Nýja dagblaðið - 06.01.1938, Blaðsíða 1
ID/^GpIBIL^ÐIHÐ
6. ár. Reykjavík, fimmtudaginn 6. janúar 1938. 3. blað
ANN ÁLL
6. dagur ársins.
Sólarupprás kl. 10,18. Sólarlag kl.
2,49. — Ardegisháflæður í Reykjavík
kl. 8.
Ljósatími bifreiða
er frá kl. 3 síðdegis til kl. 10 ár-
degis.
Næturlæknir
er í nótt Kristín Ólafsdóttir, Ingólfs-
stræti 14, sími 2161. — Næturvörður
er í Ingólfs-apóteki og Laugavegs-
apóteki.
Dagskrá útvarpsins:
Kl. 8,30 Dönskukennsla. 10,00 Veður-
fregnir. 12,00 Hádegisútvarp. 15,00
Veðurfregnir. 18,13 Barnatími. 19,10
Veðurfregnir. 19,30 Hljómplötur: Létt
lög. 19,40 Augl. 19,50 Préttir. 20,15
Lúðrasveit Rvíkur leikur. 20,40 Leikrit:
„Misskilningurinn", skólaleikur frá
1867, eftir Kristján Jónsson skáld.
(Leikstj.: Lárus Sigurbjörnsson). 22,40
Danslög. 23,30 Dagskrárlok.
Áheit
á Strandarkirkju frá Á. Á. kr. 15,00.
Vélstjórafélag íslands
heldur jólatrésskemmtun sína að
Hótel Borg 12. janúar næstkomandi.
Trúlofun.
Á nýársdag opinberuðu trúlofun sína
ungfrú Kristín Gísladó.ttir, hrepp-
stjóra að Stóru-Reykjum, Jónssonar,
og Vilhjálmur Þorsteinsson að Húsa-
tóftum.
Hjónaband.
Á nýársdag voru gefin saman í
hjónaband af séra Garðari Þorsteins-
syni ungfrú Bergrós Jónasdóttir frá
Efri-Kvíhólma undir Eyjafjöllum og
Eyþór Erlendsson frá Helgastöðum í
Biskupstungum. Heimili þeirra er að
Merkurgötu 14, Hafnarfirði.
Nýútsprungin blóm.
Samkvæmt heimild fréttaritara út-
varpsins á Dalvík eru nú blóm, stjúp-
móðurblóm og bellis, nýútsprungin í
garði að Völlum í Svarfaðardal.
Anna Borg leikur
í danska útvarpið.
í dag kl. 6 síðd. eftir íslenzkum tíma
verður leikrit danska skáldsins og
prestsins Kai Munk, er hann nefnir
„Cant“, leikið i danska útvarpið. Fjall-
ar leikritið um Henrik 8. Englands-
konung og konur hans. Anna Borg
Reumert leikur aðalkvenhlutverkið,
Önnu Boleyn, eina af drottningum
Henriks 8. — FÚ.
Orrafundur
verður annað kvöld.
Til leiðréttingar
skal tekið fram, að Otti Sæmunds-
son er fæddur 20. okt. 1918 og að
móðir hans heitir Guðríður Ottadótt-
ir, en ekki Guðríður Árnadóttir eins
og sagt var í blaðinu í gær.
Gömlum kenn
ara íagnað
Gamlir nemendur af Samvinnu-
skólanum, sem búsettir eru í Vest-.
mannaeyjum, efndu til samkvæmis og
buðu til sín Jónasi Jónssyni til þess
að fagna sínum gamla skólastjóra og
kennara, nú þegar hann var þar á
ferð, og munu þeir þó mjög skiptir
að stjórnmálaskoðunum. Hafði sam-
kvæmi þetta verið hið ánægjulegasta
og ákveðið að stofnað skyldi í Vest-
mannaeyjum deild í Nemendasam-
bandi samvinnuskólans með þeim
12 nemendum, sem þarna áttu hlut
að.
„Samíylking"
í Reykjavík
Lítlar breytíngar á
lísta íhaldsíns
Samkvæmt fregnum, sem bráust úr
herbúðum socialista og kommúnista
í gær, benda allar líkur til þess, að
„samfylking" verði milli þessara flokka
í bæjarstjórnarkosningunum hér í
bænum.
Á fundi, sem fulltrúaráð socialista
hélt í fyrrakvöld var eftir harðar
deilur samþykkt með litlum atkvæða-
mun (35 gegn 27) að leita eftir sam-
starfi við kommúnista. Var kosin sér-
stök nefnd til að fara á fund þeirra
og ræða um sameiginlegan lista.
Munu kommúnistar strax hafa sett
þau skilyrði að fá tvö af efstu fjórum
sætunum á listanum, en þau munu
mega teljast nokkurnveginn örugg.
Mun samninganefnd socialista hafa
gengið að þessu, en fulltrúaráð þeirra
á enn eftir að samþykkja það. Mun
vafalaust ekki standa á samþykkt
þess, því Héðinn Valdimarsson hefir
ráð á meirihlutanum þar.
íhaldið mun hafa gengið frá sínum
lista og verða ekki neinar manna-
breytingar í efstu sætunum að því er
bezt er vitað.
Fjárlög
Roosevelts
eni 100 millj. ster-
lingspuiida lægri en
í fyrra.
LONDON:
Roosevelt Bandaríkjaforseti lagði
boðskap sinn um fjárlögin fram í
fulltrúadeild Bandaríkjaþings í gær.
Áætluð útgjöld eru 100 milljónum
sterlingspunda lægri en í fyrra.
Ráðgert er að verja minna fé en
í fyrra til opinberra verka, en meira
til þess að koma í veg fyrir tjón af
völdum flóða. Til landvarna er ráð-
gert að verja 11 milljónum sterlings-
punda meira en í fyrra, og verður
framlag það sem gert er ráð fyrir á
fjárlögunum í þessu skyni ef til vill
aukið síðar. FÚ.
Vctrarhörkur
í Míð-Evrópu
Aldrei mciri síð-
astliðin 10 ár.
LONDON:
í Mið-Evrópu eru nú hin mestu
frost, sem þar hafa komið í 10 ár.
í Suður-Þýzkalandi, Búlgaríu og
Tékkóslóvakíu er hið mesta fannfergi.
Samgöngur eru víða tepptar, bæði á
vegum og með járnbrautum. Á Ítalíu
eru einnig fádæma kuldar. Allar ár í
Ungverjalandi eru lagðar, nema
Donau, en í henni er mikið íshroð og
fer sívaxandi. Vegurinn milli Buda-
pest og Wien er ófær. í Tékkósló-
vakíu eru úlfar farnir að leita ofan
í mannabyggðir.
í Svíþjóð er einnig mikið fann-
fergi og frosthörkur. Er víða orðinn
vatnsskortur í sveitum og í Norður-
Svíþjóð gera úlfar orðið talsverðan
usla. FÚ.
Framsóknarílokknrinn bvður fram
Flagfélag
fær flugvél í
Gjaldeyrisnefnd hefir nýlega
veitt Flugfélagi Akureyrar inn-
flutningsleyfi fyrir flugvél.
Flugfélag Akureyrar var stofn-
að í júnímánuði s. 1. með 35—40
þús. kr. hlutafé. í stjórn þess
eru Vilhjálmur Þór kaupfélags-
stjóri (formaður), Kristján
Kristjánsson bifreiðaeigandi,
Guðmundur Karl Pétursson
læknir.
Vélin sem félagið kaupir nefn-
ist Vaco og er byggð í Banda-
ríkjunum, tvíþekju sjóflugvél
fyrir 4 farþega auk flugmanns.
Vélin hefir 225 hestöfl og flug-
hraðinn 200 km. á klst.
Norðmenn urðu fyrstir Ev-
rópuþjóða árið 1934 til þess að
kaupa eina vél ^af þessari gerð,
og féll þeim svo vel við hana, að
þeir keyptu aðra eftir 3 mánuði.
Með þessum tveim flugvélum
hefir verið unnið upp stórt flug-
félag í Noregi, sem heitir Viderö-
Flyveselskab, og nú á og starf-
rækir 12 flugvélar, aðallega í
innanlandsförum.
Tvær elztu vélarnar eru nú í
einkaeign í Svíþjóð og daglegri
notkun.
Samið var um kaup á flugvél-
inni þegar í haust, þar eð fyrir-
sjáanleg var hækkun á slíkum
tækjum, og því auðvelt að selja
hana ef ekki fengist innflutn-
FYRmSPURN
tll Einars Orgeirs-
sonar.
í Þjóðviljanum í gær stendur
m. a. eftirfarandi klausa:
„Sannleikurinn er sá — að
♦♦ hvergi í víðri veröld hefir al-
H menningur annað eins frjáls-
|| ræði til að stilla upp frambjóð-
|| endum og tryggja kosningu
|| þeirra eins og í Sovétríkjunum".
Vegna þessara og fleiri slíkra
ummæla vill Nýja dagblaðið
leggja eftirfarandi fyrirspurn
fyrir ritstjóra Þjóðviljans, Ein-
ar Olgeirsson:
Myndu kommúnistar ekki
reyna að koma á samskonar
„frjálsræði til að stilla upp
frambjóðendum og tryggja kosn
ingu þeirra" hér á landi, ef
þeir hefðu aðstöðu til þess?
Væri það lýðræði, ef Ólafur
Thors kæmist hér til valda og
breytti stjórnarskránni þannig
að ekki mættu aðrir tilnefna
frambjóðendur en félög verzlun-
armanna, bænda og verka-
manna, sem væru viðurkennd af
ríkisvaldinu, og sérstök nefnd,
skipuð af Ólafi Thors, ákvæði
það síðan endanlega, hverjir af
þessum tilnefndu frambjóðend-
um fengju að vera í kjöri?
u
Akureyrar
næsta mánuði
VILHJÁLMUR ÞÓR.
ingsleyfi. Er framkomin verð-
hækkun talin nema 6 þús. krón-
um, en kaupverðið er 50 þús.
krónur.
Vélinni fylgja hjól og skíði,
og verður henni breytt í land-
flugvél, undir eins og nothæfur
flugvöllur verður fyrir hendi hér
í Reykjavík, en rekstur sjóflug-
véla er miklu kostnaðarsamari
sakir þess hve ,,bátarnir“ valda
miklum þyngslum.
Agnar Koefoed-Hansen mun
stjórna vélinni, en ekki er henni
ætlað að verða í reglubundnum
ferðum, heldur höfð til taks hve-
nær sem þörf eða eftirspurn
verður fyrir hendi.
Ekki hefi verið ákveðið enn
um aðalsetur flugvélarinnar, en
talið líklegt, að hún verði að
jöfnu í Reykjavík og Akureyri.
Flugvélin er væntanleg hingað
um miðjan næsta mánuð.
Agnar Koefoed-Hansen flug-
maður hefir verið ráðunautur
Flugfélags Akureyrar um kaup-
in á flugvélinni.
Síðustu fregnir
Srá Vestm.eyjum
Seint í gærkvöldi bárust fregnir af
fundi þeim í Vestmannaeyjum, sem
samfylkingarmenn höfðu boðað til.
Höfðu þeir Páll Þorbjarnarson og
ísleifur þá fyrirhyggju að velja eitt
af minnstu fundarhúsunum á staðn-
um, sem aðeins tekur rúm 300 manns,
og var laumast til að fylla það að
mestu af „samfylkingarmönnum" fyr-
ir settan fundartíma.
Fengu þeir Framsóknarmennirnir
Jónas og Eysteinn ágætis hljóð og af-
bragðs undirtektir fundarmanna.
Fyrir Sjálfstæðisflokkinn töluðu
Ástþór Matthiasson og Ólafur Auðuns-
son, Alþýðuflokinn Páll Þorbjarnar-
son og Kristján Friöriksson, Komm-
íVestm.eyjum
Fjölmennur fund-
ur í fyrrakvöld
Fundurinn, sem Framsóknar-
flokkurinn boðaði til í Vest-
mannaeyjum í fyrrakvöld, var
einhver sá fjölmennasti, er þar
hefir verið haldinn. Voru mættir
á honum á sjötta hundrað
manns, en 100—200 manns urðu
frá að hverfa, vegna þrengsla í
fundarsalnum.
Á fundinum mættu Jónas
Jónsson og Eysteinn Jónsson af
hálfu flokksins. Talaði hvor
þeirra í rúma klst. Var ræðum
þeirra prýðilega tekið. í ræðu
sinni skýrði Eysteinn m. a. frá
því að Framsóknarflokkurinn
myndi hafa lista í kjöri við bæj-
arstjórnarkosningarnar í Vest-
mannaeyjum.
Eftir að þeir Eysteinn og Jón-
as höfðu talað var fundarmönn-
um gefinn ræðutími, ef þeir ósk-
uðu, til að gera fyrirspurnir.
Kom engin fyrirspurn fram,
nema frá Páli Þorbjarnarsyni,
sem spurði þá Eystein og Jónas,
hvort þeir vildu mæta á almenn-
um stjórnmálafundi, sem „sam-
fylkingin“ héldi næsta kvöld.
Játtu þeir því fúslega, en „sam-
fylkingin“ mun hafa vonast eft-
ir öðru svari.
Á eftir var haldinn flokks-
fundur til að ræða um framboð-
ið og sátu hann um 60 manns.
Framsóknarfélag hefir verið
starfandi í Vestmannaeyjum um
; nokkurt skeið og hefir fylgi
flokksins stöðugt verið að færast
í aukana. Á fundinum kom líka
fram mikill áhugi fyrir fram-
boðinu og má telja fullkomlega
öruggt að flokkurinn muni
vinna eitt sæti í bæjarstjórnar-
kosningunum. Er það líka eina
vonin til þess að hægt verði að
vinna meirihlutann af íhaldinu
og láta starfhæfa stjórn koma
í staðinn fyrir yfirráð þess.
Alþýðublaðið í gær fjand-
skapaðist mjög gegn þessu
framboði Framsóknarflokksins
og sýnir með því eins og oftar,
að það telur sér heppilegra, að
íhaldið sé sterkt en að Fram-
sóknarflokkurinn eflist. Enda er
það rétt, að óstjórn íhaldsins
skapar betri vaxtarskilyrði fyrir
öfgaflokka en umbótastefna
Framsóknarflokksins.
únistaflokkinn ísleifur Högnason og
Jón Rafnsson, og Nazistaflokkinn Sig-
fús Jónsson iðnnemi og Jón Kárason
verzlunarmaður.
Telja Framsóknarmenn í Eyjum að
listi Framsóknarflokksins eigi víst að
koma að manni.