekki S. í. S. heldur Alþýðusam- bandið, sem þar sýnir styrfni og þjösnaskap í viðskiptum. Jón Axel ætti ekki að reyna að senda forráðamönnum Sambandsins hnútur eða kesknisyrði. Fyrir sumt af álygum sínum eins og um kúgum við verkafólkið á Akureyri, fær hann sennilega að þola sektardóma. En ef hann heldur lengra út á þeirri braut að bera sjálfan sig, Jón Sigurðsson og Jón Hinriksson saman við. forráða- menn samvinnufélaganna, má hann búast við að sá leikur endi á þann hátt, að þessir þrír Jónar í alþýðu- samtökunum, óski þess að þeir hefðu aldrei reynt að bera sitt algerða um- komu- og þýðingarleysi saman við menn, sem í mannsaldur hafa staðið í fararbroddi um hinar þýðingarmestu framfarir hér á landi. ÞORBERGUR ÞORLEIFSSON. hálfan hallan móti ríkissjóði“. „Eins og samgöngumálum okkar er nú komið, er ekki mikil hætta á, að þau héruð, sem liggja að stærri höfnunum, sem millilandaskipin koma á, séu ekki nokkurnveginn tryggð með að hafa ábyggilegar samgöngur. En fólkið í þeim héruðum, sem liggja að smærri og lakari höfn- Frh. á 4. síðu. MacDonalds mmnst í enska þínginu LONDON: Leiðtogar allra flokka í brezka þinginu minntust Ramsay Mac- Donald, þegar þing kom saman í gær, og síöan var fundi slitið. Chamberlain, forsætisráðherra dáðist aðallega að tvennu í fari hins látna leiðtoga: í fyrsta lagi hugrekki hans, er kom meðal annars fram í því, að hann hikaði ekki við að taka þá stefnu, sem hann taldi rétta, þótt það kost- aði hann bæði vini og hylli almenn- ings; og í öðru lagi, af hve mikilli snilld hann stjórnaði alþjóðlegum fundum, og sagði Chamberlain það hafa verið merkilegast vegna þess, að hann kunni ekkert tungumál utan ensku. Attlee sagði, að þjóðin myndi sakna þess manns, sem um rúmlega 30 ára skeið hafði verið meðal merkilegustu og glæsilegustu manna á þingi. Hann minntist á atburði ársins 1931, er myndað hefðu djúp milli MacDonalds og meginhluta þess flokks er hann hafði fram til þess tíma veitt for- ystu, djúp, sem aldrei var brúað, „og vér verðum að fela sagnriturum ó- kominna tíma, að dæma um þá atburði“„ bætti Attlee við. Attlee dvaldi í ræðu sinni aðallega við þann skerf, sem MacDonald hafði lagt til myndunar flokksins og vaxtar, og lagði áherzlu á forystuhæfileika hans. Sir Archibald Sinclair, leiðtogi frjálslynda flokksins, sagði m ,a. „lát- um oss vera sameinaða um að viður- kenna þá miklu hæfileika, sem Ramsay MacDonald hafði til að bera, sem leiðtogi og sem ræðumaður, fyrst og fremst vegna þess, hversu heill hann var. Hann hikaði aldrei við að fórna þjóð sinni kröftum sínum, og hann tók vinsældum og óvinsældum með sömu stillingunni“. FÚ. r Islenzkukennsla víð háskólann í Mel- bourne Ástralskur próiessor, dr. Lodewyckx, ræð- ir við Nýja dagblaðíð Hér í Reykjavík hefir dvalið um stund lærður gestur frá yngstu heimsálfunni. ÞessiÁstr- alíumaður, dr. A. Lodewyckx, prófessor í germönskum mál- um við háskólann í Melbourne, annarri milljónaborg Ástralíu, er nú hingað kominn i annað sinn. Fyrst kom hann hingað 1931, og var þá hér 4 mánuði; tvo mánuði í Reykjavík, 3 vikur hjá sr. Ófeigi í Fellsmúla, en notaöi hinn tímann til mikillar yfirferðar, fór landleiðina til Hornafjarðar, þaðan austur um land og norður, um Möðrudal til Akureyrar, en þaðan til Siglu- fjarðar og Vestfjarða, en síðan til Borgarfjarðar og Reykholts. — Ég fór þetta til þess að fá dálitla undirstöðu í íslenzku máli, sögu og menningu, segir dr.Lodewyckx í viðtali, sem Nýja dagblaöið á við hann, heimahjá honum, í húsi Jóns Sigurðssonar frá Kaldaðarnesi, skrifstofu- stjóra Alþingis, — og er nú kom- inn aftur, til nánari kynna og þá um leið til þess að heilsa upp á gamla kunningja og vini. Ég verð hér eitthvað fram yfir há- tíðir og hlýði á fyrirlestra hjá prófessorunum Sigurði Nordal og Alexander Jóhannessyni. — Þér eruð að búa yður undir íslenzkukennslu við Melbourne- háskóla þegar þér komið heim aftur. Hefir þá enginn kostur verið á norrænunámi við háskól- ana í Ástralíu? — Nei, og þeir, sem hafa lesið germönsk mál, hafa aðeins átt kost á forn-háþýzku, mið-há- þýzku og engilsaxnesku námi. Nú er ætlun mín að bæta við ís- lenzku. — Þetta er merkilegt nýmæli. Þvi ekki heldur gotnesku? — Já, við ættum auðvitað að hafa gotnesku á námsskrá há- skólans, en frá málfræðilegu sjónarmiði má íslenzkan kallast nálega jafnmerk gotneskunni en tekur henni langt fram sem bók- menntamál, og þess vegna vona ég að geta komið íslenzkunni að við háskólann næsta ár, i stað gotneskunnar. Stúdentunum er Framh. á 3. síðu. Flóttínn Srá staðreyndum VarnarskriS Jóns Axels í Alpýðublaðinu í gær

x

Nýja dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.