Nýja dagblaðið - 22.01.1938, Síða 3
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
3
\ÝJA dai;blaðis
Útgefandi: Blaðaútgáfan h.í.
Rltstjóri:
ÞÓRARINN ÞÓRARENSSON.
Ritstj órnarskrif stof imiar:
Lindargötu li). Simar 4373 og 2353
Afgr. og auglýsingaskrifstofa:
Hafnarstræti 16. Simi 2323.
áskriftargjald kr. 2.00 á mánuði.
t lausasölu 10 aura eintakiö.
Prentsmiðjan Edda h.í,
Siml 3948.
Tvær kr. ástyrkþcga
Eín kr. til menníng-
ar og íramíara
Bæjarstjórn Reykjavíkur hefir
ákveðið að nú í ár skuli jafna
niður á bæjarbúa hálfri fimmtu
milljón króna. Eftir reynslunni
árið sem leið um framlög til fá-
tækrastyrks og óarðgæfrar vinnu
verða útgjöld til þeirra hluta í
ár ekki minna en þrjár milljónir.
Ástand bæjarins er því þannig,
að til styrkþega fara af tekjum
Rvíkur tvær krónur, þegar ein
króna fer til allra annarra þarfa
bæjarins.
Þetta er hryggilegt ástand.
Bærinn er peningalaus til allra
nauðsynlegustu framkvæmda. —
Fundir bæjarstjórnarinnar hafa
verið og eru enn haldnir í allra
ódýrustu samkomustöðum sem
til eru í bænum. Skrifstofur bæj-
arins eru í leiguhúsum. Engin
fundaherbergi fyrir bæjarstjórn.
Allra minnst dreymir Mbl.meiri-
hlutann í bæjarstjórn um að
bærinn þurfi að eiga húsakynni
til að taka á móti gestum sínum.
En samhliða því, að bærinn telur
sig ekki hafa ráð á að nota fé
það, sem borgararnir greiða, til
menningar eða framfara, þá vex
her þurfalinganna svo að segja
með hverjum degi. Eina gagnið,
sem meirihlutinn hefir af þurfa-
lingum, er að láta þá kjósa með
sér í bæjarmálum og til þings.
Það má fullyrða að Sjálfstæðis-
menn fái við þessar kosningar
nokkuð á 2. þúsund atkvæði frá
þurfalingum. Hinir styrkþegarn-
ir fylgja kommúnistum og Héðni
Valdemarssyni. Á báðum stöðum
er leikið með framfærslumálið og
alla þá eymd sem því fylgir, bæði
af almennu rænu- og hirðuleysi,
og í von um að geta með hjálp
þurfalinganna náð og haldið
húsbóndavaldi yfir bæjarsjóðn-
um.
Ég ætla að nefna þrjú dæmi
um framkvæmd fátækramál-
anna. Eitt dæmið snertir komm-
únista. Annað dæmið Alþýðufl.
og hið þriðja Sjálfstæðismenn.
Allir þessir flokkar eru í meðferð
fátækramála nálega á sömu „lín-
unni“, þó að deilt sé um önnur
efni.
Þriðja júlí 1932 sækja 42 fjöl-
skyldufeður í Vestmannaeyjum
um fátækrastyrk á einu og sama
undirskriftaskjali, og færa sem
ástæðu, að bæjarstjórn hafi ekki
byrjað almenna dýrtíðarvinnu
eftir kröfum þessara manna.
Hinn sameiginlegi inngangur yf-
ir undirskriftunum var með rit-
hönd þekktasta æsingamannsins
iiii iii iiiiiiiaiiiiiiiiiiiiiiiiiu ii iii 111111111111 iii i iii ■iiiiiiiiiiiiuiiH
„Vínir
Reykjavíkur“
Þeir vonuðu að hafa 8 i
i hendur móti 7 til að i
i hindra að börn í skólum |
I Rvíkur fengju mjólk og i
= lýsi. En þá mundi Hjalti §
1 eftir að bætiefni þarf til i
| að kiífa í Eldey og lét börn- |
i in hafa mjólkina.
„Vinir Rvíkur“ börðust i
i móti almennum gagn- |
| fræðaskóla í bænum á i
= þingi, f bæjarstjórn og í i
| blöðum sínum. Þeir hafa |
í fram að þessu hindrað að |
I skólinn fengi viðunanlegt 1
i húsnæði. |
E 5
............................
sem fylgir byltingastefnunni í
Vestmannaeyj um.
Næsta dæmið er Hafnarfjörð-
ur. Þar kom til orða að kaupa
jörð nokkra km. frá bænum
handa styrkþegum. Eh þangað
vildi enginn fara, heldur vera
inni í bænum. Leiðandi menn
bæjarmálanna fundu ennfremur
að styrkþegarnir vildu ekki eiga
heima í götunni við höfnina. Þar
þótti þeim of mikil umferð. Ekki
heldur yzt í bænum. Þar þótti
þeim of afskekkt. Þeir vildu vera
eins nærri óróanum og umferð-
inni eins og unnt var, án þess að
missa- ágæti kyrrðarinnar, nema
að því leyti sem þeim sjálfum
þótti góðu hófi gegna.
Höfuðstaðurinn kemur næst.
Ég hefi áður minnzt á dýra
styrkþega í Reykjavík. Nú vík ég
að eldri atburðum.
Bærinn leggur fé til handa
styrkþega að koma sér upp húsi
sunnan og vestan til í bænum.
Jafnframt er styrkþegi studdur
til að gera út bát suður með sjó.
Allt þetta endar með tapi i stór-
um stil. Þá er manninum fengin
jörð og bú austan við bæinn.
Hætt við útgerðina en nú skyldi
selja mjólk i bæinn. Þá kom á-
rekstur við lögregluna. Hestur
styrkþega, festur við mjólkur-
vagn, er innanvert við bæinn í
þvi ástandi, að lögreglan tekur
klárinn og kemur honum fyrir í
Tungu. Forráðamenn bæjarins
sýna styrkþega í hesthús bæjar-
ins og bjóða honum þar valinn
hest til afnota, en hann svarar
með stóryrðum og ásökunum í
sama tón og kommúnistar temja
sér. Nokkru síðar kemur styrk-
þegi að máli við Jón Þorláksson,
sem þá var borgarstjóri og biður
um 3000 kr. til .að koma upp
hænsnabúi. í það sinn fékk hann
neitun, en brást illa við, sagði
lausu ábýli sínu og sat um stund
í alldýru húsi utanvert við aust-
urbæinn og lifði þá eingöngu á
útsvörum, en ekki á neinni
framleiðslu. Eftir daga Jóns Þor-
lákssonar sannfærðist fátækra-
stjórnin um að búskapur sé þó
hentugur slíkum manni, og út-
vegar kostajörð til leigu. En í því
að piltur er að stíga upp í bílinn
og flytja sig í sveitina, man hann
eftir að hann vantar diskherfi
til jarðræktarinnar og neitar al-
gerlega að fara úr bænum, nema
að hann fái þetta jarðyrkjuverk-
færi. Tókst að vísu að fá disk-
herfi hjá manni, sem vildi styðja
fátækrastjórnina. Styrkþeginn
I Á KROSSGÖTUM
Smákaupmenn!
Sameinið ykkur!
Smákaupmenn una sem von
er illa skiptum við heildsalana,
þegar takmarka þarf innflutn-
ing vegna gjaldeyrisskorts. Til
að raska ekki atvinnuhlutföll-
um, hefir gjaldeyrisnefnd látið
heildsalana hafa hlutfallslega
innflutning eins og var, en þeir
seldu aftur smákaupmönnum,
eins og Sambandið kaupir inn
fyrir sínar félagsdeildir'.
Erlendis mynda smákaup-
menn sínar eigin heildsölur. Hér
eiga þeir að gera það líka. Það
skiptir miklu meira máli at-
vinnulega að 10 smákaupmenn
séu bjargálna og geti rekið
heilbrigða samkeppnisverzlun
við samvinnufélögin, heldur en
að skapa einn heildsala með
óeðlilega háum tekjum, á
kostnað margra smákaup-
manna.
í þessu sem fleiru geta sam-
keppnismenn lært það, sem
mestu skiptir af samvinnu-
mönnum.
Trúleysi borgarstjóra.
Pétur Halldórsson er sagður
kirkjurækinn maður og líklegur
til að trúa því að heimurinn
hafi verið skapaður á sex dög-
um. En hann er trúlaus á fram-
tíð Reykjavíkur. Þegar komið er
til hans með umbótahugmyndir,
þá er vanasvar hans þetta: „Ég
trúi ekki á þetta“. Það er lítið
gagn fyrir bæinn, þó að borgar-
stjórinn kunni að trúa á tilveru
Kölska, ef hann trúir ekki á lífs-
möguleika bæjarins og þeirra,
sem í bænum búa. Trúleysi borg-
arstjóra kemur m. a. fram í því
að hann heldur að Reykjavík
þurfi engan flugvöll. Honum fer
eins og fyrirrennurum hans, sem
héldu að götur bæjarins væru
nógu breiðar, ef tvær hestkerr-
ur gætu komizt leiðar sinnar í
gagnstæðar áttir. Halda menn
að þvílíkt fólk geti byggt mynd-
arlega höfuðborg.
íþróttamál
Reykjavíkur.
Tvö stóru og myndarlegu
sporin, sem stigin hafa verið í
íþróttamálum Reykjavíkur eru
sundhöllin og íþróttahús Jóns
Þorsteinssonar. Nú er fyrir
höndum að vinna ný þrekvirki.
Enn hefir hin dauða hönd kyr-
stöðunnar lagzt á hinar stóru
ráðagerðir Framsóknarmanna,
sem þeir hafa barizt fyrir í bæj-
arstjórn Reykjavíkur í 8 ár.
Þeir vilja gera alla Vatnsmýr-
ina frá Tjörninni og suður að
Öskjuhlíð að samfelldum
skemmtigarði. Vestan við Öskju-
hlíð vilja þeir koma upp stór-
kostlegum og margbreyttum
leikvangi fyrir allar útiíþróttir í
bænum. f Nauthólsvík vilja þeir
gera glæsilegan sjóbaðstað og
innar í Skerjafirði bátahöfn fyr-
ir skemmtibáta bæjarbúa. Vatns
mýrin verður þá fyrir Reykjavík,
það, sem Hyde Park er fyrir
Lundúnabúa.
Akranespólitík.
Síldarbræðsla á Akranesi
myndi alls ekki hafa komizt í
framkvæmd nema af því að Ey-
steinn Jónsson ráðherra útveg-
aði lán til fyrirtækisins, sem
öðrum reyndist ókleift að fá. í
landi því hinu mikla, 500 ha. að
stærð, sem J. J. seldi Akranes-
kauptúni, er afarmikið mónám
og mótekja og víst eftir rann-
sóknum Guðjóns Samúelsonar
húsameistara að þar verði innan
skamms reist verksmiðja til að
gera einskonar kol úr mónum.
Rafleiðslan til Akraness frá Sog-
lagði þá af stað, og nú er disk-
herfið úti í mýri á leigubýiinu,
sem sýnilegur vottur um þann
búskap sem stofnað var til í því
skyni að tryggja bæjarstjórnar-
meirihlutanum atkvæði mann-
margrar styrkþegafjölskyldu.
Seinasti búhnykkurinn í sam-
bandi við þennan mann er það,
að hann heimtaði og fékk 300
kr. til að kaupa ökuhest til
búsins. Á sama tíma keyptu aðr-
ir menn slíka hesta fyrir sig á
180 kr.
Þannig er blærinn á fátæra-
málunum. Annarsvegar eru
kommúnistar, sem segja til
sveitar á einum lista 40 fjöl-
skyldur í sláttarbyrjun — sama
árið og þeir lögðu til efnið í 9.
nóv. í Rvík. Aðstaða kommúnista
er auðsæ. Þeir vilja sökkva þjóð-
arskútunni í von um betri daga
eftir byltingu þá, sem þá dreymir
um. í Hafnarfirði hefir Alþýðu-
flokkurinn ráðið fátækramálun-
um, en Sjálfstæðismenn í Rvík.
Enginn munur er á framkomu
þessara flokka. Báðir leika at-
kvæðaskopleik með fátækramál-
in. í báðum bæjunum er hags-
munum þeirra, sem vinna fyrir
sér, fórnað vegna ímyndaðra
hagsmuna styrkþeganna. í hvor-
ugum bænum er sett upp mötu-
neyti með einfaldri innlendri
matargerð. í báðum bæjunum
ráðstafa styrkþegarnir sjálfir
framlaginu. Þeir geta keypt á-
fengi og munaðarvöru, eða
tízkuklæðnað fyrir útsvör þeirra,
sem vinna fyrir sér og halda uppi
dýrum her hinna vinnulausu.
Og nú er svo komið I Reykja-
vík, að útsvörin ætla að sliga
mikinn hluta þeirra gjaldenda,
sem borga ennþá opinber gjöld.
Og þegar ein króna gengur úr
bæjarsjóði til menningar og
framfara í Reykjavík, þá fara
tvær í styrk til framdráttar hin-
um sívaxandi h'er bæði þeirra
sem ekki geta unnið, og þeirra,
sem annaðhvort ekki vilja vinna
eða fá ekkert að gera.
Framsóknarflokkurinn einn
allra flokka getur bjargað við
þessu mesta máli Reykjavíkur.
Hvort viðréttingin byrjar nú eða
eftir nokkur misseri, fer eftir
þeim liðsstyrk, sem bæjarbúar
veita Framsóknarflokknum 30.
janúar næstkomandi.
J. J.
UIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII
„Fjandmenn
Reykjavíkur" I
(Sbr. J. Möller
og V. St.)
Hvað finnst hinum |
I „s ö n n u“ vinum Rvíkur §
| um það að Framsóknar- |
| menn hafa komið því til |
1 leiðar, að nú fá börnin í \
\ skólum bæjarins 1000 lítra I
1 af mjólk ðaglega og mik- 1
i ill fjöldi sömu skólabarna \
i meðalalýsi daglega.
Og hvað á að segja um i
I þá framkvæmd „fjand- 1
É mannanna", að koma upp i
| „Ingimarsskóianum" til að |
| veita unglingum af fátæk- |
1 um heimilum kost góðrar |
| fræðslu. Mörg hundruð f
i æskumenn i bænum eiga i
I þessum skóla að þakka i
| alla sína framhaldsmennt- 1
I ^n. |
............
inu er sérstakt áhugamál Fram-
sóknarmanna á Akranesi og Sig-
urðar Jónassonar.
Olíusalan
í Vestmannaeyjum.
Magnús Kristjánsson og Fram
sóknarflokkurinn brutu á bak
aftur kúgun ameríska oliu-
hringsins 1922 með einkasölu á
olíu. íhaldið lagði það bjarg-
ráð að velli 1924 með því að
hleypa Shell inn í landið. Héð-
inn Valdimarsson hafði verið
aðstoðarmaður hjá M. Kr. við
olíuverzlunina. Var reynt að
byrja samkeppnisverzlun móti
Shell um olíu, og var Héðni
Valdimarssyni falin forustan.
En innan skamms var hann bú-
inn að gera fyrirtækið að sínum
gróðarekstri, og féll síðan alger-
lega í faðm Shell um oliuverð-
ið. Var nú komið sama eymdar-
ástand fyrir útveginn eins og
var áður en Framsóknarmenn
hófu baráttu sína móti olíuokr-
inu fyrir 1922. Héðinn hafði nú
algerlega brugðist í málinu, og
lamaði Alþýðuflokkinn, sem
annars myndi hafa fylgt Fram-
sóknarmönnum í nýja sókn. Á
síðasta kjörtímabili hafa ýmsir
áhrifamiklir Framsóknarmenn
stutt „Nafta“ til samkeppni við
Héðinn og Shell og hefir sú
starfsemi haft stórmikla þýð-
ingu. En höfuðsóknina gera
Vestmannaeyingar nú með sín-
um 800 smálesta tank. Og Fram-
sóknarmenn hafa stutt þá í bar-
áttu sinni um innflutninginn.
Úr Keflavík.
Keflavík hfeir átt bágt í hönd-
um íhaldsins. Kauptúnið er selt
hæstbjóðanda á fárra ára milli-
bili. Engin hafnarmannvirki
sem bærinn á. Landið óræktað
allt í kring, og bíður eftir fram-
taki eins og því sem Vest-
mannaeyjar sýna í ræktun. —
Mesta byggingin í Keflavík er
kvikmyndahúsið, sem reist var í
fyrra, og Framsóknarmenn
studdu mikið að, einkum Dani-
val Danivalsson. í þessu kvik-
myndahúsi er mesti fundarsalur
kauptúnsins, gott leiksvið og
tvær þægilegar stofur fyrir ung-
lingaskólann, sem sr. Eiríkur
(Pramhald á 4. siðu.)