Nýja dagblaðið - 10.12.1937, Qupperneq 1
Skrifstofur
ÍYýja dagbláðsins
Lindargötu 1D.
Símar: 2353 og 4373.
Æfgreiðslan
Hafnarstræti 16. Sími 2323.
ID/\G. IB ll/’MÐ IIE
5. ár. Reykjavík, föstudaginn 10. desember 1937 287. blað
ANNÁLL
344. dagur ársins.
Sólaruppkoma kl. 10.13. Sólarlag kl.
2.26. Árdeglsháflæður í Reykjavík kl.
9.50.
Ljósatími bifreiða
er frá kl. 3.00 síðdegis til kl. 9.35 að
morgni.
Dagskrá útvarpsins:
Kl. 8,30 Enskukennsla. 10,00 Veður-
fregnir. 12,00 Hádegisútvarp. 13,05 Ti-
undi dráttur í happdrætti Háskólans.
15,00 Veðurfregnir. 18,00 Skýrsla um
vinninga í happdætti Háskólans. 19,10
Veðurfregnir. 19,20 Þingfréttir. 19,40
Auglýsingar. 19,50 Fréttir. 20,15 Erindi:
Fiskiveiðar íslendinga (Árni Friðriks-
son fiskifræðingur). 20,40 Tónleikar
Tónlistarskólans. 21,20 Útvarpssagan.
21,45 Hljómplötur: Harmóníkulög.
22,15 Dagskrárlok.
Næturlæknir
er nótt Bergsveinn Ólafsson, Há-
vallagötu 47, sími 4985. — Næturvörð-
ur er í Ingólfsapóteki og Laugavegs-
apóteki.
Veðurútlit í Reykjavík:
Allhvass norðan. Úrkomulaust.
Trúlofun.
Þann 7. þessa mánaðar opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Fanney Odds-
dóttir Mosfelli í Mosfellssveit og
Qunnar Daníelsson ráðsmaður á
Kirkjubóli við Reykjavík.
Axel V. Tulinius
fyrrverandi sýslumaður andaðist í
Kaupmannahöfn í fyrradag. Hann
hafði verið vanhelll um skeið og dvald
ist í Kaupmannahöfn síðustu mánuð-
ina .
Hófnin.
Tryggvi gamli fór á ísfiskveiðar í
gær. í gærkvöldi var von á norsku
kolaskipi.
Septíma
heldur fund í kvöld kl. 9. Erindi:
Leyndardómsfulli íbúinn.
Innbrotsþjófar.
Lögreglan hefir haft upp á mönn-
unum, sem brutust inn í bústað
franska ræðismannsins við Skálholts-
stíg. Voru það menn, sem lögreglan
hafði áður komizt í kynni við, sem
innbrotið frömdu og heita Árni K.
Eiríksson og Friðmar Sædal. Voru
þeir nýlega komnir austan frá Litla-
Hrauni. Tók lögreglan Friömar heima
hjá sér, þar sem hann var að gæða
sér á feng sínum og vísaðl hann á
félaga sinn og var hann handsam-
aður nokkru síðar.
Bifreiðarslys.
Kl. 1,15 í gær kom Bjarni Guð-
mundsson bifreiðarstjóri frá Túni í
Flóa á lögreglustöðina og tilkynnti,
að þegar hann ók inn Hverfisgötu
fyrir stundu síðan hefði drengur orð-
íð fyrir bifreið sinni og fótbrotnað.
Flutti Bjarni hann þegar á Landsspít-
alann. Slysið skeði með þeim hætti,
að drengurinn renndi sér á sleða nið-
ur hliðargötu í sama vetfangi og bif-
reið Bjarna bar að.
Barnaheimilið Sólheimar.
Að Sólheimum í Grímsnesi hefir
um nokkurra ára skeið verið rekið
bamaheimili og eru þar að jafnaði
40—50 börn á sumrin, en nokkru færri
á veturna. Aðstandendur heimilisins
hafa nú í haust tekið það ráð, að búa
tíl ýmsa muni, sérstaklega leikföng,
til að selja til ágóða fyrir starfsem-
ina. Munir þessir hafa að undanförnu
verið til sýnis í gluggum Vöruhússins
og verða þeir bornir 1 húsin í dag og
boðnir til kaups. Ætti fólik að bregð-
ast vel við, ekki síst þar sem sumir
munu kaupa eitthvað af svipuðum
munum fyrir jólin hvort eð er. Pant-
anir getur fólk gert í síma 4096.
Skipafréttir.
Gullfoss var í gær á leið til Leith
frá Kaupmannahöfn. Goðafoss var í
gær á leið til Vestmannaeyja frá Hull.
Brúarfoss var á Siglufirði í gær. Detti-
foss var væntanlegur að vestan og
Utgjðld bæjaríns haía aukízt á aðra
Japanir setja
Nankíng úrslítakostí
Kínverjum hefir
enn tekizt að
verja borgina
LONDON:
Japönsk flugv. flaug í gær yfir Nanking
og varpaði nlður bréfi undirrituðu af
Matsui yfirhershöfðingja Japana í
Kína, þar sem Nanking eru settir úr-
slitakostir, og þess krafizt að hún gef-
ist upp fyrir hádegi í dag ella verði
gerð stórkostleg loftárás á borgina.
í bréfinu er það tekið fram, að Jap-
anir líti á Nanking sem höfuðból
austrænnar menningar og að þeim sé
umhugað um að verja það frá eyði-
leggingu styrj aldarinnar.
í gær var barizt af mikilli grimmd
við útvarðarstöðvar Kínverja um-
hverfis Nanking. Japanir segja, að
nokkrar þeirra hafi verið eyðilagðar,
en Kínverjar segjast aftur á móti alls-
staðar hafa haldið velli. Hersveitir
Kínverja hafa gereyðilagt allar bygg-
ingar í úthverfum borgarinnar, þar
sem að Japanir gætu komið sér fyrir,
þá hefii- hvert einasta skýli á bökk-
um Yangtse verið brennt tU kaldra
kola og ennfremur öll skýli meðfram
járnbrautinni.
Kínverjar viðurkenna að borgin
Ching Kiang, stendur við Yangtse-
fljót skömmu fyrir austan Nanking,
sé komin í höndur Japana, en segja
að virkin í Ching-Kiang séu enn í
höndum Kinverja. FÚ.
Hlutley sis nefndín
undírbýr brott-
flutníng sjálfboða
lidanna
LONDON:
Undirnefnd hlutleysisnefndarinnar
kom saman á fund í London í gær og
samþykkti allar tillögurnar að einni
undantekinni, sem sérfræðinganefnd-
in lagði fyrir fundinn um það á hvern
hátt nefndin, sem fer til Spánar,
skuli haga störfum sínum. Einnig
samþykktl nefndin uppkast að samn-
ingum um að veita stríðsaðilum á
Spáni hernaðarréttindi. FÚ.
Sápa úr kolum
BERLÍN:
. í Þýzkalandi hefir tekizt að finna
aðferð til að framleiða feiti og sápu
úr kolum. Framleiðsla á þessum efn-
um er þegar 20 þúsund smálestir, en
á innan skamms að geta komizt upp
í 60 þúsund smálestir. FÚ.
norðan í gærkvöldi. Lagarfoss er á
leið til Noregs frá Austfjörðum. Sel-
foss er í Antwerpen. — Lyra fór frá
Bergen í gærkvöldi. — Drottningin
er væntanleg til Kaupmannahafnar á
morgun.
Aflasala.
Geir seldi afla sinn í Grimsby í
fyrradag, 1140 vættir á 1545 pund
sterling.
MUSSOLINT.
Mussoliní undírbýr
úrsögn Ifalíu úr
Þjóðabandalagínu
LONDON:
ítalska ráðuneytlð kom saman á
fund í gær í Palazzo di Venetia og að
fundinum loknum kom Mussolini út
á svalirnar á höllinni og tilkynnti að
á fundinum hefði verið rætt um fram-
tíðarafstöðu Ítalíu til Þjóðabanda-
lagsins og að stórráð fasista mundi
koma saman á laugardaginn kemur
til þess að taka endanlega ákvörð-
un um það mál.
Það þykir ekki leika nokkur vafi á
því, að ítalir ætli sér nú að segja sig
úr Þjóðabandalaginu og að ástæðan
fyrir því sé sú að Þjóðabandalagið
hefir ekki viðurkennt yfirráðarétt
Ítalíu í Abessiníu. Þá er þess einnig
minnzt í þessu sambandi, að þær
tvær þjóðir, sem eru aðilar ásamt
ítölum að sáttmálanum til baráttu
gegn kommúnlsma eru komnar úr
Þjóðabandalaginu. FÚ.
Fer Jugoslavía lika úr
Þjóðabandalaginu ?
LRP.
Samkvæmt síðdegisfrétt frá Wien
hefir orðrómurinn um það, að Ítalía
sé í þann veginn að ganga úr Þjóða-
bandalaginu vakið mikinn ugg meðal
Litla-bandalags þjóðanna og yfir höf-
uð meðal allra smáþjóða, sem litið
hafa á Þjóðabandalagið sem trygg-
ingu fyrir sjálfstæði þeirra og þjóðar-
réttindum. Við þennan ugg bætist það
einnig, að mjög dregur saman með
Júgóslavíu og Ítalíu síðustu dagana,
en Júgóslavía hefir allt til þessa verið
öruggur stuðnings-aðili Þjóðabanda-
lagsins.
Forsætisráðherra Jugóslavíu hefir
verið í heimsókn í Rómaborg nú í
vikunni og átt tal við Mussolini, Ciano
greifa o. fl. Eftir þessi viðtöl hefir
verið gefin opinber tilkynning um að
ítalir og Júgóslavar séu ákveðnir að
vinna saman á öllum sviðum.
FJARLÖGI N
Annarí umræðu fjárlaganna lauk í
gær, en atkvæðagreiðslunni var frest-
að þangað til í dag.
Ákveðið hefir verið, að „eldhúsdag-
urinn" 1 sambandi við 3. umr. fari
fram á föstudags- og laugardagskvöld
í næstu viku.
Skuldugír húsbænd-
ur síldarbræðslunn-
ar á Síglufírðí
Út af yfirlæti Alþýðubl. um
það hve vel foringjar úr þeim
flokki væru fallnir til að stjórna
síldarbræðslunni, var hér í blað-
inu bent á fjárreiður nokkurra
hinna helztu. Þegar Jón erind-
reki og Páll Þorbjörnsson fóru úr
verksmiðjustjórninni á miðju ári
1936 skulduðu þeir hvor um sig
um 1200 kr. og er ófrétt hvort
þeir hafa borgað það enn. Jó-
hann Guðmundsson yfirverk-
stjóri skuldaði 1500 kr. um ára-
mótin og sjálfur höfuðpaurinn
Gísli Halldórsson 6000 kr. Var
hæð skuldanna öll eftir mann-
virðingum, og sá þjónninn
skuldugastur sem efstur var.
Alþýðubl. fullyrti nú til að af-
saka sekt sinna manna að Þor-
móður Eyjólfsson hefði líka
skuldað, er hann fór úr stjórn-
inni. Út af þessum ósannindum
bað Þormóður bókara verk-
smiðjunnar um vottorð um þetta
atriði og fékk svohljóðandi yfir-
lýsingu dagsetta í gær:
Þórmóður Eyjólfsson tók eftir-
stöðvar launa sinna í verk-
smiðjustjórn þann 27. nóv. 1936
kr. 1749,46. M. Blöndal.
Aþýðublaðinu ætti að skiljast,
að einveldi þessu líkra manna
yfir stærsta atvinnufyrirtæki
landsins, nýtur hvorki mikils
trausts né virðingar.
Stúkan Frón
10 ára
Stúkan Frón er tlu ára í dag.
stofnuð 10. des. 1927. Að þessari stofn-
un stóðu ýmsir áhugasamir bindind-
ismenn úr stúkunum Verðandi og
Einingin. Stofnendur voru fáir, en nú
eru í stúkunni um 200 manns.
Stúkan Frón hefir frá upphafi þótt
eiga góðum mönnum á að skipa, sem
unnið hafa ötullega til framdráttar
bindindismálunum. Hún hefir og haft
forgöngu um ýms nýmæli, hélt t. d.
til hinn fyrsta stúkufund, sem út-
varpað var hér á landi, átti upptök-
in að Þingvallafundinum i sumar og
Framh. á 4. siðu.
Tíminn kemur út í dag
með ítarlegri frásögu um
garðyrkjusýninguna í
Khöfn eftir Bjarna Ás-
geirsson. Annar kafli af
Komandi ár eftir J. J. heit-
ir „Á að fórna frelsinu eða
gera lífsvenjubreytingu?“.
míllj. kr.
á síðasíl. ári
Þó verður eyðslan
langmest á þessu
ári
Útgjöld bæjarins fara stöðugt
hækkandi ár frá ári. Samkvæmt
bæjarreikingum fyrir árið 1936,
sem nýlega eru komnir út, hafa
útgjöldin þá hækkað á aðra
milljón kr. frá því, sem þau voru
á næsta ári á undan.
Samkvæmt rekstrarreikningi
1936 hafa útgjöld ársins numið
5.916 þús. króna. Samkvæmt
rekstrarreikningi 1935 hafa
raunveruleg útgjöld (tekjuafg.
frádreginn) numið þá 4.777 þús.
kr. Samkvæmt þessum gögnum
hafa útgjöld bæjarsjóðs orðið
1.139 þús. kr. hærri 1936, en þau
voru 1935.
Nú ber þess að gæta að þess-
ir rekstrarreikningar eru ekki
rétt færðir, því framlög til gatna
gerðar eru ekki færð á rekstrar-
reikningi, heldur talin vera
eignaaukning, þegar þessi út-
gjöld hafa verið færð á rekstrar-
reikninginn og fyrningar af göt-
um því felldar niður, verða út-
gjöldin alls 1936 6.225 þús. kr.
og 1935 5.098 þús. kr.
Raunverulega hafa því út-
gjöldin orðið kr. 1.136.000,00 —
einni milljón og hundrað þrjátíu
og sex þúsund krónum meiri
1936 en þau voru árið áður.
Árið 1934, sem var fyrsta ár
þessa kjörtímabils bæjarstjórn-
arinnar, voru útgjöld bæjarsjóðs
4.673 þús. kr. og hafa því hækk-
að um nær 400 þús. kr. árið 1935,
frá því sem var árið áður.
Á yfirstandandi ári má þá bú-
ast við þvi að útgjöldin verði
langhæst, sem m. a. má marka á
því, að fjárhagsáætlun þessa árs
er um 700 þús. kr. hærri en fjár-
hagsáætlun ársins 1936 var.
íhaldsblöðin skammast mikið
yfir því, að útgjöld ríkisins hafa
hækkað nokkuð á undanförnum
árum vegna aukins stuðnings við
atvinnuvegi landsmanna. Það
hafa verið framlög, sem í fram-
tíðinni munu svara fullum arði.
En hvert hafa hin auknu út-
gjöld Reykjavíkur farið?
Að langmestu leyti í aukið fá-
tækraframfæri, vegna þess, að
engrar hagsýni hefir verið gætt
í þeim málum og ekki reynt að
koma þar á neinum sparnaði,
(Framhald á 4. síðu.)